Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1982, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1982, Síða 28
36 DAGBLAÐIÐ & VlSIR. MÁNUDAGUR 7. JUNl 1982. Andlát Bára Sigurðardóttir, Yrsufelli 20, lézt 31. maí. Hún var fædd í Reykjavík 1. marz 1928, dóttir hjónana Estherar Helgu Olafsdóttur og Sigurðar Guðbjartssonar. Bára giftist Guð- mundi G. Péturssyni og eignuöust þau 3 börn. Utför Báru verður gerð frá Bústaðakirkju í dag, 7. júní, kl. 13.30. Kristján Kristinsson frá Hrísey, síðast til heimilis að Skúlagötu 58, lézt 31. maí. Hann fæddist 18. nóvember 1908. Foreldrar hans voru hjónin Kristinn Kristjánsson og Guðrún Kristjáns- dóttir. Hann var giftur Sigrúnu Þor- láksdóttur og eignuöust þau 3 böm. Utför Kristjáns verður gerð frá Foss- vogskirkju í dag, 7. júní, kl. 13.30. Hrefna Pétursdóttir, Gnoðarvogi 22, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 8. júní kl. 13.30. Anna Kristinsdóttir, fyrrum húsfreyja , í Fellsseli Köldukinn, andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri mánudaginn 31. maí. Utför hennar veröur gerð frá Akureyrarkirkju föstudaginn 11. júníkl. 13.30. Renata B. Kristjánsdóttir, lézt í Landspítalanum 3. júní sl. Hannes Þór Olafsson, Ferjubakka 10, verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju þriðjudaginn 8. júní kl. 10.30. Höskuldur Baldvinsson, Dalbraut 27, áður til heimilis að Bergstaðastræti 72, verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju miðvikudaginn 9. júní kl. 1.30. Jón ívarsson, Víðimel 42, lézt 3. júní. Kristinn J. Guðjónsson, Hringbraut 136 d Kelflavík, lézt að heimili sínu fimmtudaginn 3. júní. Bæjarstjórn Kópavogs: Viðræðum ólokið Viðræður standa enn yfir á milli Alþýðuflokks, Alþýðubandalags og Framsóknarflokks um myndun meirihluta í bæjarstjórn Kópavogs. Bjöm Olafsson, bæjarfulltrúi Alþýðubandalags, kvaöst vongóður um að samkomulag um meirihluta þessara flokka náist á næstu dögum. -GSG. Ók fyrir sjúkrabíl Sjúkrabíll og fólksbifreið lentu í á- rekstri viö Nesti í Fossvogi, í gær, sunnudag. Var sjúkrabílhnn að koma frá slysstaö í Hafnarfirði. Er hann var kominn á Kringlumýrarbrautina á móts iö Nesti beygði fólksbifreiðin skyndilega fyrir sjúkrabílinn. Var fólisbíllinn á hægri akrein, en ætlaði að skipta yfir á þá vinstri. Engin slys urðu á fólki. Báöar bifreiðirnar em lítið skemmdar, þrátt fyrir að sjúkra- bíllinn hafi veriðá talsverðriferð. -JGH. Tilkynningar Listahátíð í Reykjavík 5.-20. júní, 1982. DAGSKRÁ: Mánudagur 7. júní kl. 20:00 Þjóöleikhúsiö Silkitromman Ný ópera eftir Atla Heimi Sveinsson og örnóll Áraason. önnur sýning. KL: 21:00 Háskólabíó Tónleikar Gldon Kremer og Oleg Maisenberg leika á fiölu og pianó. Þriöjudagur 8. júní kl. 20:00 Gamla Bió Úr aldaannái Sýning Litla leikklúbbsins á nýju leikriti eftir Böövar Guðmundsson. Leikstjóri: Kári Halldór. Kl. 20:00 Þjóðleikhúsiö Silkitrommau Ný ópera eftir Atla Heimi Sveinsson og örnólf Árnason. Síöasta sýning á Listahátið. Kl. 20:30 Norrænahúsið Vísnasöngur Olle Adolphson syngur sænskar vísur. Síöari tónleikar. Miövikudagur 9. júní kl. 19:00 Laugardalshöli Tónleikar Sinfóníuhljómsveit Islands. Stjórnandi David Measham. Einleikari James Galway, flauta. Föstudagur 11. júní kl. 20:30 Þjóðleikhúsið Bolivar Viðtækjaþjónusta Skjót viðbrögð Þaö er hvimleitt aö þurfa aö biöa lengi meö bilaö ralkerli, leiöslur eöa tæki Eöa ný heimilistæki sem þarf aö leggja tyrir Þess vegna settum viö uþþ neytendaþjónustuna - meó harösnúnu liöi sem bregöur sk/ótt viö. • RAFAFL Smiðshöföa 6 ATH. Nýtt simanúmer: 85955 RAFLAGNAVIÐGERÐIR OG NÝLAGNIR Dyrasímaþjónusta. Endurnýjum gömlu raflögnina, látum skoöa yður aö kostnaðarlausu. Önnumst allar nýlagnir og teikningar. Viðgeröir á dyrasímum og uppsetning á nýjum. vSal"rk'Sár“ki' EÐVARÐ R. GUÐBJÖRNSSON, sími 21772 og 71734. Sjónvarpsviðgeröir Heima eða á verkstæði. Allar tegundir. 