Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1983, Síða 11
DV. LAUGARDAGUR 30. APRlL 1983.
11
„Hór er blandað saman kimni og átökum, en einmitt það einkennir öll góð verk," segir Haukur J.
Gunnarsson.
„Vel skrifaö
skemmtiverk”
segir leikstjórinn, Haukur J. Gunnarsson
„Þetta er umfram allt vel skrifað
verk. Þar er blandað saman kímni og
átökum en það einkennir öll góð verk,”
sagði Haukur J. Gunnarsson, leikstjóri
Ur lífi ánamaðkanna, í samtali við DV.
Haukur er fæddur í Reykjavík 1949
en búsettur í Osló. Að loknu stúdents-
prófi hélt hann til Japans og lærði
japönsku og leiklist í Tokýo frá árinu
1969-72. t Japan vann hann innan
leikhóps í Tokýo sem leikari, aöstoðar-
leikstjóri og leikstjóri.
Eftir dvölina í Japan hélt hann til
leiklistarnáms í Englandi við háskólann
í Hull en þar lagði hann mesta áherslu
á leikstjóranámið. Síðan hefur Haukur
unniö við leikstjórn á Islandi, í
Finnlandi, Noregi og Danmörku.
Meöal verka er hann hefur leikstýrt er
Róbert Elíasson kcmur heim frá út-
löndum, sem sýnt var í sjónvarpinu
77. Hjá Þjóöleikhúsinu hefur hann
leikstýrt Kirsiblómum á Norður-
f jöllum og Sögum úr Vínarskógi, þaö
fyrmefnda hefur hann og sett upp hjá
Det Norske Teatret í Osló. Þá hefur
hann sett upp Þess vegna skiljum við
og Bréfberann frá Arles hjá Leikfélagi
Akureyrar, Morðið á prestssetrinu og
Mýs og menn hjá Tröndelag Teater í
Noregi, Hitting Town hjá Teater-
sentret, Bikupen í Osló, Stríð á 4. hæð
hjá Abo Svenska Teater í Finnlandi,
Suddenly Last Summer í Aalborg
Teater í Danmörku og Konu Agnars
Þórðarsonar í Scene 7 í Osló, auk þess
sem hann hefur leikstýrt nokkrum út-
varpsleikritum í norska útvarpinu.
En hverfum aftur til Ánamaðkanna.
Við báðum Hauk aö segja okkur
hvemig verk þetta væri.
„Enquist tekurfyrir raunverulegar
persónur þama, eins og reyndar í Nótt
ástmeyjanna, þar var það Strindberg
en hér er það H.C. Andersen, ævintýra-
skáldið ástsæla og Heiberg-hjónin,
sem um miðja 19. öld vom allsráðandi í
dönsku menningar- og listalífi. Hann
var leikstjóri Konunglega leikhússins,
hún aðalleikkona Dana. Jóhann
Heiberg var líka leikritahöfundur og
sem slíkur var hann leiðandi kraftur.
011 verk hans bám vott um yfirborös-
fágun og -smekk, allir reyndu að líkja
eftir honum. Úr lífi ánamaðkanna
gerist á einni kvöldstund heima hjá
Heiberg-hjónunum, þegar Hans
Kristján Andersen kemur í heimsókn.
Sá síðastnefndi hefur einungis fengist
við að semja ævintýri fyrir böm, sem
honum finnst ekki vera bókmenntir.
Nú vill hann söðla um og skrifa eins og
Johann Heiberg.
Jóhanna Heiberg er aö byrja að
skrifa ævisögu sína og reyndar Ander-
sen líka. Þau eru bæði runnin úr neðstu
þrepum þjóðfélagsins og finna
samhljóm vegna þess. Jóhann Heiberg
var töluvert eldri en Jóhanna, hann
hafði gifst henni þegar hún var mjög
ung og í raun alið hana upp. Viö það
finnst henni hún hafa glatað einhverju
af sjálfrisér.
Leikurinn snýst svo um þaö hver
vaxtarskilyrði ástarinnar eru undir
þessum kringumstæðum, svo og
hverju listamaöur verður að fórna til
að komast áfram á braut sinni. Til-
finningar deyja, fólk eins og lokast inni
ognærekkihvorttilannars. . ”
— Er þetta skemmtilegt verk?
„Já, það finnst mér og umfram allt
er það svo vel skrifað. ”
— Hefur þú séð Ánamaðkana færða
upp annars staðar?
„Já, ég hef séð þá í uppfærslu
Konunglega leikhússins í Kaupmanna-
höfn. Þar var þaö sett upp ’81 og
gengur enn fyrir fullu húsi.”
— Reynir þú aö líkja eftir þeirri
uppfærslu?
„Nei, nei, þetta er alveg sjálfstæð
sýning.”
— Nú, þegar þú sérð fyrir endann á
hlutverki þínu í Ánamöðkunum, hvað
tekur þá við hjá þér?
„Ég hef unnið nokkuð stíft undan-
farið og ætla að taka mér nokkurra
mánaðafrínúna.”
