Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1982, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1982, Blaðsíða 14
14 DV. MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER1982. Menning Menning Menning Menning Gunnar Thoroddsen: Frelsi að leiðarljósi Ólafur Ragnarsson bjó til prentunar. Útgefandi Vaka. Áöur fyrr var þaö engin nýlunda aö ræöur væru gefnar út í bókum, en á seinni árum hefur dregiö úr þessu jafn- framt því sem ræöuflóð hefur færst í auka á öllum vígstöövum. Til aö mynda held ég aö á þessu ári komi ekki út nema ein ræöubók, sú sem hér veröurgetiö lítillega. Þessi ræöubókafæð á sér ef til vill nokkra skýringu eins og flest annaö í heimi hér. Þaö var venja aö gefa ræöur út eins og þær komu af skepnunni og í þeirri mynd uröu þær æ fjarrænna lestrarefni á atómöld og írafárs. Hvernig sem á því stóö hafa menn kyn- okað sér viö aö krukka í þær eöa búa þær til lestrar á þann veg sem fjöl- miðlakynslóö þarf á aö halda. Þaö þótti ekki viö hæfi aö létta þetta lesefni. meö lýsifyrirsögnum, myndum eöa forvitnilegum aðalfyrirsögnum. Þess vegna held ég að margir hafi talið aö þetta efni væri vart hæft til útgáfu í bókum. Bókin Frelsi aö leiðarljósi brýtur aö mínu viti blaö í þessum efnum og veld- ur því vonandi að sn jallar ræöur og list talaös orö á framvegis greiðari leiö að lesendum bóka. Því veldur einkum tvennt. Gunnar Thoroddsen er óvenjulegur mælskulistarmaöur, þroskaður og þjálfaöur í senn, og þaö á auðvitað viö um bókarefni af þessu tagi sem önnur aö þaö á varla erindi í bækur nema það standi fyrir sínu og vel þaö — sé í raun mælskulist eöa eigi annaö gilt erindi. Hitt er þaö, aö bókin er búin úr garöi meö þeim hætti aö hún kemur til móts viö lesendur á þeirra eigin vegum og nær augum þeirra á sama hátt og ræöumaöurinn náöi eyrum fólks á stund orösins. Olafur Ragnarsson ger- ir glögga grein fyrir þessari fram- reiöslu í formála, svo og ræöumennsku Gunnars sjálfs. Hann skipar ræöunum í efnisflokka, ekki of fastbundna en fellir þær þó í hæfilegar efnisskorður. Hann ritar nokkur formálsorö aö hverri grein, ræöu eöa ræöustúf, og þar sem birtir eru aðeins kaflar tengir hann þá saman meö endursögn þess sem sleppt er eöa skýringum. Þannig birtist ræðan eöa greinin í réttu sam- hengi, þaö flytur lesandann á vettvang hennar eins og unnt er og leiðir hann aö henni. Hann birtir allmargt mynda, og þaö gerir sama gagn, jafnframt því sem það vekur skýrari minningar. Hann hlífist ekki viö aö setja lýsifyrir- sagnir í ræöur, greinarogfyrirlestra. Eg held aö Ölafur hafi meö þessu unnið nokkurt leiösagnarstarf og sýnt hvemig hægt er aö koma gömlum ræöum til lesenda, gera þær jafnnem- anlegar auga sem eyra, hefja þær yfir stund sína til áhrifa í bókum. En þetta er auðvitað ekki hægt nema ræöurnar hafi í raun vængi sjálfar. Og hér skort- ir ekki flugfjaðrir. Þaö hefur veriö á vitorði flestra sem hafa eyra aö heyra snjalla ræðu, aö Gunnar Thoroddsen á sér fáa jafningja í þeirri list, enda fer ekki milli mála aö hann hefur lagt mikla rækt viö hana og Gunnar Thoroddsen: Ræöur frá meira en fimmtíu ára