Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1983, Page 4
4
DV. LAUGARDAGUR30. APRÍL1983.
Kynsjúkdómar kosta
þjóðarbúií i milljónir
króna á é íri hverju
og eru þá ómældar líkamlegar og andlegar þjáningar
auk ófrjósemi sem getur fylgt í kjölfarið
Kynsjúkdómar kosta þjóðarbúið
milljónir á ári hverju. Þar að auki
verður aidrei metið til f jár að stundum
valda þeir ófrjósemi um skeið, jafnvel
ævilangt. Líklega verður aldrei hægt
að koma í veg fyrir kynsjúkdóma en
með aukinni fræðslu um hvernig hægt
er að koma í veg fyrir þá má draga úr
vissu þjóðfélagsböli.
Samkvæmt óprentaðri skýrslu
tveggja iækna, Benedikts Sveinssonar
og Siguröar S. Magnússonar, um lek-
anda og eggjaleiðarabólgu á Kvenna-
deiid Landspítalans árin 1978—1980,
ræktaöist lekandasýkill hjá 120 konum
þar á þeim tíma. Flestar voru á aidrin-
um 16—25 ára.
Talsverðar líkur eru taldar á aö lek-
andi valdi eggjaleiðarabólgum hjá
konum eða tæplega 20%. Um 250 konur
voru greindar með slíkar bólgur á
kvennadeildinni árin 1978—1980 og var
meðallegudagaf jöldi þeirra 12,5 dagar.
Með því að áætla kostnað við hvern
legudag um 3000 krónur er heiidar-
kostnaðurinn rúiaar 9 miiljónir króna
þessi ár. Áriö 1981 er kostnaöur vegna
þessa sama áætlaöur 3,5 miiljónir. í
fyrra voru 90 konur á Landspítalanum
með eggjaieiðarabólgu vegna chlamy-
dia-bakteríu og 22 vegna iekanda, alls
112. Legudagar hafa þannig verið um
1400 og heildarkostnað má áætla 4,2
milljónir. Eggjaleiðarabólga hefur því
árin 1978—1980 kostað islcnska þjóöar-
búið 17 milijónir króna og er þó vægt
reiknað. Þyrfti ekki að bjarga nema
1—2 konum frá þvi aö leggjast á
sjúkrahús vegna eggjaleiðarabólgu til
að vega upp á móti kostuaöi við
fræðslu um kynsjúkdóma sem fram fer
á vegum landlæknis. JBH
Læknanemar hafa verið iðnir við að fræða nemendur i framhaldsskólum um kynsjúkdóma þó fjárskortur
hafi komið i veg fyrirað eins vel væri gert og stefnt var að. Á myndinni er Guðmundur Karl Snæbjörnsson
að uppfræða nemendur iKennaraháskóia íslands. D V-mynd: S.
Kynsjúkdómafræðsla
nema í læknisf ræði
á vegum landlæknis
Læknanemar hafa undanfarin f jögur
ár séð um kynsjúkdómafræðslu í skól-
um hér á landi. Hafa þeir sjálfir unniö
kennslugögn sem þeir nota. Það eru
nemar á fjórða ári í læknisfræöi sem
hafa sinnt þessu verkefni samkvæmt
óskum landlæknis.
Læknanemamir geröu kostnaöar-
áætlun fyrir fræðsluna í vetur og geröu
ráð fyrir 80 þúsund króna kostnaði og
var þá miðaö við að hægt yrði að ná til
um 8000 nemenda í framhaldsskólum
vítt og breitt um landiö. Á fjárlögum í
ár er gert ráð fyrir 122 þúsund krónum
til kynsjúkdómavama. Með þessum
peningum er greitt fyrir fræðslu
læknanemanna, útgáfu ýmissa bækl-
inga um kynsjúkdóma og kynsjúk-
dómapróf. Hlutur læknanemanna var
40 þúsund krónur. Þeir peningar voru
búnir um miðja fræðsluvikuna 7.—12.
mars og því ljóst að ekki myndi nást til
nema helmings þessara 8000 nemenda.
Landlæknir gekkst þá í að afla viðbót-
arfjár hjá menntamálaráðherra. Þaö
fékkst ekki en ráðherrann vildi aö
fræðslunni yröi haldið áfram meö það í
huga að fjárveiting yrði látin í þetta
síðar. Engu að síöur var nauðsynlegt
að fella allmarga skóla á landsbyggð-
inni út úr áætluninni aö þessu sinni.
