Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1983, Síða 32
32
DV. ÞRIÐJUDAGUR 26. APRIL1983.
Andlát
Guðrún Ingibjörg Sigurjónsdóttir lést
19. aprU 1983. Hún fæddist 26. júní 1889
að Laugalandi, Þelmörk í Hörgárdal.
Foreldrar hennar voru Sigurjón Jóns-
son og Sigríður Jónsdóttir. Guðrún
giftist Jónasi Guðmundssyni, en hann
lést árið 1959. Þau hjónin eignuðust
þrjú börn. Utför Guðrúnar var gerð frá
Siglufjaröarkirkju í morgun kl. 10.30.
Kristján Eggertsson, Þverholti 18B,
verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju fimmtudaginn 28. apríl kl. 10.30.
María Símonardóttir, Sólvallagötu 7A,
verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kapellu þriðjudaginn 26. apríl kl. 13.30.
Guðrún Jónsdóttir Bachmann, Tómas-
arhaga 37, verður jarðsungin frá Dóm-
kirkjunni í dag kl. 15.
Einar Jóhannsson, Hrafnistu, sem
andaðist 15. þ.m. veröur jarösunginn
frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 27.
apríl kl. 10.30 árdegis.
Oskar Bergsson, áður til heimilis að
Bókhlöðustíg 6c, Reykjavík, verður
jarðsunginn frá Nýju kapellunni í
Fossvogi miðvikudaginn 27. apríl kl.
13.30.
Minningarathöfn um Magnúsinu
Friðriksdóttur, Auðarstræti 5 Reykja-
vík, fer fram frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 27. apríl kl. 16.30.
Jarösett verður frá Landakirkju í
Vestmannaeyjum laugardaginn 30.
aprílkl. 14.
Baidur Guðmundsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri, Háteigsvegi 23,
verður jarösunginn frá Fossvogs-
kirkju miövikudaginn 27. apríl kl. 15.
Sigríður Jónsdóttir frá Kirkjubæ
veröur jarðsungin frá Dómkirkjunni
miðvikudaginn 27. apríl kl. 13.30.
Rúnar Ársælsson, Háseylu 21 Innri-
Njarðvík, lést að morgni föstudagsins
22. april.
Sigurjón Jónsson vélstjóri,
Miklubraut 30, lést í Borgarspítalanum
22. apríl sl.
Þorgeir Þórðarson múrari, Laugavegi
34, andaöist í Borgarspítalanum 23.
apríl.
Ragnhildur Rafnsdóttir, tii heimilis að
Kleppsvegi 142, andaðist í Land-
spítalanum þann 24. þessa mánaöar.
Björn Jónsson, Noröurgötu 19
Akureyri, andaðist sunnudaginn 24.
apríl.
Skíðaskórnir bjarga því að ég viti fyrir
vist hvort ég bef þyngst eða ekki.
Kveöjuathöfn um Guðrúnu Jóns-
dóttur, Lindargötu 28, fer fram í
Fossvogskapellu fimmtudaginn 28.
apríl kl. 16.30.
Otto Björgvin Árnason, Gnoðarvogi
32, sem andaöist á Vífilsstöðum þann
23. apríl 1983, veröur jarðsunginn frá
Fossvogskirkju þann 3. maí kl. 13.30.
Tilkynningar
Kvenfélag
Kópavogs
veröur meö félagsvist þriöjudaginn 26. apríl
kl. 20.30 í félagsheimilinu. Allir velkomnir.
Félag áhugamanna
um réttarsögu
Fræöafundur í Félagi áhugamanna um rétt-
arsögu veröur haldinn þriöjudaginn 26. apríl
1983 í stofu 103 í Lögbergi, húsi Lagadeildar
Háskólans, og hefst hann kl. 20.30 (stund-
víslega).
Fundarefni: Séra Kolbeinn Þorleifsson
flytur erindi, er hann nefnir: ,,Guös náö og
trúfrelsi — forsaga trúfrelsisákvæðis stjórn-
arskrárinnar.”
