Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1982, Síða 17
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. MÁNUDAGUR 7. JÚNl 1982.
17
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Svívirding-
um svarað
„höfundur skrifanna lífs-
leiður nöldurseggur”
Halldór HaUdórsson, 3582-8419
skrifar:
I DV, 27. maí sl., eys Magnús
Sigurösson svívirðingum yfir nokkra
frambjóöendur B-Ustans til bæjar-
stjómar í Hafnarfiröi viö sveitar-
stjómarkosningar 22. maisl.
Nú hefur eflaust einhver haldiö, eins
og ég að þetta væm skrif einhvers af-
gamals, lífsleiðs nöldurseggs. sem
þyrfti aö beina athyglinni aö sjálfum
sér. VafaUtiö er höfundur skrifanna
lifsleiöur nöldurseggur, en afgamaU er
hann ekki. Samkvæmt þjóðskránni
auðkennir nafnnúmeriö, 6281—9561,
MagnúsSigurðsson, til heimUis í Kópa-
vogi og fæddan áriö 1950.
Nú er þaö gleðilegt að íbúi í Kópa-
vogi, um árabU, láti sig nokkru varöa
málefni Framsóknarflokksins í
Hafnarfiröi, en ljóst er aö Magnús
hefur aUs ekki kynnt sér málin nægi-
lega vel.
Þaö var nefnUega lýðræðislega stað-
iö aö skipan framboöslistans í forvaU.
með þátttöku 100 framsóknarmanna
úr Hafnarfiröi. Hvorki Jón Pálmason
né Ragnheiður Sveinbjömsdóttir, það
prýðisfólk, höföu meiri áhrif á skipan
Ustansenhin98.
AUt þaö fólk, sem Magnús nefnir í
umræddu lesandabréfi, var þess verð-
ugt aö skipa efstu sæti Ustans, en
framsóknarfólk í Ha&iarfiröi ákvaö í
forvaU hver skyldi skipa hvaöa sæti.
Þó skal tekið fram aö Eiríkur
Skarphéðinsson óskaöi þess aö vera
ekki ofar en í 5. sæti vegna anna viö
mikilvæg störf í HafnarfiröL Auðvitað
nýtur Framsóknarfiokkurinn áfram
reynslu EirUcs í bæjarmálum Hafnar-
fjaröar.
Um svívirðingar Magnúsar í garð
Arnþrúðar Karlsdóttur og Ágústs
Karlssonar þarf ekki aö hafa mörg
orö. Þær dæma sig sjálfar og hitta höf-
und sinn fyrir sjálfan. ÆtU megi ekki
segja að þau orð vom fyrirfram dæmd
ómerk þar sem Framsóknarflokkur-
inn jók fylgi sitt hlutfallslega mest
allra flokka í Hafnarfirði í kosningun-
um 22.maísl.
I upphafi þessara skrifa sagöi ég aö
Magnús væri aö vekja athygli á sér
sjálfum. Þaö tókst og verða honum nú
send þau eintök Hafnfiröings, sem
komið hafa út frá áramótum, honum
tU glöggvunar og fróöleiks.
2035—3234 saknar Svavars Gasts, „sam sá um aO hafa eitthvaö fyrir alla"
ekki einungis tónlist er fremur höfOar tH unglinganna.
Ábending til útvarpsins:
MH>K) EKKI
EINUNGIS VIÐ
UNGUNGANA
— of mikið um rokk og pönk?
2035—9234 hringdi:
Ég er eldri kona og ég vUdi óska
þess aö útvarpið sæi sér fært að hafa á
dagskrá sinni svo sem eina syrpu á
viku með tónlist sem eldra fólk kærir
sig um að heyra.
Eg vil að ungUngarnir fái sitt, en tón-
Ustin í þessum þáttum virðist einungis
miöast viö þann aldurshóp. Þetta er
svo til aUt rokk og pönk og því oft út-
varpað á tímum þegar ekki er ósenni-
legt aö jafnvel fleira eldra fólk en ungl-
ingar sé Uklegt tU þess aö hlusta. Því
sakna ég Svavars Gests sem sá um að
hafa eitthvað fyrir aUa.
Opið bréftii
framsóknarmanna
íHafnarfirði:
Efstu menn
á listanum
óþekktir
— Framsóknarflokkur
inn hefur„orðiðsér
og sínum til athlægis
íHafnarfirði”
Magnús Sigurðsson, 6281—9561,
skrifar:
Ég hef enn ekki náö mér fyllilega eft-
ir þá ömurlegu stjómmálastefnu og
rugl er fram kom hjá framsóknar-
mönnum í Hafnarfiröi í sjónvarpinu
nýlega. Því í ósköpunum var stillt upp
alls óreyndri og óþekktri dekurdúkku
sem ekkert veit né skilur í hafnfirzkum
málum? Hvaö þá aö koma meö
kennarablók úr Iönskólanum í Reykja-
vík. Að láta sér detta í hug aö tefla
fram öðrum eins viðundrum og þess-
um tveim manneskjum sem ekkert
vissu og enginn Hafnfiröingur þekkir
né vill þekkja. Þaö va?ri svo sem eftir
Jóni Pálmasyni aö stjóma þessu.
Gaman væri aö fá aö vita hverjir
stóöu aö þessu rugli. Þama var völ á
nöfnum eins og Eiríki Skarphéöinssyni
sem er virtur og dáður af Hafnfiröing-
um. Hann heföi átt aö vera í 2. sæti en
var haföurí 5. sæti. Þoriákur Oddsson
var síöan í 7. sæti en heföi getað veriö í
1. sæti, aö ógleymdum mönnum eins og
Vilhjálmi Sveins og mörgum öömm
sem heföu átt aö vera i 5 efstu sætun-
um fremur en eitthvert ókunnugt fólk.
Ég er hissa á Ragnheiði, þeirri
ílskulegu konu, aö samþykkja þessa
jppstokkun. Nei, Framsóknarflokkur-
jui hefur meö þessari skipan orðiö sér
)g sínum til athlægis i Hafnarfirði og
/ona ég innilega aö hann láti sér þetta
aö kenningu veröa. Ég vona einnig aö
leiri reiöir framsóknarmenn láti
■»evra frá sér um þetta málefni.
Bróf6281-9661 birtist f blaðinu 27. maisi.
Message
rafmaqns-
ritvélar
Litla Message 860 ST rafmagnsritvélin er alvöru ritvél. Letur-
borðið erfullkomið með dálkastilli. Vélin erstöðug og traust,
en tekur þó sáralítið pláss.
Message 990CR er eins byggð og 860 ST vélin en hefur leið-
réttingarborða að auki.
Message 860 ST eða 990 CR er tilvalin ritvél fyrir minni fyrir-
tæki, í skólann eða á heimilið.
Verðið er ótrúlega hagstætt.
v.Miftf/.
SKRIFSTl OFUVÉLAR H.F.
Hverfisgötu 33 — Simi 20560 — Pósthólf 377
Reykjavík