Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1982, Page 31

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1982, Page 31
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. MANUDAGUR 7. JONI1982. 39 Sandkorn Sandkorn Sandkorn Eyjótfur ísfeld að hætta hjá Sölumiðstöðinni? Sú fregn hefur borizt Sand- korninu að Eyjólfur Lsfeld Eyjólfsson, forstjóri Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna, sé um það bil að láta af störf- um. Eyjólfur hefur um árabil verið einn helzti taismaður fiskkaupenda hérlendis. Kornið kannaði mállð hjá Eyjólfi og neitaði hann þessu ekki, en ekki vildi hann játa heldur. Sagði hann þetta vera tO athugunar og myndi málið skýrast á næstunni. Pípin koma úr barka töhmnnar Hygglst þú hringa i bœki- stöð Norrœnu eldfjalla- stöðvarinnar í Mývatnssveit, sem hefur síma 96-44153, getur þú átt von á því að þér verði svarað með skerandi pípi. Þú skalt þá ekki halda að símakerfiö hafi farið úr- skeiðis. Kunnugur maður sagði okkur nefnilega að pipið kæmi frá tölvu, sem fyigist grannt með mælum sem við hana eru tengdir. Mun pipið vera hljóðmerki. Er það óskiijanlegt öilum nema ann- arri tölvu í Reykjavík. I hljóð- merkinu felast upplýsingar um hræringar á Kröflusvæð- inu. Svari sími Norrænu eldfjallastöðvarinnar þér með pipi, veiztu semsagt að það er ekki til þín, heldur til tölvu. Frímúrarar malbika! Gilsbakkávegur heitir ein af brattari götunum á Akur- eyri og er ein ófárra sam- gönguæða í plássinu sem ekki hefur verið þakin malbiki. Ástæðan ku vera mikil hálka þar á vetrum. En nú er sá varaagU að engu orðinn, þvi að ráðgert er að malbika nefnda götu í sumar, eða að minnsta kosti að hluta. Og hversvegna? Frimúrarar voru víst að stækka húsnæði sitt sem er tU stáðar efst í götunni. Er þeim framkvæmdum nú að mestu lokið og því ekkert sjálfsagð- ara en að hafa svolítið þrifa- legt i kringum sig og sína! Okkur hjá er engin sorg Svo sem vænta mátti era ekki alllr sammála ÁK þelm, sem orti í Sandkoraið um sorg alþýðunnar vegna dómsins sem féU í Daviðs- borg kosninganóttina. Ágúst Sæmundsson leggur fram ef tirf arandi breytingartUlögu við vísu ÁK: Okkur hjá er engin sorg, aUt i þessu fina. Við unnum aftur okkar borg alþýðan þekkir sína. Akureyríngar undanskildir Sem kunnugt er hefur starf- semi atvinnuleikhúss á Akur- eyri gengið brösuglega á siðari áram. Hefur barátta þess fyrir auknum fjár- framlögum frá riki og bæ verið mikU, en árangursIitU. Akureyrskir leikarar hafa þvi ugglaust ætlað máU sinu mikinn hlut á Norræna leik- listarþinginu sem nú er haldið í Reykjavík. Þar er einmitt aðaláherzla lögð á umræðu.hver styrkur ríkis tU lcikhúsa eigi að vera og i hvaða mynd. En af f jórum at- vinnuleikhúsum sem á íslandi starfa eru aðeins þátttakendur frá þremur. Norðanmenn eru sem sagt undanskUdir. Ástæðuna vitum viö ekki. Umsjón Jónas Haraldsson. Kvikmyndir_________Kvikmyndir NÝJA BÍÓ: Forsetaránið Misheppnað forsetarán Heiti: The Kidnapping of the President Leikstjóri: George Mendeluk Handrít: Richard Murphy eftir samnefndri bók Charies Templeton. Klipping: Michael McLaverty Kvikmyndun: Michael M'ailoy Tónlist: Paul J. Zaza Gerð f Kanada 1979. Hryðjuverkastarfsemi hefur veriö mikið í sviösljósinu undanfarinn ára- tug. Morð hafa verið framin á hátt- settum embættismönnum, mann- virki sprengd í loft upp eða einstaklingum rænt og síðan krafist svimandi hárra upphæða í lausnar- gjald. Hér er oft um aö ræða alþjóð- lega hryðjuverkastarfsemi og virð- ast hryðjuverkamenn á borð við þann fræga Carlos geta iaumast úr einu landinu til annars án vand- kvæða. Yfirleitt er tilgangurinn að baki þessarar hryðjuverkastarfsemi að leggja áherslu á þá pólitísku hugsjón sem viðkomandi eru að berjast fyrir. Tilgangur hryðjuverkamannanna í myndinni Forsetarániö er á sömu línu, en að þeirra sögn er ætlunin að kenna Bandaríkjunum auðmýkt samtímis því að fá væna fúlgu í vas- ann í formi lausnargjalds. Illmennið Assanti Myndin hefst í frumskógum Argentínu og