Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1982, Síða 19
DV. MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER1982.
19
Menning
Menning
Menning
Menning
gildi bókarinnar, en gefur henni hlýjan
andblæ. Bókin hefur ómetanlegt upp-
lýsingagildi og endurspeglar stööu
listamannsins í þjóöfélaginu og vaxt-
arskilyrði myndlistarinnar á þessum
árum. Eiríkur var á sínum tíma undra-
bam í myndlistinni á barnaskólaárun-
um suöur í Hafnarfiröi.
En undrabarnið óx úr grasi og náöi
bráðum og skjótum þroska í myndlist-
inni. Þaö er á oröi aö fáir íslenskir
myndlistamenn hafi gengiö í gegnum
eins margar og róttækar breytingar í
list sinni og Eiríkur Smith. Víst er aö
hann hefur þrætt dyggilega flestar
meiri háttar listastefnur sem hafa náö
að festa hér rótum og kannski alltaf
verið jafn sannfærður í stíl sínum og
1965 þegar hann var á kafi í abstrakt
expressíonismanum og Gísli Sigurös-
son listmáiari Haföi viðtal viö hann:
„Mér finnst eftirlíking ekki vera til
neins og held tæplega, aö ég muni
nokkurn tíma mála hlutlægar myndir
framar”. Þetta botnar Gísli heim-
spekilega með því að segja: „Aldrei
skyldi maöur segja aldrei, Eiríkur”.
(Steinar og Sterkir litir, 1965).
En sæll er sá sem hefur styrk til aö
fylgja sinni sannfæringu, í merkri bók
stendur líka aö allt hafi sinn tíma.
Þannig hefur Eiríkur kosiö að hefja
Djákninn é Myrká. Mest kemur Eiríkur á óvart með þjóOsagnamyndunum.
Þar fer saman ósvikin frásagnargleOi og næmt auga fyrir hinu afkáralega
og dramatiska í islensku þjóðsögunum.
nýtt líf í listinni hverju sinni er hann
hefur skilið aö, ,skynjun hans og mynd-
ræn hugsun haldast ekki lengur í hend-
ur,” eins og segir i formála Aðalsteins
þar sem hann gerir grein fyrir stöðu
Eiríks í íslenskri myndlist. Og þetta
„jafnvel þótt það hafi á stundum kost-
aö hann vinsældir, aðdáendur sem
vanisthafa fyrri „stíl” hans.”
Þaö þarf ekki aö fara í neinar graf-
götur um þaö aö Eiríkur Smith mun
vera einn af vinsælustu málurum
landsins. Hann segir sjálfur í niöurlagi
bókarinnar aö umfram allt langi hann
Barnaspilfyrir 2-4 þátttakendurfrá 5 ára aldri
UMBODS-OG HEILDVERSLUN
Laugavegi 18a Reykjavík Simi 12877
Nú er líka komið spil með Madditt!
Madditt er mesti prakkari og er
aðalpersónan í hinum vinsælu
Madditt-bókum Astrid Lindgren.
Páll Pálsson
1
til að vera íslenskur málari, jafnvel
þótt þaö kosti skilningsleysi útlend-
inga. Mér er ekki fyllilega ljóst hvaö
Eiríkur á þarna við, hvort þaö að vera
islenskur málari sé eitthvaö annað en
að vera heill og sannur í list sinni.
Myndvaliö í bókinni gefur gott yfirlit
yfir framleiðslu listamannsins og hafa
litprentanirnar tekist meö miklum
ágætum, enda Eiríkur einn af okkar
færustu prentmyndasmiöum og hefur
vakaö meö natni yfir þessum þætti
bókarinnar.
Mest kemur Eiríkur á óvart í þjóð-
sagnamyndunum sem prýöa síðustu
síöur bókarinnar. Þar fer saman ósvik-
in frásagnargleöi og næmt auga fyrir
hinu afkáraiega og dramatíska í ís-
lensku þjóösögunum. Þessarvatnslita-
myndir sýna afburöa tækni Eiríks meö
þennan viökvæma og vandmeðfama
tjáningarmiöil.
Síöustu myndir Eiríks lofa góöu um
framtíöina, þar virðist hann vera á leiö
út frá því sögusviði sem hann er ef-
laust hvaö þekktastur fyrir, þar sem
mannverur þessa heims eöa annars
birtast í landslaginu og veröa stundum
full áleitnar. I síöustu myndunum er
hann kominn út í hreinar landslags-
myndir og þaö er ekki erfitt aö koma
auga á andlegan skyldleika meö
fyrstu vatnslitamyndunum í bókinni
sem Eiríkur málaði fyrir 40—50 árum
og þeim síöustu frá þessu ári.
Þaö er full ástæöa til aö setja þessa
bók ofarlega á óskalistann og ekki aö-
eins jólalistann. Hún er afskaplega
eiguleg og aögengileg fyrir lesendur og
þaö ber eflaust að þakka hönnuöi
bókarinnar, Torfa Jónssyni. Og þá er
ekki annaö eftir en aö óska öörum
aðstandendum bókarinnar til ham-
ingju meö menningarlegt f ramtak.
Námsvist
í Sovétríkjunum
Sovésk stjórnvöld munu væntanlega veita einum Islendingi
skólavist og styrk til háskólanáms í Sovétríkjunum háskóla-
árið 1983—84. Umsóknum skal komið til menntamála-
ráðuneytisins, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, fyrir 15. janúar
nk. og fylgi staðfest afrit prófskírteina ásamt meðmælum. —
Umsóknareyöublöð fást í ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
14. desember 1982.
erum vid komin meó fuKt hós af jóla-
skrauti ogjó/apappír sem enginn annar
ermeó.
EINNIG:
Dúkar
Servíettur
Bönd
Slaufur
Merkimiðar
Kort
Kerti, spil
Leikföng
MU hCjsið
Laugavegi 178 — Sími 86780
(næsta hús við Sjónvarpið)
Fjölskytduskemmtun
að deginum verð kr. 75.-
14.00-14.15
Höllin opnuö - innganga
14.15-15.00
Stuðmenn spila og sprella
15.00-15.45
Skemmtidagskrá
Syngjandi Grýla Katla María
Danssýning Kór frá Keflavík
15.45-16.30
Stuðmenn spila og sprella
í annaðsinn
16.30-17.15
Skemmtidagskrá endurtekin
17.15-18.00
Stuðmenn spila og sprella
í þriðjasinn
Unglingaskemmtun
um kvöldið
fyrir 13ára og eldri
Verðkr. 100-
21.00 - 01.00 Stuðmenn sjá um fjörið.
Auk þess verður hátíðarstemming í Höllinni með fljúgandi
Leppalúða sem dreifir sætindum, míni Tívolí, furðudýrum, jólasveinum,
púkum og álfum, gengið í kringum jólatré, og margt, margt fleira
gert sér til gamans.