3ja mánaða ábyrgð. Skjárinn, Bergstaðastræti 38. Dag-, kvöld- og helgarsimi 21940 Um helgina Um helgina Ekki þagði útvarpið lengi Utvarp Reykjavík, önnur af tveimur útvarpsstöðvum í landinu og sú eina sem allir landsmenn ná, hóf útsendingar að nýju rétt fyrir klukkan nítján á laugardag þegar tæknimenn samþykktu að koma aftur til starfa. Hafði Utvarp Reykjavík þá þagað frá kvöldi fimmtudags. Vissulega er það mjög slæmt að eina ísl. útvarpsstöðin hérlendis skuli hætta útsendingum. Sem betur fer varð þetta ekki langt stopp og því held ég að margir hafi tekið því sem ágætis tilbreytingu. Gott veður gerði það líka að verkum að færri en ella hefðu lagt eyrun við útvarpi. Uppsagnir tæknimannanna beina enn huganum að þessari nýju baráttuaöferö opinberra starfs- manna. Ef samstaða viðkomandi starfshóps er algjör virðist hið opin- bera ekki eiga marga leiki í stöð- unni . Það er beinlínis knúið til að ganga til samninga og semja sem allra fyrst, a.m.k. þegar um starfs- stéttir innan heilbrigðiskerfisins er aö ræða. I þeim tilvikum er um heilsu manna að tefla. Satt að segja átti ég alveg eins von á lengri útvarpsstöðvun því þörfin á aö opna fyrir Ríkisútvarpið er ekki eins mikil og að opna sjúkrahúsin. Það verður engum illt af að hlusta ekki á útvarp í nokkra daga eöa jafn- vel einhverjar vikur. Ríkisvaldið hafði því tækifæri til að sýna hörku eins og Reagan Bandaríkjaforseti gerði þegar flugumferðarstjórar í Bandaríkjunum beittu sömu aðferð. Þeir flugumferðarstjórar eru ekki enn komnir til starfa. Samt er flogið í Bandaríkjunum. Nær öruggt má telja að fleiri starfsstéttir fylgja í fótspor lækna, hjúkrunarfræðinga, og tæknimanna útvarps svo einhverjir séu nefndir. Lögreglumenn eru óhressir með kjör sín, sömuleiðis kennarar. Framm- ámenn beggja þessara starfshópa hafagefið í skyn aö þeir hyggi á svipaðar aðgerðir. En hvaða svar á ríkið? -Kristján Mór Unnarsson. Afmæli Minningarspjöld Rajatabla-leikhúsiö frá Venezuela. Leikstjóri Carlos Giménez. Fyrri sýning. Kl. 21.00 Laugardalshöll Hljómleikar Brezka popp-hljómsveitin The Human League. Fyrri hljómleikar. Laugardagur12. júní kl. 16:0« N orræna húsiö TrúAurinn Ruben Síðari sýning sænska trúösins Rubens. Kl. 20:0« Þjóóleikhúsið Bolivar Rajatabia-leikhúsið frá Venezuela. Leikstjóri Carlos Giménez. Síðari sýning. Kl. 21:00 Laugardalshöll Hljómleikar Brezka popp-hljómsveitin The Human. League. Síðari hljómleikar. Sunnudagur 13. júní kl. 15:00 Háskólabíó Tónlelkar Kammersveit Listahátíðar, skipuð ungu is- lenzku tónlistarfólki, leikur undir stjórn Guðmundar Emilssonar. kl. 21:00 Gamla Bíó African Sanctus Passíukórinn á Akureyri. Mánudagur 14. júní Kl. 20:00 Þjóðleikhúsiö Forseti lýðveldisins Rajatabla-leikhúsið frá Venezuela. Leikstjóri Carlos Giménez. Fyrri sýning. Þriðjudagur 15. júni kl. 20:00 Þjóðleikhúsið Forseti lýðveldisins Rajatabla-leikhúsið frá Venezuela. Leikstjóri Carlos Giménez. Síðari sýning. Miðvikudagur 16. júni kl. 21:00 Háskólabió Tónleikar Einleikur á píanó: Zoltán Kocsis. Föstudagur 18. júní Kl. 20:30 Gamla Bíó Tónleikar Brezka kammersveitin The London Slnfoni- ettaleikur. Laugardagur 19. júní kl. 20:30 Leikfélag Reykjavíkur Skilnaður Frumsýning á nýju leikriti eftir Kjartan Ragnarsson, sem einnig er leikstjóri. Sunnudagur 20. júní