Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1983, Page 32
xzÆ-öééeút st.
ÁRMÚLA 38 REYKJAVÍK,
SÍMI82166 OG 83830.
27022 AUGLÝSINGAR SÍÐUMÚLA33
SMÁAUGLÝSINGAR—AFGREIÐSLA
SKRIFSTOFUR
ÞVERHOLTI 11
86611 RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12—14
FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ1983.
Þórshöfn:
STAKFELUÐ
FISKAR VEL
— hásetahluturer
265 þúsund frá
áramótum
Frá Aðalblrni Arngrímssyni, frétta-
ritara DV á Þórshöfn:
Þórshafnartogarinn Stakfell kom
inn úr veiðiferð á þriðjudaginn eftir
10 daga útivist. Að þessu sinni reynd-
ist afli togarans rúm 150 tonn, nær
eingöngu þorskur. Hefur hann þá
fiskað tæp 2000 tonn það sem af er ár-
inu, þrátt fyrir úrtak vegna smálag-
færinga. Alls fór togarinn 17 veiði-
ferðir á þessu timabiii og er skipta-
verð 14.178 milljónir og hásetahlutur
265 þúsund krónur. Skipstjóri á Stak-
fellinu er aflamaðurinn Olafur Aðal-
björnsson.
Um sama leyti og togarinn kom
komu hingað þrir Bandaríkjamenn
frá samtökum fiskseljenda i Banda-
ríkjunum. Kvikmynduðu þeir löndun
aflans og flutning að fiskiðjuveri svo
og alla meðferð fiskins í vinnsiusal
þar til hann var kominn i endanlegar
umbúðir. Til stóð að Bandarikja-
mennirnir færu eina ferð meö togar-
anum en óvíst er hvort af því getur
orðið.
Undanfarið hefur afli glæðst veru-
lega hjá smærri bátum sem hér róa.
Milli 20 og 30 stunda þann útveg.
-JBH.
Hraðfrystihús
Patreksfjarðar:
Sjómenn fá
launídag
„Við gerum ráð fyrir að geta greitt
sjómönnunum helrning þeirra launa
sem þeir eiga inni hjá fynrtækinu í
dag,” sagði Jón Kristinsson, for-
stjóri Hraöfrystihúss Patrekáfjarö-
ar, er DV ræddi við hann í morgun.
Sigurey SI71, togari frystihússins,
liggur enn bundin við bryggju
vegna launa- og oliuskulda. Jón
sagði að þótt tækist að greiða sjó-
mönnum hluta af launum í dag leysti
það engan veginn vandann varðandi
skipið, þannig að það kæmist til
veiða aftur. Til þess þyrfti meira að
koma tU. Fyrst og fremst þyrfti að
auka eigiö fé fyrirtækisins og afla
lánsfjár.
„Það liggur ljóst fyrir, að óbreytt
staða til lengri tíma verður til þess
að menn missa móðinn,” sagði Jón.
„Við getum haldið uppi vinnu í
frystihúsinu fram undir verslunar-
mannahelgi, en eftir þann tíma
vitumviðekkerthvaögerist.” -JSS.
Bruninn hjá Álafossi í mars:
GRUNUR UM
ÍKVEIKJU
Grunur leikur á að stórbruninn hjá
Alafossi í mars síðastliðnum hafi verið
af mannavöldum. Sérfræðingar
Brunamálastofnunar könnuðu að-
stæður í Alafossi eftir brunann og
þykir niðurstaða 4 mánaða rannsóknar
benda til aö kveikt hafi verið í ullar-
bala og rusli með bensíni.
Rannsókn sérfræðinga Brunamála-
stofnunar var mjög ítarleg, m.a. voru
sýni af brunastað efnagreind. Skýrsla
sérfræðinganna er komin til rannsókn-
arlögreglunnar sem mun halda rann-
sókn málsins áfram.
I eldsvoðanum á Alafossi í mars varð
eitt mesta tjón sem orðið hefur í bruna
hérlendis. Tjónið er metiö á um 400
milljónir króna. 450 metra vöru-
geymsla brann, 110 tonn af ull, tæki og
efni. Brunabótafélag Islands og Sjóvá
greiddu 40 milljónir króna í trygginga-
fé og munu tryggingafélögin hafa
endurkröfurétt á hendur hugsanlegum
brennuvargi.
DV hafði samband við forsvarsmenn
Brunamálastofnunar og rannsóknar-
lögreglunnar en þeir neituðu alfarið að
ræðamálið.
-és.
