Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1983, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1983, Side 26
34 DV. FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER1983. í gærkvöldi í gærkvöldi Sýningar Afmæli Ásgrímur Gunnar Þorgrimsson bóndi, Borg Miklaholtshreppi, veröur jarösunginn frá Fáskrúöarbakka- kirkju, laugardaginn 3. september kl. 14. Ferö veröur frá Umferöarmlö- stöðinni kL 9.30. Bræðnuium Ormsson önnur tíu ár. Réðst hann þá í stofnun verksmiðj- unnar Fagplasts. Eftirlifandi eigin- kona hans er Margrét Eyþórsdóttir, eignuðust þau fjóra syni. Utför Eiríks var gerö frá Dómkirkjunni í morgun kl. 10.30. Samsýning á Stýrimannastíg 8, 3.-11. september Á morgun, laugardaginn 3. september kl. 14.00, opna Elísa Jónsdóttir og Hallgrimur Helgason samsýningu í húsinu við Stýri- mannastíg númer 8. A efri hæðinni sýnir Hallgrímur 88 ágætar teikningar unnar á A-4-blöð og í kjallara og garði sýnir Elísa keramik og postulínsmuni. Sýningin, sem verður opin frá kl. 14.00— 22.00 um helgar og kl. 16.00—22.00 alla virka daga, stendur til ellefta þessa mánaðar. Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir. Félag einstæðra foreldra — flóamarkaður Félag einstæðra foreldra heldur sinn árlega flóamarkað í Skeljanesi 6 helgina 24.-25. september. Oskum eftir öllum mögulegum munum sem fólk þarf að losa sig við. Upplýs- ingar i síma 11822 milli kl. 9 og 17 og i síma 32601 eftir kl. 19.00. Sækjum heiní ef óskað er. Flóamarkaðsnefndin. IMorræn lyfjatækna- ráðstefna í Reykjavík Dagana 3.-6. september nk. verður haldin að Hótel Holti Reykjavík norræn ráðstefna Lyfjatækna. Ráðstefna þessi, sem er liður í samvinnu lyfjatækna á Norðurlöndunum, er haldin annað hvert ár og er þetta í fyrsta sinn sem húner haldin hér á landi. Á ráðstefnunni verður rætt um brýnustu hagsmunamál lyfjatækna á Norðurlöndun- um, en þau eru meðal annars menntun lyfja- tækna, kjaramál og tölvuvæðing apóteka. Auk fundarhalda munu ráðstefnufulltrúar ferðast um landið og meðal annars fara til Vestmannaeyja og um Suðurlandsundirlend- ið. Formaður undirbúningsnefndar ráðstefn- unnar er Herdís Á. Sæmundardóttir. Lyfjatæknafélag Islands er stofnað árið 1976 og gerðist aðili að samstarfi norrænna lyfjatækna árið .979. Formaður félagsins er Arndís Jónsdóttir. Áætlun Akraborgar Frá Akranesi kl. 8.30 kl. 11.30 kl. 14.30 kl. 17.30 Frá Reykjavík kl. 10.00 kl. 13.00 kl. 16.00 kl. 19.00 Kvöldferðir 20.30 22.00 Október, sunnudagar. Nóvember — april, engar kvöldferðir. Blómamerkjasöludagar Hjálpræðishersins „Má bjóða yður blómamerki?” Það eru ekki fáir Islendingar sem hafa heyrt þessa setn- ingu framborna af konu eða karli í einkennis- fötum Hjálpræðishersins. Það eru líka margir sem hafa svarað spurningunni játandi, greitt fyrir blómið og fest þetta litla gerviblóm með íslenska fánaborðanum í barm sér. Það er orðin hefð að Hjálpræðisherinn selji þessi blómamerki í byrjun septembermánað- ar, þaö hefur verið gert síðastliðna áratugi. Hvers vegna erum við að þessu? Þetta er fjáröflunarherferð til styrktar vetrarstarf- semi Hjálpræðishersins, einkum starfs meðal barna og unglinga. Hjálpræðisherinn fær enga opinbera styrki frá riki eða bæ. Því get- ur oft verið erfitt að reka starfið f járhagslega. En Islendingar hafa alltaf sýnt starfi Hjálp- ræðishersins mikinn skilning og hafa verið fúsir að láta fé af hendi rakna þegar leitað hefur verið til þeirra. Eg treysti því að salan muni einnig ganga vel í ár. Söludagar eru frá og með miðviku- deginum 