Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1982, Blaðsíða 4
20
DAGBLAÐIÐ & VISIR. FÖSTUDAGUR16. JULI1982.
Messur
Guðsþjónustur í Reykjavikurprestakaiii
sunnudaginn 18. júií 1982.
ASPRESTAKALL: I-augardagur 17. júlí:
Dalbrautarheimili, guðsþjónusta kl. 10.30.
Sunnudagur 18. júli: Messa að Norðurbrún 1
kl. 11. Miðvikudagur 21. júlí: Hrafnista,
helgístund kl. 11. Sr. Árni Bergur Sigurbjörns-
son.
BÚSTAÐAKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Jón
Ragnarsson prédikar, organleikari Guðni Þ.
Guömundsson. Altarisganga. Sóknarnefndin.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Sr. Þórir
Stephensen. Fermd verður í messunni Iris
Björg Olafsdóttir frá Wels i Austurríki, p.t.
Iiinguhlíð 19, Reykjavík. Altarisganga.
Organleikari Gústaf Jóhannesson. Kl. 18.00 á
sunnudag; Orgeltónleikar. Gústaf Jóhannes-
son leikur á orgelið i 30—40 mínútur.
Aðgangur ókeypis og öllum heimill.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðsþjónusta kl.
2. Sr. GLsli Brynjólfsson prédikar, sr. Jón Kr.
tsfeld þjónar fyrir altari. Félag fyrrverandi
sóknarpresta.
FELLA- og HÓLAPRESTAKALL: Ef veður
leyfir verður messað úti i garðinum við
Aspar- og Æsufell kl. 11. Sr. Hreinn Hjartar-
son.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messakl. ll.Sr.Karl
Sigurbjörnsson. Sunnudagskvöld kl. 20.30:
Tónleikar, Manuela Wiesler leikur á fiautu.
Þriðjudagur kl. 10.30: Fyrirbæna-
guðsþjónusta, beðið fyrir sjúkum.
LANDSPITALINN: Guðsþjónusta kl. 10. Sr.
Karl Sigurbjörnsson.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Tómas
Sveinsson.
KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Þorbergur Kristjnsson.
NESKIRKJA: Sunnudagur 18. júlí:
Guðsþjónusta kl. 11. Félagsstarf aldraðra:
Fjögurra daga ferö sem hefst miðvikud.
21. júlí til Akureyrar, Húsavíkur og í Mývatns
sveit. Þátttaka tilkynnist kirkjuverði í sima
16783 kl. 17—18 alla virka daga. Sr. Frank M.
Halldórsson.
Listasöfn
Sýningar
Listsýningasalurinn
Glerárgötu 34, Akureyri
GuÖmundur Björgvinsson hefur nú flutt sýn-
ingu þá sem hann hélt í Gallerí Lækjartorgi
sl. vor noröur til Akureyrar og mun hún
hanga þar í Listsýningasalnum Glerárgötu 34
17.—25. júlí. Myndirnar eru geröar meö
blandaöri tækni þar sem sullað er saman
prentlitum, tússi, bleki og lakki og er útkom-
an eitthvað í ætt viö abstrakt sem er meö aöra
löppina í raunsæinu. Þar af leiöandi má sjá
allt mögulegt og ómögulegt í myndunum allt
eftir því hvernig menn eru sinnaðir.
A sýningunni í Listsýningasalnum á Akur-
eyri fljóta einnig meö nokkrar raunsæjar
pastelteikningar sem Guðmundur sýndi ann-
ars vegar í Norræna húsinu 1978 og hins vegar
á Kjarvalsstööum 1980.
Sýningin veröur opin mánud.-miövikud. kl.
20—22 og fimmtud.—sunnud. kl. 14—22.
Listmunahúsið Lækjargötu 2
Á morgun laugardag kl. 14.00. verður opnuð
sýningin, brúður, tröll og trúður. Þetta er sýn-
ing kvenna sem eru að búa til brúður o,; ævin-
týrafólk sér og öðrum til ánægju. Brúðuleik-
sýningar verða á loftinu laugardaginn 17. júlí
og sunnudaganna 18. og 25. júlí og hef jast þær
kl. 15. Sýningin er opin daglega frá kl. 10—13
og iaugardaga og sunnudaga frá kl. 14—18.
Lokaö á mánudögum. Sýningunni lýkur 1.
ágúst.
PÉTUR STEFÁNSSON hefur opnað 4 mynd-
listarsýningar. Hann sýnir ásamt 13 félögum
sínum í Listmunahúsinu en einkasýningar
hefur hann opnað í Djúpinu, Gallerí Austur-
stræti 8, og Galleríinu á bak við bókaskápinn
á homi Vesturgötu og Garðastrætis sem var á
yngri árum verzlunargluggi.
