Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1983, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1983, Blaðsíða 26
DV. LAUGARDAGUR 25. JUNl 1983. i r./íni. as* ;n rdagu adiJAJ .Vtí DV. LAUGARDAGUR 25. JÚNI1983. 88 ’Ö Lefk- inenii og árangur Knattspyrnuíélagið Þróttur hefur fjórum sinnum boriö sigur úr být- nm í 2. deild íslandsmóts- ins í knattspymu. Það var árin 1965,1975,1977 og svo síðast 1982. Áður en yfirstandandi íslandsmót hófst hafði fé- lagið leikið samtals 105 leiki í 1. deild. 15 leikir höfðu unnist, 25 leikir end- að með jafntefll og 65 sinnum mátti Þróttur þola tap. Félagið hefur aldrei orðið íslandsmeist- ari í 1. deild í knatt- spyrau. Leikmenn meistara- flokks á yfirstandandi keppnistímabili eru eftir- taldir: Guðmundur Erlingsson Lárentsínus Ágústsson ÖlafurÓlafsson Jóhannes Sigursveinsson Leifur Harðarson Valur Helgason Jóhann Hreiðarsson Ársæll Kristjánsson Þorvaldur í. Þorvaldsson Ásgeir Elíasson Páll Ólafsson Júlíus Júlíusson Sverrir Pétursson Sigurkarl Áðalsteinsson Ottó Hreinsson Bjarai Harðarson Baldur Hannesson Sigurður Hallvarðsson Kristján Jónsson Daði Harðarson öra Óskarsson Þjálfari: Ásgeir Elíasson Aðstoðarþjálfari: Theodór Guðmundsson f élögin í 1. deild í knattspyrnuDV kynn ir félögin í 1. deild í knattspyrnnDV k 99 Það vantar meiri frekju ■ sðknina” seglr Helgi Þorvaldsson „f adir fótboltans” í Þrétti „Ég hef því miður lítið séð til liðsins í sumar en þó svolítið, svona einn og einn hálfleik, og verð að segja að ég hef hvorki orðið fyrir vonbrigðum né geng- ið svekktur af vellinum,” sagði Helgi Þorvaldsson fyrrverandi formaður knattspyrnudeUdar Þróttar í ein sex ár og oft nefnd- ur faðir knattspyrnunnar í Þrótti enda unnið mikið að málum fé- lagsins á undanfömum árum. ,,Mér líst vel á liöið og er bjartsýnn á að þaö eigi eftir að gera góða hluti í sumar. Það eina sem ég er hræddur við er fremsta víglínan. Það er eins og að einhvem neista vanti í sókn- ina, einhverja frekju í framlínu- mennina. Ef mörkin eru ekki skoruð vinnast ekki leikir. Hvað með það sem framundan er, Helgi? „Þróttur er með ungt lið en þó nokkra eldri og reyndari menn innan um. Liðið á eftir aö breyt- ast mikið þegar öm Oskarsson fer aö leika með. Hann er mjög sterkur leikmaður, og drífur aðra leikmenn með sér með mik- Uli baráttu. Margir efnilegir leikmenn em í liðinu og nægir þar að nefna nöfn eins og Kristján Jónsson, Ársæl Kristjánsson og Guðmund Erlingsson markvörð. Kristján er í mikiUi framför, Ársæll er nú loks kominn í sína réttu stöðu á velUnum og Guðmundur á eftir aö veröa enn betri í framtíöinni. Þegar á heildina er litið er ég nokkuð bjartsýnn á árangurinn í nm lið Þréttar: náð langt í framtíðinni. Sverri þyrfti að læra sína stöðu betur og maður með hans hæfUeika ætti að geta skorað meira af mörkum. Þá sagði Magnús að markvörður Uðs- ins, Guðmundur ErUngsson, þyrfti að þyngja sig og styrkja og þá yrði hann eflaust betri en hann er. -sk. 99 „Þréttarar eru of brothættir ” - segir Magniis Jönatansson þjálfariUBK Það má segja að lið Þróttar sé borið uppi af þremur leikmönnum og þá sérstaklega tveimur,” sagði hinn eldhressi þjálfari Breiða- bliks, Magnús Jónatansson, er við inntum hann álits á liði Þróttar í sumar. „Þar á ég fyrst og fremst við Ásgeir Elíasson sem sjaldan eða aldrei hefur leikið betur en í sum- ar. Hann er Uöinu gífurlega dýr- mætur og stjómar leik þess. 1 ann- an stað vil ég nefna Pál Olafsson. Páll er sterkur leikmaður en ég hef það einhvem veginn á tilfinn- ingunni að hann sé bara með í þessu tU að leika sér. Hann tekur alla hugsanlega sjensa og það kemur sér oft vel fyrir liðið. Þriðji leikmaðurinn sem ég vil nefna er bakvörðurinn Kristján Jónsson en hann hefur komið mikið á óvart í sumar með mikiUi getu og hann á eftir aö verða enn betri. ” Hvað með möguleika Þróttar