Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1983, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1983, Síða 32
&<þ. ÁRMÚLA 36 REYKJAVÍK. SÍMI82166 OG 83830. Fjárlagafrumvarpið 1984: Allt er komið á ákvörð- unarstig Ríkisstjórnarfundur var boöaður í morgun klukkan 9 til umræðna um fjárlagafrumvarpið fyrir næsta ár og þjóðhagsáætlun. Að sögn ráðherra er undirbúningur nú kominn það vel á veg að allt er komið á ákvörðunarstig og er búist við að hægt verði að ganga frá útgjaldalið frumvarpsins'í megindráttum i dag. Fjármálaráðherra hefur að undan- Fórnu átt viðræöur við einstaka ráðherra um spamað í útgjöldum ráðuneytanna og þær tillögur hafa siðan verið ræddar i ráðherranefnd- inni, en í henni sitja auk Alberts Guömundssonar þeir Matthías Bjamason, Halldór Ásgrímsson og Alexander Stefánsson. Albert var ekki viöstaddur ríkisstjórnarfundinn í morgun en Magnús Pétursson, fjár- laga- og hagsýsiustjóri, og Láras Jónsson alþingismaöur voru viðstaddir til að veita upplýsingar en þeir hafa unnið að fjárlagagerðinni með ráðherranefndinni og embættis- mönnum. Tillögur ráðherranefndarinnar hafa enn ekki veriö kynntar þing- flokkum stjómarflokkanna en búist er við að svo verði í næstu viku. Fjár- lagafrumvarpið verður lagt fram i byrjun þings en samkomudagur þess hefur verið boöaður 10. október. ________________________ÚEF Hægviðri á morgun Svalt er í veðri um land allt í dag. Næstu nótt er víða spáö næturfrosti. Hægviðri er spáð í dag og á morgun, björtu veðri suövestanlands í dag en meira skýjuðu á morgun. Norðanlands var kalt í morgun, víða, ekki nema 1 stig. Á morgun ætti þar aö hlýna og létta til. A sunnudag gerir Veðurstofan ráð fyrir stífri austanátt á landinu öllu meö rigningu víðast hvar. Aftur ætti svo að stytta upp á mánudag með norðaustanátt. -KMU. Gullskipið i IJós umhelgina? Á Skeiðarársandi er nú unnið að þvi að styrkja stálþilið sem reist hefur verið umhverfis flakið sem talið er að sé gullskipið. Búist er við að verkinu ljúki um hlegina. Því næst verður tekið til við dæl- ingu á ný. Vonast er til að skips- skrokkurinn komi í ljós um eða upp úr helginni. -KMU. LOKI Loks fannst rótt hilla fyrir FH-inginn i ríkisstjórn- inni. 27022 AUGLÝSINGAR SÍÐUMÚLA33 SMÁAUGLÝSINGAR—AFGREIÐSLA SKRIFSTOFUR ÞVERHOLTI 11 86611 RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12—14 Frjálst, óháð dagbiað FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1983 „Sjórínn var alveg hrikalega kaldur” — giftusamleg björgun þriggja manna á skútu sem hvofldi út af Straumsvík í gærkvöldi ..Sjórinn var alveg hrikalega kaldur og við voram búnir aö vera að velkjast á skútunni í næstum tvo tíma áður en okkur var bjargað,” sagði Erling Olafsson, bakaranemi í Álfheimabakaríi, í morgun. Honum var bjargað ásamt vinum sínum tveim, þeim Davíð Sverrissyni og Olafi Jónssyni, við höfnina í Straumsvík um áttaleytið í gær- kvöldi eftir að skútu þeirra hvolfdi. „Viö förum oft þrír saman út. Við ákváðum um klukkan hálffimm, þegar við vorum út af Straumsvík, að kík ja inn í höfnina þar og snúa við. En það var mikill straumur í inn- siglingunni og þegar við ætluðum að venda hvolfdi skútunni. Þetta gerðist rosalega snöggt og fyrr en varði vorum við allir í sjónum. Við gátum þó haldiö okkur í bátinn. Síðan gerðum við tilraun til að snúa honum á réttan kjöl og tókst það en vindur- inn stóð þannig aö seglið datt niður og skútunni hvolfdi aftur. Við vorum árekiíumtvotíma,” sagöiErling. Þaö var vaktmaður i Straumsvík sem kom auga á þá félaga og kom á báti til þeirra og bjargaði þeim. I morgun sögðu þeir að þeim hefði ekki oröið meint af volkinu en hálfgerður hrollur væri í þeim. Erling var tl dæmis kominn til vinnu klukkan f jögur í nótt í Álfheimabaka- ríið en hann kom ekki heim til sín fyrr en um hálfellefuleytið í gær- kvöldi. -JGH Sfðustu feifarnar af flugftota Air Vikings, sem átti blómaskeið sitt i sólarlandafluglnu i árunum 1973 t>1 75, var ekið i bræðsluofna i nótt sem . leið. Var þama um að rmða Boeing 720 vil sem á sínum tíma flutti þúsundir íslendinga i sólina i Spini og víðar. Vólinni var lagt utan brautar á Kefla- víkurflugvelli fyrir nokkrum árum vegna tæringar sem fram kom í henni. bar hefur hún siðan verið sem einskonar minnisvarði um Air Viking fíug flotann fræga er síðan fæddi af sir Amarfíug. En nú er þessi mlnnisvarði kominn inn i Sindraport þar sem bræðsluofnamir munu endanlega sjá um hann. -klp/DV-mynd S. Chicago: íslendingar í öðru sæti — unnu Svisslendinga í gær á heimsmeistaramótinu í skák fyrir 26 ára og yngri Viðureign Islendinga og Svisslend- inga á heimsmeistaramótinu í skák i Chicago í gær endaði með því að Jón L. Ámason vann Trepp, Elvar sigraði Krahenbuhl, Jóhann og Zuger gerðu jafntefli og skák Mar- „ geirs Péturssonar og Gobet fór í bið en Margeir er liklegur til sigurs. Islendingarnir eru því með 2 1/2 vinning á móti 1/2 vinningi Sviss- lendinga. Af öðrum úrslitum í gær má nefna að Þjóðverjar sigruðu Kínverja, Rússar unnu Austurríkismenn og Bandaríkjamenn og Englendingar geröu jafntefli og ein skák fór í biö. Staðan á heimsmeistaramótinu er því þannig: Rússar era með 30 vinn- inga og eina biðskák, Islendíngar 24 1/2 vinning og biðskák, Þjóðverjar 24 1/2 vinning, Kína, Finnland og Skotland hafa hlotið 23 vinninga og þá Bandaríkin og England með 221/2 vinning og eina biðskák. • Siöasta umferö verður tefld á morgun, laugardag. -eir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.