kl. 17:00 Laugardalshöil Tónleikar Sinfóníuhljómsveit Islands. Stjórnandi: Gil- bert Levine. Einsöngvari Boris Christoff, bassi. ki. 20:30 Leikfélag Reykjavíkur Skilnaður önnur sýning á nýju leikriti eftir Kjartan Ragnarsson. Aðgöngumiðasala í Gimli opin aila daga ki. 14—19.30. Shni: 29055. Kvennaframboðin 1908-1926 — ný bók í ritröðinni um íslenzk þjóðfélagsfræði Kvennaframboðin 1908—1926 nefnist ný bók eftir Auði Styrkársdóttur sem Bókaútgáfan örn og Örlygur hefur sent frá sér. Bókin er áttunda bókin í ritröðinni „Islenzk þjóðfélags- fræði” og fjallar bókin um stjórnmála- hreyfingar kvenna á fyrstu tveimur ára- tugum aldarinnar, rætur þeirra, megin- einkenni, stefnumál, fylgi og endalok. Sér- kenni kvennahreyfingarinnar á tslandi eru leiddi í ljós með samanburði við erlendar 8 Auöut Styrkérsdóttir j Kvennaframboðin I 1908-1926 I 'ýýí-Cx * " I ® hreyfingar. I bókinni er lýst réttindabaráttu kvenna, atvinnuþátttöku þeirra, þróun verka- kvennafélaga og kvenfélaga sem höfðu áhrif á stjórnmálaþátttöku kvenna. Lokakafli bók- arinnar fjallar um forvígiskonur framboðs- hreyfingarinnar, stéttarlega stöðu þeirra, ættir, menntun, félagsstörf og tengsl við valdakerfið í landinu. 1 formálsorðum höfundar kemur m.a. fram að bókin er að stofni til lokaritgerð í félagsfræðum, sem höfundur lagði fram við Háskóla Islands voriö 1977, en viö útgáfuna hafi ritgerðin þó tekiö stakkaskiptum, nýju efni heföi verið safnaö og sumir kaflarnir endurskrifaðir. Ritstjóri ritanna „Islenzk þjóðfélagsfræói” er Olafur Ragnar Grímsson, en í ritnefnd eru Haraldur Olafsson, Svanur Kristjánsson og Þorbjörn Broddason. Stendur Félagsvísinda- deild Háskóla Islands að útgáfunni með Bóka- útgáfunniErnragCirlygihf^^^^^^^^^ Sigurður Kr. Sigurðsson, framkv.stj. G. Hinriksson h/f, ásamt nemendum og kennur-. Iðnskólinn fær hjólastilli- búnað fra G. Hinrikssyni. Atvinnurekendur í borginni hafa að undan- förnu sýnt skólanum mikinn áhuga. Skólinn hefur þegið af þeim hverja stðrgjöfina á fætur um Iðnskólans. — Hjóiastillibúnaðurinn í notkun. annarri. Nýlega gaf fyrirtækiö G. Hinriksson h/f skólanum hjólastiÚibúnað frá V. Löverer í Danmörku. Þessi búnaður hefur komið skól- anum mjög vel og stuðlar tvímælalaust að bættri hæfni bifvélavirkja. Jötunn h/f færir Iðnskólanum gjöf. Skólinn hefur fengiö höföinglega gjöf frá Jötni h/f. Þetta er stýritafla, kennslutæki í stýri- tækni frá Telemecanique, heimsþekktu fyrir- tæki á þessu sviöi. Þessi búnaður er mjög fjöl- hæfur og hentar vel við lausn stórra sem smárra verkefna. Jötunn h/f hefur ákveðið að fela nemendum Iönskólans að setja saman 5 samskonar tæki til viðbótar. Þessi tæki verða síðar gefin öðrum iðnfræðsluskólum. Minningarkort Samtaka sykursjúkra, Reykjavík fást á eftirtöldum stöðum: Reykjavík: Bókabúð Braga, Lækjargötu, Háaleitis- apóteki Austurveri, Lyfjabúð Breiöholts, Arnarbakka. Kópavogl: Bókabúðin Veda, Hamraborg. Garðabæ: Bókabúðin Gríma, Garðaflöt. Hafuarfjörður: Bókabúð Olivers Steins, Strandgötu. Mosfellshreppur: Bókaverzlunin Snerra, Varmá. 60 ára er í dag Ólafur E. Stefánsson nautgriparæktarráðunautur. Hann er fæddur á Eyvindarstöðum á Álftanesi, sonur hjónanna Stefáns Jónssonar og Hrefnu Olafsdóttur. Olafur útskrifað- ist með R Sc. próf í búfræði 1947, síðan hefur hann veitt nautgriparæktinni forystu. Hann hefur gegnt f jölmörgum nefndar- og stjórnarstörfum. Ölafur geröist ráðunautur hjá sambandi naut- griparæktarfélaga, síöar réðst hann til Búnaðarfélags Islands. Hann er búsettur að T jöm á Alftanesi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.