Aö loknu framsöguerindi veröa almennar
umræöur.
Fjáröflunarkaffi
til eflingar minningarsjóði Ingibjargar
Þórðardóttur verður sunnudaginn 1. maí kl.
15—17 í sfnaðarheimili Langholtskirkju.
Kvenfélag Kópavogs
verður með félagsvist í dag, þriðjudaginn 26.
apríl, kl. 20.30 í félagsheimilinu. Allir vel-
komnir.
Félagsvist
í safnaðarheimili
Hallgrímskirkju
Félagsvist veröur spiluö í safnaöarheimili'
Hallgrímskirkju í kvöld (þriöjudag) kl. 20.30
til styrktar kirkjunni.
Kvennadeild Skagfirðinga-
félagsins í Reykjavík
er meö veislukaffi og hlutaveltu í Drangey,
Síöumúla 35, sunnudaginn 1. maí kl. 14. Mun-
um á hlutaveltuna sé skilað í Drangey
miövikudaginn 27. apríl eftir kl. 19.30.
Veski týndist
Ljósbrúnt veski með öllum skilríkjum tapað-
ist aðfararnótt sumardagsins fyrsta, senni-
legast fyrir utan veitingahúsið Klúbbinn.
Finnandi láti vita í sima 27628.
Frá Skíðaráði
Reykjavíkur
Skíðaráö Reykjavíkur heldur hina árlegu
firmakeppni sína 1. maí nk.' í Bláfjöllum.
Keppt verður í göngu og svigi og keppir hvert
fyrirtæki annað hvort í göngu eða svigi.
Dregið verður um það í hvorri greininni hvert
fyrirtæki keppir. Keppendur frá félögunum úr
Reykjavík keppa fyrir fyrirtækin og draga
keppendur út fyrirtækin sem þeir keppa fyrir.
1 svigi er útsláttarkeppni, þ.e. tveggja brauta
keppni, en slík keppni er mjög skemmtileg á
að horfa. Vegleg verðlaun eru veitt þeim
fyrirtækjum sem hreppa fyrstu sætin.
Þau fyrirtæki sem hafa áhuga á þátttöku í
firmakeppninni og félögin í Reykjavík hafa
ekki þegar haft samband við, geta tilkynnt
þátttöku til Skíðaráðsins, (Viggó Benedikts-
son, formaður, simi 17100, Bergþóra Sig-
mundsdóttir, simi 45229).
Þátttökugjald er kr. 1.000,-.
Tónleikar
Tónleikar kórs
tónlístardeildar
Oslóarháskóla
Kór tónlistardeildar Oslóarháskóla. Tónleika-
ferð til Islands í apríl 1983. Kórinn mun halda
tónleika á eftirtöldumstöðum:
Háteigskirkju í Rvík þriðjudaginn 26.4. kl.
20.30.
Skálholtskirkju fimmtud. 28.4. kl. 21.
Landakirkju laugard. 30.4. kl. 17.
Stjórnandi kórsins er Knut Nystedt og
organisti er Vidar Fredheim. Kórinn hefur á
undanförnum árum farið í margar tónleika-
ferðir til annarra landa.
íslenska óperan á
Norðurlandi
Islenska óperan lagði af stað í leikför/söngför
um Norðurland sl. sunnudag, 24. apríl, með
barnaóperuna „Búum til óperu” eða „Litla
sótarann” eftir Benjamin Britten.
Fyrsta sýning var í gær á Blönduósi, 25.04.
kl. 14.00, síðan verður sýnt á Akureyri í dag,
miðvikudag og fimmtudag kl. 15.00 og kl.
18.00 alla dagana og Ioks í Hafralækjarskóla á
föstudag kl. 15.00 og kl. 18.00.
Alls taka 30 manns þátt í förinni, þar af 12
börn. Leikstjóri er Þórhildur Þorleifsdóttir.
