Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1983, Blaðsíða 47

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1983, Blaðsíða 47
DV. L AU GARD AGUR 25. JUNl 1983. 47 Útvarp Sjónvarp Veðrið Listapopp í útvarpi kl. 15.10 og afturá miðnætti: Vinsælustu lög vikunnar Listapopp, þáttur Gunnars Salvars- sonar, er á dagskrá útvarps í dag klukkan 15.10 og síöan er þátturinn endurtekinn á miðnætti. Aö sögn Gunnars er þættinum ætlaö aö kynna vinsælustu lögin í hverri viku samkvæmt þeirri mælistiku sem brúk- uð er: vinsældalistunum. Gunnar kvaðst hafa sett sér þá reglu að kynna i hverjum þætti þrjú vinsælustu lögin í Bandaríkjunum og Bretlandi en einnig væri lögð áhersla á aö kynna lög sem væru á hraðf erð upp listana. „Hér heima er því miður enginn op- inber vinsældalisti yfir vinsældir laga en ég styðst við Reykjavíkurlistann, sem birtist vikulega í DV og valinn er í æskulýðsmiðstöðinni Þróttheimum,” sagðiGunnar. Þessa vikuna eru einkum þrjú lög sem hæst ber á vinsældalistunum að sögn Gunnars, „Flashdance. . What A Feeling” með Irene Cara, „Every Breath You Take” meö Police og „China Girl” með David Bowie. Þau lög ásamt öðrum vinsælum lögum verða leikin í Listapoppi síðdegis og s vo aftur um miðnættið. -EA. Gunnar Salvarsson, maður Listapopps. umsjonar- Söngvaseiður í útvarpi á sunndag kl. 15.15: FREYMÓÐUR JÓHANNSSON Freymóður Jóhannsson. Söngvaseiður verður í útvarpi á sunnudag kl. 15.15. Umsjónarmenn eru Asgeir Sigurgestsson, Hallgrímur Magnússon og Trausti Jónsson. I þessum áttunda þætti þeirra um ís- lenska sönglagahöfunda verður fjall- að um Freymóð Jóhannsson. Hann er e.t.v. betur þekktur sem 12. septem- ber, en undir því dulnefni samdi hann fjölda vinsælla dægurlaga á árunum 1950—60. Hver kannast t.d. ekki við lög eins og Draumur fangans og Halló, halló? „Við fjöllum um Freymóö til að leggja áherslu á samhengið í íslenskri alþýðutónlist,” sagði Trausti Jónsson, einn umsjónarmanna þáttarins. „Freymóður er fæddur skömmu fyr- ir síðustu aldamót en byrjaði ekki að semja lög fyrr en á sextugsaldri. Lög hans urðu vinsæl hjá öllum aldurshóp- um, þannig að segja má að hann hafi brúað bilið milli eldri sönglaga og nú- tímalegri dægurlaga. Freymóður var listmálari og mennt- aður sem slíkur. Hann þótti heldur íhaldssamur í list sinni og átti hún ekki upp á pallborðið hjá nútímalistamönn- um. Það er svolítið skrítiö að hugsa til þess aö hans verður lengur minnst fyrir dægurlögin en myndlistina, sé það haft í huga að tilviljun réð því að Freymóöur fór að semja þessi lög. Freymóður var nefnilega í skemmti- nefnd Góðtemplarareglunnar á sínum tíma. Nefndin gekkst árlega fyrir dæg- urlagasamkeppni og tók Freymóður þátt í henni, en undir dulnefni. Þetta varð verðlaunasamkeppni og var hún íslenskri dægurlagasmíö mikil lyfti- stöng. Við fjöllum lítið um þessa keppni í þættinum á sunnudag; henni hafa þeg- ar veriö gerð góð skil annars staðar. Þess í stað einbeitum við okkur að lífi og starfi Freymóös, leikum lög hans og ræðum um þau þess á milli,” sagöi Trausti Jónsson. -EA. Utvarp Laugardagur 25. júní 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. 7.25 Leikfimi. 7.30 Tónieikar. Þulur velur og kynn- ir. 8.00 Fréttir. Dagskrá. Morgunorð — Gunnar Gunnarsson talar. 