— Og setjast sjálfur við skriftir
kannski?
„Ja .. . ég ætla að lesa og skrifa
eitt og annað, sem ekki hefur unnist
tími til hingað til,” sagöi Haukur J.
Gunnarsson.
-KÞ.
Só/uð radia/
sumardekk
Skeifan 11. Sími 31550
FÁGÆTAR
BÆKUR TIL SÖLU
Við erum þessa dagana að taka fram ýmsar mjög
fágætar bækur frá árunum 1501 — 1980 í öllum
greinum islenzkra fræða og vísinda.
Nokkur dæmi: Barn náttúrunnar, frumútg. fyrstu skáldsögu
Halldórs Laxness, Rvík 1919. Gerska ævintýrið eftir sama;
bók, sem ekki stendur til aö prenta næstu 50 árin. Biskupa-
sögur Bókmenntafélagsins I-II, útvaliö eintak í skinnbandi.
Bókasafn Flateyjar 1836—1936, Bókasafn Þorsteins Jóseps-
sonar eftir Harald Sigurösson, aðeins 100 útg. eintök, tölusett,
Um íslenzk skrökvísindi eftir Eirík Kjerulf lækni, Vísnabók
Guðbrands biskups, ljósprent, Um Njálu eftir próf. Einar
Olaf, Bókaskrá Gunnars Hall, Skólameistarasögur sr. Jóns
Halldórssonar (Sögufélagsútg.), ób.m.k., Islenzkar nútima-
bókmenntir 1918—1948 eftir Kristin E. Andrésson, Skulu
bræður berjast? eftir sama, Ólafs saga hins helga, útgáfa
Ungers, Chria 1849, Menn og menntir I-IV eftir Pál E. Olason,
Hrynjandi íslenzkar tungu eftir Sigurð Kristófer Pjetursson,
Gengið á reka eftir dr. Kristján Eldjárn, Austurland, safn
austfirzkra fræða I-IV, ib., Islenzkir sagnaþættir eftir Brynjúlf á
Minna-Núpi, frumútg. Eyrarbakka 1911—1913, Fjárdráps-
málið í Húnaþingi eftir Gísla Konráösson, Stjórnaróður eftir
sama, Þættir úr sögu Reykjavíkur eftir Jón biskup Helgason
o.fl., Þegar Reykjavík var fjórtán vetra eftir sama, Icelandic
wrestling eftir Jóhannes Jósefsson, Reykjahlíðarættin,
Galdraskræöa Skugga, frumútgáfan, Ferðabók Þorvalds
Thoroddsen 1—4, Lýsing íslands 1—4 eftir Þorvald Thorodd-
sen, Nítjánda öldin úr sögu mannsandans eftir Agúst H.
Bjarnason, í verum 1—2, Líf og blóð, og fleiri af bókum Theó-
dórs Friðrikssonar, Hvammar eftir Einar Benediktsson,
frumútgáfan, Sálmar og kvæði sr. Hallgríms, Viðey 1838,
flestar þýðingabækur Helga Hálfdanarsonar og að auki
Heyr mitt ljúfasta lag, teiknigrín eftir sama, Ljóðmæli Páls
Ólafssonar 1—2, frumútgáfan um aldamótin, Hendur og orð
eftir Sigfús Daðason, Glugginn snýr í norður eftir Stefán Hörð og
Svartálfadans eftir sama, Þyrnar, frumútg. Þorsteins Erlingsson-
ar, Grasafræði Helga Jónssonar, Lækningabók Jónassens, Biblian
1866, alskinn, Tímaritið Réttur 1.—60., árg., Tímaritið Birtingur
komplet, Tímaritið Úlfljótur 1—18, allt frumprent, blaðið Suður-
land frá upphafi (innbundiö), Maturtabók Eggerts Olafssonar, Kh.
1774, Samson fríði og Kvintalín kvennaþjófm-, riddarasaga, Rvik
1905 og ótal margt annað merkra og fágætra bóka nýkomiö.
Við kaupum og seljum íslenzkar bækur og flestar erlendar,
heil söfn og einstakar bækur. Einnig íslenzk póstkort, smá-
prent, smærri verkfæri og íslenzkan útskurð fyrri tíma.
Gefum reglulega út bóksöluskrár um íslenzkar bækur og
erlendar. Þeir utan Reykjavíkursvæöisins, sem óska aö fá þær
sendar, gjöri svo vel aö hafa samband viö okkur. Nýlega er
komin út skrá nr. 21/apríl 1983.
Hjá okkur er miðstöö pocket-bókaviöskiptanna. Höfum
þúsundir enskra, danskra, franskra, þýzkra pocket-bóka á
mjög hagstæðu verði.
Sendum í póstkröfu hvert sem er.
Vinsamlega hringið, skrifið — eða lítið inn.
— GAMLAR BÆKUR OG NYJAR —
BÓKAVARÐAN
Hverfisgötu 52
Sími 29720 — Reykjavík.