Fólksbfllinn velti jeppanum
Harður árekstur varð á gatnamótum Njarðargötu og Bergstaðastrætis klukkan 21 í gærkvöldi. Land Rover jeppi
kom akandi norður Bergstaðastræti, sinnti ekki biðskyldu sem þar er og ók yfir gatnamótin. Þar kom þá fólksbíll
upp Njarðargötuna og ók beint inn í jeppann og velti honum. Báðir bilamir skemmdust mikið en slys urðu ekki á
mönnum, DV-mynd: S. /-ELA.
Gírkass-
innog
grillið
horfið
þegar
eigandinn
ætlaði
að aka
á brott
Undanf arnar nætur hefur verið
stolið úr bíl sem staðið hefur við
Höfðatún í Reykjavík. Kom eig-
andinn að honum einn morguninn
og vantaði þá i hann blöndunginn
og daginn eftir var búið að hirða
enn meira úr bílnum.
Lögreglan setti vakt á bílinn sL
nótt. Þegar aðeins tók að skyggja
mættu þrír ungir piltar á staðinn,
vel vopnaðir verkfærum. Hand-
tók lögreglan þá en þá voru þeir
að dunda sér við að ná í kveikj-
unaúrbilnum.
Annar bíleigandi kom að sínum
bQ í gærmorgun og vantaði þá á
hann grillið. Þegar hann settist
inn í bílinn kom i ljós að enn þýð-
ingarmeiri hlutur var horfinn, en
það var gírkassinn með öllu til-
heyrandi.
Bíllinn hafði staðið við hús í
Skeifunni í smátíma. Notuðu
þjófarnir þann tima til að hirða
þessa hluti úr honum.
Þá voru tveir piltar teknir við
Flúðasel í nótt, þar sem þeir voru
að ná sér í bensín af bil sem þar
stóð. Er orðið mjög algengt að
menn komi að bilum sínum hálf-
bensinlausum á morgnana, eftir
að hafa fyllt þá daginn áður, enda
bensíndropinn orðinn dýr hér á
landi
-klp-
Álviðræður
í óvissu
— mikið berá milli um
orkuverðshækkun
Viðræður fulltrúa Alusuisse og
ríkisins, sem hófust í gær, eru í al-
gerri óvissu. Sjónarmið fulltrúa
ríkisins er að „veruleg orituverðs-
hækkun” til Isals nú þegar sé for-
senda frekari viðræðna, samkvæmt
öruggum heimildum DV. Er álitið að
það þýði varla minna en 50%
hækkun. Alusuisse-menn eru á hinn
bóginn taldir ófúsir til að fallast á
meira en 13—20% hækkun fyrsta
kastið.
1 gær voru engar tölur um orku-
verðshækkun nefndar af aðilum og
aðallega rætt almennt um málin og
ýmis minni háttar atriðL A það
reynir í dag, á fundi sem hófst
klukkan 11 í morgun, hvort grund-
völlur sé fyrir samkomulagi um
fyrstu skref að viötækari samningi
um framtíðarmálefni álversins í
Straumsvík.
Heimildir DV lúta að því að alls-
endis óvist sé að nokkur niöurstaða
fáist á f undinum í dag.
-HERB.
Steinullarverksmiöjan á Sauðárkróki:
Reiknað með
Stjóm Sambandsins hefur ákveðið
að taka þátt í dreifingu á framleiðslu
Steinullarverksmiðjunnar á Sauðár-
króki. Viöræður standa nú yfir milli
stjórnar Steinullarfélagsins og Sam-
bandsins um endanlega samninga.
Aö sögn Arna Guömundssonar,
stjómarformanns Steinullarfélags-
ins á Sauðárkróki, hafði verið
reiknað meö því frá upphafi að Sam-
bandið yrði meö í myndinni. „Það
hefur verið talið nauðsynlegt að bæði
r&ið og Sambandið yrði með, aöal-
lega til að tryggja að ekki yrði byggð
nema ein verksmiðja því við erum
sammála um að það eru ekki verk-
efni nema fyrir eina. Það yrði lítil
verksmiðja sem aðeins framleiddi
fyrir innanlandsmarkað því við
teljum útflutning vonlausan.”
Arni var inntur álits á ummælum
Alberts Guðmundssonar fjármála-
ráðherra þess efnis að hann væri
andvigur forréttindum Sambandsins
á sölu á framleiðslunni. „Það er út af
fyrir sig skiljanleg afstaða því æski-
legast væri að allir hefðu sömu að-
stöðu. Við höfum hugsað þetta með til-
liti til reksturs verksmiðjunnar að
heppilegast væri að kcmast inn í
dreifirigarkerfi sem fyrir hendi er
hjá Sambandinu og öðrum dreifend-
um.”
-PA.