8.20 Morguntónlcikar. a. Fíladelfíu- hljómsveitin leikur „Spænska rapsódíu” eftir Maurice Ravel; Riccardo Muti stjórnar. b. „Slæp- ingjabarinn”, ballettmúsik eftir Darius Milhaud. Franska Rikis- hljómsveitin leikur; Leonard Bernstein stjórnar. 9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tón- leikar. 9.45Forustugr. dagbl. (útdr.). 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. 10.25 öskalög sjúklinga. Helga Þ. Stephensen kynnir. 11.20 Sumarsnældan. Helgarþáttur fyrir krakka. Umsjón: Vemharö- ur Linnet. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til- kynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Iþróttaþáttur. Hermanns Gunnarssonar. 14.00 Á ferð og flugi. Þáttur um mál- efirú líðandi stundar í umsjá Ragn- heiðar Davíösdóttur og Tryggva Jakobssonar. 15.00 Um nónbil í garðinum með Haf- steini Hafliðasyni. 15.10 Listapopp. — Gunnar Salvars- son (Þátturinn endurtekinn kl. 24.00). 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir. 16.20 Lúterska heimssambandið. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir flytur synóduserindi. 16.55 Þorpskvæði úr fyrstu bókum Jóns úr Vör. Höfundurinn les. 17.15 Síðdegistónleikar. a. Karnival- forleikur op. 92 eftir Antonín Dvorák. Fílharmóníusveitin í Lundúnum leikur; Wolfgang Sawallisch stj. b. Píanókonsert nr. 1 í C-dúr, op. 15 eftir Ludwig van Beethoven, Vladimir Ashkenazy leikur með Sinfóníuhljómsveitinni í Chicago; Sir Georg Solti stj. Til- kynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvölds- ins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.35 „Allt er ömurlegt í útvarpinu”. Umsjón: Loftur Bylgjan Jónsson. 19.50 Tónleikar. 20.00 Harmonikuþáttur. Umsjón: Bjami Marteinsson. 20.30 Jónsmessuvaka bænda. Um- sjón: Agnar Guðnason. 21.30 Á sveitalínunni. Þáttur Hildu Torfadóttur, Laugum í Reykjadal (RUVAK). • 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 „Sögur frá Skaftáreldi” eftir Jón Trausta. Helgi Þorláksson fyrrv. skólastjóri les (10). 23.00 Danslög. 24.00 Listapopp. Endurtekmn þáttur Gunnars Salvarssonar. 00.50 Fréttir. Dagskrárlok. Sunnudagur 26. júní 8.00 Morgunandakt. Séra Sigmar Torfason prófastur á Skeggja- stöðum flytur ritningarorð og bæn. 8.10 Fréttir. 8.15. Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.). 8.35 Létt morgunlög. Hljómsveit Wal-Bergs leikur. 9.00 Fréttir. 9.05 Morguntónleikar. a. Prelúdía og fúga í h-moll og Tokkata og fúga í F-dúr eftir Johann Sebastian Bach. Karl Richter leik- ur á orgel. b. „Allt hvað sem þér gjörið í orði eða verki”, kantata eftir Dietrich Buxtehude. Johannes Kunzel og Dómkórinn í Greifswald syngja með Baoh- hljómsveitinni í Berlín; Hans Pflugbeil stj. c. Forleikur og svíta í fís-moll eftir Georg Philipp Tele- mann. Kamersveitin í Amsterdam leikur; AndréRieustj. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. 10.25 Út og suður. Þáttur Friðriks Páls Jónssonar. 11.00 Messa í Dómkirkjunni. Séra Eric Sigmar prédikar. Séra Hjalti Guðmundsson og séra Harald Sigmar þjóna fyrir altari. Dóm- kórmn Vesturbræður frá Seattle syngur ásamt Dómkómum. Organleikari: Marteinn H. Frið- riksson. Hádegistónleikar. 12.10 Dagskrá. Tónleikar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.30 Sporbrautin. Umsjónarmenn: Olafur H. Torfason og örn Ingi (RUVAK). 