Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1983, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1983, Blaðsíða 9
DV. LAUGARDAGUR25. JÚNÍ1983. 9 Rétt meö naumindum er fært í for- setaferð um Vestfiröi á Jónsmessu. Ekki undrar okkur, þegar viö sjáum þáttinn „Vestur í bláinn” endurtek- inn aö landinn hafi fyrir öld fengið nóg af baslinu og margir komiö sér burt. I Reykjavík kvarta menn sár- an, þykjast ekki sjá sumarið, og dag tekur aö stytta. Hvað mega menn þá segja norð-austan og vestan? En gleymum ekki, aö viö höfum svo ótal- margt, sem aörir geta ekki boöiö, þótt betur viöri sums staöar. Líf vesturfara var ekki sældarbrauö og þarf ekki aö vera þaö enn, eöa eru menn héöan vissir um atvinnu í löndum atvinnuleysisins? Viljum viö fóma þvi öryggi, sem viö búum við? Menn skyldu trúa varlega glans- myndunum af íburði Dallasfjöl- slqrldna annarra landa og þeirra vina. Viö spyrjum samt, hvort komi til landflótta aö ráöi með haustinu eða snemma á næsta ári. Þegar viö sátum í efnahagskreppu 1968—69, fóru margir aö tygja sig. Talsverður „landflótti” var lengst af síðan. An hans hefðum viö kannski f undiö fyrir atvinnuleysi. Castro kom þeim til Flórída, sem honum þóttu vera til vandræða heima fyrir, bæöi andófs- mönnum og geðveikum. Islendingar komu fólki af sér til annarra landa, sem ella hefði kannski valdið at- vinnuskorti hér vegna þess aö lands- feðumir settu fjármagniö í óarðbær- an atvinnurekstur fremur en arö- bæran. Viö nýttum ekki gæöi lands- ins, heldur ónýttum. Þaö sverfur aö mörgum, þegar haustar. Þess sjást reyndar strax merki í minnkun kaupa á bifreiðum og heimilistækjum. Þess munu sjást merki í fasteignaviðskiptum. Margir fasteignasalar búast við, aö fast- eignamarkaðurinn „hrynji”, verö verði langt undir verðbóigu. Erfitt verður aö selja fasteignir. Gósentím- inn í sölu þeirra, þegar veröiö hækkaöi síöustu ár meira en verö- bólgan var, er liðinn um hríð. Þegar er orðiö erfitt aö selja bíl. Kreppan kemur hér við síðar en víöast. Merki benda til, aö sums staðar rofi nú til. Viö sjáum verö á áli rjúka upp. Vesturlönd kunna að komast úr kreppunni, meðan við leggjumst í hana. Þá gæti margur landinn hugsaö til hreyfings. En menn skyldu forðast að reikna afkomu sina í krónum eingöngu, eöa dölum. Byrðum misskipt Almenningur kvartar yfir, að byrðunum sé ekki réttlátt skipt. Búvöruhækkunin mikla fór illa í fólk. Viö eigum ekki aö kalla þá menn neytendafulltrúa í sexmannanefnd um búvöruverö, sem hundsa marg- rökstuddar kröfur neytenda en reikna bara á vasatölvur aö fyrir- mælum bændafulltrúanna. Hækkanir á búvöruverði eru reiknaöar meö mjög einföldum hætti af þessum mönnum á grundvelli „vísitölubús”. Þeir segja, aö launa- liður bænda hafi þar hækkað 1. júní um 8 prósent eins og laun almennt. En í raun bera bændur ekki skeröing- una af sama þunga og aðrir. Þaö veitir ákveöin hlunnindi aö reka „vísitölubú” meö þessum hætti eða annars konar bú, sem fær hækk- anir eftir vísitölubúinu. Launþeginn ber aö fullu tilkostnaö- inn við heimilisreksturinn. Hann ber matarkostnaðinn með fullum hækkunum 20—30% í júní. Hann ber vaxtakostnaðinn af skuldum sínum. Hann ber bensínhækkanimar af bílnum. Þegar reiknaöur er „verölagsgrundvöllur landbúnaöar- afurða”, eru bættar margar hækkanir, sem bóndinn ber. Matvöruframleiðandinn, bóndinn, hefur margs konar tök á aö fá mat- inn til heimilisins lægra verði, eins og allir þekkja. Hann þarf því ekki aö bera 20—30% hækkun á matar- kostnaði í júní, meðan matarútgjöld launþeganna veröa sívaxandi prósenta af heildarútgjöldumþeirra, þegar tekjumar minnka. I verölags- grundvelli em liöir, sem bættir eru, svo sem f jármagn „til endurnýjunar húsa og búvéla”. Þótt slíkt eigi aö miöa við hús, sem notuð em við reksturinn, sjáum við öll möguleik- ana, sem slíkt gefur. I verðlags- gmndveUi fást bætur fyrir 333 Utra af bensíni, með hækkunum, fast- eignaskatta, rafmagn, póst, síma, ' Þótt kreppi að íslendingum fjárhagslega, eru kostir á að sækja fram. hýöræði í félagi og á mnnustað tryggingar húsa.... Enda þótt visitölubúið sé miöað viö þaö, sem til búrekstrarins þarf, fer ekki fram hjá neinum, aö möguleikamir