Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1983, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1983, Side 11
DV. ÞRIÐ JUDAGUR 26. APRÍL1983. 11 Guðmundur Einarsson, landskjörinn þingmaður Bandalags jafnaðarmanna íReykjaneskjördæmi: r ,ANÆGÐUR MEÐ UNDIRTEKTIRNAR’ „Viö erum náttúrlega ánægö meö okkar útkomu úr kosningunum,” segir GuömundurEinarsson, nýkjör- inn þingmaður Bandalags jafnaöar- manna í Reykjaneskjördæmi, er hann er beöinn álits á kosningaúrslit- unum. „Viö erum ánægö meö þær góðu undirtektir sem við höfum fengið og okkur sýnist þetta vera komiö nokkuö vel á veg,” bætir hann viö. Hvað tekur nú viö hjá Bandalagi jafnaðarmanna? „Menn verða bara að bíöa og sjá hvað nú tekur viö. Þaö er náttúrlega bæöi starf innávið í samtökunum og síöan tökum viö þátt í því sem verður fariö fram á viö okkur í sambandi viö þaö sem aö þjóðmálunum snýr,” segir Guömundur. Hvaö um heildamiöurstöður kosninganna? „Það er vert aö veita athygli aö í Reykjavík og Reykjanesi er fast aö 20 af hundraöi kjósenda, sem ekki kjósa gömlu fjórflokkana. Um heildarkosningaúrslitin hef ég ekki margt aö segja, menn sjá þessa augljósu valkosti hvaö varöar Guðmundur Einarsson, nýkjörinn alþingismaður. tveggja flokka stjórnir,” svarar Guðmundur. Hvernig leggst nýja starfið í þig? „Þaö leggst ágætlega í mig. Eg var búinn aö hugsa þennan möguleika áður en ég gaf kost á mér,” segir Guömundur Einarsson, landskjörinn þingmaöur Bandalags jafnaöar- manna í Reykjaneskjördæmi. -SþS. Námsstefna um logistik DV-mynd Bjarnleifur. . Kátir krakkar á Grænuborg. Ný Grænaborg tekur til starfa Nýtt bamaheimili, Grænaborg, tók til starfa á Skólavörðuholti fyrir skömmu. Bamavinafélagið Sumargjöf byggöi húsiö í stað gömlu Grænu- borgar, sem nú hefur oröið að víkja fyrir byggingarframkvæmdum á Landspítalalóðinni eftir hálfrar aldar starfsemi. Nýja Grænaborg er þriggja deilda dagvistarheimili fyrir 80 böm á aldrinum 2—6 ára. I hverri deild em tvær leikstofur, snyrting og móttöku- herbergi. Auk þess er þar stórt sam- eiginlegt leikrými, verkstæöi, herbergi til vatnsleikja og bókaherbergi. Aö sögn Jóhönnu Bjamadóttur, forstööukonu Grænuborgar, una böm og starfsfólk sér hiö besta í hinu nýja húsi, sem er í alla staöi hiö vistlegasta. Arkitektarnir Omar Þór Guömunds- son og Örnólfur Hall teiknuöu húsið, sem er 441 fermetri að stærö, en Auöur Sveinsdóttir landslagsarkitekt hannaði leiksvæöi. -EA. Lions-félagar á Höf n gefa röntgentæki Lions-klúbburinn í Homafirði færði fyrir skömmu heilsugæslustöð' staðarins ný og fullkomin röntgen- tæki aö gjöf. Tækin, sem em hin fyrstu sinnar tegundar hér á landi, ' em einkar auöveld i notkun að sögn kunnugra, enda sérstaklega ætluð heilsugæslustöövum. Verö þeirra var um 430 þúsund krónur og höföu þá skattar og aðflutningsgjöld verið felld niður. Enn vantar þó fram- köllunartæki og em Lionsmenn ákveðnir í að bæta úr því hið bráðasta. -EA/Júlia-Höfn. Góðir túrar togara á Eskifirði Sumardagsins fyrsta var ekkert Hólmanesiö kom inn úr veiðiferð á minnst á Eskifiröi, enda blindbylur. laugardag meö 185 tonn og Hólma- Eftir hádegi versnaði veöur mjög tindur kom inn fyrir nokkrum dögum mikið og voru 7 til 8 vindstig í fyrra- með 137 tonn. Svona góöa túra hafa kvöld og fram á nótt. togarar hér ekki fariö hátt í ár. -Regína Þjóðleikhúsið: Félag íslenskra iönrekenda gekkst nýlega fyrir námsstefnu um „logi- stik”, en svo nefnist fræðigrein sú sem fjallar um hagræðingu á flutninga- tækni og efnismeðferö. Flutt voru níu f agleg erindi um þau mál. Þar kom fram aö lækka má heildar- flutningskostnað einstakra fyrirtækja um allt að 50% með því að beita aðferðum þessarar fræðigreinar. Einnig að arðsemi f járfestinga til hag- ræðingar í flutningatækni og efnismeð- ferö er mun meiri en á öörum sviðum hagræöingarmála. Námsstefnuna sóttu um 70 manns og kom fram mikill áhugi á því að F.I.I. beitti sér fyrir samræmdum aðgerðum í logistik meöal fyrirtækja félagsins. Erindi þau sem flutt voru á náms- stefnunni veröa gefin út von bráðar. EA/fréttatUkynning. Nær 8.500 syningar Sýningar Þjóðleikhússins eru nú orðnar 8.448 talsins frá því að það hóf starfsemi sína sumardaginn fyrsta 20. apríl 1950. Sýningar á litla og stóra sviði leik- hússins eru orðnar7434 alls. Þama eru ekki taldar með sýningar og tónleikar á vegum aðila sem leigt hafa húsið heldur aöeins sýningar á vegum Þjóð- leikhússins sjálfs. Þá hefur leikhúsið sýnt víöa um land svo og erlendis, þannig aö heildarfjöldi sýninga er tæp- lega 8.500 eins og áðursagði. Sýningargestir em nú ríflega þrjár milljónir talsins. -JSS Eggjamálið: Kaupmenn mótmæla Á sameiginlegum stjómarfundi Félags matvörukaupmanna og Félags kjötverslana í Reykjavík, sem hald- inn var fyrir skömmu, var samþykkt að mótmæla harölega þeirri ákvöröun Sambands eggjaframleiöenda og síðar viöurkenningu Framleiðsluráös land- búnaðarins um að setja á stofn Sölu- félag eggjaframleiðenda, að því er segir í fréttatilkynningu frá félög- unum. I tilkynningunni segir ennfremur að ávkörðunin leiði til einokunar á sölu eggja til kaupmanna og að félagar í áðurgreindum kaupmannafélögum muni ekki sætta sig viö slíka starfs- hætti. Þeir telja eðlilegra aö frjáls samkeppni ríki um sölu og verö- lagningu þessarar vöru. Þá er skorað á alla þá sem stuölað hafa aö ofangreindri ákvöröun að draga hana til baka. Að öðmm kosti áskilja félögin sér rétt til að grípa til viðeigandi ráöstafana. -EA. STIGATEPPI Úrvalið hefur aldrei verið meira af stiga-, skrifstofu- og gangateppum. Einnig mikið úrval af herbergja- og stofuteppum. VERÐIÐ SÉRLEGA GOTT. _

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.