Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1983, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1983, Blaðsíða 10
10 DV. FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER1983. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd AUKIN TÖLVUNOTKUN KALLAR YFIR MENN HÆTTUR VEGNA MISTAKA OG SPELLVIRKJA Seint á árinu 1979 rakst farþega- þota frá nýsjálenska flugfélaginu á fjall á Suöurskautslandinu. Allir innanborðs fórust meö henni, 257 manns. Nefnd, sem rannsakaði þetta slys, komst aö þeirri niðurstööu í skýrslu sinni að ein meginorsök slyssins heföi verið tölvumistök. Tölvuforrit- uö flugáætlun, sem s jálfstýribúnaöur vélarinnar var mataður á, hafði ver- iö breytt fyrir þessa ferð án þess aö flugstjórinn vissi af því. Flugmennimir reiddu sig á flug- leiösögn tölvunnar. Skyggni var slæmt en þeir töldu sig vera yfir auö- um sjó þegar þeir hins vegarstefndu beint á f jalliö. Þetta var líklega fyrsta slysiö þar sem ofurtraust manna á tölvur leiddi til dauöa. Tölvufróöir menn telja aö þaö sé þvi miöur ólíklegt til þess aö hafa veriö þaö síðasta. Um leið og tölvumar skipa æ meiri sess í æ fleiri þáttum mannlífsins, viöskiptum og samgöngum, land- vörnum og læknisþjónustu, veröur samfélaginu hættara viö slysum af völdum tölvumistaka. Þessi mistök geta verið af vangá mannsins eöa skyssumar geta oröiö fyrir tilstuölan sem af yfirveguöu ráöi tmfla tölvuna. Þessi síöasti möguleiki varö áþreifanlegur fyrir skömmu þegar uppvíst varö að nokkur ungmenni höfðu gert sér leik aö því aö þrengja sér inn i tölvubanka Sloan-Kettering krabbameinsstöðvarinnar í Manhattan og höföu fiktaö meö tölvuskýrslur sjúklinga sem vom undir geislameðferö. Tölvubankinn var tengdur telex-símkerfi og höföu ungmennin meö heimilisleiktækjum sínum einhvern veginn fundiö lykil- oröið sem þurfti til þess að opna tölvubankann. Vísindamenn og ríkisstofnanir, sér í lagi í Evrópu, hafa viö þetta vaknað til umhugsunar um áhættumar sem fylgja því að veröa háður tölvunum. Tölvufræðingar hvetja mjög til frek- ari rannsókna meö þetta í huga. — Þaö hefur ekki enn orðið hrikalegt slys af þessu tagi og þaö er auðvitaö ekki víst að til þess þurfi endilega að koma. Hættan er fyrir hendi og af- leiðingar sh'ks slyss gætu orðiö svo ógnvænlegar, aö menn veröa aö huga aö því. Sérfræöingar segja aö tölvu- notkunin leggi nýja tæknilega próf- steina á hönnuðina aö reyna aö búa til tölvur sem ekki geti bragöist. Um leið er orðið aökallandi aö lagasmiöir setjist viö að semja lög þar sem viðurlög viö tölvu„innbrotum” og tölvubankaránum veröi í hæfilegu hlutfalli viö afbrotið. Sömuleiðis þarf aö semja lög um hver axla skuli ábyrgö á afleiðingum tölvumistaka eðaskekkju. Möguleikamir á Itölvuóhöppum em margvíslegir. Rafmagnstruflan- ir geta gert strik í reikninginn og það stórt. Þaö er t.d. ekki mikill vandi aö ímynda sér hvaöa tjón hlytist af því fyrir flugfélag ef þaö missti biölista sinn eöa farþegaskrá vegna þess að tölva heföi fariö úr sambandi. Og ósjaldan er notkun tölvu meö þeim hætti aö mannslíf eru í voöa ef út af bregður. Flugumferðarstjórar í Banda- ríkjunum hafa oft heyrst kvarta undan því aö tölvumar sem þeir hafa til síns starfa séu