Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1982, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1982, Blaðsíða 24
28 DV. MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER1982. Nýjar bækur Nýjar bækur Nýjar bækur NANCY OG SVIKAHRAPPARNIB CAROLYN KEENE Nancy og svikahrapparnir Ut er komin hjá Leiftri 32. bókin um Nancy Drew, hina ráösnjöllu leyni- lögreglustúiku. Þessi er ekki síður spennandi en hinar fyrri og snýst um fjársvik, mútur og skjalafals. Alls konar brögöum er beitt en Nancy verður ekki skotaskuld úr aö leysa gátuna, eftir æsandi eltingaleik. Eiríkur Baldvinsson þýöir bókina sem er eftir Carolyn Keene. Hún er 119 bls. Leikrit Shakespeares í þýðingu Helga Hálfdanarsonar Almenna bókafélagiö hefur sent frá sér fyrsta bindið af Leikritum Will- imas Shakespeares í þýöingu Helga Hálfdanarsonar. öll leikrit Shake- speares munu koma út hjá forlaginu á næstu árum í þýöingu Helga, alls 8 bindi sem hvert veröur tæpar 500 bls. og veröa þau í bókaflokknum „Urvals- rit heimsbókmenntanna”, sem AB hef ur nýlega hafið útgáf u á. í þessu fyrsta bindi leikritanna eru fjögur af konungaleikritum Shakespeares, Ríkarður annar, Hinrik 4. fyrra leikritiö og síðara leikritið og Hinrik 5. Fyrir útgáfunni er rækileg inngangsritgerö eftir þýðandann sem hann nefnir Fáein orö um Shakespeare og samtíö hans. Utgáfan er mjög vönduö — með línu- tali og athugasemdum og skýringum í bókarlok. Utlit bókarinnar hefur Hafsteinn Guömundsson annast. Leikrit I er 471 bls. aö stærö og unnin í Prentsmiðjunni Odda. Helgi Hálfdanarson hefur nú lokiö viö aö þýöa öll leikrit Shakespeares og þær af þeim þýöingum hans sem þegar hafa birst hafa hlotið einróma lof. Er ekki vafi á því að Shakespeares- þýðingar hans eru meiri háttar viö- burðurí íslenskri bókmenntasögu. í:.C>v DÍSA LITLA Hér með tilkynnist, að Hlynur Sveinsson nafnnr. 640909-1152 er með botnlangabólgu Hann getur ekki komið til Barnaeyjarinnar. Virðingarfyllst Auður Sveins Hlynur Sveinsson er ellefu ára - og reyndar alls ekki með botnlangabólgu. Mamma hans skrifaði heldur ekki þetta bréf. Hlynur býr hins vegar til sjúkrasögu, kemst undan því að fara í sumarbúðir á Barnaeyjunni og leggst í staðinn út í stórborginni Stokkhólmi. Barnaeyjan eftir P.C. Jersild er stórskemmtileg bók um barn - skrifuð fyrir fullorðið fólk. P.C. Jersild hefur fyrir löngu áunnið sér sess á meðal \ allra fremstu rithöfunda Norðurlanda. Hann hefur skrifað á annan tug bóka sem allar hafa hlotið frábærar viðtökur og er skemmst að minnast „Babels hus“ sem sló öll fyrri sölumet höfundarins. Barnaeyjan er tvímælalaust ein effirminnilegasta skáldsaga P.C. Jersild og nú er hún komin út í íslenskri þýðingu Guðrúnar Bachmann. Barnaeyjan skemmtileg og holl lesning fyrir alla þá sem hafa gleymt hvernig það var að vera barn í heimi fullorðna fólksins. Mál og menning Dfsa litla og Kata Bókaútgáfan Björk hefur sent frá sér 2 barnabækur í safninu Skemmti- legu smábarnabækurnar sem hafa veriö sígildar barnabækur í áratugi og átt miklum vinsældum aö fagna. Bæk- urþessar eru: Dísa litla, endursögð úr dönsku af Stefáni Júliussyni rithöfundi og kemur nú út í fyrsta sinn. Hún er 13. bókin í safninu. Dísa litla er prentuö í 4 litum, bráöskemmtileg og mjög vel til hennar vandaö. Bókin er unnin/í Prentsmiöju Oddah/f. Kata er 10. bókin í þessum flokki í þýöingu Vilbergs Júlíussonar skóla- stjóra. Hún hefur komið út áöur en veriö ófáanleg í mörg ár. Hún er einnig prentuö í litum í Prentverki Akraness h/f. Aðrar bækur í þessum bókaflokki heita: Bangsi litli, Benni og Bára, Bláa kannan, Græni hatturinn, Láki, Leik- föngin hans Bangsa litla, Skoppa, Stubbur, Stúfur, Svarta kisa og Tralli. Hltl VI\K H.HÁKI).VHSIIN ur lands og þjóðar ísland, svipur lands og þjóðar Ut er komin mikil og vönduð bók eftir Hjálmar R. Báröarson siglinga- málastjóra þar sem sögu Islands og sérkennilegri náttúru landsins eru gerö mikil og góð skil. Hjálmar hefur áöur gefiö út landkynningarbækur eins og Is og eldur og hafa þær notiö vin- sælda og komiö i endurútgáfum. I þessari nýju bók er saga lands og þjóöar rakin í máli og myndum. Þá er gerö glögg grein fyrir jarösögu lands- ins og byggt á grundvelli landreks- kenningarinnar. Textar þessir eru skýrðir með mörgum teikningum og myndum. Þá taka við sérkaflar um einstök svæöi landsins. Farin er hringferö