Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1983, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1983, Qupperneq 5
DV. FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1983. 5 Hugmyndir forsætisráðherra um sölu ríkisfyrirtækja — margar ríkisstof nanir og ríkisfyrirtæki á sölulista en skilyrði fyrir sölu f lestra Steingrímur Hermannsson forsetisráðherra hefur nú kynnt fjármálaráð- herra hugmyndir sinar um sölu ríkisstofnana og -fyrirtækja. Þar kemur fram að hann vill meðal annars endurskoða starfsemi Húsameistara ríkisins og Húsnæðisstof nunar rikisins. Steingrímur Hermannsson for- sætisráöherra hefur sent fjármála- ráðherra athugasemdir við þær hug- myndir sem fram hafa komiö um sölu á eignarhlut ríkissjóðs í ýmsum fyrirtæk jum og sölu ríkisstofnana. I bréfi sínu segir Steingrímur að markmiöiö með þessum aðgerðum hljóti að vera aö draga úr útgjöldum ríkissjóðs en þess veröi þó aö gæta að landsmönnum veröi áfram tryggö eðlileg þjónusta og komið veröi í veg fyrir óeðlilega byggðaröskun. Nauðsynlegt kunni að vera að ríkis- valdið taki beinan þátt í uppbygg- ingu mikiivægra fyrirtækja og gangi inn í þýðingarmikil fyrirtæki sem ella þyrftu að hætta og valda þar með atvinnuleysi og byggðaröskun. Segir í bréfinu að ástæðulaust sé þó að ríkið eigi almenn fyrirtæki áfram þegar þau séu komin á traustan grundvöll. Þá sé eölilegt að fyrirtæk- in verði seld þeim sem geta keypt þau. Hins vegar verði að fást eðlilegt verð fyrir fyrirtækin og sé nauðsyn- legt að skapa aðstæður til að svo geti orðið hér á landi. Steingrímur bendir á aö ástæða sé til að kanna hvort ekki sé hagkvæmt að koma á fót hlutabréfamarkaði eða verðskráningu hlutabréfa. Jafn- framt því yrði lögum um hlutafélög og skattalögum breytt þannig aö sala hlutabréfa verði auðveldari og upplýsingar um „almennings” hlutafélög veröi tiltækar almenningi. Þetta hefði meöal annars þann tilgang að auðvelda ríkinu að selja fyrirtæki þegar markaðurinn getur tekiðvið þeim. „Hagkvæm leiö er aö stofna eignarhaldsfyrirtæki (holding company) ríkisins sem yröi formleg- ur eigandi ríkisfyrirtækja og hluta- bréfa er ríkiö á nú,” segir í bréfi Steingríms til fjármálaráðherra. „I lögum eignarhaldsfyrirtækisins yrðu ákvæði sem skylduðu það til að bjóöa hlutabréf til sölu en þó með tilliti til aöstæðna á markaði hverju sinni. Þeim ríkisfyrirtækjum sem ekki eru í hlutafélagsformi yrði breytt í hluta- félög. Söluandvirði hlutabréfa mætti hins vegar nota til að leggja fé í ný fyrirtæki eða til að stuðla að endur- skipulagningu fyrirtækja. Eignar- haldsfyrirtækið fengi þannig það hlutverk sem stundum hefur verið nefnt fumkvöðulshlutverk ríkisins í atvinnumálum.” Með bréfinu fylgir skrá um stofnanir og fyrirtæki með eignarað- ild ríkissjóðs ásamt athugasemdum forsætisráðherra. Þar mælir hann með óbreyttu eignarhaldi ríkissjóðs að nokkrum stofnunum og fyrirtækj- um. I þeim hópi eru Námsgagna- stofnun, Menningarsjóður, Sala vamarliðseigna, Fríhöfnin á Keflavíkurflugvelli, Islenskir aðal- verktakar, Sementsverksmiðja ríkisins, Ríkisprentsmiðjan Guten- berg og Gufubor ríkisins og Reykja- víkurborgar. Hins vegar er ákveöið lagt til aö aörar stofnanir og fyrirtæki verði annaöhvort seld eða starfsemi þeirra boðin út á almennum markaði. Þeú-ra á meðal eru Þvottahús ríkis- spítalanna, Islensk endurtrygging, Samábyrgö Islands á fiskiskipum, Umferðarmiðstöðin, Alafoss hf., Hraöbraut hf., Norðurstjarnan hf., Slippstöðin hf., Eimskip, Flugleiðir, Rafha, Skólavörubúðin, Iönaðar- bankrnn og Steinullarverksmiðjan. Forsætisráðherra leggur til að ríkissjóður selji hlut sinn í öðrum ríkisfyrirtækjum og stofnunum en setur fyrir því ákveðin skilyrði. Þannig segir að selja megi Lyfja- verslun ríkisins ef það hafi ekki áhrif til hækkunar á lyfjaverði. Hann telur athugandi að stofna sameignar- eða hlutafélag um strandferðaþjónustu með þátttöku ríkisins, sveitarfélaga og skipafélaganna í stað Skipaút- geröar ríkisins og yröi þá miðað við að ríkiss jóður ætti um helming hluta- fjár. Steingrímur bendir á aö í tíð sinni sem samgönguráöherra í síöustu ríkisstjórn hafi hann kannað sölu á Ferðaskrifstofu ríkisins en ferða- skrifstofurnar hefðu þá ekki haft áhuga á kaupum. Hann