í sumar? „Ég veit satt að segja ekki hverjir þeir era. Liðið er að mín- um dómi of brothætt. Ég hef það einhvem veginn á tilfinningunni að það þurfi ekki mikið mótlæti til að brjóta það niður. En það má ekki gleyma því að liðið getur leik- ið vel en ég vU samt engu spá um það hvort því tekst að ná viðun- andi árangri í sumar eða ekki. ” Magnús sagði ennfremur að þeir Kristján Jónsson og Sverrir Pétursson væra sérstaklega efni- legir leUcmenn sem ættu að geta sumar og einkum og sér í lagi ef liðið fer að sækja meira að marki andstæðingsins,” sagði Helgi Þorvaldsson. -sk. DV kyiinir liöin í 1. deild íknatt- spyrnu 1 • " * • Magnús Breiöabliks. Jónatansson, þjálfari Þróttarar geta leikiö mjög vel” — segir Ingi Björn Albertsson VAI „Á góðum degi getur liö Þróttar leik- ið mjög vel og unnið hvaða lið sem er en þess á milli dettur leikur liðsins niður á iágt plan. Þetta er mjög svipað því sem skeð getur hjá okkur Vals- mönnum,” sagði markaskorarinn mikli, Ingi Björa Albertsson, er við báðum hann um að segja nokkur orð um 1. deildarlið Þróttar. „Þróttur hefur innan sinna vébanda mjög leikna stráka sem geta gert margt mjög vel og við bakið á þeim styðja eldri og reyndari leikmenn. Þá kemur Ásgeir þjálfari Elíasson fyrstur upp í hugann. Hann er frábær leik- maður og er liðinu ómetanlegur í leikj- um þess. Af ungu og efnilegu leikmönn- um liðsins get ég nefnt bakvöröinn Kristján Jónsson en honum hefur farið mikið fram upp á síðkastiö. Þá er Páll Olafsson liðinu mikill styrkur en það er kannski ekki hægt að segja að hann sé efnilegurenn.” -SK. DV hefur ákveðið aö kynna lesendum sínum lið þau er leika í 1. deild íslandsmótsins í knatt- spyrnu í sumar. Við ríðum á vaðið með kynningu á Knatt- spymufélaginu Þrótti en þaö sigraði í 2. deild síðastliðið sumar og leikur því í þeirri f yrstu í ár. Síðan rekur hver kynningin aðra uns öll liö l. deildar hafa verið kynnt lesendum. Kynn- ingamar á liðunum munu birtast í Helgar- blaði DV næstu helgar. -sk. I Myiuiir: I Friðþjóf ur I Helgason Texti: Stefán Kristjánsson Axel Axelsson. „Leikmenn Þróttar geta allir spilað skemmtilegan fótbolta en þeir verða að berjast því samhliða tU að ná árangri. Ásgeir þjálf- ari þeirra er á góðri leið með liðið en samt vantar enn meiri bar- áttu,” sagði Axel Axelsson, fyrr- um knattspyrnukappi í Þrótti og fyrrverandi landsliðsmaður í greininni, er við spurðum hann álits á liði Þróttar í sumar. Arangur Þróttar hingað til hefur ekki komið mér á óvart og liðið á að geta gert enn betur ef leikmenn liðsins gefast ekki upp ™ % - Jf • •*;:& ðl ...» WSr. Liö Þróttar keppmstímabilið 1983. DV-mynd: Ljósmyndastofa Þóris „ER I KKI FARIW AÐ HIIGSAIM A» HÆTTA” I - segir Asgeir Elíasson, þjálfari Þréttar og adaldrif fjöðrin í leik liösins „Mér finnst knattspyrnan í surnar, það sem af er, vera ákaflega svipuð að gæðum og verið hefur undanfarin ár. Það er minna um góða einstaklinga en var og þess vegna er einstaklingsframtakið minna en var hér áður,” sagði Ásgeir Elíasson, þjálfari Þróttar og aðaldriff jöður í leik liðsins, en Ásgeir er nú að hefja sitt þriðja keppnistímabil hjá Þrótti. „Liðin virðast vera mjög jöfn að getu í suinar og ég verð að segja eins og er að ég reiknaði ekki með að þetta yrði í svona miklum graut. Ég þóttist þó vita að allir ynnu alla en svona jafnt hélt ég ekki að þetta yrði. „Þróttarar verða að haf a fyrir hlutunum” — segir Axel Axelsson, fyrrum leikmaöur meö Þrótti þegar á móti blæs. Liöið hefur á að skipa mörgum skemmtilegum knattspymumönnum eins og til dæmis þeim Kristjáni Jónssyni, Páli Olafssyni og Þorvaldi Þor- valdssyni sem leikur mjög skemmtilega knattspyrnu. En annars er liðið frekar jafnt. Ásgeir er stjómandi þess sem gert er á vellinum og hefur staðið sig mjög vel í sumar og að mínum dómi einnig sem þjálfari. Ég er alveg sannfærður