Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1983, Side 14
14
DV. FÖSTUDAGUR8. APRIL1983.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta í Dunhaga 18, þingl. eign Þórodds S. Skafta-
sonar o.fl., fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eign-
inni sjálfri mánudag 11. apríl 1983 kl. 11.00.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 81., 86. og 89. tbl. Lögbirtingablaðs 1982 á Kapla-
skjólsvegi 91, þmgi. eign Þórðar Johnsen, fer fram eftir kröfu Guðjóns
Á. Jónssonar hdl. á eigninni sjálfri mánudag 11. april 1983 kl. 11.15.
Borgarfógetaembættið i Reykjavík.
Nauðungaruppboð
að kröfu tollinnheimtu ríkissjóðs í Hafnarfirði fer fram opinbert upp-
boð á ótollafgreiddum vörum föstudaginn 15. apríl 1983 og hefst kl.
16 við skemmu Eimskipafélags íslands við norðurbakkann í Hafnar-
firði.
Selt verður m.a. tengivagn, myndsegulbandstæki, sperrur, efni og
timbur o.fl.
Greiðsla við hamarshögg.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði
Garðakaupstað
og á Seltjamarnesi
Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu.
- ÞEIRRA RÁÐ
HAFA VERIÐ REYND!
12 Framsóknarár
+ 8 Alþýðubandalagsár
+ 8 Sjálfstcbðisflokksár
- 70% verðbólga.
BETRI LEIÐIR BJÓÐAST:
Alþýðuílokkurinn
AUGLÝSENDUR
VINSAMLEG AST ATHUGIÐ
Vegna siaukinnar eftirspurnar eftir auglýsingarými í D V verðum við að fara ákveðið
fram á það við ykkur að panta og skila til okkar auglýsingum fyrr en nú er.
LOKASKIL
Hvernig má bæta verkalýðshreyfinguna?
FLOKKSRÆÐH)
MÁ MISSA SIG
Það sem hæst hefur borið á
opinberum vettvangi af málflutningi
þeirra sem andstæðir era þeirri stefnu
sem verkalýðsforystan rekur er gagn-
rýnin. Minna hefur borið á tillögum til
úrbóta. Það er ekki vegna þess að
gagnrýnendur séu svo hugmynda-
snauðir eða aö vilji þeirra sé sá einn að
rífa niður og dansa svo í rústunum.
Miklu fremur er það hitt að fjölmiðlar
virðast hrifnari af þeirri hliðinni — hún
hentar betur til frétta og yfirborðs-
legrar umfjöllunar. Viðbrögð verka-
lýðsforingja hafa einnig verið til aö ýta
undir þetta. Gagnrýni á starfshætti og
skipulag hreyfingarinnar hafa þeir
tekið og taka enn sem gagnrýni á sig
persónulega. Og viðbrögðin hafa því
verið tvenns konar, — annaðhvort
rammgirt og samansúrruð þögn, sem
er öllu algengari — eða harðar og stór-
yrtar árásir á gagnrýnendurna. Mál-
efnaleg umræða um ástandiö, úrbætur
eða aörar tillögur fæst ekki í gang —
ekki á þeim vettvangi.
Ég hef hugsað mér að fjalla hér í
nokkrum greinum aðallega um úrbóta-
tillögur, en minna um ástandið eins og
það er í dag. Þessi greinaflokkur er
saminn í tilefni þess að ASI hefur
ákveðið að nýbyrjað ár skuli helgaö
skipulagsmálum hreyfingarinnar. Sú
ákvörðun er vissulega þakkarverð og
um leið vísbending til okkar gagnrýn-
enda um að barátta okkar hafi borið
nokkum árangur.
„Frjáls"
verkalýðshreyfing?
Ein heista undirrót þess hve félags-
legt ástand verkalýðshreyfingarinnar
Guðmundur
Sæmundsson
er slæmt og hve illa hún gætir hags
félaga sinna er flokksræðið. Og með
flokksræði á ég við tök flokkanna á
hreyfingunni. Þeir virðast geta ráðið
því sem þeir vilja í allri stefnumótun
hennar, ýmist einn og einn í einu eða
með samstarfi sín á milli. I augum hins
almenna félaga er starfsemi verka-
lýðshreyfingarinnar því ekki óháð eða
frjáls hagsmunabaráttu, heldur aðeins
einn angi flokkapólitíkurinnar. Fólk
sem ekki hefur áhuga á flokkapólitík
hefur heldur engan áhuga á að starfa
innan verkalýðshreyfingarinnar,
meðan hún er eins og hún er.
Ég held að ekkert sé ofsagt þótt því
sé haldiö fram að fólk telji tengslin á
milli flokkanna og verkalýðshreyf-
ingarinnar almennt allt of mikil. I
rauninni má með fullum rétti halda því
fram að talið um „frjálsa” íslenska
verkalýðshreyfingu sé blekking. Vissu-
lega er hún frjáls, sé ástandiö borið
saman við fasismann í A-Evrópu, S-
Ameríku og víðar, — en eigum við aö
miða frelsishugtak okkar viö það
versta sem finnst í heiminum? Með
flokksræöinu er íslensk verkalýðs-
hreyfing fjötruö í þröngan ramma
flokkshagsmuna, en innan þess
ramma hefur hún visst svigrúm til að
„ráöa eigin málum” eins og þaö er
kallað.