þar kynnumst við skæruliðanum og skipuleggjanda forsetaránsins, Roberto Assanti. Hann hefur sagt skilið við félaga sina í Mano Verde, samtökum marxista og hyggst nú færa út kvíarnar upp á sínar eigin spýtur og ræna forseta Bandaríkjanna. Áhorfendur verða vitni að nokkrum sóðalegum morð- um á fyrrverandi félögum Assanti sem eiga að u ndirstrika hve mikið ill- menni hann sé — að hann svífist einskis til að ná takmarki sínu. Síðan liggur leiðin til Kanada, nánar tiltekið til Toronto, þar sem von er á forseta Bandaríkjanna, Adam Scott, í opinbera heimsókn. Assanti ásamt félaga sinum tekst aö ræna forsetanum þar og krefst síðan lausnargjaldsins ásamt því að hann fái að fara óáreittur úr landi. Meöan geymir hann Scott forseta lokaðan inni í brynvörðum bíl sem er hlaöinn sprengiefni sem myndi springa ef reynt værí aö komast inn í bilinn. En líkt og í flestum myndum af þessu tagi þá haföi Assanti ekki hugsaö fyrir öllu og missti þar með af peningunum og tækifærinu til að a uð- mýkja Bandaríkin. Væmin mynd Forsetaránið er óttalega væmin mynd sem hefur upp á lítinn fersk- leika aö bjóða. öll persónusköpun er stöðluð svo leikararnir f á engin tæki- færi til að sýna góöa takta í sínum hlutverkum. Ekki bætir það úr skák að Hal Holbrook sem leikur forset- ann tekst aldrei að sýna trúverðuga takta til að sannfæra áhorfendur um að hann sé staddur í einhverri hættu og að einhver alvara sé að baki. Aftur á móti var gaman að fylgjast með Van Johnson og Ava Gardner í hlutverkum sínum en þau voru stórar stjörnur hjá MGM kvik- myndaverinu fyrir um 45 árum síöan. Johnson hefur lítið sést á hvita tjaldinu að undanfömu enda virkar hann óömggur meðan Ava Gardner tekst enn að heilla áhorfendur með persónutöf rum sínum. Forsetaránið reynir að gefa svo- litla innsýn inn í hvemig öryggis- verðir forsetans starfa. Margs er að gæta þegar forsetinn kemur fram á stórum samkomum og því eins gott að vera við öllu búinn. Er dálítiö fyndið að skoða manngerðir sem virðast valdar í öryggisvarða- stöðurnar því það mátti þekkja þá greinilega frá fjöldanum þótt úr fjar- lægð væri. Þeir vom yfirleitt klæddir „Bogart” rykfrökkum með töffara- leg sólgleraugu og höfðu svo lítið heyrnartæki í eyranu til að geta tekið á móti fyrirmælum og upplýsingum. Klúðursleg útfærsla En samkvæmt myndinni virðist ekki nóg að hafa rétta klæðnaðinn því engir góðir öryggisverðir hefðu leyft mannf jöldanum að komast eins nálægt forsetanum og raun varð á. Forsetanum er rænt þegar hann gengur eftur rauðum dregli upp að palli þar sem hann á að flytja ræðu. Mikill mannfjöldi var hvor sinum megin við dregilinn sem aðeins var afmarkaður frá fólkinu með köðlum. Myndaöist því mikil þvaga í kringum forsetann þannig að Assanti, sem hafði vafið utan um sig dynamiti, gat handjámaö sig við for- setann. Er þetta atriði allt dálítið klúðurslega útfært. Forsetaránið kemur lauslega inn á athyglisvert siðferðislegt atriði þótt ekki sé kafaö þar djúpt. Er það sú staöa sem varaforsetinn, Ethan Richard, er settur í þegar atkvæði hans ræður úrslitum hvort lausnar- gjaldið fyrir forsetann skuli greitt eða hvort eigi vegna prinsip ástæðna að neita aö ganga til allra samninga við Assanti. Utfærsla leikstjórans á þessu atriði er því miður allt of væmin til að verða bitastæð. Forsetaránið á sina góðu punkta. Hún er spennandi á köflum og þokka- lega unnin en þegar á heildina er litiö er það ekki nóg til að rífa hana upp úr meöalmennskunni. Baldur Hjaltason Hér sést Assanti f æra f orsetann inn í brynvarðan bíl þar sem hann var læstur innl 1 baksýn má sjá tvo af öryggisvörðum forsetans. „ Kvikmyndir* Kvikmyndir Fil. dr. Aale Tynni frá Finnlandi heldur fyrirlestur um Eddu og Kale- vala í Norrœna húsinu mánudaginn 7.júníkl. 17.30. Norrœna húsiö. OMRON OMRON búðarkassar fyrir minni og stærri fyrirtæki fyrirliggjandi. Verðfrá 6.670,-kr. % SKRIFSTOFUVÉLAR H.F. % ____ rgr Hverfisgötu 33 *5JS5E^ Simi 20560

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.