telur athug- andi hvort hlutaðeigandi sveitar- félög hafi áhuga á að auka hluti sína í rekstri bátanna Drangs, Baldurs, Herjólfs og Akraborgar. Hann leggur til að kannað verði gaumgæfi- lega hvort hlutverki Húsameistara ríkisins verði ekki betur gegnt meö öðrum hætti svo og starfsemi framkvæmdadeildar Innkaupastofn- unar ríkisins og Húsnæðisstofnunar ríkisins. Um önnur fyrirtæki segir að athuga megi sölu þeirra ef fyrirtækin lendi í höndum starfsmanna eöa heimamanna. Þaö gildir meðal annars um Síldarverksmiðjur ríkis- ins, Þormóö ramma og Siglósíld á Siglufirði, Landssmiðjuna og Flug- leiðir, en við síöasttalda fyrirtækið er tekið fram að þótt starfsmönnum verði seldur hlutur ríkisins er æskilegt að ríkið eigi aðild að stjórn fyrirtækisins. Um Kisiliðjuna og Islenska jámblendifélagið segir ráðherrann að athugandi sé aö selja hluta ríkis- ins, en eðlilegt sé að yfir 50% hluta- f jár verði í eigu innlendra aöila. OEF Eftirlitið er hart i skoðunarmálunum í borginni þessa dagana. Við sjáum hér hvar „klippt” er af einum bQ sem löngu á að vera skoðaður. Alllr bílar með númerin 53200 og þar fyrir neðan eiga nú að vera skoðaðir. DV-mynd: S. Lögreglan „klippir” grimmt þessa dagana: Mörg þúsund bflar óskoðaðir í borginni — margir segjast hreinlega ekki hafa efni á að greiða tryggingagjöldin „ Jú, eftirlitið er hart þessa dagana og þaö eru mörg þúsund bílar óskoðaðir í höfuðborginni sem eiga að vera komnir í skoöun,” sagði Osk- ar Olason yfirlögregluþjónn í sam- taU við DV, en mikiö hefur borið á því að lögreglan sé með „klippum- ar” á lofti gagnvart trössunum sem ekki hafa hirt um að fara með bílana í skoðun á réttum tíma. „Við höfum einnig fengið beiðnir frá lögregluembættum úti á landi þar sem skoöun er lokið, um aö stöðva óskoöaöa bíla úr þessum umdæmum.” Hvað ástand bUanna snertir sagði Oskar að þaö væri þokkalegt en margir bæm því við aö þeir hefðu hreinlega ekki efni á að greiða tryggingagjöldin og hefðu því ekki farið með bílana í skoðun. Þessa dagana eiga alUr bílar með númer undir 53200 að vera skoðaðir. „Okkur í lögreglunni finnst það allt annað en skemmtilegt að stööva bíla og taka af þeim númerin því að þetta getur komið sér afar iUa fyrir viðkomandi bíleigendur ef þeir eru allt í einu bUlausir á óheppUegum stöðum,” sagði Oskar. -JGH Magasín og eig- endur þess gjaldþrota Vöruhúsið Magasín sf. og bú eigend- anna, feðganna Ástþórs Magnússonar og Magnúsar K. Jónssonar, hafa veriö tekm tU gjaldþrotaskipta. I Lögbirt- ingablaöinu í gær var auglýst eftir kröfum í þrotabúin. Magasín var þann 17. maí í vor veitt heimild til greiöslustöðvunar í tvo mánuði. Sú heimild var siðan fram- lengd um einn mánuð. Þegar hún rann út, þann 17. ágúst síöastliöinn, báðu eigendurnir ekki um frekari f mmleng- ingu. Þess í stað óskuðu þeir sjálfir eft- ir því að bú þeirra og vöruhússins yrði úrskurðað gjaldþrota. Orskurður var svo kveðinn upp daginn eftir. Að sögn Ragnars HaU, dómara í skiptarétti, má ætla að kröfur í þrota- bú Magasín séu á biUnu 6—8 mUljónir króna. Taldi hann að eignir væru til fyrir verulegum hluta skuldanna, þó ekki öUum. Eignir Ástþórs og Magnúsar, meðal annars einbýlishús, munu verða tekn- ar upp í skuldir Magasín sf. þar sem þeir, sem eigendur, eru persónulega ábyrgir fyrir skuldum fyrirtækisins. Skiptaráðandi, Ragnar HaU, hefur þegar selt fyrirtækið Glöggmynd sem Magnús K. Jónsson átti. Glöggmynd er því ekki lengur að neinu leyti á vegum þeirra feöga heldur hefur nýr eigandi tekið við rekstrinum. Erlend vöruUsta- umboð, sem Magasín hafði, hafa einn- ig verið seld. Þá vinnur skiptaráðandi aö því að selja aðrar eignir vöruhúss- rns. Feðgarnir Astþór og Magnús hafa áður komið við sögu gjaldþrotamála. Áriö 1979 fór Myndiðjan Ástþór á haus- inn. Því máli er ekki lokið en kröfuhaf- ar hafa engu náð upp í skuldir. Um- deild sala á eignum átti sér stað í tengslum við gjaldþrot Myndiðjunnar. Það var sala á tölvuframköllunarvél tU Gírómynda, fyrirtækis sem Magnús átti. -KMU. HM M M A Jg VIÐGERÐAR- LJrAUJrA þjónusta. • Vatnskassa- og bensíntankaviðgerðir. • Erum einnig sérhæfðir í Fíat- viðgerðum. BÍLAVERKSTÆÐIÐ AUÐBREKKU 4 KÓPAVOGI, SÍMI 46940.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.