NORRÆNA HUSIÐ VH) HRINGBRAUT: I
anddyri er sýning á íslenzkum jurtum, utan
dyra sýnir John Rud höggmyndir en í kjallar-
anumerlokað.
MOKKAKAFFI, SKÓLAVÖRÐUSTÍG: Þann
26. júní sl. opnaði Kristján Jón Guðnason sýn-
ingu á klippimyndum. Kristján er fæddur í
Reykjavík 1943 og hefur stundaö nám við
Myndlista og handiðaskóla Islands og viö
Listiðnaðarskólann í Osló. Þetta er 4 einka-
sýning Kristjáns en hann hefur tekið þátt í
nokkrum haustsýningum FlM.
Hvað er á seyði um helgina
Hvað er á seyði um helgina
Glæsilegt rit en
einum of fræðilegt
AfmælisritSiguröarÞórarinssonar: Eldurínoröri
Eldur er í noröri nefnist afmælisrit
helgaö Siguröi Þórarinssyni jarð-
fræöingi 70 ára, sem nýlega er komiö
út. Þetta er mikið rit aö vöxtum,
rúmar 460 síður og hiö fróölegasta.
I formála bókarinnar segir aö aö
útgáfunni standi nokkur félög og
samtök sem notiö hafi starfskrafta
Siguröar á liðnum áratugum. „I
bókinni eru 47 greinar samstarfs-
manna, félaga og vina um ýmis efni
sem honum hafa veriö hugleikin, og
vilja þeir á þennan hátt votta honum
þakkir og viröingu á þessum tíma-
mótum ævi hans.”
Þótt hér sé ekki ætlunin aö gagn-
rýna bókina, heldur miklu fremur aö
kynna hana, er rétt aö staldra lítið
eitt viö þessi formálsorð. Meö fullri
viröingu fyrir aöstandendum bókar-
innar virðist óneitanlega sem mark-
miðið meö bókinni hafi um of verið
að skrifa greinar fyrir afmælisbarn-
ið Sigurö Þórarinsson, en ekki hinn
almenna lesanda. Sumar greinanna
eru of fræöilegar og gera greinarhöf-
undar þeirra ráö fyrir aö lesendur
séu vel aö sér í þeim efnum sem tekin
eru fyrir. Þetta er óneitanlega galli,
en vissulega eru aörar greinar auö-
lesnari og ekki miöaðar viö aö les-
endur séu sérf ræðingar í viökomandi
efni.
Gott dæmi um grein sem er erfiö
lestrar er sú fyrsta í bókinni. Hún
nefnist Verzlunarmynstur Reykja-
víkur og er „úttekt á landfræöilegri
dreifingu hinna ýmsu tegunda smá-
söluverzlana í Reykjavík,” eins og
segir á bls. 1. Stæröfræöiformúlur
setja mikinn svip á greinina og lítiö
sem ekkert er haft fyrir því aö skýra
formúlumar út í meginmáli. Hætt er
viö aö hinn almenni lesandi gefist
fljótt upp á lestrinum, jafnvel þótt
viðkomandi hafi mikinn áhuga á
skipulagsmálum og vilji gjaman
lesasér tilumþau.
Annaö atriði sem ástæöa er til aö
fetta fingur út í er tilvitnanakerfiö í
Bækur
Afmælisrít Sigurðar Þórarinsson-
ar er gefið út að tilhlutan Hins is-
ienzka fornleifafélags, Hins ís-
lenzka náttúrufræðifélags, Jarð-
fræðifélags íslands, Jökla-
rannsóknafélags íslands, Land-
fræðifélagsins, Norræna félagsins,
Sögufélagsins og Visindafélags
íslendinga og eins og sjá má á
þessum nöfnum kennir margra
grasa i ritinu.
bókinni. Yfirleitt er látið nægja aö
tilgreina höfund bókarinnar, sem
vitnað er í og útgáfuár hennar. Hins
vegar er sjaldnast sagt á hvaöa bls.
viðkomandi tilvitnun er, sem er þó
sjálfsögð kurteisi við lesendur. Heföi
verið lítiö mál aö skeyta blaösíðutal-
inu aftan viö höfundamafn og út-
gáfuár, eins og t.d. Helgi Hallgríms-
son gerir í grein sinni um Gæsadali
og Gæsafjöll (bls. 46).
