Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1983, Side 17
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
(þróttir
íþróttir
íþróttir
(þróttir
DV. FÖSTUDAGUR 22. JÚLl 1983.
Sjöberg
ekkiíliði
Norðurlanda
Frá Gunnlaugi A. Jónssyni — fréttamanni
DVíSvíþjóð:
Hinn stórefnilegi hástökkvari Svía Patrik
Sjöberg, aðeins átján ára gamall, meiddist
illa í keppni í Luxemburg. Sjöberg var að
stökkva hæðina 2,24 sem hann fór léttilega
yfir, en svo illa vildi til að hann lenti utan
dýnunnar og slasaðist á handlegg. Melðslin
eru það mikil að vist þykir að hann taki ekki
þátt i keppni Norðurlandanna við Banda-
rikin þann 26. júní nk. og hæpið að hann geti
keppt á heimsleikunum i Helsinki í ágúst.
Patrik Sjöberg á best 2,33, aðeins 4 senti-
metrum frá heimsmetinu, og Sviar hafa
bundið mlklar vonir við hann i framtíðinni.
Því má geta þess að þjálfari Rússa hefur
látið hafa eftir sér að hann telji Sjöberg hafa
burði til að bæta heimsmetið og stökkva allt
að 2,45 m, þannig að það er engum blöðum
um það að fletta að þarna er geysimikið efnl
á ferðinni.
Það eru fleiri en Sjöberg sem eiga við
meiðsli að stríða þessa dagana. Hlaupa-
drottning Svía og Norðurlandanna, Linda
Haglund, gaf þá yfirlýsingu fyrir stuttu að
hún gæti ekki tekið þátt i heimsleikunum
sökum meiðsla. Linda losnaði í vetur úr 18
mánaða keppnisbanni. Hún hafði verið
fundin sek um að taka inn óleyfileg lyf og
hefur reyndar ekki borið sitt barr síðan.
Finnsta stúlkan Marjamaa bætti Norður-
landamet Lindu í 100 metra hlaupi fyrir
stuttu. Hljóp hún á 11,13, en gamla met
Lindu var 11,16 sett á ólympíuleikunum í
Moskvu 1980. -GAJ/-AA.
Wilander í
keppnisbann?
Frá Gunnlaugi A. Jónssyni — fréttamanni
DVíSvíþjóð.
t hinu virta, bandaríska tennisblaði World
Tennis er skýrt frá því í vikunni að sænski
tennisleikarinn Mats Wilander hafi tekið á
mótl stórri peningaupphæð er hann tók þátt í
Grand-Prix keppninni í vetur. Reynist svo
vera á hann árs keppnisbann yfir höfði sér
eins og argentínski tennisleikarinn Vilas,
sem dæmdur var i árs bann fyrir að taka á
móti 50.000 dollurum í Rotterdam á sínum
tíma.
I sænska kvöldblaðinu Kvall Posten segir
aö Wilander harðneiti þessu. „Slíkar trygg-
ingargreiðslur eru ólöglegar og ég myndi
aldrei taka á móti slíkum peningum,” voru
orð Wilander.
Svíar eiga að mæta Argentínumönnum í
næstu umferð Davis-Cup keppninnar og það
væri afar slæmt fýrir þá ef þeir þyrftu að
leika án síns besta manns, Mats Wilander.
Wilander er nú í öðru sæti í Grand-Prix
keppninni með 1431 stig á eftir Frakkanum
Yannick Noah sem hefur 1528 stig. Þeir sem
á eftir fylgja eru Lendl, Tékkóslóvakíu, 1241
stig, McEnroe, USA, 1220 stig, Jose
Higueras, Spáni, 1192 stig og Jimmy
Connors, USA, er í sjötta sæti með 1145 stig.
-GAJ/-AA.
Unglingalands-
liðið gegn
Færeyjum
Ungliugalandsliðið, skipað Ieikmönnum
undir 18 ára aldri, leikur tvo landslciki gegn
Færeyingum hér á landi 24. og 25. júli nk.
Fyrri leikurinn fer fram á Kaplakrikavelli
sunnudaginn 24. júlí kl. 20 og seinni leikurinn
á Seif ossvelli mánudaginn 25. júlí kl. 20.
Þessir leikir verða fyrsti undirbúningur
unglingalandsliðsins vegna væntanlegrar
þátttöku liðsins í Evrópukeppni en þar
mætir liðið Englendingum og verður leikið
heima og heiman, væntanlega í haust.
