Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1982, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1982, Blaðsíða 23
22 DV. MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER1982. DV. MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1982. 27 Íþróttir íþróttir (þróttir íþróttir Íþróttir Íþróttir Íþróttir íþrótt íþróttir „Eg fer til Belgíueða Frakklands” — ef ég fæ ekki tækifæri hjá Diisseldorf,” segir Pétur Ormslev Pétur Ormslev, lands- liðsmaður í knattspyrnu, sem er nú leikmaður bjá Fortuna Diisseldorf, er nú staddur hér á landi i jóla- leyfi. Pétur sagðist ekki hafa fengið að spreyta sig í leik með Diisseldorf eftir meiðslin, sem hann hlaut i Dublin í iandsleik gegn írlandi. — Ég er orðinn fullkomlega góður og von- ast eftir að ég nái að vinna mér sæti í liðinu eftir áramót, sagöi Pétur. Pétur sagði að ef hann fengi ekki tækifæri hjá Diisseldorf nú í vetur myndi hann fara fram á sölu frá félaginu þegar samningur hans rennur Pétur Ormslev. út næsta vor. — Eg hef áhuga á aö fara til Belgiu eða Frakklands og leika þar, sagöi Pétur. -SOS Öruggt hjá WestHam... West Ham vann örugg- an sigur 3—0 yfir Notts County í ensku deilda- keppninni i gærkvöldi á Upton Park í London. Ray Stewart skoraði fyrsta markið úr vítaspyrnu og síðan bætti Sandy Clarke marki við eftir að Belgíu- maðurinn Van der Elst hafði átt skot í stöng. Paul Al!en gulltryggði sigur „Hammers” — hljóp 60 m með knöttinn áður en hann sendi hann i netið hjá County. West Ham mætir Liver- pool á Anfield Road i 8- liða úrslitunum. Arsenal leikur gegn Sheffield Wednesday, Manchester Paul Allen. United gegn Nottingham Forest og Tottenham gegn Burnley. -SOS Innrás „Rauöa hers- ins” í írak „Rauði herinn” frá Liverpool gerði innrás í írak í gærkvöldi og lék þar gegn úrvalsliði íraka í Babýlon. 25.000 áhorf- endur sáu leikinn, sem lauk með jafntefli 1—1. Það var Kenny Dalglish sem skoraði jöfnunar- mark Liverpool rétt fyrir Ieikslok með því að vippa knettinum yfir markvörö trana. -SOS Krankl ekki til Barcelona Austurríkismaðurinn Hans Krankl fær ekki leyfi frá félagi sínu Rapid Vin til að fara til Barce- lona og taka þar stöðu Argentínumannsins Die- go Maradona, sem hefur fengið gulu. Krankl var tilbúinn að fara en Rapid neitaði honum um það í gær. Barcelona hefur nú áhuga á að fá Alan Simon- sen aftur til sin. Danski landsliðsmaðurinn er örugglega ekki tilbúinn að fara frá Charlton — aftur til Spánar. -SOS Stig Strand fagnaði sigri á Italíu í gær. Aðeins bnr erlendir biálfarar í 1. deild — en sjö erlendir þjálfarar voru í baráttunni Aðeins þrír erlendir þjálfarar verði í sviðsljósinu i baráttunni um tslands- meistaratitilinn í knattspyrnu næsta um Islandsmeistaratitilinn sl. keppnistímabil Stríð á milli Real Madrid og Barcelona: „Juanito drjúgur við að eltast við kvenfólk” — en kann ekkert í knattspyrnu,” segir forseti Barcelona sumar. Það eru miklar breytingar frá sl. keppnistimabili, en þá voru sjö 1. deildarlið með erlenda þjálfara. Aðeins tveir af þeim verða í slagn- um — Claus Peters hjá Val og Steve Fleet hjá Vestmannaeyingum. Islandsmeistarar Víkings hafa fengið nýjan þjálfara frá Rússlandi í staðinn fyrir Yora Sedov, sem