En víkjum burt frá þessum am-
bögum. Flestar greinarnar eru
áhugaveröar og vel skrifaðar og
mikill fengur er í greinum þeim sem
fjalla um mál sem nú em í brenni-
depli. Þar má nefna greinar
Eysteins Tryggvasonar og Helga
Bjömssonar um Grímsvötn, en þær
skýra vel Skaftárhlaup og eðli
þeirra. Sömuleiöis er grein Guö-
mundar E. Sigvaldasonar um öskju-
gosiö 1875 fróöleg til skýringar
Kröflueldunum sem staöið hafa
síöan 1975.
Greinamar í afmælisritinu eru ekki
einskorðaöar við jaröfræöi. Kristján
Eldjárn fjallar um fomleifarann-
sóknir í Stöng og greinar Margrétar
Hallsdóttur og Guðrúnar Larsen
sýna vel þau nánu tengsl sem í dag
era orðin á milli fomleifarannsókna
og jaröfræðinnar. Guörún sýnir
hvernig nota má gjóskulög til
ákvörðunar á aldri fornleifa og
Margrét hvemig nota má frjógrein-
ingu jarövegssniöa í sama tilgangi.
Ein skemmtilegasta greinin í bók-
inni er eftir Harald Sigurösson og
fjallar um lýsingu Olaus Magnus á
Islandi. Olaus þessi var uppi á fyrri
hluta 16. aldar og var siöasti kaþólski
erkibiskup Svíþjóöar. Olaus hefur
líklega aldrei komiö til Islands, en
byggir lýsingar sínar á sögnum og
ritum, sem aðrir höföu skrifaö. Er
gaman aö kynnast þeim skoöunum
sem fólk suöur í álfu hafði á Islandi
viöupphafnýaldar.
Þá eru skoöanaskipti Sveinbjöms
Rafnssonar og Jóns Jónssonar um
aldur ögmundarhrauns fróöleg og
færa þeir báöir góð rök fyrir niöur-
stööum sínum. Jón telur hraunið
hafa ranniö á 11. öld, en Sveinbjörn
ekki fýrr en um miöja 16. öld. Verður
ekki kveðiö upp úr hvor hafi rétt
fyrir sér hér, en lesendur geta gert
þaöhverfyrirsig.
Loks skal minnst á grein Stefáns
Aöalsteinssonar um uppruna ís-
lenzkra húsdýra, en niðurstööur
hans eru þær aö flest dýrin séu upp-
rannin frá Noregi eöa Skandinavíu.
1 ritnefnd afmælisritsins vora
Helga Þórarinsdóttir, Olafur H.
Oskarsson, Siguröur Steinþórsson og
Þorleifur Einarsson og ber aö óska
þeim til hamingju meö afbragös af-
mælisrit. Þótt deila megi um val
greinanna hefur yfirleitt vel til
tekizt Um útlit bókarinnar sá prent-
smiðjan Hólar hf. og hefur greinilega
ekkert veriö sparaö á þeim bænum
til aö gera útgáfuna sem læsilegasta
úr hendi. Band bókarinnar er fallegt
en látlaust, einmitt eins og afmælis-
rit eiga aö vera. Aö síðustu er aðeins
hægt að þakka öllum aðstandendum
fyrir öndvegisrit. -SA
Þriggja daga keppni
og skemmtun á Eiðum
Ungmenna- og íþróttasamband
Austurlands, U.I.A., heldur árlega
sumarhátíö sína á Eiðum nú um
helgina. Hátíðin verður sett klukkan
18 í dag og hefst þá Meistaramót
Austuriands í frjálsum íþróttum
yngri flokka.
Á laugardag veröur haldið áfram
frjálsíþróttakeppni. Á dagskránni
verður einnig bogkeppni, sieggju-
kast og handknattleikur. Ennfremur
keppa öldungar, 35 ára og eldri í
knattspymu. Um kvöldiö veröur
diskótekí samkomutjaldiUlA.
Á sunnudag hefst úrslitakeppni í
frjálsum íþróttum klukkan 9. Klukk-
an 14 gengur skrúöganga inn á
hátíöarsvæðiö. Meðal skemmti-
Utihátíð
Þrettán konur standa að brúðusýningunni i Lis
kvennanna, sem eiga grípi á sýningunni, sýnint.
ast standa þær Sigríður Kjaran, Sigrún Gunnlt
Helga Steffensen og Sigríður Hannesdóttir, en
Kvikmyndir
krafta á hátíðinni verða Bubbi
Morthens og Gummi, Goggi og
Gressi. Einnig verða sýningar af
ýmsumtoga; módelflugsýning, júdó-
sýning, fimleikasýning og fleira.
Sumarhátíö UlA lýkur klukkan 17
á sunnudag. -SKJ.
Tine Hagedorn og Rúnar Guðbrandsson i hlutv
sinum i Sóleyju.
