Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1982, Blaðsíða 41
DV. MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER1982.
ÐÆGRADVÖL
45
DÆGKTtDVQL
„Ferðin var hálf-
gert ævintýri...”
— segir Ragnheiður Sigurðardóttir
„Viö fórum aö haustlagi fyrir rúmu
ári síðan, ég og Birna vinkona mín.”
Dægradvalarviðmælandi okkar er
Ragnheiöur Siguröardóttir, auglýs-
ingateiknari og nemi í Fjölbrautaskól-
anum í Breiðholti. „Áöur en viö fórum
geröum viö uppdrátt af því sem okkur
langaði til aö sjá. Ætluðum að fara í
nokkuö stóran hring. En auövitaö kom-
umst viö ekki yfir aö sjá allt sem við
vildum. Frá Luxemborg fórum við til
Parísar og vorum þar í átta daga. Því
næst fórum við alla leiöina til Barce-
lona. Og þaö var strembin ferð, 14 tím-
ar. Maður hótaði að hætta þessu alveg,
fara bara heim, en auðvitað varmaður
búinn aö gleyma því daginn eftir! Lest-
imar eru mjög misjafnar eftir löndum,
ég held aö þær séu verstar á SpánL
Raunar er öll almenningsþjónusta til
dæmis í sambandi við tjaldstæöi og
auðvitað lestirnar fyrir neðan allar
hellurþar.
»-------------►
„Svaf eina nótt á brautarstöö og
það legg óg ekki á mig aftur. . ."
Ragnheiður Sigurðardóttir, augiýs-
ingateiknari.
DV-mynd: Bj. Bj.
En frá Barcelona héldum við eftir
suöurströnd Frakklands, frönsku
Rivierunni og fórum í átt til Italíu. Viö
fómm síöan til Flórens og Feneyja og
raunar einnig til baöstrandanna viö
Rimini rétt til aö kíkja á lífiö þar. Og
frá Italíu héldum viö til Sviss og þaðan
aftur til Lux og heim. Við vomm fimm
vikur í ferðinni, einni viku lengur en
miðinn gildir.” — Hvaö stoppuöuð þiö
lengi á hverjum staö? „Við vorum
lengst í París átta daga en annars
yfirleitt tvo til þrjá daga. Þetta var alls
ekki dýr ferð kostaöi mig um 12 þúsund
krónur fyrir ári. Viö vomm yfirleitt í
tjaldi, þó þrjár nætur á farfuglaheim-
ili, og eina nótt sváfum við á brautar-
stöð! Og þaö legg ég ekki á mig aftur!
— Af hverju völduð þiö þennan
ferðamáta frekar en hópferð eöa bara
sólarlandaferð?
„I fyrsta lagi fara sólarlandaferðir í
taugamar á mér,” segir Ragnheiöur
ákveðin á svip. „Maöur vildi kynnast
einhverju nýju og ekki síður aö geta
ráðiö sér sjálf. Maöur þarf á hverjum
degi að takast á viö eitthvaö nýtt velja
sér náttstað og sitthvaö fleira.”
— Hvaö var minnisstæðast við ferð-
ina?
„Eg veit ekki! Mér finnst þetta vera
hálfgert ævintýri þegar ég hugsa til
baka, næstum því ekki raunverulegt í
endurminningunni. ’ ’
„Tókum of
stóran hring”
— segir Sigurður Björnsson
„Eg fór í Interrail ferö fyrir þremur
ámm meö þremur félögum mínum.”
Það er Sigurður Björnsson sem talar.
„Fómm með Smyrli til Noregs og hitt-
um einn félaga okkar þar. Hringurinn
byrjaöi í Noregi meö því aö viö heim-
sóttum fólk í Þrándheimi en síöan fór-
um viö til Randers í Danmörku og
stoppuðum þar um stund. Frá Dan-
INTERRAIL
Texti:
Árni Snævarr
Myndir:
Bjarnleifur
Bjarnleifsson
og fleiri
mörku fómm við til Þýskalands til
Kölnar og Hamborgar meöal annars.
Síöan var þaö Frakkland og þá auðvit-
aö París. Við höföum ákveðið að fljúga
frá Skotlandi og fómm því frá París aö
vesturströnd Frakklands og tókum
ferju yfir til Bretlands. Viö stoppuöum
smá tíma í London en héldum svo sem
leið lá til Skotlands og f lugum heim.
Viö brenndum okkur nokkuö á því aö
taka of stóran hring, fara út í of mikla
keyrslu. Þaö er miklu betra aö skoöa
tiltölulega fáa staöi því ef áætlunin er
of mikil nær maöur ekki að skoða nema
mjög lítið á hverjum staö.”
— Sváfuð þiö í tjöldum í feröinni?
„Viö vomm á farfuglaheimilum þar
sem við gátum en í heimahúsum þar
sem við þekktum fólk, en stundum
tjölduðum við.”
— Hvaö er svo minnisstæðast viö
þessa mánaöarreisu ?
„Ja, eiginlega var þaö minnisstæð-
ast að einn af feröafélögum mínum
varð veikur. Hann fékk einhvern vírus
og fékk gangtruflanir í hjarta. Varöað
snúa viö heim á leiö þegar viö vomm
Sigurður segist vera atveg til i að
fara aftur i ferð með /nterrail miða
upp á vasann en segist þá ætla að
fara i minni radius.
DV-mynd: Bj. Bj.
komnir eitthvað inn í Þýskaland. En
auðvitað var ekki allt svo dapurlegt
langt í frá. Feröin með Smyrli var
mjög skemmtileg og svo get ég líka
nefnt minnisstæðan fótboltaleik sem
við sáum í Köln milli Kölnar og Ham-
borgar. En ferðin í heild var góö og til-
tölulega ódýr og ég gæti vel hugsað
mér aö skella mér aftur en fara þá í
minni radíus.”
TVSRSICOIR
ÍDÖGGINNI
Eftir Valdimar Hólm Hallstað
út er komin bókin „íslenskir málarar". í
bókinni er rakin í stórum dráttum saga
málarahandverksins hér á landi frá
upphafi ásamt æviskrám þeirra manna,
sem frá öndveröu hafa lagt stund á
i málaraiön.
Bókin er í tveim bindum alls rúmar 600
blaösíöur meö um 1000 myndum.
Sögusviðið spannar allt frá landnámi til
vorra daga.
Höfundur er Kristján Cuölaugsson
málarameistari.
MÁLARAMEISTARAFÉLAG REYKJAVÍKUR
SKIPHOLTI 70 — SÍMI 81165 — REYKJAVÍK
Dreifingu bókarinnar annast Prenthúsið s.f.,
Barónsstíg 11a, Reykjavík. Simi 26380.
9
Brunað áfram.