Þýðingu söngtexta annaðist Tómas Guð-
mundsson. Hljómsveitarstjóri er Jón Stefáns-
son og sýnmgarstjóri er Guðný Helgadóttir.
Söngvarar eru: Elísabet Waage, Elísabet
Erlingsdóttir, Árni Sighvatsson, Sigurður
Pétur Bragason, Stefán Guðmundsson, Marta
Guðrún Halldórsdóttir, Gisli Guðmundsson,
Gunnar Freyr Amason, Olafur Einar Rúnars-
son, Þorbjöm Rúnarsson, Hrafnhildur
Björnsdóttir, Guðbjörg Ingólfsdóttir, Sólveig
Arnarsdóttir, Steinunn Þórhallsdóttir, Hall-
dór örn Olafsson, Ragnheiður Þórhallsdóttir,
í gærkvöldi__________________í gærkvöldi
ÓSKARINN FÆR ÓSKARINN
Oskarinn var sá dagskrárliöur
ríkisfjölmiölanna í gærkvöldi sem ég
veitti óskarinn fyrir skemmtUegheit.
Þaö eru ýmsar ástæöur fyrir því aö
þessi þáttur varö fyrir valinu hjá
mér en sú sem er hvaö þyngst á
metunum er aö ég sá hvorki né
heyrði aöra. Og þaö hlýtur jú alténd
aö vera verðmæt ástæða.
Hollywood hefur löngum veriö
nefnt musteri glamorsins og þá í
talsveröu háöi. Þegar betur er að gáö
sé ég enga ástæöu til að hæöast svo
mjög aö borginni og því fólki sem þar
býr. Þaö hefur skilað góðu og gildu
framlagi til kvikmyndaheimsins og
það er allnokkuð fyrir mig,
bíóáhugamanninn.
Þaö skal þó ekki dregin dul á aö
glimmerið getur gengiö út í öfgar og
hreinlega látiö fólk fá ofbirtu í
augun. Veriö eins konar tálsýn. Og
því veröur ekki neitað að talsvert er
af glimmerinu þegar óskarinn er
veittur.
Stjórnendur óskarsins í gærkvöldi
voru allir mjög frambærilegir þó aö
ég geti ekki stillt mig um aö hæia
grínköllunum þeim Dudley Moore og
Walter Matthau fyrir gott gaman.
Þar eru á ferðinni menn sem fá
mann til að fá magaverki af hlátri
þegar þeir jú vilja þaö viö hafa.
Ef ég skyldi þetta rétt þá voru 461
kvikmynd sem kom til greina aö
útnefna sem þá bestu. Og þessa tölu
má tífalda til aö fá allan þann fjölda
sem á möguleika í upphafi. En eins
og áöur geta ekki allir verið bestir.
Ég verð þó að nota tækifærið og lýsa
vonbrigðum mínum meö að myndin
King of Comedi skyldi ekki veröa út-
nefnd til verölauna, jafnfrábær og
hún er. Þar er Robert DeNiro upp á
sitt besta.
Þaö liggur nokkuö ljóst fyrir, eftir
óskarinn í gærkvöldi, að mikill
fengur er aö myndinni Gandhi, sem
sópaöi aö sér verðlaununum.
Sannarlega gaman þegar svona vel
tekst til.
Ekki get ég látiö hjá líöa að
minnast á heiöursóskarsmanninn
Mickey Rooney. Þarna kom hann í
öllu sínu fínasta pússi og tók viö
heiðursviðurkenningunni frá yfir-.
grínaranum Bob Hope.
Mickey hefur alla tíö verið mjög
sérstæöur leikari og einn af þeim
sem fólk man eftir. Og hann átti
þetta svo sannarlega skiliö kappinn
og eflaust mikið meira til.
Jæja, þá er ekkert annað eftir en
kalla þá hjá sjónvarpinu upp á sviöiö
og afhenda þeim þann gljáfægöa
fyrir aö sýna okkur aila óskarana í
gærkvöldi, þótt ekki væri í beinni út-
sendingu.