31. ágúst fram að helgi. Jón Þ. Hlnrtksson lést 26. ágúst sl. Hann fæddist á Fáskrúösfiröi 17. mars 1918, sonur hjónanna Snjófríðar Guönadóttur og Hinriks B. Jónssonar. Jón fór ungur á vertíðir til Vestmanna- eyja þar sem hann síðan bjó í meira en 35 ár. Eftirlifandi eiginkona hans er Sigurlína Olafsdóttir. Eignuöust þau þrjú börn og ólu einnig upp dóttur Sigurlínu. Við Vestmannaeyjagosiö fluttist Jón upp á land og settist aö í Hafnarfirði þar sem hann bjó til dauðadags, starfaöi hann þar hjá Bæjarútgerö Hafnarfjarðar. Utför Jóns veröur gerö frá Fossvogskapellu í dag kl. 15. Kristín Káradóttir, Bergstaöastræti 30, er látin. Jaröarförin hefur fariö fram. Gunnar E. Guömundsson málari lést á heimili sínu Bræðraborgarstíg 53 aöfaranótt 1. september. Ari Guðmundsson deildarstjóri, Gilja- landi 35, lést 31. ágúst. Sverrir Georgsson frá Akureyri varö bráðkvaddur aö heimili sínu, Hátúni 12, Reykjavík, 31. ágúst. Hjördís Þorbjörg Sigurðardóttir andaöist31. ágúst. Jónas Sólmundsson húsagagnasmiöa- meistari lést 23. ágúst sl. Hann fæddist 20. ágúst 1905 í Reykjavík, sonur hjón- anna Sólmundar Kristjánssonar og Guörúnar Teitsdóttur. Jónas nam hús- gagnasmíði hjá Jóni Halldórssyni og co. og lauk prófi frá Iðnskólanum árið 1925 og sveinsprófi ári síöar. Hann stundaði framhaldsnám í Þýskalandi í húsgagnasmíði og innanhússarkitekt- úr og stofnsetti áriö 1930 smíöastofuna Reyni ásamt fleirum. Áriö 1937 setti harn á stofn eigin smíöastofu. Eftirlif- andi kona Jónasar er Elín Guömunds- dóttir. Þau eignuöust fjögur börn. Utför Jónasar veröur gerö frá Dóm- kirkjunni í dag kl. 13.30. Þuríður Gísladóttir frá Bjarmalandi í Sandgeröi veröur jarðsungin frá Hvalsneskirkju laugardaginn 3. septemberkl. 14. Guðrún Ándrésdóttir, Beigalda, sem lést 29. ágúst, veröur jarösungin laug- ardaginn 3. september kl. 13.30 frá Borgarneskirkju. Jarösett verður aö Borg. Halldóra Guðbjörg Pálsdóttir, Grænu- mörk 1 Selfossi, veröur jarösungin frá Selfosskirkju laugardaginn 3. sept. kl. 15. Sjötug er í dag, 2. september, frú Nanna Guðmundsdóttir frá Patreks- firði, Álfaskeiði 102 í Hafnarfirði. Hún ætlar aö taka á móti gestum sínum á heimili dóttur sinnar og tengdasonar í Noröurtúni 6 í Bessastaðahreppi í dag millikl. 17 og 19. Áttræður er í dag, 2. september, Þor- geir Guðmundsson, húsasmíðameist- ari, Háaleitisbraut 43, Reykjavík. Af- mælisbamiö ætlar aö taka á móti gest- um sínum í veitingastaðnum Gafl-Inn viö Reykjanesbraut í Hafnarfiröi eftir kl.20íkvöld. Árinbjörn Guðmundur Guðnason vél- stjóri lést 28. ágúst sl. Hann fæddist að Seljalandi i Álftafirði 25. desember árið 1906. Hann gerðist snemma vél- gæslumaöur í hraðfrystihúsinu Norðurtanga hf. á Isafirði þar sem hann stundaði vinnu allt til ársins 1974. Arinbjörn lætur eftir sig eiginkonu og fjögur uppkomin börn. Utför hans verður gerö frá Hafnarf jaröarkirkju í dagkl. 13.30. Þorkell Steinsson fv. lögregluvarð- stjóri lést 21. ágúst sl. Hann fæddist 27. nóvember 1897 í Miklaholti í Biskups- tungum, sonur hjónanna Steins Jóns- sonar og Ingunnar Þorkelsdóttur. Þor- kell hóf störf í lögregluliði borgarinnar áriö 1932 og gegndi því starfi til ársins 1964. Eftir þaö réö hann sig til danska sendiráðsins hér í borg og starfaði þar sem húsvöröur og viö ýmis þjónustustörf. Þorkell var kvæntur Margaret Jane Duthie Ritchie en hún lést áriö 1976. Þau eignuðust þrjá syni. Utför Þorkels verður gerö frá Dómkirkjunni í dag kl. 15. Eiríkur Garðar Gíslason lést 28. ágúst’ sl. Hann fæddist í Reykjavík 