Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1983, Blaðsíða 2
2
DV. LAUGARDAGUR30. APRIL1983.
Engin bankaábyrgð
komin frá Nígeríu
— og því óvíst um sölu á 1000 tonnum á skreið og
hertum þorskhausum
ási .
Ekki er vist afi neitt veröi úr
skreiðarsölu þeirri t Nigeríu semsagt
var frá í fréttum i blöóum og útvarpi
nýlega. Engin bankaábyrgð er komin
frá Nígeríu fyrir þessari sendingu og
meöan svo er fer engin skreiö héöan
þangaö.
Samlag skreiöarframleiöenda og
Sjávarafuröadeild SIS hafa unnið aö
þessari sölu. Er þarna um aö ræöa 30
þúsund pakka af skreiö og eitthvert
magn af hertum þorskhausum. And-
virði þessa magns er 8,2 milljónir doll-
ara.
Nokkuö er síðan frá þessu var geng-
ið en þar sem engin bankaábyrgð cr
komin frá Nígeríu fyrir þessari upp-
hæð, hefur ekkert frekar gerst í mál-
inu. Veröur ekkert sent fyrr en
bankaábyrgöin liggur á boröinu. Getur
oröiö nokkurra vikna biö á því enda
ganga hlutirnir mjög hægt fyrir sig í
Nígeríu.
Þaö magn sem þarna er um aö ræöa
eraöeins brot af þeirri skreiösemtil er
í landinu. Taliö er aö til séu hér um 220
þúsund pakkar og fyrir þá ætti aö fást
um 50 milljónir doilara miöaö viö
núverandi verölag.
Skreiðamarkaðurinn í Nígeríu hefur
veriö lokaður síöan í apríl í fyrra og
hefur því skreiöin hrúgast upp hér. Er
ástandið hjá skreiðarframleiðendum
mjög slæmt af þeim sokum og menn
hafa því velt fyrir sér ýmsum leiöum
til aö koma skreiðinni í verö ef mark-
aðurinn í Nígeríu opnast ekki f lj ótlega.
Meöal þess er sú hugmynd aö mylja
skreiöina í mjöl og koma henni þannig
á markað. Ansjósuveiöar Perúmanna
munu ekki hafa gengiö sem best í ár og
því er mjölmarkaður heimsins opinn
og þar gott verö aö fá.
Skreiðarframleiðendur hér telja þaö
þóafog fráaöfara útíþetta. Ur6kg af
skreiö muni í hæsta lagi fást 1 kg af
mjöli og muni þetta því engan veginn
borga sig. Menn veröi bara aö bíöa
áfram og vona aö Nígeríumarkaðurinn
opnistaftur.
-klp-
Norræn trimmlandskeppni fatlaðra:
Náí fyrstu stigin í
1. maígöngunni
Norræn trimmkeppni fatlaðra hefst Keppnin er tvíþætt. í fyrsta lagi er hestamennska, hjólastólaakstur og
Skreiðarmarkaðurínn i Nigeriu hefur verið lokaður í eitt ár og þvi hefur
skreiðin hrúgast upp hér.
á sunnudaginn. Er þaö í annað sinn
sem slík keppni fer fram, en hún fór i
fyrsta sinn fram áriö 1981 á ári fatl-
aöra — og sigruðu Islendingar í þeirri
keppni meömiklumglæsibrag.
Takmarkið núnaeraöhalda bikarn-
um sem um er keppt og jaf nf ramt að fá
enn fleiri til aö vera meö, en þá tóku
1100 manns þátt í keppninni hér.
keppni á milli Norðurlandanna, en einn-
ig er keppni á milli héraðssamband-
anna. Hlýtur þaö héraðssamband
„Dagblaöshorniö” til varöveislu sem
flest stig fær miöaö viö íbúafjölda. Er
þaö DV sem gefur þann glæsilega grip.
Keppnisgreinar í trimmkeppninni
eru ganga, hlaup, sund, hjólreiöar,
Seg/brettin
komin aftur
UTIUF
15.800.
GLÆSIBÆ
SÍMI82922
kajakróður. Hver keppandi fær þátt-
tökukort sem hann skráir árangur sinn
inn á. Liggja kort þessi frammi á öll-
um sundstöðum, sjúkrahúsum, elli-
heimilum, hjá Sjálfsbjargarfélögum,
héraðssamböndum og öörum víöa um
land.