hefur náð frábærum árangri með Víkinga — stjómað þeim til sigurs í 1. deildar- keppninni í tvö ár í röð. Nýi þjálfarinn heitir Gennady Logofet, sem gengur undir nafninu „Gena”. Aðeins tveir íslenskir þjálfarar verða áfram með lið sem keppa í 1. deild. Hólmbert Friðjónsson með KR og Ásgeir Elíasson með Þrótt. Einn þjálfari hefur flutt sig um set, Magnús Jónatansson, sem þjálfaði Is- firðinga, hefur tekið við stjórninni hjá Breiðablik. öll 1. deildarfélögin hafa ráðið þjálf- ara nema Isafjörður, en Isfirðingar standa í samningaviðræðum við Þor- stein Friðþjófsson. Þjálfaralistinn lítur þannig út í 1. deild: • Keflavík: Guðni Kjartansson • KR: Hóímbert Friðjónsson • Valur: Claus Peters • Akranes: Hörður Helgason • Vikingur: Gennady Logofet • Þór Ak.: Bjöm Ámason • Vestmannaeyjar: Steve Fleet • Þróttur R.: Ásgeir Elíasson. Þrír erlendir þjálfarar í 2. deild Flest 2. deildarfélögin hafa ráðiö þjálfara, en listinn er þannig: • Fram: Andrzej Strejlau •KA: FritzKissins • Siglufjörður: BillHodgson • Víðir G.: Haukur Hafsteinsson • Fylkir: Axel Axelsson • Njarðvík: Mile • Reynir S.: Jón Hermannsson • Völsungur: Kristján Olgeirsson og Helgi Helgason • Einherji: Gústaf Baldursson • FH: Janus Guölaugsson. Suðurnesjaliðin Víðir í Garði og Njarðvík komu upp úr 3. deild en Fram og KA féllu niður í 2. deild. Þróttur R. og Þór Ak. tóku sæti liðanna í 1. deild. -SOS Björgvin Þorsteinsson. Leikbræðurnir frá Tarnaby höfðu hlutverkaskipti: Strand skaut Sten- mark ref fyrir rass og varð sigurvegari í svigkeppninni í Madonna á Ítalíu Frá Gunnlaugi A. Jónssyni — frétta- manni DV í Svíþjóð: — Leikbræðurair frá Tarnaby í N-Svíþjóð, þeir Ingimar Stenmark og Stig Strand, urðu aftur í tveimur efstu sætunum í annarri svig- keppninni í keppninni um heimsbikar- inn á skíðum, sem fór fram í Madonna de Campigilo á italíu í gær. Þeir félagar höfðu nú hlutverkaskipti því að Stig Strand varö sigurvegari — hans fyrsti sigur i keppni um heimsbikarinn á níu ára keppnisferli hans í keppninni. Strand hefur yfirleitt staðið í skugga Stenmark. Sænsk stór- stjama til Standard Belgiska stórliðið Standard Liege hefur fest kaup á hinum 20 ára gamla Jan Ericsson sem lék með Herði Hilm- arssyni h já AIK í Sviþjóð. Samningurinn sem Ericsson gerði mun vera mjög góður enda gat hann gert kröfur þar sem Belgamir voru mjög áfjáðir í að ná í hann. Samning- urinn gildir til 1984 og þangað til hefur AIK forkaupsrétt á kappanum — það er að segja ef hann vill fara og félagið hefur næga peninga til að kaupa hann aftur. -klp- Þess má geta að þegar þeir voru strákar og léku sér í hh'ðunum við Tamaby — 700 manna fjallaþorpi í N- Svíþjóð, hafði Strand yfirleitt betur. — „Þetta var frábært,” sagði Sten- mark í viðtali hér í sænska sjónvarpinu í gær og var ekki annað að heyra en hann heföi varla orðið ánægðari þótt hann hefði fariö sjálfur meö sigur af hólmi. Þaö ríkti að sjálfsögöu mikil gleði í Tarnaby í gær. Eftir fyrri umferðina var Stenmark meö bestan tíma — 50,95 sek., en Strand var í fjórða sæti og Mahre- tvíburarnir komu síðan í áttunda og níunda sæti. Phil Mahre náði frábær- um árangri í seinni umferðinni og keyrði þá úr níunda sæti upp í þriðja sæti — fékk tímann 