10. apríl 1932, sonur hjónanna Guöríðar Guðmundsdóttur og Gísla Eiríkssonar. Ungur lauk Eiríkur námi í rafvirkjun og starfaöi lengi viö þá iön, fyrst í Vél- Húshjálp — aur pair USA Stúlka óskast til fjölskyldu í Georgíu í Bandaríkj- unum. Fjölskyldustærð 4. Lágmarkstími eitt ár. Lágmarksaldur 18 ár og þarf að hafa bílpróf. Upplýsingar í síma 44033 í dag, föstudag, kl. 16— 18 og á morgun, laugardag, í síma 73392 kl. 11—13. HH AUGLÝSING Með tilvísun til 17. og 18. gr. laga nr. 19/1964 auglýsist hér með breyting á staðfestu Aöalskipulagi Reykjavíkur að því er varðar staðgreinireit 1.133.1, sem afmarkast af Seljavegi, Holtsgötu, Ánanaustum og Vesturgötu. Um er að ræða breytingu á landnotkun og nýtingarhlutfalli aðalskipulags á þann veg, að í stað svæðis fyrir iðnað og vöru- geymslur, komi svæði fyrir íbúöarbyggð, opinberar stofnanir og útivist. Jafnframt auglýsist, skv. sömu grein laga, deiliskipulag reits- ins á staðfestu aðalskipulagi. Auglýsingin tekur til marka einstakra lóða á reitnum, nýt- ingarhlutfalls einstakra lóða og húsahæðar. Breyting þessi var samþykkt af skipulagsnefnd Reykjavíkur þ. 18. júlí sl. og í borgarráði 2. ágúst sl. Tillagan ásamt greinargerð liggur frammi almenningi til sýnis hjá Borgarskipulagi Reykjavíkur, Þverholti 15, næstu 6 vikur frá birtingu þessarar auglýsingar. Athugasemdir, ef einhverjar eru, skulu hafa borist Borgarskipulagi innan 8 vikna frá birtingu auglýsingarinnar, eða fyrir kl. 16.15 þann 31. október 1983. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan til- skilins frests, teljast samþykkir breytingunni. Reykjavík, 2. september 1983. BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR Þverholti 15, 105 Reykjavík. Mjúkar öldur Ijósvakans Eftir aö hafa hlustaö á uggvænleg- ar kvöldfréttir útvarps læddist ég inn í barnahópinn sem Vilborg Dag- bjartsdóttir var að segja sögur fyrir svefninn í þættinum Við stokkinn. Frásögn hennar var ákaflega góð. Smásaga í háum gæðaflokki. Þá tók viö Bé einn Auðar Haralds og Valdísar Oskarsdóttur. Þátturinn fjallaði aö þessu sinni um skóla- göngu. I honum var meöal annars gert grín aö foreldrum sem kaupa nýja rándýra skólatösku handa kiðinu sínu til þess aö því veröi ekki strítt, bami í sex ára bekk, sem er allan veturinn aö læra bókstafinn A og nýbökuöum félagsfræöinema viö Hl sem leitar eins og grenjandi ljón aö gömlum fötum til þess að koma nú ekki klæddur eins og asni í skólann. Eg kannaðist viö þetta allt. Sumt aö vísu í aðeins mildari útgáfu. Þessi þáttur var góöur. Eini gall- inn sem ég sá var aö stundum veröa hlutverkin sem þær stöllur skrifa fyrir sig of erfið. Best væri ef þær gætu fengiö atvinnuleikara í aðalhlutverkin og komiö sjálfar fram í aukahlutverkum. En þaö er líklega of dýrt. Heldur fannst mér endurflutt leikrit Jökuls Jakobs- sonar: Því miöur frú, slappt. Þaö virkaöi fremur á mig sem þokkalega heppnuð samtalsæfing höfundar en heilt leikrit. Ljós punktur var þó leikur Þorsteins Ö. Stephensens. Eftir þessa útvarpshlustun var ég oröinn nokkuð mettur. Eg tók því kápu mína, kastaði henni á heröamar og gekk út í haustnóttina. Þaö er ekkert leyndarmál aö ég er Hafnfiröingur og þetta kvöld var fjöröurinn spegilsléttur og hnígandi sólin roöaöi himin og haf. Ef ég heföi komiö upp oröi í allri þessari fegurö heföi ég talað í sonnettum. Siguröur G. Valgeirsson. NÝKOMIÐ, SKÓLASKÓR Í ÚRVALI Skóverslun Þórðar Péturssonar Laugavegi 95, simi 13570. Tilkynningar Andlát

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.