um landið. Staldraö er við á merkum stöö- um og áhugaveröum og lýst er mann- lífi og umhverfi þess, en í leiðinni eru líka skoöaöir fuglar og litiö á gróöur landsins. Lýst er jöklum og óbyggðum og skýrt frá eldgosum undanfarinna áratuga. Bókin er 428 blaösíður í vönd- uðu bandi. I henni eru 20 kaflar, 650 ljósmyndir, teikningar og kort, þar af 220 litmyndir. Auk megintextans fylgja skýringar í sértexta öllum myndum, teikningum og kórtum. Efnið er þannig gert auövelt til lestrar fyrir hvern þann leikmann, sem kynn- ast vill Islandi, landinu og þjóöinni sem það byggir. Loks er þess getið aö bókin kemur bæöi í íslenskri, þýskri og enskri útgáfu. Marco Polo — Ný bók í bókaflokknum um frömuði sögunnar Bókaútgáfan örn og örlygur hf. hefur gefiö út bókina Marco Polo eftir Richard Humble í íslenskri þýðingu Dags Þorleifssonar. Bókin er í bóka- flokki er fjallar um frömuði landa- funda og frömuöi sögunnar og hafa örn og örlygur hf. áður gefið út átta bækur í þessum flokki. Marco Polo var tvímælalaust einn af helstu frömuðum sögunnar og for hans til Kína og margra annarra landa sem tók næstum aldarfjóröung var að vonum fræg. Ferðasaga hans hefur um langan aldur veriö talin meöal sígildra verka í ferðasagnagerð, en í feröasögu sinni fjallar þó Marco Polo furöu lítið um sjálfan sig. I bók Richard Humble er hins vegar lögö áhersla á aö kynna Marco Polo sjálfan, persónuleika hans og skapgerð. Þykir Humble hafa tekist sérlega vel aö skýra sögu Polos og greina frá svaðilförum hans og ævin- týrum. Bókin Marco Polo er ríkulega mynd- skreytt og gefa myndirnar henni aukiö gildi. Eru í bókinni fjölmargar lit- myndir og um eitt hundraö svarthvítar myndir. Marco Polo er sett, umbrotin og filmuunnin í Prentstofu G. Benedikts- sonar en prentun og band er unniö á Bretlandi. IVIdrLL Richnrd Humble Endurfundir eftir Ingibjörgu Jónsdóttur Endurfundir er í bókaflokknum Stjömu róman en áður hafa komið út 7 j bækur eftir erlenda höfunda i þeim bókaflokki. Nú kemur bók eftir íslensk- an höfund, Ingibjörgu Jónsdóttur, sem er þekktur skáldsagnahöfundur. Ingi- björg hefur skrifað skáldsögur, bama- og unglingasögur auk f jölda þýöinga. Sagan fjallar um Erau, 16 ára Reykjavíkurstúlku, sem verður bams- hafandi eftir kvæntan mann. Hann vill ekkert með hana hafa eftir að hún segir honum aö hún eigi von á barni og móðir hennar er drykkfelld svo að heimilisástæður Ernu eru slæmar. En hjálpin berst úr þeirri átt sem hennar var sístvon.... Það telst til nýmælis aö gefin er út frumsamin íslensk skáldsaga ein- göngu í vasabrotsformi. tnatblöra iðnstíöttir Landnámssaga Nýja-íslands ^ J Canada, ^ Brot af landnámssögu Nýja íslands Skjaldborg hefur gefið út ljós- prentun af bókinni Brot af landnáms- sögu Nýja Islands sem safnaö hefur og samiö Thorleifur Jóakimsson (Jack- son). Bókin var fyrst gefin út í Winni- pegáriö 1919. I bókinni eru meðal annars endur- minningar f rá f yrstu árum Islendinga í Nýja Islandi eftir Stefán Eyjólfsson, grein eftir Jóhann Briem um ferö frá Sauðárkróki til Nýja Islands árið 1876 og landnámssaga Fljótsbyggðarinnar. Þá eru taldir upp fjölmargir land- námsmenn í Vesturheimi og getið ævi- atriða þeirra. Æviskrár Akurnesinga skráð hefur Ari Gíslason Sögufélag Borgarfjarðarhefur gefið út bókina Æviskrár Akurnesinga og er þetta fyrsta bindið. Æviskrámar hefur Ari Gíslason ættfræðingur tekiö saman. I bókinni eru um átta hundrað mynd- ir. Segja má að brotið sé blað meö út- gáfu þessa verks því hér er í fyrsta sinn hafist handa um ritun og útgáfu æviskráa fólks úr heilum kaupstað á Islandi. Verk þetta hófst fyrir átta ár- um og er gert ráö fyrir því að þar teljist meö allir þeir sem búið hafa á Akranesi síðastliðin fjögur ár. Þetta bindi nær yfir A til F. Bókin er um 350 blaðsíður aö lengd. rom KWSTÍIN8S0N, HAOA Lífsmörk í spori Mlnntngar og Lífsmörk í spori eftir Torfa Þorsteinsson, Haga Skjaldborg hefur gefiö út bókina Lífsmörk í spori, minningar og fróö- leiksþætti eftir Torfa Þorsteinsson bónda í Haga í Hornafiröi. I formála segir höfundur aö þættir þessir eigi aö varöveita endurminning- ar manna og kvenna sem ýmist vora samferðafólk hans eöa hann haföi um greinilegar heimildir. Bókina tileinkar hann minningu foreldra sinna, Ragn- hildar Guömundsdóttur og Þorsteins Þórðarsonar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.