15.15 Söngvaseiður. Þættir um íslenska sönglagahöfunda. Áttundi þáttur: Freymóður Jóhannsson. Umsjón: Asgeir Sigurgestsson, Hallgrímur Magnússon og Trausti Jónsson. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15. Veður- fregnir. Heim á leið. Margrét Sæmundsdóttir spjaliar við veg- farendur. 16.25 Góðverkið mikla. Séra Guö- mundur Oli Olafsson flytur synoduserindi í tilefni þess aö 500 ár eru liðin frá fæðingu Marteins Luthers. 16.45 Síðdegistónleikar. a. „Beatrice et Bénédict”, forleikur eftir Hector Berlioz. Sinfóníu- hljómsveit Lundúna leikur; Douglas Gamley stj. b. Obó- konsert í D-dúr eftir Richard Strauss. Heinz Holliger og Nýja fíl- harmóníusveitin í Lundúnum leika; Edo de Waart stj. c. Sinfónía nr. 7 í d-moll op. 70 eftir Antonín Dvorák. Fílharmóníusveit Berlínar leikur; Rafael Kubelik stj. 18.00 Það var og... Ut um hvippinn og hvappinn með Þráni Bertels- syni. 18.20 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvölds- ins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.35 Samtal á sunnudegi. Umsjón: Aslaug Ragnars. 19.50 „Vor í garði”, ljóö eftir Jakobinu Sigurðardóttur. Maria Sigurðardóttirles. 20.00 Utvarp unga fólksins. Umsjón: Helgi Már Barðason (RUVAK). 21.00 Eitt og annað um vináttuna. Þáttur í umsjá Þórdísar Móses- dóttur og Símonar Jóns Jóhanns- sonar. 21.40 Anton Webem — 13. þáttur. Atli Heimir Sveinsson ræðir um tónskáldið og verk þess (síðasti þáttur). 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dag- skrá morgundagsins. Orð kvölds- ins. 22.35 „Sögur frá Skaftáreldi” cftir Jón Trausta. Helgi Þorláksson fyrrv. skólast jóri les (11). 23.00 Djass: Blús — 1. þáttur. — Jón Múli Arnason. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. Sjónvarp Laugardagur 25. júní 17.00 tþróttir. Umsjónarmaður Bjami Felixson. 19.00 Hlé. 19.45 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 í blíöu og stríðu. Bandarískur gamanmyndaflokkur um mið- aldra hjón í Chicago og heimilislíf þeirra. Aðalhlutverk: Richard Crenna, Patty Duke Astin og Billie Bird. Þýðandi Þrándur Thorodd- sen. 21.00 Loretta Lynn. Bandarískur tónlistarþáttur. Loretta Lynn ólst upp við kröpp kjör í Kentucky. Hún byrjaði snemma að syngja, semja lög og yrkja og er nú í hópi þekktustu þjóðlaga- og sveitatón- listarmanna vestanhafs. Kvik- mynd um ævi hennar, Dóttir kola- námumannsins, hefur víða farið. I þessum þætti syngur Loretta Lynn mörg sinna þekktustu laga á sviði á Harrahshoteli í Reno í Nevada- ríki. Þýöandi Guðrún Jörundsdótt- ir. 21.55 (The Rake’s Progress). Bresk bíómynd frá 1945. Leikstjóri Sidney Gilliat. Aðalhlutverk Rex Harrison og Lilli Palmer. Þýðandi Jón Thor Haraldsson. 23.55 Dagskrárlok. Sunnudagur 26. júní 18.00 Sunnudagshugvekja. Margrét Hróbjartsdóttir flytur. 18.10 tda litla. Lokaþáttur. Dönsk barnamynd í þremur þáttum. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. (Nordvision — Danska sjónvarp- ið). 18.25 Daglegt líf í Dúfubæ. Breskur brúðumyndaflokkur — Lokaþátt- ur. Þýðandi Oskar Ingimarsson. Sögumaður Sigrún Edda Björns- dóttir. 18.40 Palli póstur. Breskur brúöumyndaflokkur — Lokaþátt- ur. Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir. Sögumaður Siguröur Skúlason. Söngvari Magnús Þór Sigmunds- son. 18.55 Sú kemur tíð. Franskur teikni- myndaflokkur — Lokaþáttur. Þýö- andi Guðni Kolbeinsson, sögu- maður ásamt honum Lilja Berg- steinsdóttir. 