Aðrir hagsmunir
En hvað er hægt að gera til að vinna
bug á flokksræðinu eða aö minnsta
kosti draga úr því? Auðvitaö era engar
aðferðir til sem einar sér geta brotið
niður flokksræðiö. Til þess þarf hugar-
farsbreytingu. Allir flokkarnir hafa
þurft og munu halda áfram að þurfa að
verja hagsmuni sem era andstæðir
vinnandi fólki. Enginn þeirra er fær
um eða reiðubúinn til að láta hagsmuni
verkalýðshreyfingarinnar sitja í fyrir-
rými til lengdar. Þessi stjómmálalegi
hráskinnsleikur hefur svo leitt til þess
að hreyfingin hefur veriö óspart notuð í
flokkspólitískum tilgangi. Hugarfars-
breytingin, sem ég minntist á áðan,
þarf að grandvallast á því átaki að slík
misbeiting sé röng, verkalýðshreyf-
ingin eigi að vera óháö stjórnmála-
flokkunum. Og samfara þeirri skoðun
þarf aö fylgja einhver vonarglæta um
að það sé hægt að breyta þessu.
Ennþá eigum við
„afreksmenn”
FYRIR
STÆRRIA UGL ÝSINGAR:
Vegna mánudaga:
FYRIR KL. 17 FIMMTUDAGA
Vegna þriðjudaga:
FYRIR KL. 17 FÖSTUDAGA
Vegna miðvikudaga:
FYRIR KL. 17 MANUDAGA
Vegna fimmtudaga:
FYRIR KL. 17 ÞRIÐJUDAGA
Vegna föstudaga:
FYRIR KL. 17 MIDVIKUDAGA
Vegna Helgarblaðs I:
FYRIR KL. 17 FIMMTUDAGA
Vegna Helgarblaðs II:
(SEM ER EINA FJORLITABLAÐIÐ)
FYRIR KL. 17 FÖSTUDAGA NÆSTU VIKU A UNDAN
AUKALITIR ERU DAGBUNDNIR
OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9-17.30.
A uglýsingadeild
Síðumúla 33 sími27022.
Stundum hefur verið sagt að islensk
stjórnmál séu orðin „flöt”. Þau séu
hallærislegur leikur litlausra
miðlungsmanna. Áður voru skörungar
og hörkutól en nú séu engir slíkir
lengur. Ekki skal fjölyrt um þessa
kenningu en víst eru þeir óneitanlega
svolítiö sérstakir sumir sem við eigum.
Björgunarmaður
Þannig er það stundum ekki fullljóst,
hvaða skilning háttvirtur samgöngu-
ráðherra leggur í hugtakið stjómmál.
Pólitísk meistaraverk á borð við þau
sem hann hefur verið að skemmta sér
við undanfarnar vikur og mánuði era
nokkuð sem ekki hefur áður sést í
Norðurálfu í eldri manna minnum. A
árinu sem leið gerði hann einum vina
sinna mikið góöverk. Hann bjargaöi
Kristni Finnbogasyni frá gjaldþroti
með því að versla örlítiö með flugleyfi
til Amsterdam fyrir nokkra skúra og
eina flugvél. Það voru sagðir dýrastu
skúrar í heimi á þeim tíma, sérstak-
lega þegar þaö er haft í huga, að
kaupandinn, Arnarflug, getur afar
ólíklega komið þeim í verð sem eldi-
viði.
Þegar ráðherrann setti það met í
misnotkun á aðstöðu sinni ræddu menn
það sín á meðal hvað það væri svo
áhrifaríkt sem Kristinn Finnbogason
hefði upp á ráðherrann að herma úr
því að honum tókst aö etja honum út í
svo augljósa björgunaraögerð. Menn
töldu það liggja í hlutarins eðli aö
Kjaliarinn
tæpast myndi nokkur stjórnmálamað-
ur, sem vandur væri að virðingu sinni,
taka upp á öðru eins án þess að ein-
hvers staðar leyndust þumalskrúfur í
farangrinum.
Flugmálastjórn
En aftur dregur til tíöinda. Sumir
höfðu jafnvel verið svo einfaldir að
halda að eitt Iscargó-ævintýri væri um
það bil nóg fyrir eitt kjörtímabil. En
það er nú aldeilis ekki.
Staða flugmálastjóra er auglýst laus
til umsóknar. Ráðherann tekur á
málinu með festu og öryggi landsföö-
urins og sendir það til umsagnár hins
virta flugráðs. Tveir umsækjendur eru
taldir koma helst til greina. Annar er
hámenntaður og þaulreyndur verk-
fræðingur, og að því er viröist flug-
málastjóri af himnum sendur, en hinn
frekar umdeildur húsasmiöur og lög-
fræðingur meö próf í logsuðu, rafsuðu
og argonsuðu. Flugráð mælir síðan ein-
róma með verkfræðingnum og
ráðherrann ræöur rafsuðumeistarann.
Löngum hefur íslensk pólitík þótt sér-
kennileg tík en nú þykir sem einhver
hafirekiðhöfuðiðí.
Kjötbollur
í villigötum
Fyrir rúmlega tíu árum var þaö
gjaman lagt fyrir gesti í samkvæmum
betri borgara hér í bæ sem gesta-
þraut, hvernig núverandi samgöngu-
ráðherra, sem þá var framkvæmda-
stjóri Rannsóknarráðs ríkisins, tókst
aö koma reikningi yfir kjötbollur og
grænar baunir á rekstrarkostnað bif-
reiðar. Þau heilabrot skiluðu ekki
árangri svo að vitaö sé. Hins vegar
þótti þaö bókhald þáverandi fram-
kvæmdastjórans með líflegra bókhaldi
sem þekkist og gat komið skemmtílega
á óvart. Hið opinbera greiddi nefnilega
rekstrarkostnað bifreiðarinnar og slík-
ar bifreiðar hafa ótrúlegustu þarfir. I
sjálfu sér var þarna um vísindalega
ráðgátu að ræða, sem nauðsynlegt
hefði verið að rannsaka og leysa, sér-