En ég ætla ekki aö bræöa óskarinn
lengur meö mér og óska öllum
leikurunum til hamingju um leiö og
ég lætsem Jón og Oskar heiti.
Jón G. Hauksson.
Steinunn Þorsteinsdóttir og Arnar Helgi
Kristjánsson.
Þetta er í fyrsta sinn sem Islenska óperan
fer í slíka ferð norður í land og væntir hún
góðra undirtekta. Fyrirtæki er stutt hafa
íslensku óperuna til þessarar ferðar eru: Ut-
gerðarfélag Akureyringa, Kaupfélag Eyfirð-
inga og Iðnaðardeild sambandsins.
Ferðalög
Frá Ferðafélagi
íslands
Miðvikudaginn 27. apríl kl. 20.30 verður kvöld-
vaka á vegum Ferðafélagsins á Hótel Heklu,
Rauðarárstíg 18.
Efni: Jón Jónsson jarðfræöingur: „Litastum
á svæði Skaftárelda”, í máli og myndum.
Þann 8. júní nk. eru tvö hundruð ár frá því
gosið hófst í Lakagígjum.
Myndagetraun og verðlaun veitt fyrir rétt-
ar lausnir.
Leiklist
Frá Leikfélaginu
Baldri Bíldudal
Leikfélagið Baldur á Bíldudal hefur að undan
fömu unnið að æfingum á leikritinu Sjóleiðin
til Bagdad eftir Jökul Jakobsson. Leikstjóri
er Kristín Anna Þórarinsdóttir, en hún hefur
áður leikstýrt fyrir Baldur Tobacco road og
Skjaldhömrum.
Með hlutverk í Sjóleiðinni fara: Heba Harðar-
dóttir, Ottó Valdimarsson, Þuríður Sigur-
mundsdóttir, Hannes Friðriksson, Jóna
Gunnarsdóttir, Agnar Gunnarsson og Ágúst
Gíslason. Hvíslarar eru Elínborg Benedikts-
dóttir og Ema Hávarðardóttir. Leiktjöld mál-
ar Hafliöi Magnússon.
Fyrirhugað er að frumsýna verkið laugardag-
inn 30. apríl og í f ramhaldi af því er ætlunin að
ferðast með það víðsvegar um Vestfirði.
Leiksmiðjan Ringulreið sýnir
„Ætt í Óðindælu"
Leiksmiðjan Ringulreið hóf starfsemi sína í
Menntaskólanum við Hamrahlíð síðastliðið
haust. Fyrsta skrefið var eins konar nám-
skeið þar sem hópurinn vann með helstu
undirstöðuatriði leikrænnar tjáningar, radd-
og líkamsþjálfun, framsögn o.fl. Síðan voru
þessir þættir notaðir sem undirstaða í
skapandi starfi þ.e.a.s. spuna. I vetur hefur
verið unnið út frá ýmsum hugmyndum og
ákveðin þemu tekin fyrir og þannig hefur efni-
við verið safnað í sarpinn. Textar frá ýmsum
skeiðum bókmenntasöfunnar svo og frum-
samdir hafa verið kannaðir og krufnir og orð-
ið veigamikill þáttur í spunanum. Hópurinn
hefur verið með nokkrar uppákomur í vetur,
t.d. Draugasónötu í Norðurkjallara í október,
performance á Þorravöku MS o.fl. Einnig tók
hópurinn þátt í götuleikhúsinu mikla í miðbæ
Reykjavíkur 25. mars. Nú er komið að loka-
verkefni vetrarins og langviðamesta verki
hópsins fram að þessu, sýningunni, „Ætt í
Oðindælu”. Þessi sýning er eins konar sum
sumarum af vinnu vetrarins og tekur heila
kvöldstund í flutningi. Leikendur eru sjö, en
leiðbeinandi og leikstjóri i vetur hefur verið
Rúnar Guðbrandsson. Sýningar verða í
Norðurkjallara MH, miðvikudag 27. apríl,
fimmtudag 28. apríl og föstudag 29. apríl og
hef jast kl. 20.30. Aðeins 40 áhorfendur komast
á hverja sýningu og húsinu verður lokað strax
og sýning hefst. Miðar kosta 75 kr. og allir eru
velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Fundir
Kvenfélag
Bæjarleiða
heldur fund í kvöld, þriðjudaginn 26. apríl, í
safnaðarheimili Langholtskirkju kl. 20.30.