Fariö var í flesta framhaldsskóla á
suðvesturhomi Iandsins, höfuðborgar-
svæöinu, Akranesi, I^augarvatni og
einnig til Akureyrar. Alls voru heim-
sóttir 24 framhaldsskólar á landinu. Að
sögn læknanema, sem unnu að þessu,
mæltist fræðslan mjög vel fyrir alls
staðar og virtist brýn þörf á að fjalla
um þessi mál þar sem skólakerfið heföi
ekki sinnt þeim sem skyldi. Virtust
unglingamir vita mjög misjafnlega
mikið um kynsjúkdóma eftir skólum
og þess vegna væri þörf samræmdrar
fræðslu í skólum landsins. Best væri aö
skólinn tæki þetta þó alveg í sínar
hendur með því að setja slíka fræðslu
inn í kennsluna og þá helst í 8. og 9.
bekk grunnskólans. Læknanemar
töldu að þá gæfist betri tími til að
tengja fræðsluna við siðfræði og auka
með því gildi kennslunnar. Fræðsla á
vegum landlæknis í framhaldsskólum
verði þó áfram nauðsynlegur og mikil-
vægur þáttur i fyrirbyggjandi starfi
gegnkynsjúkdómum. JBH
60
50
40
30
20
10
Fjöldi
kvenna
Aldursdreifing kvenna með jákvæða lekandaræktun.
111
v.v.v.v.
= 15
ííiíiiiv
16-20 21-25 26-30 31-35 36-40 41 =
Aldur
Meðallegudagafjöldi
vegna eggjaleiðara-
bólgu er 12,5 dagar
—fjöldi rekkjunauta er einn stærsti
þátturinn
Eggjaleiðarabólga er metin væg eða
svæsin með kviðspeglun. Við bráða
eggjaleiöarabólgu sést roði, þroti og
augljós bólgueinkenni á eggjaleiður-
um. Við svæsna hins vegar fibrinskán-
ir á eggjaleiðurum sem eru oft mjög
bólgnir, graftrarmyndun, jafnvel byrj-
andisamvextir.
Meöallegudagafjöldi fyrir konur
sem þjást af þessari bólgu eru 12,5 dag-
ar, samkvæmt skýrslu Benedikts
Sveinssonar og Siguröar S. Magnús-
sonar. Flestir urðu legudagar 33 en
fæstir3.
Ljóst er aö bráð eggjaleiöarabólga
er fyrst og fremst sjúkdómur ungra
kvenna og aldursdreifing er svipuð hér
og á meginlandinu og í Bandaríkjun-
um. Talið er að 12% af 15 ára stúlkum,
sem sofa hjá, fái sjúkdóminn en litiö er
þannig á að hann sé smit- og/eða kyn-
sjúkdómur. Eggjaleiöarabólga er fátíð
meðal kvenna sem ekki lifa virku kyn-
lífi.
Helmingur kvenna í rannsókn Sig-
urðar og Benedikts voru giftar eða í
fastri sambúð og er það túlkað á þann
50
40
30
20
10
Fjöldi rekkjunauta/konu með lekanda.
Fjöldi
kvenna
ííx-í*:*
:V::::AV:Í
siiii? $$$$&
ggi:§|§
Xv.vXv:
■
• Wm.
•íííiíííí
Íii
i. 2
m
Fjöldi
rekkjunauta
Lekandi er með algengustu
smitsjúkdómum dagsins
Ijekandi er talinn með algengustu
smitsjúkdómum í heimi og sums stað-
ar er litið á hann sem alvarlegasta
smitsjúkdóminn nú til dags.
I skýrslum Benedikts S veinssonar og
Sigurðar S. Magnússonar kemur fram
aö á árunum 1978—1980 fékk
Rannsóknastofa Háskólans sýni úr
2165 konum frá Kvennadeild Land-
spítalans. Lekandasýkill ræktaðist í
120 þeirra. Algengasta ástæðan fyrir
sýnatöku hjá þessum konum var grun-
ur um eggjaleiðarabólgu, næst kom
umsókn umfóstureyöingu.
Ef fólk sýkist af lekanda er mikil-
vægt að fá frá því sem greinar-
gleggstar upplýsingar, meöai annars
um fjölda rekkjunauta og hverjir þaö
eru svo hægt sé að ná til þeirra vegna
hættunnar á smiti. I umræddri rann-
sókn fengust upplýsingar frá 92 konum
um fjölda rekkjunauta. Samanlagö-
ur fjöldi þeirra var 163, meðal-
fjöldi á konu var 1,8. Náðist í 78 af þess-
um körlum til skoðunar. Af þeim voru
24 eðaum31%meölekanda. Dæmivar
um aö albr þrír rekkjunautar einnar
konunnarhefðu smitast.
Bráö eggjaleiðarabólga var algeng-
asta ástæðan fyrir jákvæöri lekanda-
ræktun. Athuganir vestan hafs ogaust-
an hafa sýnt aö 10—17% kvenna sem
smitast af lekanda fá eggjaleiöara-
bólgu. Samkvæmt þessu voru á 4.
hundrað konur með einkennalausan
lekanda hér á landi á þessum árum
(1978—1980). Þetta er þó eflaust of lág
tala, þar sem vitað er að konur með
eggjaleiðarabólgu voru meðhöndlaðar á
fleiri spítölum en Landspítalanum og
sumar jafnvel í heimahúsum þó slíkt
sétaliðmjögmisráðið.