tímabiii — i mjög aðgengilegum búningi. MEÐ ORÐSINS SNILU — áhrifaríkasta vopnaburði samtfmans æriö oft þurft aö grípa til oröa á ferli sínum sem lögfræðingur, borgarstjóri, þingmaöur, sendiherra og ráöherra, auk þess sem slikir menn eru umsetnir til ræöuhalda í samkvæmum og á tylli- dögum. Og Gunnar viröist eiga flestar tíðir tiL Hann er glöggur og skipulegur fyrirlesari, kemur efni til skila, þótt hann sé í raun svo mikiö flugskáld aö hann sneiöi heldur hjá jarðföstum steinum. Mönnum sem alltaf þurfa aö vera aö taka til máls vegna starfa og stööu, hættir auðvitað mörgum hverj- um til þess aö vinna sér þaö létt, koma jafnvel í pontu án þess aö hafa lagt sér fyrir brjóst, hvaö segja skyldi, ef þeir vita um getu sína til þess aö komast skammlítið frá því. En Gunnar virðist sjaldan hafa leyft sér þá léttúö, svo mikil er viröing hans fyrir orösins list. Þessi bók virðist aö minnsta kosti benda til þess, aö þrátt fyrir miklar annir hafi hann ekki svikist um aö hugsa ræöu sína og helst sníöa henni stakk og jafnvel finna henni lyftingu og sjónauka úr ljóöi eöa sögu áöur en hann reis úr sæti. — Hann mótar jafn- vel setningar og málsgreinar og sting- ur í hugvasa. Slíkar ræöur hefur hann oft haldið aö tilefni dagsins — örstutt- ar, en þó meitlaöar, heilar og fágaöar myndir, þótt hann virðist grípa oröin úr loftinu. Enginn þarf aö efast um aö slikar ræður eru í raun samdar. Ræðu- maðurinn hefur ekki skotiö sér undan þeirri skyldu aö gera sér grein fyrir því, hvaö hann vildi sagt hafa — og umfram allt hvernig — áður en hann hóf máls. Kannski er Gunnar Thorodd- sen höfuösnillingur í þeirri list aö semja ræöur án þess aö skrifa þær, þótt hann kunni óneitanlega snoturlega til þeirra verka lika. I eldhúsdagsumræðum í sjónvarpinu fyrir skömmu haföi hann framsögu forsætisráðherra og talaöi blaöalaust aö því er séð varö. En þó var þetta lík- lega best samda ræöan. Eg varö þess var, aö margir uröu undrandi á þessari leikni og orðlist. En viö skulum ekki halda aö þetta sé aðeins gáfa af guðs náö, — þótt líklega megi hana ekki vanta alveg. — Þetta er ööru fremur árangur sjálfsögunar, mikillar æfing- ar og harðhentrar þjálfunar sem sótt hefur eld sinn og þrautseigju í ást og viröingu á íslenskri tungu og bók- menntum, mynd og hljómi. Ræöustúf- ar Gunnars í þessari bók sýna og sanna aö þá ást hefur hann aldrei skort, og hann hefur notiö hennar í rík- um mæli og þjóöin meö honum. Hitt mætti kannski segja jafnframt, aö hann heföi líka goldið þessarar orð- vígslu sinnar aö einhverju leyti í velt- ingi stjórnmálasiglingar á hrannasjó langrarævi. Eins og Ölafur Ragnarsson segir í formála eru ræður Gunnars eins og sandur á sjávarströndu og því enginn hægöarleikur aö velja lungann úr þeim í kver. Sýnishornin sem tekin voru losa f jóra tugi aö tölu. Þeim er raöaö í efnis- flokka ekki færri en þrettán, svo aö varla þarf aö kvarta um einhæfni. Og ekki er tíminn þröngur stakkur, elsta ræöan frá 1928 og sú síðasta frá 1982 — aldursmunur á sjötta áratug. Geri aör- irbetur! Bókmenntir Andrés Kristjánsson Eg hef kallað bókarefniö ræöur, en í