Haukur Hafsteinsson unglingalandsliðs-
þjálfari hefur valið eftirtalda pilta til að
leika gegn Færeyingum:
Hauk Bragason, Fram, Björgvin Pálsson,
Þrótti, Jón Sveinsson, Fram, Eirík
Björgvinsson, Fram, Olaf Þóröarson, 1A,
iBirgi Sigurðsson, Þrótti, Magnús Magnús-
son, Val, Sigurð Jónsson, IA, öm
Valdimarsson, Fylki, Kristján Hilmarsson,
FH, Kristján Gíslason, FH, Gunnar Skúla-
son, KR, Andra Marteinsson, Víkingi, Júlíus
Þorfinnsson, KR, Bergsvein Samphsted,
Val, Guðmund Magnússon, IBI.
(Aðalsteinn Jóhannsson, markvörður Vestmannaeyinga, grípur knöttinn öruggum höndum í bikarleiknum i gærkvöld með Sæbjorn Guðmundsson, KR, sér við hlið.
Til hægri sýnir Ágúst Már Jónsson, KR, skemmtileg tilþrif. DV-myndir S.
Hrun Reykjavíkuiiiðanna
„Þetta var sætur sigur og sanngjara
að mínum dómi. Við erum staðráðnir i
að vinna bikarinn, þurfum bara að fá
útileik næst, því þá gengur okkur
best,” sagði Ómar Jóhannsson, miðju-
lelkmaðurinn snjalli frá Vestmanna-
eyjum, eftir að Eyjamenn höfðu sleglð
KR-inga út úr bikarkeppninni 1—0 á
Fögruvöllum í gærkvöldi.
Þetta var hressilegur bikarleikur í
gærkvöldi og mikið af marktæki-
færum, sérstaklega þó í seinni hálf-
leiknum. Mikið jafnræði var meö liðun-
um í fyrri hálfleik. KR-ingar byrjuðu
af krafti og strax á 3. mín. komst Ágúst
Jónsson í ákjósanlegasta færi við
markteigsfiómið en Aðalsteinn í marki
Eyjamanna varði í horn. Nokkru síðar
var Ágúst aftur á ferðinni en skaut þá
hátt yfir markið af 12 metra færi eftir
að Aðalsteinn hafði slegið boltann út til
hans í stað þess að grípa boltann, sem
hann haföi full tök á aö gera. Á 21. mín.
kom svo markið, sem reyndist vera
sigurmark Eyjamanna. Það var mjög
vel að þvi marki staðið hjá Eyjaliðinu.
Þeir stöðvuðu sókn KR-inga á vinstri
vallarhelmingnum, léku þeim megin
upp. Boltinn var síðan sendur inn á
miðjuna til Kára, hann dró til sin
varnarmann og gaf til hægri á Jóhann
Georgsson sem komst einn og óáreitt-
ur að KR-markinu og átti frekar auð-
velt með að skora framhjá úthlaupandi
markverði KR, Stefáni Jóhannssyni.
Tveim mínútum síðar lá knötturinn í
marki Eyjamanna en dæmd var rang-
stæða á Sæbjöm sem skaut af mark-
teig.
KR-ingar mættu mjög ákveðnir til
leiks í seinni hálfleik og sóttu látlaust,
staðráðnir í að jafna metin. Við það
opnuðu þeir oft vömina og gáfu Eyja-
mönnum möguleika á skyndisóknum.
Þetta varð til þess að leikurinn varð
hinn skemmtilegasti á köflum og mikið
af marktækifærum á báöa bóga.
A 49. mín. fékk Erling KR-ingur
boltann óvænt á markteig en laust skot
hans var vel varið af Aðalsteini. Bjöm
Rafnsson komst svo einn inn fyrir
Eyjavörnina en lét Aðalstein verja frá
sér. Heppnin var KR-ingum ekki hlið-
holl i þessum leik og nú var komið aö
skyndisóknum Eyjamanna. Tómas
Pálsson var einna hættulegastur í
þeim og gerði oft usla. Komst t.d. einn
inn fyrir á 58. mín. en Stefán varði
meistaralega með fætinum. Nokkru
áður fékk hann boltann óvaldaður á
Erfitt keppnistímabil
f ramundan hiá Laval
„Eg reikna með að keppnistimabilið
verði mjög erfitt fyrir okkur hjá Laval
í 1. deildinni frönsku. Fjórir af þekkt-
ustu leikmönnum liðsins hafa verið
seldir til annarra liða, markvörðurinn
Jean-Pierre fór til Lens, Þjóðverjinn
Uwe Krause, sem verið hefur aðal-
markaskorarinn undanfarin ár, var
seldur tll Monakó. Þá era þeir Victor
Zvunka og Phillippe Redon einnig
farnir,” sagði Karl Þórðarson, þegar
DV ræddi við hann í gær.
Keppnistímabilið í Frakklandi hófst
í fyrrakvöld og hefst miklu fyrr en
venjulega. Það er gert vegna úrslit-
anna í Evrópukeppni landsliöa, sem
verða íFrakklandi næsta sumar.