47,13 sek,. sem var besti brautartíminn í keppninni. Stig Strand náði einnig mjög góöum tíma — 47,54 sek. Svíar em mjög ánægðir með árang- ur sinna manna og á góðum degi gæti þriðji skíöakappinn frá Tarnaby skot- ist upp — Bent F jallberg. „Trúði þessu varla" — „Eg er í sjöunda himni. Ég átti erfitt með að trúa því í fyrstu að ég hefði orðiö sigurvegari,” sagði Strand eftir keppnina. — „Ég hugsaði aðeins um aö vera í einu af þremur efstu sætunum og jafn- vel að ná bestum tíma í seinni ferðinni. Ég átti svo sannarlega ekki von á að sigra þá Stenmark og Mahre- bræðurna,” sagði Strand. — ,JÉg vissi að Strand lagði hart að sér til að bera sigur úr býtum. Ég þekki hann síðan við vorum smástrák- ar. Strand hefur æft mjög vel og hann er aö uppskera erfiðið,” sagði Sten- mark. Fyrir heimsbikarkeppnina var Strand sigurvegari í svigkeppni í Bormio á Italíu og sýndi hann þá að hann kæmi meö til með aö keppa um heimsbikarinn. Eftir sigurinn í gær lék Strand á alls oddi og sagði: — „Eftir sigurinn í Bormio vildi ég kalla sex vikna dóttur mína Bormio. — Ætli ég kalli hana ekki núna Madonna,” sagði Strand og hló. ■ AstonVilla ogLiverpool ísjónvarpinu Sjónvarpið mun sýna leik Aston Villa og Liverpool á aðfangadag og hefst leikurinn kl. 15.45. — „Þetta er leikur fyrir stráka frá 8—88 ára, til að þeir geti drepið tímann áður en þeir fara að opna pakkana sina,” sagði Bjami Felixsson, iþróttafréttamaður Sjón- varpsins. Leikurinn var geysilega góður en hann fór fram á Villa Park sl. laugardag. -SOS Árangur sex bestu skíðakappanna varðþessi: Strand, Svíþjóð Stenmark, SvíþjóA P. Mahre, Bandar. Krijaz, Júgóslav. De Cheisa, ítalíu Orlainskv. Austurr. 51,45—47,54=1:38,99 50,95-48,28=1:39, Z3 52,13—47,13=1:39,26 51,09—48,28=1:39,37 51,15—48,29=1:39,44 51,49—48,15=1:39,64 Það vakti þó nokkra athygli að Sten- mark náði ekki að halda fyrsta sætinu í seinni umferðinni en hann hefur yfir- leitt verið sterkari í seinni umferðun- um í svigkeppnum. —GAJ/—SOS 1. deild kvenna Einn leikur var leikinn í 1. deiidar- keppni kvenna í handknattleik um sl. helgi. Fram vann sigur 8—7 yfir KR og skoraði Guðríður Guðjónsdóttir sigur- markið úr vítakasti rétt fyrir leikslok. Staðan er nú þessi í 1. deildarkeppn- inni: 'Valur |Fram ■ ÍR FH Vikingur KR i Haukar Þór Ak. 8 6 1 1 132-100 13 8 6 1 1 118—92 13 8 6 0 2 136—116 12 7 4 2 1 111-86 10 8 3 1 4 103—109 7 8 2 0 6 91—103 4 7 0 1 6 75—116 1 6 0 0 6 80-124 0 I Þór á eftir að leika gegn Haukum og FH. íþróttir íþróttir íþróttir fþróttir Björgvin halaði inn f lest stig Juanitos — útherjinn leikni. Lengi hefur verið grunnt á því góða milli stórveldanna í knattspymunni á Spáni, Barcelona og Real Madrid. Hefur jafnan gengið mikið á þegar félögin hafa mæst á vellinum og menn verið ósparir á að senda hver öðrum kveðjumar þess á milli. Nú virðist þó þeir hjá Barcelona hafa skotið yfir markið — í þetta sinn utan vallar. Er það sjálfur forseti félagsins, Jose Luis Nunez, sem á það skot. I viðtali við spánska blaðamenn á dögunum var hann spuröur álits á dýrlingi þeirra Madrid-búa, Juanito Gomez, sem margir hafa talið besta knattspyrnumann Spánar nú síðari ár. Nunez svaraði þessari spurningu með heldur ógætilegum