LISTASAFN ÍSLANDS VID SUÐURGÖTU:
Þessa daganna stendur yfir sýning sem nefn-
ist „Landslag í íslenzkri myndlist” Eru þetta
listaverk i eigu safnsins eftir ýmsa fremstu
listamenn þjóðarinnar. Sýningin er opin alla
dagafrákl. 13.30-16.00.
NÝLISTASAFNIÐ VATNSSTÍG 3b: I kvöld
kl. 20.00 opnar Svisslendingurinn Otto Grimm
sýningu í Nýlistasafninu. Otto hefur tekið þátt
í fjölda samsýninga og haldið nokkrar einka-
sýningar. Á sýningunni verða málverk og
teikningar. Sýningin verður opin frá kl. 16—22
fram til 30. júlí.
KJARVALSSTAÐIR: 1 tilefni árs aldraða
verður opnuð sýning á morgun laugardag. Á
sýningunni verður safnað verkum eftir ýmsa
fulltrúa alþýðulistamanna þjóðarinnar. Sýn-
ingin stendur yfir til 8. ágúst og er aðgangur
ókeypis.
GALLERI LANGBRÖK: I Gailerí Langbrók
stendur engin sýning yfír eins og er en verk
Langbróka eru þar til sýnis og sölu.
LISTASAFN ASI: Þar er nú lokað og vinna
menn þar baki brotnu við að ljósmynda lista-
verk.
ÁSMUNDARSALUR: Þar mun verða lokað
til 13. ágúst.
GALLERI LÆKJARTORG: Nú stendur yfir
samsýning ýmissa málara sem áður hafa
sýnt í Gallerí Lækjartorgi. Þar er opið á
verzlunartíma og athugið að gengið er í gegn-
um plötuverzlunina.
GALLERÍ HVERFISGÖTU 32: Lárus
Þorleifsson sýnir leðurmuni. Sýningin er opin
'virka daga frá klukkan 14—18 og laugardaga
frá kl. 10—12.
ÁSGRÍMSSAFN: Breyttur opnunartími As-
grímssafns. Opið alia daga nema laugardaga
frákl. 13.30-16.00.
Skemmistaðir
ÖÐAL: I Oðali verður allt í gangi um helgina
eins og vanalega. I diskótekinu verða þeir
Ásmundur Ásgeirsson og Dóri.
SIGTUN: Diskótek verður bæði kvöldin.
SNEKKJAN: Hljómsveitin Mars mun halda
uppi fjörinu á föstudags- og laugardagskvöld.
Matsölustaðurinn Skútan er opin sömu
kvöld.
ÞÖRSKAFFI: Þar mun dansinn duna um
helgina. Á neðri hæð er diskótek en á efri hæð-
inni skemmtir Dansbandið gestum staðarins.
Húsið opnað kl. 10.
LEKHOSKJALLARINN: Þar verður lokað
til ágústloka.
GLÆSIBÆR: Grétar Laufdal verður i diskó-
tekinu um helgina frá klukkan 10—03, það er
diskósalur 74, tónlistin úr safni ferðadiskó-
teksins. Grétar býður alla velkomna og óskar
gestum góðrar skemmtunar. Hljómsveitin
Glæsir leikur fyrir dansi í öðrum sal hússins
öll kvöld helgarinnar.
LINDARBÆR: Laugardagskvöld, gömlu
dansarnir. Valgerður Þórisdóttir syngur við
undirleik hljómsveitar Rúts Kr. Hannesson-
ar.
HREýFILSHÚSIÐ: Opið laugardagskvöld,
gömlu dansamir.
HÖTEL BORG: Diskótekið Disa sér um
diskósnúninga bæði föstudags- og laugardags-
kvöld. Sunnudagskvöld verður hljómsveit
Jóns Sigurðssonar með tónlist af vönduðu tagi
sem hæfir gömlu dönsunum.
HÖTEL SAGA: Á föstudags- og laugardags-
kvöld munu hljómsveit Finns Eydal og
Helena skemmta í Súlnasalnum og dansinn
mun duna frá klukkan 10—3. Auk þess er
Grillið opið alla daga
BROADWAY: Á föstudags- og laugardags-,
kvöld verður diskótek í fullum gangi. Opið
verður frá kl. 10—3.00.
KLÚBBURINN: Þar mun hljómsveitin Frið-
ryk leika fyrir dansi auk þess sem diskótekið
mun duna.
HOLLYWÖOD: Diskóið á fullu aUa helgina
undir öruggri handleiðslu plötusnúðanna sí-
vinsælu.
Tilkynningar
Slysavarnafélag fslands
I happdrætti Slysavamafélags Islands kom
bifreiðin upp á nr: 17415.