Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1983, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1983, Blaðsíða 15
DV. FÖSTUDAGUR 8. APRIL1983. 15 Guðmundur Sæmundsson segir að flokksræðið ríðihusum iAlþýðusambandinu. „Þverpólitísk" hreyfing" Áður fyrr var verkalýðshreyfingin — eða að minnsta kosti áhrifamestu stofnanir hennar — bitbein tveggja flokka og síöar fleiri. Hver flokkur reyndi aö narta sem mest af hinum. Þetta viðgengst að sjálfsögðu talsvert ennþá. Þó er orðið stórum meira áber- andi alls kyns samkrull og samstarf flokkanna, bein skipti valdapóstanna á milli þeirra eftir áætluðu fylgi. Stjórn- málamennimir í forystu verkalýðs- hreyfingarinnar skýra þetta og mæla fýrir því þannig að á þennan hátt skapist „friður” fyrir pólitiskum erjum, „samstaða” út á við og skyn- samleg málamiðlun gagnvart þeim öflum sem verkalýðshreyfingin sé samansett af. Þetta má auðvitað til sanns vegar færa. En um leið gerist annað sem þagað er yfir. Þverpóli- tískur hugsunarháttur foringjanna skapar meö þeim samstöðu um það aö það séu flokksforingjamir en ekki félagamir í hreyfingunni sem eigi að ráöa og skipta með sér völdunum. „Ópólitísk" hreyfing? Ýmsir setja samansemmerki á milli orðanna „flokkapólitík” og „pólitík”. Þetta er rangt. Pólitík er miklu almennara og víðfeðmara fyrirbæri en stundarþras og jafnvel langtíma- stefnur stjórnmálaflokkanna ná til. Þeir sem em á móti því að verkalýðs- hreyfingin sé flokkspólitískur hali á einum eða fleiri flokkum, þurfa alls ekki að vera andvígir því að hreyfingin setji fram kröfur og stefnu sem grípa eftirminnilega inn í íslenska pólitík. Þvert á móti. Það sem við flokkaand- stæðingar fömm fram á er'að pólitíkin sé í samræmi við hagsmuni fólksins. Verkalýðshreyfingin kemst aldrei hjá því að setja fram kröfur sem varða framtíðarhagsmuni verkafólks, t.d. um að skipta afrakstri vinnunnar á annan hátt en nú er gert — jafnvel í grundvallaratriðum. Og hún kemst heldur ekki hjá því að sýna viðbrögð við stjórnvaldslegum aðgerðum, sem snerta kjör launafólks, hvort sem slíkar aögerðir heita bráðabirgðalög, vísitöluskerðing, fiskverðsákvörðun eðagengisfelling. Rjúfum beinu tengslin! Þótt erfitt kunni að reynast að skera á dulin og óbein tengsl stjómmála- flokka og verkalýðshreyfingar með einhverjum patentráðum, er öðru máli að gegna um ýmis augljós atriði. Þar er vel hægt að grípa til beinna aðgerða til að rjúfa tengslin. Mig langar til að telja hér upp nokkur atriði sem ég veit að mikill þorri hreyfingar- meðlima er sammála mér um, — líka margir verkalýðsforingjar í hópi þeirra sem minna mega sín á æöstu stöðum. Eg tel t.d. að þeir sem eiga sæti í miðstjórn ASI, stjómum hinna ýmsu sambanda innan þess eða í stjórnum verkalýðsfélaga eða stofn- ana sem tengjast hreyfingunni (Alþýöubanka, lífeyrissjóðum o.fl.) eigi sjálfkrafa að missa þessi sæti sín, — ef þeir hella sér út í flokkapólitík. Þá á ég t.d. við að þeir taki sæti á Aiþingi, í sveitarstjórnum, i stjómum flokka eða flokksfélaga eða gerist fulltrúarflokka í opinbemm nef ndum eða ráðum. Eg hef heyrt þær mótbárur viö þessum hugmyndum að hér sé verið að skerða mannréttindi