Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1983, Qupperneq 17
DV. LAUGARDAGUR 30. APRIL1983.
17
Teikning Einars að fyrirhuguðu raðhúsi sem byggt yrði i hvolfþakastil i
Grafarvogi, ef leyfi borgarvalda fást til þess. Teikningin til vinstri sýnir
stíls; að formið sjálft skuli gefa mikið
rými án nokkurra uppistaöna sem á
þaö skyggja. Og þar eð engar uppi-
stöður þarf (fyrir utan útveggina að
sjálfsögðu) eru kúluhús mun ódýrari í
byggingu en hús af samsvarandi
stærðargráðu.
Hvolfþakið er ævafom byggingar-
máti. öll stærri hús fyrri alda em af
þeirri gerð, að meira eða minna leyti.
Það er þessi sögulega staöreynd sem
vakið hefur upp spumingar manna á
síðustu ámm um hvort hvolfþakið er
ekki kjörin lausn á ódýrum en heppi-
legum íbúðarhúsum. Og ófáir hafa
lagt fyrir sig rannsóknir og athuganir
á möguleikum hvolfþaksins í nútíma-
þágu. Margar tegundir og afbrigði
kúluhúsa hafa verið teiknuö og reist.
Þeirri tegund kúluhúsa sem viröist
ætla að verða ofan á er á þann veg
háttað að grind hússins er byggð meö
þríhyrndu móti. Þaö er einkum
tvennt sem vinnst með þeirri leið í
stað þess að hafa mótin ferhyrnd eöa
fleiri: Annars vegar næst hvolflögun
þaksins mjög vel með þeim hætti, þaö
er aö segja, þaö verður eins ókantað
og hugsast getur og þvi stenst það
vindinn vel. Hins vegar gefur grind
sem byggð er saman í þríhyrningum
mun meiri stífni og styrk. Alagiö er
þannig aðeins á fæstu hugsanlegu
fleti, þrjá, í stað fjögurra í ferhyrndu
móti, fimm í fimmhymdu og svo
framvegis.
Þríhyrningar boltaðir saman
og til verður hvolfþak
Þessir þríhymingar em úr timbri
og boltaðir saman á snertiflötunum
þremur. Síöan eru þeir klæddir til
dæmis krossviði að utanverðu en
spæni aö innanverðu. Þetta timbur-
hvolfþak er loks fest niöur á steyptan
gmnn. Gólf, ef hvolfhúsið er tvílyft,
Rannsóknir mínar á
hentugleika kúluhúsa
fyrir íslendinga hafa
staðið í áratug og eru
alls engin della sem
hefur gripið mig og ég
get ekki losnað undan.
Ég hef einfaldlega
komist að því að
hvolfþakastíllinn er
hagkvæm byggingar-
aðferð sem gefur að-
laðandi innra rými og
aukinheldur þann kost
að vera ódýr leið til
að öðlast þak yfir höf-
uðið.
neðri hæð hússins en til hægri er mynd af efri hæðinni. Fyrir ofan þá
teikningu sést afstöðumynd af raðhúsalengjunni, hver ibúð með bilskúr
við hlið. . . .
Byggingu þessa fyrsta kúluibúðarhúss á íslandi er nú óðum að Ijúka.
Það er staðsett i Höfnum á Suðurnesjum og er eigandi þess Leó Jóns-
son. Húsið er byggt eftir teikningum Einars Þorsteins Ásgeirssonar. Eins
og myndin ber með sér stendur hvolfþakið saman af þrihyrningsflötum
sem boltaðir eru saman og mynda þannig hvelfinguna yfir steingrunn-
inn. Samkvæmt teikningu Einars er hvolfþakið eingöngu úr timbri,
grindin og gluggakarmar úr furu, en grindarklæðning að utan og innan-
verðu úr spónaplötum. Myndin sem fytgir þessum orðum er tekin
síðastliðið sumar.
er boltaö í grindina sem er eina
festing þess við húsið, en nægileg.
Gluggar hvolfhúsa geta verið með
tvennu lagi: I neöri hluta hvolfsins
(þar sem hallinn er minnstur) getur
veriö um venjulega glerjun að ræða,
en með gluggaskyggni fyrir ofan til
að vama regnstreymi. Gluggar ofar-
lega í hvolfinu (sem væntanlega
tilheyrðu efri hæð hússins) eru hins
vegar eiginlegir ljóskúplar, svo sem
tíðkast á sléttum þökum.”
— Hvernig standast þessi kúluhús
rigningu? Er þeim hætt við leka?
„Nei, ég get ábyrgst það að þessi
hús leka ekki ef notuð er rétt þétting
og henni komiö rétt fyrir á hvolf-
þakinu. Það er lagöur eins konar þak-
dúkur yfir hvolfið í renningum þannig
að hver hluti nær yfir þá þríhyminga
grindarinnar sem liggja saman í línu
um þakiö. Dúkurinn er síðan soðinn
saman á samskeytunum. Aðrar leiðir
til þéttingar eru vissulega til, en sú
að nota þakdúk er langódýrust. Og
gefst ekki siður en hinar.”
Mörg fyrirtæki sýnt fjölda-
framleiðslu áhuga
— Þú nefnir hér að framan, Einar,
að herslumuninn vanti til að kúluhúsin
nái fótf estu hér á landi og hann sé sá að
fyrirtæki ná tökum á f jöldaframleiðslu
smíðaeininga í svona hús. Hafa
einhver fy rirtæki sýnt þessu áhuga ?
,,Já, þaö hafa mörg fyrirtæki sýnt
þessu áhuga. Eg veit ekki hversu
mikill hann er. Ég hef enda farið
hægt í sakimar í viöræðum viö for-
svarsmenn þessara firma sem skoöaö
hafa teikningar mínar og veriö
jákvæðir. Ástæðan er sú að, ef svo
færi að fjöldaframleiðsla hæfist á ein-
ingum í kúluhús, þá vil ég fyrir aUa
muni að viðkomandi fyrirtæki sé
sterkt og vant aö viröingu sinni og geti
gert þetta alminlega. Ef
framleiðslan mistækist eða á ein-
hvern hátt yrði höndum kastað til
verksins, væri hætt við aö kúluhúsin
fengju vont orð á sig. Og þá væri
betur heima setið en af stað farið.
Eg fer því hægt í sakimar í þessum
efnum, enda liggur ekkert á. Það
hefur sýnt sig á síðustu árum að vax-
andi áhugi og aukin trú er á þessum
byggingarstíl. Og eins og fyrr segir
vil ég ekki að kúluhús veröi loftbóla,
tískufyrirbrigöi, sem deyi út að
afloknum nokkmm árum. Ég vil að
kostir kúluhúsa síist hægt og rólega
inn í almenning, ekki að della grípi
um sig. Það væri móðgun við þennan
frábæra byggingarstíl sem kúluhúsin
em búin, og ónýting á þeirri framtíð
sem þau eiga fyrir höndum erlendis
semhérlendis.” -SER.