Laval lék við St. Etienne á heima-
velli og varð jafntefli 1—1. Karl lék í
liði Laval og hefur alveg náð sér af
meiðslunum sem háðu honum svo
mjög á síðasta leiktímabili. Hann byrj-
aði þó að æfa seinna en aðrir leikmenn
liðsins og er því ekki í mikilli úthalds-
æfingu. Var honum skipt út af þegar
tíu mín. voru eftir af leiknum.
,Þetta var ansi skemmtilegur leikur,
vel leikinn og hraði mikill. Laval náði
forustu um miðjan síöari hálfleikinn
með marki svertingjans Omar Sene
frá Senegal. Þegar fjórar mínútur
vom til leiksloka tókst St. Etienne að
jafna,” sagði Karl um leikinn.
Urslit í leikjunum í 1. deild í 1.
umferðinni urðu þessi.
Nantes—Monaco 0—0
Bordeaux—Rennes 4—1
Toulouse—Paris S. G. 1—1
Lens—Metz 3—2
Toulon—Brest 0—0
Nancy—Lille 1—2
Sochaux—Nimes 4—1
Strasbourg—Bastia 0—0
Rouen—Auxerre 2—0
Meistarar Nantes gerðu jafntefli á
heimavelli. Bordeaux vann nýliða
Rennes stórt en Rennes og Nimes
komu upp úr 2. deild í vor. Tóku sæti
Ásgeir í
4. skipti
— íliði vikunnar
Ásgeir Elíasson, þjálfari og leik-
maður Þróttar, er nú í fjórða skipti í
liði vikunnar hjá DV en hins vegar er
félagi hans í Þróttarliðinu nú i fyrsta
skipti í liðinu. Báðir léku mjög vel í
sigurleiknum gegn Isfirðingum á
Laugardalsvelli. Lið vikunnar er nú
skipað þessum leikmönnum:
Lyon og Mulhouse í þeirri fyrstu.
,,Þó við höfum misst marga góða
leikmenn til annarra félaga hefur litið
komið af nýjum leikmönnum í staðinn.
Laval fékk markvörð úr 2. deild í stað
Tempet og Þjóöverjinn Claus Jank frá
Stuttgart Kickers kom. Hann er enn
ekki í þeirri æfingu sem þarf til að
komast í aðalliðið. Þá eru ungir
strákar komnir í aðalhópinn og meðal-
aldur leikmanna liðsins er mjög
lágur,” sagðiKarl.
Þess má geta að Frakkar leggja
mikla áherslu á úrslitakeppni Evrópu-
móts landsliða næsta sumar. Strax og
keppnistímabilinu lýkur fer franska
landsliðið í æfingabúðir í 3 vikur.
Frakkar komast sem gestgjafar beint í
úrslitakeppnina.
-hsím.
Bjarni Sigurðsson (2)
Akranesi
Jónas Róbertsson (2)
Þór
vítapunkti og missti hann klaufalega
frá sér. Nú, KR-ingar fengu enn eitt
gulliö tækifæri á að jafna þegar
Jósteinn skallaði í stöng eftir horn-
spymu, þaðan datt knötturinn á mark-
línuna og Snorri Rútsson var ekki lengi
að sparka honum frá og bjarga. Á 68.
mín. skoruöu svo Eyjamenn en Tómas
var dæmdur rangstæður eftir að hann
hafði þrumað knettinum upp í þaknetið
af markteig. Síðustu mínúturnar sóttu
KR-ingar með miklum hamagangi en
ekkert gekk. Kári fékk svo gullið tæki-
færi til að gera út um leikinn rétt fyrir
leikslok, er hann komst einn upp að
KR-markinu, en á einhvern ótrúlegan
hátt tókst honum aö detta um sjálfan
sig og ekkert varð úr.
Þórður Hallgríms og Snorri Rútsson
voru bestir Eyjamanna ásamt Ómari
sem átti góða spretti. Hjá KR-ingum
vom það Stefán markvörður og Ottó
Guðmundsson sem stóðu upp úr.
Leikinn dæmdi Oli Olsen og gerði það
þokkalega. Hann sýndi Sveini Sveins-
syni, KR, gula spjaldið. Áhorfendur
voru638.
Eftir helgi verður dregið um hvaða
Uð leika saman í undanúrslitum bikar-
keppninnar. -AA.
Karl Þórftaraon.
„Lið vikunnar”
Ámi Sveinsson (3)
Akranesi
Jón Gunnar Bergs (2)
Breiðabliki
Ásgeir Elíasson (4)
Þrótti
Sigurður Jónsson (3)
Akranesi
Páll Clafsson
Þrótti
Ómar Torfason (2)
Víkingi
Sigurður Grétarsson (2)
Breiðabliki
Óli Þór Magnússon (3)
Keflavík
Helgi Bentsson (3)
Þór