því eru einnig einstaka blaöagrein og einn eöa tveir fyrirlestrar, til aö mynda um „áhrifamesta vopnaburö nútímans” — mælskulistina. Þaö er bæði gagnorö og skilrík leiösögn í list- inni, og hana ættu allir þeir aö lesa, sem ætla aö hætta sér í ræöustól. Ég er ekki viss um að önnur betri hafi verið gefin út hér á landi. Annars er vant að segja hvaö best er í þessari veislu. Kannski eru tækifærisræöumar í sam- kvæmum skemmtilegastur lestur. Ég nefni ræöurnar á áttræðisafmæli Stúd- entafélags Reykjavíkur og árs- skemmtun menntaskólanema 1959, þar sem Gunnar fer á kostum gaman- mála en sleppir þó aldrei taumhaldi á alvörunni. Þetta em listilegar ræöur. Ýmsar þjóðhátíðarræður Gunnars eru líka allt aö því — eöa alveg — meist- araverk aö heimanbúnaði. Manna- minni í ræðu eöa grein eru ekki síst ávextir í þessum víngaröi. Eg nefni þar sérstaklega „tslandsklukkan glymur um gervallau heim”, fagnaö- arræöu við heimkomu Laxness með nóbelsverðlaunin, og minningaroröin um Kristján Eldjárn nú fyrir skömmu. Þau orö hræröu þjóöina og voru ekki aðeins gersemi orölistar heldur birtu og einnig stórmennsku hjartans, en þær eru systur og kveikja bjartan hyr þegar þær hittast. Vísa Kristjáns Olafssonar er heimildarrík um þetta: Ekki er bjart ef þurrt og þyrst þrumir svartaskar á kveiknum. Eins og margt í orðsins list ef að hjartað skerst úr leiknum. Þeir eru ekki sviplikir stjórnmála- menn Jónas frá Hriflu og Gunnar Thoroddsen og ekki heldur aö gerö og ferli, en þó eiga þeir sér snertipunkt, og báöir meöal svipmestu og áhrif arík- ustu stjómmálamanna meö orðsins vopni eftir 1920. Eg hef stundum hugs- aö um þá báöa í senn á þá lund að lík- lega heföu þeir oröiö skáld og rithöf- undar fremur en stjómmálamenn, ef þeir hefðu fæöst eftir 1930. Tíminn um og eftir 1920 kallaði á stjórnmálamenn úr hópi afrekssveina, síðar á skáld og rithöfunda, en auövitað uröu þeir hvort tveggja. Mér endist hvorki örendi né blað- rými til þess aö nefna allar þær perlur sem finna má í þessari bók Gunnars Thoroddsens, en þær glitra á mörgum síðum hennar. Eg vil aöeins hvetja alla þá sem yndi hafa af snjöllum ræöum aö lesa hana vel. Þaö svíkur engan, og skemmtun hennar er ómæld. Hér hefur það tekist sú nýlynda aö búa ræður til lestrar meö þeim hætti að þær týna ekki sjálfum sér, heldur skrýöast gömlum lit og hljómi á ný. Þetta er sér- stæö afbragðsbók á þessari jólabóka- tíö. A.K. VAKNAÐU ÞJÓÐ Islenskt þjóðfélag stendur á kross- götum. Margt bendir til þess aö eftir áratuga Þyrnirósarsvefn sé þjóðin loksins aö vakna til lífsins á ný. Enda ekki seinna vænna. Um árabil hafa ringlaöir stjóm- málamenn og bírókratar látiö reka á reiöanum, oltið frá einni veislu til annarrar, einni glórulausri fjárfest- ingutil annarrar. Umkringdir palísander og prjáli, sitjandi á silkimjiikum sessum, hafa þeir lítið sinnt hagsmunum þjóöar- innar en þeim mun betur valdapoti og flokkadráttum. Baráttan hefur staðið um upphefö, auö og völd, en ekki velgengni þjóöarinnar. Það er engu líkara en hugsjón aldamótakynslóðarinnar hafi gleymst um aldur og ævi. Sem betur fer eru til