Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1983, Blaðsíða 30
38
DV. FÖSTUDAGUR 8. APRIL1983.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 80., 84. og 88. tbl. Lögbirtingablaðs 1982 á Hæðar-
garði 9 Q, þingl.eign Arnarsi J. Magnússonar, fer fram eftir kröfu
Innheimtust. sveitarfél. á eigninni sjálfri mánudag 11. apríl 1983 kl.
14.30. Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 80., 84. og 88. tbl. Lögbirtingablaðs 1982 á hluta í
Grensásvegi 58, þingl. eign Helga Guðbrandssonar, fer fram eftir
kröfu Guðjóns Á. Jónssonar hdl. og Sveins H. Valdimarssonar hrl. á
eigninni sjálfri mánudag 11. april ki. 15.15.
Borgarfógetaembættið í Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 125. tbl. Lögbirtingablaðs 1982 og 7. og 10. tbl. þess
1983 á hluta í Háaleitisbraut 155, þingl. eign Garðars Ólasonar, fer
fram eftir kröfu Ara ísberg hdl. á eigninni sjálfri mánudag 11. april
1983 kl. 16.15.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og siðasta á Grundargerði 8, þingl. eign Sigrúnar Hjaltested, fer
fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavik á eigninni sjálfri mánu-
dag 11. apríi 1983 kl. 13.45.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
NÝIR UMBOÐSMENN:
Suðureyri
Ó/öf Aðalbjörnsdóttir
Brekkustíg 7
sími 94-6202.
Höfnum
Matthi/dur Kristjánsdóttir
Djúpavogi 10
sími 92-6922.
Djúpavogi
Gunn/augur Guðjónsson
Úthlíð
sími 97-8851.
STAÐGREIÐSLU-
AFSLÁTTUR
AF SMÁAUGLÝSINGUM
FRÁOG MEÐ 1. APRÍL.
Ákveðið hefur verið að veita
10% afslátt afþeim smáauglýsingum
íDV sem eru staðgreiddar.
Það telst staðgreiðsla
ef auglýsing ergreidd
daginn fyrir birtingardag.
Verð á einni smáauglýsingu
af venjulegri stærð,
sem erkr. 200,-
lækkar þannig
íkr. 180,-
efum
staðgreiðslu er að ræða.
Smáauglýsingadeild,
Þverholti 11 — sími27022.
Frá stofnfundi Umferöarlæknisfélagi íslands.
DV-mynd Bjamleifur
Umferðariæknisfræði-
félag íslands stofnað
— rannsóknir umferðarslysa út frá læknisfræðilegu sjónarmiði
Stofnað hefur verið Umferðarlæknis-
fræðifélag Islands. Að því standa 25
aðilar alls, læknar sem tengjast slysa-
vörnum og slysameöferð, samtök fatl-
aöra, Hjálparsveit skáta, Rauði kross
Islands, Umferðarráð og fleiri aöilar
sem hafa með slys og slysavarnir aö
gera.
Tilgangur félagsins er að hafa áhrif
á slysavarnir og beita sér fyrir
rannsóknum á hvað megi gera til að
draga úr slysum, sérstaklegá út frá
læknisfræðilegu sjónarmiði. Það geta
verið atriði eins og útgáfa ökuskír-
teina, gerð farartækisins sjálfs, bíl-
belti, notkun lyfja, áfengis við akstur
ogfleira.
Kosin var 5 manna stjóm á stofn-
fundinum og gengið frá lögum
félagsins. Formaður er Olafur Olafs-
son landlæknir, aðrir í stjórn eru:
Þórarinn B. Olafsson yfirlæknir, Nína
Hjaltadóttir frá Hjálparsveit skáta,
Sturla Þórðarson, fulltrúi lögreglu-
stjóra, og Kristinn Guðnason tauga-
skurðlæknir.
JBH
SÁÁ'
HLGANGURINN MÁ
EKKIGLEYMAST
„Sjúkrastöö SAA verður fokheld
eftir tvær vikur. Það þarf átak til aö
byggja tvö þúsund fermetra húsnæöi
á skömmum tíma. Viöa treystum
sem fyrr á stuðning og velvilja lands-
manna til að ljúka þessu verki
okkar,” sagði Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri
SAÁ, á blaðamannafundi nýlega.
„Neikvæð umfjöllun um söfnun
okkar í sumum fjölmiölum aö undan-
förnu hefur skyggt á tilganginn.
Yfir því emm við aö sjálfsögðu
leiðir. Við gerum okkur grein fýrir að
hringingar í fólk hafa sumar hverjar
farið yfir markið. Það viðurkennum
við fúslega og þykir miöur að svo
hafitiltekist.”
Kom fram í máli Vilhjálms að í
upphafi hafi veriö gerö áætlun um að
safna 25 milljónum króna og af því
fæm 15—20% í kostnaö. Þegar hafa
safnast 13 milljónir króna. Frá
opinberum aðilum hafa samtökin
fengið eina og hálfa milljón króna og
fjórar milljónir söfnuðust í happ-
drættinuífyrra.