Kenndur verður pennasaumur. Stjórnin.
JC Reykjavík
Lokafundi hjá JC Reykjavík sem halda átti í
kvöld hefur verið frestað til laugardagsins 30.
apríl og verður í Víkingasal Hótel Loftleiða og
hefst kl. 12.30 með borðhaldi. Rökræðueinvígi
verður á milli JC Reykjavík og JC Vest-
mannaeyjum. Stjórnin.
Kvenfélag
Langholtssóknar
boðar til fundar þriðjudaginn 3. maí kl. 20.30 í
safnaöarheimilinu. Dagskrá: venjuleg
fundarstörf, skemmtiatriði, myndasýning frá
30 ára afmæli félagsins, kaffiveitingar.
Gestur fundarins verða konur úr kvenfélagi
Breiðholts.
Stjórnin.
Kvenfélag Hreyfils
Fundur í kvöld, þriðjudaginn 26. apríl, kl.
21.00. Snyrtidama kemur á fundinn. Mætum
stundvíslega. Stjórnin.
Gjaldþrot
Með úrskurði skiptaréttar Reykjavíkur upp
kveðnum 4. mars 1983 var bú Haralds Páls-
sonar, nafnnúmer 3786-1900, Safamýri 21,
Reykjavík, tekið til gjaldþrotaskipta.
Með úrskurði skiptaréttar Reykjavíkur upp
kveðnum 4. mars 1983 var bú Hlíðarenda hf.
nafnnúmer 4238-6642, Reykjavík, tekið til
gjaldþrotaskipta.
Með úrskurði skiptaréttar Reykjavíkur upp
kveðnum 4. mars 1983 var bú Húsáss hf.
nafnnúmer 4451-5679, Reykjavík tekið til
gjaldþrotaskipta.
Með úrskurði skiptaréttar Reykjavíkur upp
kveðnum 4. mars 1983 var bú Jens Sigurðs-
sonar, nafnnúmer 4920-9568, Bergþórugötu 51,
Reykjavík, sem rak einkafirma, Aðalmáiara,
nafnnúmer 0055-4006, tekið til gjaldþrota-
skipta.
Fyrirtæki
Björn Agnarsson, Sunnubraut 25, Kópavogi,
rekur einkafirma undir nafninu Bygginga-
hönnun. Tilgangur firmans er tækniráðgjöf og
hönnun mannvirkja.
Magnús Sveinsson, Fjólugötu 9, Vestmanna-
eyjum, rekur í Vestmannaeyjum verslun með
öl, tóbak og sælgæti og skyldan varning ásamt
umboðssölu með olíur og bensín fyrir Olíu-
verslun Islands hf„ undir firmanafninu
Klettur.
Ný störf
Hinn 16. febrúar veitti heilbrigðis- og
tryggingaráðuneytið Samúel Jóni Samúels-
syni, lækni, leyfi til þess að starfa sem sér-
fræöingur í heimilislækningum hér á landi.
Hinn 28. febrúar 1983 veitti heilbrigðis- og
tryggingaráöuneytið cand. med. et chir. Guð-
brandi E. Þorkelssyni, leyfi til þess að stunda
almennar lækningar hér á landi.
Kaupmálar
Eftirtaldir kaupmálar hafa verið skrásettir
hjá embætti bæjarfógetans i Hafnarfiröi,
Garðakaupstað, og á Seltjarnamesi og sýslu-
mannsins í Kjósarsýslu í febrúar og mars ’83.
Milli Gríms Halldórssonar, Asbúð 49, Garða-
kaupstað og Hildar Maríu Blumenstein s. st.