oröum — aö áliti þeirra í Madrid en ekki þeirra í Barcelona. Sagði hann að Juanito gæti ekkert í knattspymu en væri aftur á móti ansi drjúgur við að eltast við kvenfólk og að eiga börn út um allan Spán. Juanito, eöa öllu heldur eiginkona hans, var heldur óhress með að sjá þetta svona á prenti í öllum blöðum og hefur farið í skaðabótamál við Nunez. Heimtar hann sem svarar liðlega 6 milljónum króna íslenskum í skaða- bætur. Nunes baöst afsökunar á þessum orðum, en þegar Juanito kærði hann sagðist hann ætla að sanna sitt mál. Segist hann ætla að mæta með allt krakkastóðið sem Juanito á í réttar- salnum í Madrid þegar máliö verður tekið fyrir þar. Er beðið eftir þeim degi með mikl- um spenningi á Spáni. En menn em þó almennt á því þar og víðar aö þetta stríð á milli Real og Barcelona sé komið niður á plan sem eigi lítið skylt við íþróttir þær sem leikmenn liðanna leggi opinberleea stund á -itln- á stigamótinu í golfi í ár Golfvertíðin í ár er löngu búin og| menn famir að bollaleggja keppnis- timabilið 1983 sem byrjar í april. Þeir bestu í iþróttinni þurfa að fara að koma sér í æfingu því mikið verður um að vera hjá þeim. Má þar m.a. nefna Evrópumót karlalandsliða í Frakk- landi í júni en þangað f ara 6 kylf ingar. Á hverju ári em haldin stigamót í golfinu sem eingöngu em fyrir meistaraflokksmenn. Þar fá þeir tíu fyrstu í hverju móti stig og þeir sem em stigahæstir í lok keppnistíma- bilsins, skipa síðan landsliöshópinn í upphafi æfinga- og keppnistímabilsins næsta ár. | Björgvin Þorsteinsson GA varð stigahæstur í mótunum í sumar — var 4 stigum hærri en Islandsmeistarinn Sigurður Pétursson GR. Þeir sem urðu í 10 fyrstu sætunum í stigamótunum í ár voru annars þessir: 1. Björgvin Þorsteinsson, GA 84 2. Sigurður Pétursson, GR 80 3. Svcinn Sigurbergsson, GK 4. Ragnar Ólafsson, GR 5. Hannes Eyvindsson, GR 6. Öskar Sæmundsson, GR 7. Páli Ketilsson, GS 8. Magnús Jónsson, GS 9. Sigurður Hafsteinsson, GR 10. Gylfi Garðarsson, GV Athygli vekur að þeir sem eru í 6 fyrstu sætunum á listanum skipuðu landsliðin tvö sem kepptu fyrir Islands hönd í sumar — þ.e.a.s. á World Cup í Belgíu og Heimsmeistaramótinu í Sviss. Engin ný nöfn eru á þessum lista fyrir utan nafn Gylf a Garðarssonar frá Vestmannaeyjum. Aftur á móti hafa menn sem skipað hafa bæði unglinga- og karlalandslið okkar á síöustu tveim ámm ekki náð að komast í hópinn í haust. Má þar t.d. nefna unglinga- meistarann Gylfa Kristinsson GS, Sigurö Sigurðsson GS, Geir Svansson GR og Jón Hauk Guðlaugsson, GN. -Up- Jólagjöf golfáhugamannsins Tamiya Laugavegi 18a S: 11135-14201 hefur framleitt þessa fjarstýröu bíla meö þaö fyrir augum aö nýliöinn í þessari tómstundaiðju geti fengiö sterkan og vandaðan bíl á sann- gjörnu veröi. Bílarnir geta gengið í 20 mín. á 6 volta rafhlöðu. Bílarnir hafa sjálfstæða fjöðrun á hverju hjóli og nóg rými fyrir fjarstýribúnaðinn. Bílamir eru ætlaðir fyrir torfæruakstur og þola allt hnjaskið sem því fylgir. Hleðslu- tími rafhlöðunnar er 15 mín. frá kveikjarainnstungu í bíl. Tamiya bílarnir veita áralanga ánægju og tómstundaiðju. IOYOTA 4X4 ÍMlMGÍIHnð -12 SCAU RADIO CONTROL RACJNG car

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.