eru mikUr til að sigla framhjá þvi að taka á sig verðhækkanir ýmsar af sama þunga og launþeginn gerir. Þessi rekstur er síðan og ekki sízt studdur út- flutningsuppbótum og niðurgreiðsl- um. Hinar síðame&idu eiga aö sjá til þess, aö almenningur kaupi nóg af framieiðsluvörunum þrátt fyrir miklar verðhækkanir á þeim. Verkalýðsforingjar hafa fjarlægzt fólkið Bretadrottning las í vikulokin boöskapinn frá Möggu Thatcher. Lærdómsrikt fyrir okkur er að hún boðar aukiö lýðræöi i verkalýös- hreyfingunni. Þurfum við ekki meira lýðræði í verkalýðsfélögunum? I okkar kerfi veröur ekkert við því að segja, þótt verkalýösfélög boöi til verkfalla kröfum sínum til stuðn- ings. En er ekki nauðsynlegt, að til slíkra verkfalla sé því aðeins boöaö, að alþýða manna í verkalýðsfélögun- um ætlist til þess? Slík spuming verður væntanlega óven jumikilvæg í byrjunnæstaárs. Með fólksfjölguninni verður sú hætta meiri hér, eins og víöa þekkist, að verkalýösforingjamir fjarlægist áfram fólkiö i félögunum. Nokkrir tugir manna mæta kannski á félagsfundi. Er rökrétt, að svo lítill hópur kjósi stjórnendur, Laug'ardag's* |iisf illiun Haukur Helgason adstodarritstjéri sem brátt fara í boltaleik meö fjör- egg þjóðarinnar? Flestir mundu segja, að þaö væri ekki rétt. Magga og brezki Ihaldsflokkurinn gátu unnið svo mikinn sigur, af því að almenningur í brezku verkalýðs- félögunum fann enga samkennd með forystumönnum félaganna. Tengslin höfðu rofnað. Andstaða foringjanna við stjómarstefnuna náði ekki til fólksins. Verkalýðsforingjar hafa víða um lönd verið í forstjóraskikkj- um. Þeir hafa haft umsvif eins og rekendur fyrirtækja. Þetta hefur smám saman gerst einnig hér með því að fólki hefur fjölgað, allar stærðir magnazt og fjárhagur félag- anna margra eflzt. Því ættum við líka að efla lýöræðið. Lýöræði er ekki bara að kjósa til þings á nokkurra ára fresti. Lýðræði er jafnvel mikilvægara, þegar kosin er forysta félaga eða málum á vinnu- stað ráðstafað. Forystu stjórnmála- flokka ætti að kjósa í almennum kosningum flokksmanna. Forystu verkalýðsfélaga skyldi kjósa í al- mennri atkvæðagreiðslu en ekki á klíkufundum, þar sem nokkrum sálum er hóað saman. Ennfremur ætti ekki að efna til verkfalla, nema það hafi verið samþykkt við almenna atkvæðagreiðslu í félögunum, af meirihluta félagsfólks. Fyrirtækja- lýðræði Einnig ætti að nota hugmyndir Alberts Guðmundssonar fjármála- ráðherra um sölu einhverra ríkis- fyrirtækja til að auka lýðræði í fyrir- tækjunum. Starfsfólki á að gefa kost á kaupum á hlutabréfum. Hugsan- lega ætti að gera hið sama og ríkis- stjórnir Vestur-Þýzkalands og Austurríkis gerðu fyrir tveimur áratugum við svipaöa sölu ríkis- hlutabréfa, og stofna til raunveru- legra almenningshlutafélaga. Atvinnulýðræði er annar þáttur, sem verkalýðshreyfingin ætti að sækja fast i næstu kjarasamningum, þegar ekki verður mikið svigrúm til kauphækkana í krónum. Atvinnulýðræði hefur verið ríkur þáttur í atvinnumálum Vestur- Þýzkalands, svo að eitthvert dæmi sé nefnt. Þaö hefur yfirleitt notiö stuön- ings bæði jafnaðarmanna og kristi- legra demókrata. Hagur af auknu atvinnulýðræði kemur fram í mörgu. Kannski mun þeim ráðherrum, sem nú sitja hér, þykja það æskilegast, að með auknu atvinnulýðræði vex skilningur starfs- fólks á raunverulegri stöðu fyrir- tækjanna, semþað vinnur við. Starfsfólk fer síöur i verkföll fyrir misskilning eða áróður einhverra s jálfk jörinna f oringja. Kaup starfsfólks á hlutabréfum í fyrirtækjum sínum, eykur einnig skilning og áhuga þess á velgengni rekstrarins. Því má búast við meiri framleiðslu, minni verkföllum en umfram allt betri liðan starfsfólks á þeim stað, þar sem það eyðir 8—12 stundum hvers virks dags. Sá timi er kominn og stendur um skeið, að velferð í raunverulegum krónum talin verður minni saman- borið við verðbólgu. En við verðum að sækja fram. Við eigum marga kosti, svo sem þá, sem hér hafa verið nefndir til að efla raunverulegt lýðræði og gera okkur lífið skemmti- legra. Eins og forseti Islands nefndi að Hrafnseyri eigum við að horfa fram á veginn, þótt að kreppi um sinn. Haukur Helgason.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.