Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1983, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1983, Blaðsíða 5
DV. ÞRIÐ JUDAGUR 26. APRIL1983. 5 Stuðningsmenn hylltu Gunnar „Þau lengi lifi, húrra. ..” hrópuðu stuðningsmenn Gunnars Schram og hylltu hann og Elísu konu hans ákaft. Þetta var á heimili þeirra hjóna. „Eg vissi þetta allan tímann,” sagöi Gísli Olafsson, formaöur kjördæmisráðs, glaður þegar ljóst var að Gunnar náði kjördæmakosningu. „Þegar sprakk á bílnum mínum um tíuleytið á kosningamorguninn vissi ég að við næðum þrem.” Annar stuðnings- manna Gunnars trúði mér þó fyrir því að hann hefði vonast eftir enn meiru. Og það kom í ljós þegar á morguninn leið að meira fylgdi því þingflokksfor- maðurinn, Olafur G. Einársson, fór inn sem landskjörinn þingmaður. DS Smmtm Nýjasti þingmaður (eða þingkona) fíeykvikinga, Sigríður Dúna Krist- mundsdóttir, og eiginmaður hennar, Hjálmar fíagnarsson, sæl með sigur- inn. - DV-myndEinar Ólason. Fóstrufélag og Kennarasamband: Mótmæla hugmynd- um um kennslu 5 ára barna Stjórnir Fóstrufélags Islands og Kennarasambandsins hafa ritað borgarráði bréf þar sem þær mótmæla hugmyndum um kennslu 5 ára barna sem fram koma í samþykkt fræöslu- ráðs frá 28. mars. Bréf félaganna veröur aö öllum líkindum tekiö fyrir á fundi borgarráðs í dag. Fóstrufélagið og Kennarasambandið telja óþarft að taka upp kennslu fyrir fimm ára böm í tilraunaskyni enda hafi slíkar deildir starfaö um árabil í tveimur skólum. Fræösluráð lagði til í samþykkt sinni að tekin verði upp kennsla í a.m.k. einum skóla fyrir 5 ára böm. Fóstrufélagið og Kennara- sambandiö kveðast í bréfi sinu fagna tillögum Fræðsluráðs Reykjavíkur um að kennsla sex ára bama verði aukin. I bréfi sínu benda stjórnir félaganna á niðurstöður nefndar menntamála- ráðuneytisins um forskólastarf en hún varaði við að þjónusta fyrir 5 ára börn væri skert. Telja stjórnir félaganna hag 5 ára barna betur borgið á dagvist- umenígrunnskólum. ás ÁÆTLUNARFLUG Á FÁSKRÚÐSFIRÐI Áætlunarflug Arnarflugs til Fá- Egilsstaðaflugvöllur er lokaöur vegna skrúösfjarðar hófst á föstudaginn var. aurbleytu lendir vél Amarflugs á Fá- Flogið veröur þrisvar í viku, á mánu- skrúðsfirði. Bæjarbúar binda miklar dögum, miðvikudögum og föstudögum vonir við þessa miklu samgöngubót. næstu 2 mánuði til reynslu. Nú þegar DS/Ægir, Fáskrúðsfirði. Skátar hafa áhuga á Krísuvíkurskólanum Skátar á Reykjanessvæðinu hafa látið í ljós áhuga á að fá Krísuvíkur- skólann til afnota fyrir starfsemi sína. Er þama um að ræöa skátafé- lögin á svæöinu frá Kópavogi og suöur úr og em það nokkuð mörg fé- lög. Krísuvíkurskólinn stendur ónotaö- ur, eins og kunnugt er, og hafa ýmsir látiö í ljós áhuga á að nýta bygging- una. Skátarnir hafa verið að kanna möguleikana á þessu eins og fleiri og þá í samráði viö einhver önnur fé- lagasamtök. Hafa þeir hugsað sér að nota skólann undir þjálfunarbúöir og ýmsa aðra starfsemi. -klp- OPIÐ LAUGARDAGA Rcykjavíkurvcgi 68 Hafnarfirði Sími 54343 Takið eftir! Verð aðeins kr. 24,300,- Fæst í tveim Htum Góð greiðslukjör Sérverslun /-- Reiðhjólaverslunin i meira en hálfa öld ÖRNINNL Spítalastíg 8 vió Óóinstorg símar: 14661,26888 eetirM. iMIKLötlimi. IDÁRAÁBYRGB ÁSTEUI. ÍÁRSÁEYRGÐ Á CUIICÍHI. HöÓL ISÉRELÖKKI.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.