orönar gamlar og úr sér gengnar enda hafi þær oft- sinnis brugöist. Bilanir þeirra þykja auka mjög líkurnar á flugárekstrum í lofti. Mýmörg eru dæmin um villur sem sett hafa mark sitt á tölvuútreikn- inga og vinnslu. Slik tilvik em fótur var fyrir. Herinn brá viö en tölvuvitleysan uppgötvaöist á ör- fáum mínútum en sú hrollvekja situr eftir í mönnum aö tölvuskekkja gæti leitt af sér k jamorkustríð. Auðgunarglæpir með tiistilli tölva er enn eitt vandamáliö. Þaö færist æ meira í vöxt að tölvur séu notaðar viö millifærslur á milli reikninga í bönkum og dæmi þess aö stórþjófn- aðir hafi verið framdir þegar óvand- aðir einstaklingar komust inn á kerfið. Samkeppnisaöilar í iönaöi hafa stolið tölvugeymdum upplýsingum hvorir frá öörum. Upplýsingum sem fengnar hafa verið með dýrum rann- sóknum og tilraunum. Eins er mögu- leiki fyrir þá aö lauma villandi upp- lýsingum inn í tölvubanka mótaöila. I æ meiri mæli era nú geymdar í tölvum persónulegar upplýsingar um fólk. Fyrirtæki geyma upplýs- ingar um starfsfólk. Stundum em upplýsingar lagöar fram með um- sóknum um störf og stundum viöbæti viö starfsferil. Eölilega vekur þaö ímugust aö vita upplýsingar um einkahagi þannig geymdar því að alltaf er hættan á aö einhverjir kom- ist yfir þær aörir en viðkomandi aöilar sjálfir vildu. Varnarmálaráöuneytið í Svíþjóö varö fyrst til þess aö vekja athygli á þessari síðasttöldu hættu 1977 og var sett nefnd á stofn til þess að kanna möguleikana. Hún komst aö þeirri niöurstöðu aö hættan á misnotkun væri óþolandi mikil í nútíma tölvu- væddu þjóðfélagi. Svíar settu 1981 á laggimar ráö til þess aö finna og hafa eftirlit meö leiðum til þess aö misnota tölvur. Þaö er búist viö því aö ráðið skili af sér tillögum um var- nagla á næsta ári. Efnahags- og þróunarstofnunin (OECD) hefur nú beint athygli sinni að þessu vandamáli og bæöi frjáls samtök tölvufræðinga og opinberar stofnanir í Bandaríkjunum eru tekin til viö að leita varúðarráðstafana. Tölvur eru notaöar við stjómun getmferðanna frá Canaveralhöf ða. kannski ekki örlagarík á meðan skakkar einhverjum núllum á skattaálagningarseðlum eða gíró- reikningum og kannski enginn skaöi skeöur. En frægt er dæmiö um AMATRAK-jámbrautafélagið ameriska sem visaði frá þúsundum viðskiptavina vegna þess aö tölvunni reiknaöist ranglega svo til aö öll sæti væru upptekin. Rannsóknamefiid á vegum Banda- ríkjaþings heldur því fram að tölvu- stýrð læknatæki hafi reynst óná- kvæmt forrituð með þeim afleiðing- um aö sjúkdómsgreining varð röng. Telur nefndin sig vita um að minnsta kosti eitt dauösfall af þess völdum. Kannski er hræðflegasta dæmið sem þekkist um slysahættu af vöklum tölvuskekkju þegar það bar við í nóvember 1979 og aftur í júni 1980 aö viðvörunartölvur Banda- ríkjahers gáfu til kynna aö árás heföi veriö hafin á Bandaríkin sem enginn Tölvur era notaðar við sjúkrahúsin og elns töivustýrö lsknistski og hafa þau í sumum tilvikum reynst hafa ónákvæm forrit. Tölvur era notaðar við flugumferðarstjórn og hafa flugumferðarstjórar i Bandarikjunum kvartaö undan tíöum bilunum i gömlum og úr sér gengnum tölvum þeirra. Umsjón: Guðmundur Pétursson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.