„Þessi söfnun er geysiviðamikil,”
sagöi Vilhjálmur, „enda verkefnið
brýnt. Viö erum í bráðabirgðahús-
næði aö Silungapolli með afvötnunar-
stöðina og kemur nýja sjúkrastöðin í
hennar stað. Stöðin er fyrir alla
landsmenn og biðlistinn langur.”
Mönnum reiknast til aö núvirði
skuldabréfanna sé um ellefu
hundruð krónur. Fyrsta greiöslan af
þeim er 5. júní næstkomandi og sú
síöasta á sama tíma að ári. Upphæð-
in samsvarar tveimur sígarettum á
dag í eitt ár. Hendrik Bemdsen,
varaformaður SÁÁ er nýkominn
heim úr Bandaríkjaför, sem all-
nokkra umfjöllun hefur fengið í fjöl-
miðlum.
„Við höfum þegar undirbúið og
skipulagt söfnun meðal 3 þúsund
Islendinga í Bandaríkjunum, sem
var tilgangur ferðarinnar,” sagði
Hendrik. ,,Ég vil taka fram að ferðin
var ekki farin á kostnað SÁÁ. Auk
þess að undirbúa söfnun fyrir
vestan, blandaðist einnig inn í þessa
för skemmtiþáttur sem viö erum að
undirbúa. Á okkar vegum verður
skemmtiþáttur í sjónvarpinu 9. apríl
næstkomandi. Við vonumst þá til að
geta sýnt fólki að það geti átt glatt
kvöld með SÁÁ. 1 sambandi við þátt-
inn höfum við fengiö þekkta mann-
eskju til að koma hingað til lands frá
Bandaríkjunum. Sá aðili kemur á
eiginvegum.”
I húsakynnum samtakanna við
Síöumúla, þar sem til fundar var
boðað, fer fram mikil starfsemi
flesta daga og kvöld vikunnar. Þar
eru haldin námskeið, meðal annars
fyrir aðstandendur alkóhólista.
Einnig eru haldin eftirmeðferðar-
námskeið fyrir drykkjumenn. Sögðu
SÁÁ-menn að um fjögur hundruð
manns kæmu við sögu í starfsemi
samtakanna á dag. Sumir í meðferð,
aðrir í leit að fræðslu fyrir sjálfa sig
eða nána ættingja. Um 170 manns
bíða eftir plássi í dag á afvötnunar-
stöðina á Silungapolli. -ÞG
Eskifjöröur:
Aldargamalt skólahald
Um þessar mundir er öld liðin síðan
skólahaldi var komið á á Eskifirði. Var
þess minnst meö veglegri skólahátíð
þar í bæ um páskana.
Skólinn var fyrst settur 14. janúar
árið 1883, en þá haföi verið reist skóla-
hús, sem reyndar stendur enn, þótt
notað sé sem íbúðarhús. Núverandi
skólahús var hins vegar reist áriö
1910, en verið er að byggja nýtt. Fyrsti
skólastjóri Eskifjarðarskólans var
Ögmundur Sigurðsson en núverandi
og sá 18. í röðinni frá upphafi, er Jón
Ingi Einarsson. I upphafi voru
nemendur 16, en eru nú rösklega 200.
Afmælishátíðin hófst með hófi 30.
mars. Meðal gesta voru Einar Bragi
rithöfundur og frú, en hann hefur ritað
sögu skólans frá upphafi til ársins 1939
og Guðmundur Magnússon, fræðslu-
stjóri Austurlands og frú. Jóhann
Klausen bæjarstjóri flutti ávarp þar
sem hann skoraði á menn að strengja
þess heit aö nýja skólahúsiö kæmist í
notkun eigi síðar en haustið ’84. Fleiri
gestir fluttu ávörp, nemendur lásu upp
úr Eskju um aðdragandann að stofnun
skólans og fyrstu starfsmánuði hans,
og sýndar voru skuggamyndir frá
fyrstu dögum skólans.
Skólanum bárust margar góðar
gjafir. Lionsklúbbur Eskifjarðar gaf
myndsegulband, kvenfélagið Döggin
leirbrennsluofn og fræðslustjóri
afhenti ljósrit af Landnámu fyrir hönd
menntamálaráðuneytis. Þá afhenti
Einar Bragi fyrsta hlutann af lista-
verkagjöf, sem gamlir nemendur
skólans gefa. Þar er um að ræða 6
myndir og veggrefii, allt eftir
islenskar listakonur.
A skirdag var svo öllum bæjarbúum
boðið í afmæliskaffi. Þá var einnig
opnuð í skólahúsinu sýning á gömlum
og nýjum verkum eftir nemendur
skólans.
Emil Eskif irði/-KÞ