Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1983, Blaðsíða 9
DV. FÖSTUDAGUR 8. APRlL 1983.
9
Viö venjulega farangursleit á flug-
vellinum í Frankfurt fundu tollveröir
mesta magn af heróíni sem rekið hefur
á fjöruryfirvalda í V-Þýskalandi.
I ferðatösku 25 ára Indverja fundu
þeir tæp 40 kg af heróíni sem metiö er
til átta milljóna marka á svarta-
markaðnum.
Indverjinn haföi blandaö anísfræjum
saman viö heróínið vegna lyktarinnar
svo að hundar fíkniefnalögreglunnar
rynnu síður á hana. Heróínið var í
plastpokum sem geymdir voru á milli
teppa.
Maðurinn var á leiðinni frá Nýju
Delhí til London en hafði viðkomu í
Frankfurt þar sem hann er núna í
haldi.
Þýska lögreglan telur að smygiið
hafi verið skipulagt utan Vestur-
Þýskalands en Indverjinn verst allra
frétta enn sem komið er. Rannsókn er
hafin í Bretlandi vegna þessa smygl-
máls.
Umsjón:
Guðmundur Pétursson og Ólafur B. Guðnason
Ætlaaðsigra
8. hæsta fjall
heimsins
Italski fjallagarpurinn Reinhold
Messner hélt í gær af stað til Nepal
til þess að reyna að klífa áttunda
hæsta fjallstind heims, Cho Oyu.
Það hefur ekki verið reynt í
bráðumþrjátíu ár.
Messner, sem kleif Mount Ever-
est 1978 án súrefnistækja, gerir
þessa tilraun við þriðja mann.
Hann hætti við í desember í vetur
vegna of mikilla snjóa sem þá voru.
Þeir ætla upp suðvestur hlíöina
en þar hefur enginn reynt áður.
Cho Oy u er 8.150 metra hátt.
A/dreiofseintað
hættaaðreykja
eðadrekka
Heilbrigðissérfræöingar í Banda-
ríkjunum segja að heilsutjón af
völdum reykinga og ofneyslu
áfengis geti líkaminn hvenær sem
er lagað ef viökomandi einstakl-
ingur aöeins láti af óhollustunni.
Jafnvel heilaskemmdir af of-
neyslu áfengis þurfa ekki að verða
til baga því að aðrar heilafrumur
geta axlað störf hinna skemmdu ef
drykkjumaðurinn hættir að
drekka.
Eins er áréttaö fyrra álit lækna
um að lungu reykingamanna taki
bata ef hann hættir reykingum —
svo fremi sem skaðinn er ekki
orðinn alltof stór. En það er aldrei
talið um seinan aö hætta í þessu eða
ööru tilliti.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Fundu 40 kgaf heróíni
þrátt fynr klókindin
ALLSHERJARFUNDUR!
Kvennaframboðið í Reykjavík
hefur boðið efstu mönnum allr^
framboðslistanna í Reykjavík á
Borgina á sunnudaginn til að
svara spúrningum kjósenda.
Þetta er einstakt tækifæri til að
inna þá alla eftir viðhorfum og
stefnumálum! Fundurinn er öllum
opinn, hvar í flokki sem þær
standa.
LÁTIÐ EKKI HAPP tJR HENDISLEPPA!
MUNIÐ - Á SUNNUDAGINN
KL. 14 Á BORGINNI.