Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1983, Qupperneq 29
DV. LAUGARDAGUR 25. JUNI1983.
29
Bílar
Bflar
Bflar
Bflar
Bflar
FRAMTÍÐARBÍLLINN
HEFUR TILFINNINGU
— seglr sjálfur frá bilunum
örtölvutæknin er komin á f ulla ferö í
bílaiönaðinum og eins og sagt var frá
hér á síöunni fyrir nokkru þá eru
fyrstu fyrirtækin eins og bandariska
fyrirtækið Motorola komin fram með
örtölvukerfi fyrir bíla. Fyrir nokkru
var Motorolakerfiö kynnt í Kaup-
mannahöfn og fengu menn þá nokkra
innsýn í þá veröld sem bílaiðnaöurinn
stefnir hraöbyri inn í.
Það var hægt að opna bíldyr og láta
rúðumar rúlla upp og niður þótt staöiö
væri í fimmtán eða tuttugu metra fjar-
lægð. Þetta var gert með áhaldi sem
svipar til f jarstýringar fyrir sjónvarp.
Við þessa kynningu var sýndur bíll
sem búinn hafði verið fullkomnu tölvu-
kerfi. Kerfið var byggt upp á þann hátt
að víða í bílnum er komið fyrir skynj-
urum sem gefa upp allar þær breyting-
ar sem eiga sér stað. Upplýsingamar
em fluttar til móðurtölvunnar með
lj ósköplum sem flytja boðin í örsmáum
ljósbrotum með nokkurskonar morse-
kerfi, í stað veiijulegra rafkapla.
Til að meta breytingarnar þá er bíll-
innbúinn mörgumörtölvumsemsíðan
ýmist upplýsa ökumanninn eða við-
gerðaraðila um ástand einstakra hluta
bílsins. Einnig grípa örtölvurnar til
sinna ráða til öryggis bregði eitthvað
út af sem skapað gæti hættu.
Meðal þess sem örtölvubúnaðurinn
gefur upplýsingar um er nýting á
bensíni, hitastig vélarinnar, smur-
þrýstingur auk þess að gefa til kynna
hvort allar dyr séu lokaðar, afturrúðu-
hitarinn sé á, nóg vatn sé í rúðupissinu
svo eitthvað sé nefnt. Margt af þessu
Fjarstýringin opnar ekki aðeins dyraar heldur stýrir hún einnig opnun og lokun á gluggunum.
Hér gefur að líta hvernig kerfi skynjara víðs vegar um bílinn gefur örtölvubank-
anum upplýsingar um ástand bílsins.
Það eru margskonar ljósaborð í framtíðarbil Motoroia. I mörgum litum er sýnt
ástand vélar, hraði og bensínmagn. Slík mælaborð er nú þegar hægt að fá sem
aukabúnað í nokkrum bilategundum. Aðrar Ijósatöflur gefa aðrar upplýsingar á
meðan á akstri stendur svo sem um nýtingu eldsneytis.
lesa menn af mælum eða viðvörunar
ljósum í dag en meö örtölvunum er
þessu fylgt enn betur eftir.
Það er hægt að ákveða fyrirfram
hvernig sætin skuli stillt og séu fleiri en
einn ökumaður að bilnum þá geymir
tölvan í minninu stillinguna fyrir
hvem og einn. Sömuleiöis er hægt að
stilla baksýnisspegilinn á sama hátt.
En fyrst og fremst kemur þessi nýja
örtölvutækni að gagni þegar kemur aö
viðhaldi bílsins. Við eftirlit eru ör-
tölvusamstæðumar tengdar við úr-
vinnslutölvu á bílaverkstæðinu og þá
er á örskotsstund hægt að ganga úr
skugga um almennt ástand bílsins. A
þennan hátt verður allt viðhald fljót-
legra og ömggara.
I náinni framtíð verður nóg að
hringja til bílaverkstæðisins og leggja
síðan símtólið í tæki tengt tölvubanka
bílsins og þá kemur svar til baka hvaö
sé að hafi eitthvað bilað eða grunur er
á aö eitthvað sé ekki eins og það á aö
vera.
(Byggt á Politiken)
Hér er framtíðarsýnin á bílaverkstæðinu. Allar bilanir eru kallaðar fram með
aðstoð móðurtölvu sem með upplýsingum frá örtölvukerfinu metur ástand bíls-
ins.
Frakkland:
Mikil sala
í dísil turbo
h|á Citroén
Allt frá því að Citroen kynnti
hina nýju turbo dísilvél í CX
bílinn 6. apríl síöastliöinn hefur
salan verið í toppi. 32% Citroén
CX bíla sem seldir hafa verið í
Frakklandi á þessum tima hafa
verið turbo dísil. Samtals er sala
disilbíla af CX gerð 60% af heild-
arsölunni.
Turboútgáfan af dísilvélinni er
nú að koma á markað í löndum
utan Frakklands.
Cengur vel
hjá Volvo
Þrátt fyrir haröa samkeppni
gengur sala mjög vel hjá Volvo
og það á mörkuðum þar sem þeir
hafa mætt harðri samkeppni inn-
lendra bílaframleiðenda.
I Bandaríkjunum varð 9,1%
söluaukning og voru seldir 7900
bilará móti 7250 í apríl í fyrra.
I Bretlandi seldust 23.746
Volvobílar á fyrstu f jórum mán-
uðum ársins sem er 25,6% aukn-
ing frá fyrra ári. Markaðshlut-
deild Volvo í Bretlandi er um
3,7% af heildarmarkaðnum.
I bilalandinu Italíu gengur
Volvo einnig vel en þar varð sölu-
aukningin á fyrstu fjómm mán-
uðunumuml8,7%.
Ná nýlega var skráftur 1.500.00«. Volvo-
bQlinn f Svfþjóð frá þvf að sá fyrsti rúii-
afti úr verksmiftjunum i Gautaborg f
aprU 1927.
•
Besta
nýtingln
Perkins dísilvélar hafa verið
vinsælar hér á landi til að setja í
jeppa og fleiri bíla. Nú nýverið
kom fram í könnun í Bretlandi að
A4.236 dísilvélin frá Perkins
hafði mun betri nýtingu á elds-
neyti en sambærilegar vélar
aðrar.
A4.236 vélin sem er 63 hestöfl
við 2000 sn. á mín er meðal ann-
ars notuð í Massey Ferguson
dráttarvél MF 265 sem vel er
þekkthérálandi.
Samanburður var gerður á
ellefu dráttarvélum sem vom
meðvélará bilinu54ti!65bhp.
Siunvimia
enekki
sameinlng
Nú nýlega var sagt hér frá
nýrri dísilvél sem væri verið að
undirbúa framleiðslu á hjá
British Leyland. Þar kom fram
að Perkins og BL hefðu samein-
ast en átt var við að þessar tvær
veiksmiðjur hefðu hafið sam-
vinnu um gerð þessarar dísilvél-
ar. Þetta sameinaða átak verður
við gerð disilvélar sem verður
með beinni innspýtingu og mjög
hraðgeng. Vélin verður byggð á
Austin Rover tveggja lítra
bensínvél af „O” gerð sem fram
að þessu hefur verið notuð í Aust-
in Ambassador og Rover 2000.
Tvær gerðir eru í hönnun og verð-
ur önnur þeirra búin forþjöppu.
Nýjungin er að nota beina inn-
spýtingu á hraðgenga vél —
nokkuö sem margir bila- og véla-
framleiðendur víða um heim
hafa verið að skoða.