um að Þróttur á að geta haldið sæti sínu í deildinni en til þess að það megi Hvað vilt þú segja uin irainini- stöðu Þróttar það sem af er sumri? „Ég er nú ekki ánægður með hana. Ég er þó nokkuð ánægður með stigafjöldann og ef okkur tekst að ná tveimur stigum úr takast verða leikmenn liðsins að gera sér ljóst aö þeir verða að berjast fyrir hlutunum. Þetta kemur ekki af sjálfu sér,” sagði Axel. Hann sagði að sér virtist Valur vera með mjög sterkt lið um þess- ar mundir og hann tryði því að 'Valur yrði í efstu sætum deildar- innar þegar upp væri staðið í haust. Einnig væra Skagamenn sterkir „og svo má ekki gleyma Magnúsi Jónatanssyni og Blikun- um. Maggi er seigur og nær alltaf góðum árangri með lið sín,” sagði Axel að lokum. -SK. þessum tveimur leikjum sem við eigum eftir í fyrri umferöinni þá tel ég að við höfum náö helmingn- um af þeim stigum sem viö þurfum á aö halda til að halda okkur í deildinni en það er það fyrst og fremst sem við stefnuin að. Ég er ekki ánægður með þann bolta sem Þróttur spilar núna. Við lékum betur í fyrra og ástæðurnar eru margar. Andstæðingarnir eru nokkuð öðruvísi og mínir menn virðast hafa minnasjálfstrausten í fyrra. Þetta eru aðeins tvær ástæður.” Ert þú bjartsýnn á irainhaldið? „Við eigum eftir að styrkjast. Örn Öskarsson fer brátt aö leika með okkur og eins er Daði Harðar- son að verða klár í slaginn þannig að ég get leyft mér að vera hæfi- lega bjartsýnn á að við höldum sæti okkar í 1. deild. Viö höfum leikið misjafnlega vel í sumar, stundum ágætlega og stundum ekki.” Þriðja keppnistíinabiiið þitt sein þjálfari hjá Þrótti stendur nú yfir. Hefur þii gainan af þjálfun? „Þaö liggur ljóst fyrir að ef mér þætti þetta leiðinlegt þá væri ég ekki í þessu. Það er gaman að vinna meö Þrótturum og ég er með marga unga og efnilega menn undir minni umsjón. Þar vil ég fyrstan nefna Kristján Jónsson. Ég get ekki skilið hvers vegna hann kemur ekki til greina í lands- liöiö undir 21 árs aldri eöa 23 ára landsliðið. Sverrir Pétursson er efnilegur líka, svo og markmaður- inn, Guðmundur Erlingsson. Allir þessir leikmenn eru ungir og framtíðin er þeirra ef þeir halda áfram.” Nú ert þú búinn að vera lengi í eldlínunni. Hefur þú í hyggju að leggja skóna á hilluna eitir þetta keppnistímabil? Eg er ekki farinn að leiða hug- ann að því að hætta í knattspyrn- unni. Og ég mun ekki gera það meðan ég held í við þessa menn á spretti og lappirnar eru í lagi. En ég á síður von á því aö ég verði áfram hjá Þrótti. Annars er ekki farið að ræða þau mál. t’g hef fundið fyrir því að það er miklu meiri ábyrgð sem hvílir á manni sem leikur með sem þjálfari. Það er erfitt, vægast sagt.” Viltu í lokin spá einhverju um úrslit mótsins? „Nei, það vil ég nu eiginlega ekki. Þó reikna ég með Val og Akranesi á toppnum en það er alveg ljóst að þetta verður mjög spennandi mót,” sagöt Asgeir Elíasson. -k. P' I I I I I I I I I I I I I fci AXELHEFLR LEIKl FLESTA LANDSLEI Hinn gamalreyndi knattspyrnu- kappi Axel Axelsson, sem lék með Þrótti á árum áöur, hefur leikið flesta landsleiki allra Þróttara frá upphafi eða 3 taisins. Axel lék sinn fyrsta landsleik árið 1963. Þeir Jóhann Hreiðarsson og Páil Olafsson hafa leikiö einn landsleik hvor og varþaðáriö 1980. Þá hefur Ágúst Hauksson, sem lék með Þrótti hér áður fyrr, áður en hann skipti um félag, leikið einn landsleik en þeir Páll, Jóhann og Ágúst léku landsleiki sína árið 1980. Því má svo bæta við aö Axel Axelsson er eini Islendingurinn sem valinn hefur verið í landslið í knattspymu úr 2. deild. Það var árið 1963 en þá léku Islendingar gegn OL-liði Breta og töpuöu stórt, 6—0og4—0. -sk. félögin í 1. deild í knattspyrnu DV kynnlr f élögin í 1. deild í knattspyrnu DV kynn|ríélö$ f élögin í 1. deild í knattspyrnu D V kynnir félö

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.