Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1983, Blaðsíða 3
DV. FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER1983.
3
SKRIÐJÖKLARNIR
HÆTTIR AD HOPA
Jöklar landsins eru hættir aö hopa,
eins og þeir hafa gert í hálfa öld. Þeir
viröast ætla að vaxa á ný.
Sigurjón Rist vatnamælingamaöur
sagöi í DV á miðvikudag aö minni jökl-
arnir, sem tækju fyrr viö sér, væru
þegar famir að skríða fram. Stærri
jöklamir hefðu þó enn hopaö.
I Jökli, riti Jöklarannsóknafélags Is-
lands og Jarðfræðifélags íslands, er
yfirlit yfir þær athuganir sem gerðar
hafa verið á breytingum jökla síðast-
liðið ár.
Alls voru 43 jökultungur mældar
haustiö 1982. Jökuljaöar sýndi fram-
skrið á 22 stöðum, hélst óbreyttur á
þremur stöðum en hafði hopaö á 18
stöðum. Framskriðið mældist saman-
lagt 594 metrar en hopið 451 metri.
„Mæliniðurstöðurnar sýna greini-
lega að framskriðið eykst. Stórar og
flatar jökultungur hopa aö vísu ennþá
en ár frá ári dregur úr hopi þeirra,”
segir Sigurjón Rist í Jökli.
,,Ef gengur sem horfir er stutt í það
að mæliniðurstööur staðfesti vöxt jökla
hér á landi. I lok ágústmánaðar 1982
huldi snæhetta síðasta vetrar jöklana
óvenju langt niður eftir; sýnir það
hvert stefnir. Einkum var snjór síð-
asta vetrar mikill á vestanverðu land-
inu, til dæmis var Drangajökull hulinn
drifhvítum vetrarsnjó, sömu sögu er
að segja af Snæfellsjökli.
Mælingaáriö, þ.e.a.s. frá hausti 1981
til jafnlengdar 1982, var fremur kalt.
Urkoma í meðallagi eða vel það. Kald-
ir haustmánuðir eru eins konar sér-
kenni hinna síðari ára,” segir Sigur-
jón. Og ennfremur:
„I júli (1982) var ör leysing á jöklum
og jökulár vatnsmiklar en það stóð
skamma stund. I annarri viku ágúst-
mánaðar má telja að leysingu á hájökl-
um hafi verið lokið, þá frysti og tók að
snjóa. September 1982 var kaldur; aö
septembermánuður sé kaldur telst nú-
oröið engin nýlunda.”
Ef breytingar á einstökum jöklum á
einu ári frá hausti 1981 til sama tíma
1982, eru skoðaðar sést að Hagafells-
jökull í Langjökli hopaði um rúma 30
metra. I Hofsjökli hopaði suðurjaðar
Múla jökuls um 42 metra en aörar tung-
ur úr Hofsjökli stóðu því sem næst í
stað.
Gígjökull i Eyjafjallajökli skreið
fram um 85 metra. Frá Mýrdalsjökli
skreið Sólheimajökull fram um 47
metra til vesturs og til austurs um 24
metra. öldufellsjökull hopaði um 155
metra.
Gígjökull í norðanverðum Eyjafjallajökli. Hann skreið fram um 85 metra á
siðasta ári.
Skriðjöklar Vatna jökuls létu sitt ekki
eftir liggja. Tungnaárjökull hopaði um
28 metra, vesturjaðar Skeiðarárjökuls
hopaði um 10 metra eaeystri jaðarinn
um tvo metra. Morsárjökull skreið
fram um 28 metra. Skaftafellsjökull
skreið úr öræfajökli til vesturs um 37
metra, Svínafellsjökull um 45 metra,
Virkisjökull um 30 metra og Falljökull
um 15 metra.
Breiðamerkurjökull var mældur á
fimm stöðum. A tveimur stööum i
vesturjaðri, við Breiðamerkurfjall,
hopaði hann; um 14 metra og 49 metra.
Austasti ■ hluti Breiðamerkurjökuls
hopaði einnig. Við Fellsfjall mældist
hopið 44 metrar. f átt að Jökulsá mæld-
ist hins vegar um 50 metra framskrið.
Fláajökull skreið fram um 20 metra,
Eyjabakkajökull um 10 metra og
Kverkjökull skreið fram um 22 metra.
-KMU.
hverri
viku
Míss Young International 1983:
KOLBRÚN HAFNAÐI
í ELLEFTA SÆTI
— en sú norska varð sigurvegari
„Þetta hefur verið eitt stórævin-
týri, annað get ég ekki sagt,” sagði
Kolbrún Anna Jónsdóttir, 19 ára
Reykjavíkurmær, í samtali við blað-
ið. I fýrradag tók hún þátt í fegurðar-
keppninni „Young International”
sem fram fór í Seoul í Suöur-Kóreu.
«
Kolbrún Anna Jónsdóttir varð í 11.
scti í fegurðarsamkeppninni i Seoul í
Suður-Kóreu.
Tíu stúlkur komust í aðalúrslitin
en dómararnir tilkynntu um nokkur
næstu sæti, óopinberlega, og hafnaði
Kolbrún í 11. sæti keppninnar. Þátt-
takendur voru 53 frá jafnmörgum
þjóðlöndum.
„Eg get ekki annaö sagt en að ég
sé ánægð með þessi úrslit. Fulltrúi
Noregs sigraði í keppninni og var vel
að þeim sigri kominn. Annars er ég
ánægðust með að þessu skuli nú lok-
ið. Þessu fylgir mikil streita og ótrú-
legt púl. Nú er það bara heimferðin
sem í sjálfu sér er ekki lítið fyrir-
tæki. Annars höfum við ekki séð til
sólar hér í þessu mikla sólarlandi
allan tímann. Það er eins og
rigningin fylgi okkur Reykvíkingun-
um í ár,” sagði Kolbrún.
-klp-
GÓÐ
MATAR
KAUP
Unghænur, 5 stk., 73,50 pr. kg
Kjúklingar, 5 stk., 92,00 pr. kg
Lambaframpartar, 77,40 pr. kg
HELGARRÉTTURINN -
TILBOÐSVERÐ
LAMBA SIRLOINSTEIK A
AÐEINS 99 KR. KG
Appelsínur, Florida, 31,50 pr. kg
Epli - gul frönsk, 38,50 pr. kg
MATVÆLAKYNNING
Kaaber kaffi, Ríó, 24 kr. pk.
Sanitassultur og efnagerðarvörur, 15%
afsláttur
Emmess skafís á tilboðsverði 2 I kr.
100,80.
OPIÐ TIL KL. 10 ( KVÖLD OG
TIL KL. 4 Á MORGUN,
LAUGARDAG.
& Vörumarkaðurinn hf
ÁRMÚLAIa EIÐISTORG111