Allir fatlaöir eiga rétt til þátttöku í
keppninni og einnig fólk sem ekki býr
viö langvarandi fötlun. Telst t.d. hand-
leggsbrotinn maöur fatlaöur þar til.
hann hefur náö fullum bata. Gefur
þetta því fjölmörgum möguleika á aö
vera meö.
Keppnin byrjar eins og fyrr segir á
morgun 1. maí. Munu þá margir
fatlaðir taka þátt í 1. maí göngunni, en
þátttaka í henni gefur stig því aö
ganga er meðal kep'pnisgreina ef
gengiöerí a.m.k. 30mínútur.
-klp-
1. maí:
HATIÐAHOLDINI
LAUGARDALSHÖLL
Aö þessu sinni veröa engar kröfu-
göngur famar niöur Laugaveginn 1.
maí, eins og venja hefur veriö. Engin
samkoma veröur heldur á Lækjar-
torgi en þess í staö veröur hún í
Laugardalshöll. Þangað veröur
gengiö frá húsakynnum ASI, aö
Grensásvegi 16, og leggur gangan af
staö klukkan 13.30. Gengiö veröur
vestur Fellsmúla, um Safamýri,
Ármúla, Hallarmúla, Suöurlands-
braut, Reykjaveg aö Laugardalshöll.
Fyrir göngunni leikur Lúörasveit
verkalýösins en einnig mun Lúöra-
sveitin Svanur leika í göngunni.
í Laugardalshöllinni hefst sam-
felld dagskrá klukkan 14.15 meö
ræöu Snorra Konráðssonar, varafor-
manns Félags bifvélavirkja. Aörir
ræðumenn veröa Albert Kristinsson,
1. varaformaöur BSRB, og fulltrúi
iönnema, Gunnar Tryggvason, for-
maöur INSI:
i Að auki munu koma fram þau
Kristín Olafsdóttir, Guðmundur
Hallvarðsson, Kolbeinn Bjamason,
Ársæll Másson, Sigrún Valgerður
Gestsdóttir, Jón Júlíusson,
Þursaflokkurinn o.fl.
I anddyri Laugardalshallar verður
kynning á ASI og BSRB og þeirri
starfsemi sem þessi félagasamtök
rækja.
-SþS
Kópavogur:
Nýr skemmtistaður
fyrir ungíinga
Á næstu dögum verður opnaður í
Kópavogi skemmtistaður fyrir ungl-
inga. Hann verður til húsa aö
Smiðjuvegi 14 d við hliðina á Smiöju-
kaffi.
„Viö opnum eftir þrjár vikur ef öll
tilskilin leyfi veröa fyrir hendi,”
sagði Vilhjálmur Svan í viötali við
DV. „Viö ætlum aö hafa þarna diskó-
tek til aö byrja meö. Ef það gefst vel
og aösókn verður góð getum við ef til
vill boöiö upp á eitthvaö fleira þegar
fram líða stundir. En unglingarnir
ráöa alveg feröinni i þeim efnum. ”
Vilhjálmur, sem áöur starfaði á
Villta tryllta Villa, sagöi aö hann
heföi heyrt margar óánægjuraddir
meöal unglinga þegar þeim stíið var
breytt í vínveitingastaö. Hann heföi
því ákveðið að athuga hvort ekki
væri grundvöllur fyrir rekstri
skemmtistaðar fyrir unglinga og
fengiö inni í Kópavogi.
„Þessi nýi staöur á aö rúma um
300 manns,” sagöi hann. „Maður
veröur sjálfsagt ekki feitur af þessi
og því veröur farið hægt af staö. Ej.
auövitaö fer þetta allt eftir aösókn-
inni.”
-JSS.
Sjúkrastöð SÁÁ:
Fjölnir gaf
andvirði eins
herbergis
Lionsklúbburinn Fjölnir í Reykjavík
hefur gefiö í söfnun SAÁ, vegna
byggingar sjúkrastöövar viö Grafar-
vog, upphæö sem nægir til að útbúa eitt
fjögurra manna herbergi í sjúkrastöö-
inni. Upphæö gjafarinnar er 82 þúsund
krónur.
Fjölnir er fyrsti aöilinn sem gefur til
ákveðins verkþáttar í sjúkrastööinni,
aö því er segir í frétt frá SÁÁ. Mun
gjöfin veröa sérstaklega merkt gef-
andanum í sjúkrastööinni þegar hún
veröur fullbúin í október nk.
-JSS
BÍLASÝNING
OPIÐ í DAG, LAUGARDAG, KL. 13-17
Sveinn Egiisson hf.
SUZUKI
Skeifan 17. Sími 85100