19.25 Hlé. 19.45 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsingarogdagskrá. 20.35 Sjónvarp næstu viku. 20.50 Kóramót i Namur. (Europa cantat) Svipmyndir frá heimsmóti 26 kóra, sem skipaðir eru ungu fólki, í Namur í Belgíu sumarið 1982. Meðal kóranna er Hamra- hlíðarkórinn, sem Þorgeröur Ing- ólfsdóttir stjórnar, og eru kórum Islands og Israels gerð sérstök skil í þættinum. Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir. 21.30 Þróunin. Lokaþáttur. Regnið. Danskur myndaflokkur í þremur þáttum um líf og starf danskra ráðunauta í Afríkuríki. Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir. (Nordvision — Danska sjónvarpið). 22.50 Dagskrárlok. Veðrið: Veðurstofan gerir ráð fyrir vest- anátt í dag á landinu, smáskúrum á vestan- og sunnanverðu landinu en þurru veðri fyrir norðan og austan. Á morgun, sunnudag, er spáð norð- vestanátt, golu eða kalda, léttskýj- uðu á suðaustanverðu landinu en skýjuðu og smáskúrum í öðrum landshlutum. Veðrið hér og þar Veðrið klukkau 18 í gær: Reykja- vík úrkoma í grennd 7, Akureyri skýjaö 16, Bergen léttskýjaö 11, Osló, skýjað 16, Þórshöfn skýjað 10, Stokkhólmur rigning 16, Kaup- mannahöfn skýjað 22, Helsinki létt- skýjað 19, Berlín heiðríkt 28, Chi- cago hálfskýjað 30, Feneyjar þoku- móða 26, Frankfurt skýjaö 23, Nuuk léttskýjaö 8, London alskýjað 23, Majorka heiðríkt 15, Montreal léttskýjað 20, New York léttskýjað 31, París þrumuveður 21, Róm létt- skýjað 24,, Malaga heiðríkt 23, Winnipeg skýjað 26. Tungan Sagt var: Hann sagði að horfur séu góðar. Betur færi: Hann sagði að horfur væru góðar. Hins vegar: Hann segii að horfur séu góðar. Gengið 3 GENGISSKRÁNING NR. 114 - 24. JÚNi 1983 KL. 09.15 Ferða- gjald- eyrir £in ing kl. 12.00 • Kaup Sala j Sala 1 Bandaríkjadollar 27,360 27,440 30.184 1 Sterlingspund 42,199 42,322 46,554 1 Kanadadollar 22,225 22,290 24,519 1 Dönsk króna 3,0190 3,0278 3,3305 1 Norsk króna 3,7431 3,7540 4,1297 1 Sænsk króna 3,5931 3,6037 3,9640 1 Finnskt mark 4,9565 4,9710 5,4681 1 Franskur franki 3,6024 3,6129 3,9741 1 Belgískur franki j 0,5416 0,5432 0,5975 1 Svissn. franki 13,1160 13,1544 14,4698 1 Hollensk florina 9,6901 9,7184 10,6902 'l V-Þýsktmark , 10,8363 10,8680 11,9548 1 ítölsk líra 0,01827 0,01833 0,02016 1 Austurr. Sch. 1,5375 1,5420 1,6962 1 Portug. Escudó 0,2364 0,2371 0,2608 1 Spánskur peseti 0,1908 0,1914 0,2105 1 Japansktyen 0,11501 0,11534 0,126871 1 írskt pund 34,095 34,194 37,613 1 Belgískur franki 29,3150 29,4007 I SDRisérstök I dráttarréttindi) 0,5381 0,5396 0,5935 I Simsvari vegna gengisskráningar 22190. | Tollgengi fyrir júní 1983. Bandaríkjadollar USD 27,100 i Sterlingspund GBP 43,526 Kanadadollar CAD 22,073 Dönsk króna DKK 3,0066 Norsk króna NOK 3,7987 Sænsk króna SEK 3,6038 Finnskt mark FIM 4,9516 Franskur franki FRF 3,5930 Belgiskur franki BEC 0,5393 Svissneskur franki CHF 12,9960 Holl. gyllini NLG 9,5779 Vestur-þýzkt mark DEM 10,7732 itölsk líra ITL 0,01818 Austurr. sch ATS 1,5303 Portúg. escudo PTE 0,2702 Spánskur peseti ESP 0,1944 Japanskt yen JPY 0,11364 írsk pund IEP 34,202 SDR. (Sérstök dráttarróttindi)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.