þeirra einstakl- inga sem í hlut kunna að eiga. Þetta er rangt. Öllum er frjálst aö hafa þær skoðanir sem þeir vilja og styðja þá stjómmálaflokka sem þeir sjálfir óska. Enginn getur tekið þann rétt frá þeim. En það er ekki þar með sagt að hver sem er eigi að geta orðið forystu- maður í verkalýðshreyfingunni. Atvinnurekendum er t.d. ekki einu sinni leyfilegt að vera félagar í hreyf- ingunni. Og í ljósi þess að allir flokk- amir þurfa einhvern tíma að taka meira tillit til hagsmuna atvinnurek- enda (t.d. í ríkisstjórnarsamstarfi) en verkalýðshreyfingunni er hagstætt, hvað er þá eðlilegra en að hreyfingin reyni að verja sig fyrir beinum áhrif- um shkra afla? Menn verða að kunna aðvelja ámilíi. Guðmundur Sæmundsson, Akureyri. Pótur Einarsson, nýskipaður flugmálastjóri. staklega í orkukreppunni nokkmm baunir em að öllu jöfnu ódýrari á ámm síðar því að kjötbollur og grænar heimsmarkaði en bensín og oiíur. „Aðfinnslulaust" Á sama hátt og sumar aðgerðir samgönguráðherra em oft á tíðum dálitið litríkar er þaö, sem hann segir til að verja aðgerðir sínar, stundum eilítið broslegt. I stuttu viðtali við Morgunblaöið út af ráðningu flugmálastjóra tók ráðherrann það þrisvar sinnum fram að Pétur Einarsson, sá sem starfið hreppti, hafði gegnt starfi flugmála- stjóra „aðfinnslulaust” við erfiðar aðstæöur. Það er ekki laust við að menn tengi saman þetta þrefalda „að- finnslulaust” og prófmálið, sem nú er nýlega fallinn dómur í, út af einkaerj- um Péturs við fyrrverandi undirmann sinn, sem hann krafðist aö yrði rekinn úr starfi frá flugmálastjóm á síðasta ári. Varla getur ráðherrann talið það aðfinnslur þótt dómstólar dæmi á manninn afglöp í starfi? Niðurlag I upphafi greinarinnar var það sagt að ekki væri alveg ljóst hvaða skilning háttvirtur samgönguráðherra leggur í orðið stjómmál. Hitt er þá fullkomlega ljóst að hann leggur ekki þann skilning í það hugtak sem viðtekinn er, þ.e. bar- átta hugmynda fyrir bættu þjóðfélagi. öllu heldur viröast hugmyndir hans, og reyndar annarra framsóknar- manna, ganga í þá átt aö markmiðið sé að „ná taki á kökunni” og skipta henni síðan bróðurlega á milli vina, kunningja og flokksfélaga. Þar virðist hugtakið misnotkun á valdi ekki vera til og þaðan af síður virðing fyrir al- mannafé (annarra manna fé). Eins og kunnugt er hefur Framsóknarflokkurinn ekki til í sínum herbúðum það sem kallað er stefna. Þaðan af síöur byggist flokkurinn í kring um hugsjónir. Með hliðsjón af því eru „stjómmál” formannsins kannski aðeins eðlileg svo flokkurinn þrífist. Einhvem veginn verður hann að fá atkvæöi. Haraldur Kristjánsson. Kjósendur! Athugiö hvort þið eruð á kjörskrá. Kærufrestur er til 8. apríl. Ef þið finnist ekki á kjörskrá, vinsamleg- ast hafið samband við kosningaskrif- stofuna, kjallara Kjörgarðs (gengið inn Hverfisgötumegin), símar 11179 og 21202. A-LISTINN ÍREYKJAVÍK GÖNGUSKÍÐASETT Göngu-skíði -skór -stafir -bindingar Þetta sett bjóðum við á aðeins kr. 2.500,- Eigum einnig úrval af gönguskí ðaf atnaði. Sportborg Hamraborg 6 Kópavogi, sími 44577. Póstsendum mz. Þetta er BLÁKÖLD STAÐREYND w Kæliskápar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.