undantekn- ingar. Þaö er til þeirra sem við verðum nú að snúa okkur þegar viö leitum nýrra leiða út úr ógöngunum, leitum fyrirmynda fyrirframtíöina. Nýlega lést í Reykjavík maður sem var á margan hátt fyrirmynd annarra manna á sínu sviði. Þessi maður hét Hrólfur Ástvaldsson, viöskiptafræöingur, sumir mundu segja: af gamla skólanum. Hrólfur starfaði viö þá rótgrónu stofnun sem Klemens Tryggvason hefur stjómað um langt skeiö og kallast Hagstofa Islands. Er hún eitt af ljósunum í.myrkri íslenska skrif- stofuveldisins. Margir hafa gert góðlátlegt grín að Hagstofunni, segja aö þar hafi ríkt gamaldags sparnaðarstefna, aö vísu sé þar engu eytt í óþarfa en minna megi nú gagn gera. En þegar til kastanna kemur er þaö einmitt stofnun af þessu tagi sem gerir mest gagn þegar til lengdar lætur, einmitt á þessari stofnun hefur fáliðaö starfsliö unniö mörg merk stórvirki. Vonandi er tími flottræflanna liöinn, tími þeirra sem ekki geta hreyft sig úr staö nema kalla til einkabílstjóra. Vonandi erum viö menn til aö læra af hagsýni hagstofu- stjóra. Islenskir stjórnmálamenn og bíró- kratar ættu aö átta sig á því aö Islendingar eru ekki allir þar sem þeir eru séöir. Þeir eru til í veislu um stund en síðan ekki söguna meir. Það varð veisla íslendingar liföu margar myrkar aldir í þessu landi viö dauflega vist. Svo kom allt í einu ljósglæta, líf fór aö færast í tuskurnar, einangrunin rofin. Auðvitaö voru þeir til í veislu. Þaö var eins með matinn. I alda- raðir átu menn hér oft v.ondan mat, bragöillan, skemmdan, jafnvel úldinn. Stundum var engan mat aö fá. Svo komu sætindi og allsnægta- borð. Auðvitað várö veisla. Islendingar af millikynslóð hafa sumir hverjir ekki þekkt annaö en veisluhöld og gleöskap. Þeim er Menningog umhverfi Jón Óttar Ragnarsson vorkunn þótt þeir hafi dregið sínar ályktanirafþví. Þeir átta sig ekki á því að þetta var aðeins tilraun, visst tímabil í lífi þjóöar, aö Islendingar vildu fá aö bragöa á þeim bikar sem aörar þjóöir höföu bergt í botn. Nú vitum viö loks aö þetta voru engar ódáinsveigar, aö vísu var drykkurinn sætur á bragðið, en ekki hollur eöa uppbyggilegur að sama skapi, heldurgöróttur, eitraöur. Þess vegna munu þeir nú eiga vax- andi fylgi aö fagna sem bjóöa hald- betra viöurværi, „blóð, svita og tár” eins og Churchill forðum. Almenn- ingur veit aö þaö eitt dugir til. Þaö vita allir sem vilja vita aö þessar palísanderskrifstofur, lúxus- villur og annaö forgengilegt dót eru ekki til frambúðar. Þaö þarf aö taka til hendinni, byr ja frá grunni. Það er ekki nóg aö eiga fallega skóla ef ekki eru til hillur, hvað þá tæki. Sama gildir um rannsókna- stofnanir. Aðalatriöiö er aö starf- semin rísi undir nafni. Þaö er ekki lengur í tísku aö ausa úr skálum upphafins hátíöleika meö tilheyrandi þjóðrembu og pylsu í auga á sumardaginn fyrsta og sautjánda júní. Nú er þaö alvaran sem tekur við. Næstu ár munu skera úr um hvort við lifum af sem sjálfstæö þjóö eöa ekki. Og ef ekki er ekki um annað aö ræöa en aö tygja sig, leita á önnur miö. Sæl aö sinni og gleðilega hátíö.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.