(17. febrúar).
Milli Margrétar Jóhönnu Böðvarsdóttur,
Smáraflöt 28, Garðakaupstað og Þorsteins
Magnússonar s. st. (16. febrúar).
Milli Sigurðar Guðmundssonar, Breiðvangi
16, Hafnarfirði og Þórhöllu Guðmundsdóttur
s. st. (4.mars).
Milli Ulfars Nathanelssonar, Mávanesi 2,
Garðakaupstaö og Ásdisar Erlingsdóttur, s.
st. (25,mars).
Hinn 7. mars sl. var skrásettur við embætti
bæjarfógetans á Akureyri og Dalvík og sýslu-
mannsins í Eyjafjarðarsýslu kaupmáli milli
hjónanna Jóns Sigþórs Sigurðssonar, Hrisa-
lundi 12c, Akureyri og Sólrúnar Helgadóttur
s. st.
Ingvar
hæstur
Vegna þess aö nokkuö viröist mismun-
andi hvemig frá tölum Hagstofu
Islands um bifreiðainnflutning er
greint í dagblöðum vill Ingvar Helga-
son hf. benda á eftirfarandi:
Það bifreiðaumboð sem flesta bíla
seldi fyrstu þrjá mánuði þessa árs er
Ingvar Helgason hf. sem seldi alls 188
bíla en það samsvarar 13,1% af mark-
aðshlutdeild seldra bíla. Þau bifreiða-
umboð sem á eftir koma eru: Bílaborg
með 162 bíla og 12,26% markaðshlut-
deildar, Bifreiðar og Landbúnaðarvél-
ar með alls 159 bíla og 11,05%
markaðshlutdeildar, Veltir hf. meö
alls 140 bíla og 9,7% markaðshlutdeild-
ar og Hekla hf. meö alls 113 bíla og
7,8% markaöshlutdeildar.
Mest seldi bíll fyrstu þrjá mánuði
ársins erSubaru 1800, fjórhjóladrifinn.
Af honum seldist alls 92 bílar og hefur
Subaru 1800 því 7,4% markaðshlut-
deildar fólksbíla. Næstir á eftir honum
koma Volvo 244, alls 79 bílar og 6,4%
markaðshlutdeildar,. Daihatsu
Charade, alls 76 bílar og 6,1% mark-
aðshlutdeildar og Mazda 929, alls 75
bílar og 6,0% markaðshlutdeildar.
Mest seldi sendibíllinn fyrstu þrjá
mánuði þessa árs var fjórhjóladrifinn
Subaru 700: Af honum seldust alls 20
bílar og hefur fjórhjóladrifinn Subaru
700 því 23% markaðshlutdeildar sendi-
bíla. Næstir á eftir honum koma Volks-
wagen Golf, alls 17 bílar og 19,5%
markaðshlutdeildar, Suzuki st. 90, alls
8 bílar og 9,2% markaðshlutdeildar,
Nissan Urvan, alls 6 bílar og 6,9%
markaðshlutdeildar, og Mitsubishi
L300, alls 6 bílar og 6,9%
markaðshlutdeildar.
Mest selda vörubifreiðin undir 3
tonnum var Volvo C202. Af honum seld-
ust alls 20 bílar og samsvarar það 19%
markaðshluteildar. Næstir á eftir hon-
um koma Isuzu pickup dísil, alls 13 bíl-
ar og 12,5% markaðshlutdeildar og
Nissan King Cab, alls 12 bílar og 11,5%
markaðshlutdeildar.
Ef litið er á heildartölur vinnubíla
hefur bifreiöaumboðið Ingvar Helga-
son hf. selt flesta vinnubíla, alls 46 bíla
sem samsvarar 24% markaðshlut-
deildar. Næstu bifreiðaumboö þar á
eftir er Veltir hf. með alls 29 bíla og
15% markaöshlutdeildar, Hekla hf. og
SlS meö jafnmarga eða 24 bíla og
12,5% markaðshlutdeildar hvort fyrir
sig.