Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1983, Blaðsíða 5
DV. FÖSTUDAGUR 22. JÚLI1983.
5
Fasteignamisferlið:
Saklaust fólk tapar þar
hundruðum þúsunda króna
Ibúöakaup þessi fóru ekki fram í
gegnum fasteignasölu þá sem hann
starfaði við. Ibúðimar em keyptar í
gegnum aðrar fasteignasölur. Vekur
furðu margra að fasteignasölumar
skuli selja fyrir hann íbúðir sem
hann er ekki þinglesinn eigandi að
eða meö leyfi til sölu á frá réttum
eiganda. Virðist þama hafa verið
meira hugsað um sölulaunin en ör-
yggiviðskiptanna.
-klp
Rannsóknarlögregla ríkisins vinn-
ur nú af krafti að gagnaöflun og
rannsókn á máli sölumanns hjá fast-
eignasölu sem handtekinn var um
borð í ms. Eddu fyrir nokkm og flutt-
ur var með henni heim til Islands,
eins og sagt var frá í DV.
Var maöurinn úrskurðaður í
gæsluvarðhald til 3. ágúst. Málið
komst upp þegar bú hans var tekið til
gjaldþrotaskipta hjá borgarfógeta-
embættinu í Reykjavík fyrir nokkru.
Þótti starfsmönnum þess ýmislegt
athugavert við það mál og óskuðu
eftir því að Rannsóknarlögregla
ríkisins tæki það til nánari athugun-
ar.
Fjöldi manns hafði orðið fyrir
barðinu á þessum sölumanni og kær-
ur á hann höfðu þá þegar borist.
Hafði hann leikiö það aö kaupa íbúöir
i gegnum ýmsar fasteignasölur og
ekki staöið í skilum með greiðslur né
önnur skilyrði samninga.
Rannsóknarlögreglan verst allra
frétta af rannsókn málsins en eftir
því sem DV hefur komist næst mun
þama vera um tvær eða þijár „keðj-
ur” að ræða. Skiptir upphæðin í einni
keðjunni hundruðum þúsurtda króna
og samt er enn ekki allt komið fram í
dagsljósiö.
Ein keðjan sem verið er að rann-
saka varðar kaup mannsins á tveim
íbúðum í Kópavogi og á Seltjamar-
nesi. tbúðina á Seltjamarnesi keypti
hann á eina milljón króna í mars
1982. Við undirritun samnings
greiddi hann 100 þúsund krónur og
fékk um leið veðleyfi fýrir þeirri upp-'
hæð. Eftirstöðvamar átti hann aö
greiða á árinu — 550 þúsund krónur í
peningum og verðtryggt skuldabréf
fyrir afganginum.
Sölumaðurinn greiddi aðeins þess-
ar 100 þúsund krónur — og ekkert
meira. Mánuði síöar var hann nefni-
lega kominn aftur af stað en þá skipti
hann á íbúðinni á Seltjarnamesinu
og íbúð í fjölbýlishúsi i Kópavogi.
Var þá íbúðin á Nesinu metin á 1300
þúsund krónur.
Fréttaljós
Kjartan L Pálsson
Við undirritun þess samnings fékk
hann 300 þúsund krónur i peningum.
Varla var blekið á undirskriftunum
þornað þegar hann selur íbúöina i
Kópavoginum og fékk þá um leið á
milli 500 og 600 þúsund krónur í pen-
ingum. Var hann því þama búinn að
fá um 900 þúsund krónur í peningum
fy rir 100 þúsund krónurnar sem hann
lagði út í byrjun.
Sjálfur hefur maðurinn ekkert
borgað né staðið í skilum með
greiðslur af íbúðunum í Kópavogi
eða á Seltjamarnesinu. Hann er
gjaldþrota og á ekki neitt. Er því tal-
ið að þær tvær fjölskyldur sem þama
lentu í klónum á honum tapi sínu fé.
Það sem gerir máliö erfiðara er að
sá sem keypti íbúöina í Kópavogi
hefur þegar selt hana.
TJsteipIasallhándteKinB l tadunnl
R,no«6ta.rl6gr«ílumc»»lrnlr
tvetr og .Urfabri^r Þob™-
tók i m6U þ«tm, guf> «r*
i m.,. Bddn v» k»num» «
Roykl.vtarlfyrr^W^^
hefur fjoldi fóllu oróló fyrlr baróln
lonum. J
FJórhæöln, semumer aör*o«, m
ira nálægt elnni miUÍónfa-óna. vm
viöamíkiö og nókiö, aö sog
.m.aólmarlögregfunur « 1ugt ft
þar ýmlalegtathugavert
komln tU grafl
Anuvlk er Kom
Fróttín um fasteignamisferlið sem birtíst i DV á föstudaginn í siðustu viku.
Enn eitt Hagkaupsverðið!
Nýi,hreini appelsínusafinn
kostaraöeins 29.95 kr. pr. lítra!
Methelgi í
leiguflugi
Samvinnuferðir-Landsýn settí sölumet um síðustu helgi er skrifstofan
fluttí 750 farþega í sjálfstæðu leiguflugi sínu. Ferðaskrifstofan telur heldur
vera að rætast úr bókunum og mun nú að mestu leytí vera uppselt í sumar-
húsin sem boðið er upp ó. -EA
Uppselt
Farþegaferjan ms. Edda hélt í
sína áttundu ferð til Newcastle og
Bremerhaven siðastliðið miðviku-
dagskvöld. Uppselt var i feröina og
vel er bókað í þær átta ferðir sem eft-
ir eru, að því er segir í frétt frá Far-
skipum. Ferjan fer í sina síðustu ferð
í byr jun september næstkomandi.
Að þessu sinni fóm Stuðmenn í
hringferð með skipinu til að
skemmta farþegum og kynna nýja
plötu, Gráa fiðringinn. I næstu ferð-
um verður boðið upp á úrval þekktra
skemmtikrafta, þeirra á meðal
Jónas Þóri Þórisson, Bubba Morth-
í Edduna
ens og Garðar Cortes svo að dæmi
séu nefnd. Þá má geta þess að ýmsir
þjóökunnir menn fara með sem far-
arstjórar, eins og t.d. Guðni
Guðmundsson rektor, Bryndís
Schram ritstjóri og Róbert Arnfinns-
son leikari.
Boðið er upp á ýmsar sérferðir á
næstunni, eins og t.a.m. rokkferð til
Englands með Bubba Morthens,
golfferð til Englands, verslunarferð
til Newcastle og „Hringsól”, en það
er hringferð til Bremerhaven og til
baka og er þá matur innifalinn i
verðinu. EA
Blanda er framleidd af
Mjólkursamlagi S.A.H.á
Blönduósi, úr C-vítamínríku
appelsinuþykkni frá Brasilíu
blönduöu meö íslensku
lindarvatni. Engum sykri eöa
aukaefnum er bætt í safann.
Þeir sem fylgjast með
verðlagi vita hvarer
hagkvæmast aðversla!
Jk,
opiö i Skeéf unni til kl.22 í kvöld
HAGKAUP