Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1983, Qupperneq 3
DV. FOSTUDAGUR 21. OKTÚBER 1983.
3
_ Ölfusborgir:
BAÐHUS FYRIR TVÆR
OG HÁLFA MILLIÓN
— Aðalf undir ekki haldnir — Maðkur í mysunni, segir formaður Sóknar
„Þaö er rétt, viö höfum lokið viö
að reisa baöhús í Olfusborgum. Eg
geri ráö fyrir aö kostnaöur við þaö
nemi um tveimur og hálfri milljón,”
sagði Halldór Bjömsson, formaður
stjómar rekstrarfélags Ölfusborga, i
samtaliviðDV.
Tilefni spumingarinnar var mikil
óánægja í ýmsum félögum sem hlut-
deild eiga í ölfusborgum, meö háar
greiðslur til sumarhúsa-
byggðarinnar. Einnig hefur komið
fram óánægja með að aðalfundur
skuii ekki hafa verið haldinn fyrir
árin 1981 og 1982. Aðalfundur ársins
1980 var haldinn i fyrra, 1982.
Halldór Björnsson sagði að
upphaflega hefði kostnaöur við
baðhúsið verið áætlaður um 700
þúsund. Hækkanir stöfuðu af
verðbólgu. Halldór kvað „ýmsar á-
stæður” liggja til þess að ekki hefði
verið haldinn aðalfundur á tilsettum
tíma en aðalfundur fyrir tvö síðustu
ár yrði væntanlega haldinn í
nóvember.
Starfsmannafélagið Sókn á þrjú
hús í ölfusborgum, en samtals em 37
hús á svæðinu. Aðalheiður
Bjamfreðsdóttir, formaður Sóknar,
sagöi að ölfusborgir hefðu alltaf
verið þeirra vandræðabarn. „Þar
sér aldrei fyrir endann á einhvers
konar vanda,” sagði Aðaiheiður.
Hún sagðist ekki vita í hvað þaö fé
færi sem félögin inntu af hendi. „Mér
finnst mikið fé fara í þetta miðaö við
litlar framkvæmdir. Eg hef spurt að
ýmsu en f engið lítil svör.’ ’
Samkvæmt upplýsingum Halldórs
Bjömssonar er félögunum gert aö
greiða 70 þúsund krónur fyrir hvert
hús á þessu ári. „Eg get ekki fullyrt
að sú tala sé endanleg. Það verður
aöalfundur að ákveða,” sagði
Halldór. Að minnsta kosti eitt aðild-
arfélag telur sig hafa greitt 115
þúsund kónur til ölfusborga vegna
hvers húss á þessu ári. Sú tala gerir
rúmar fjórar milljónir í heild miðaö
við 37 hús. Halldór Bjömsson segir
hins vegar að sú tala sé ekki nema
rúmlega tvær og hálf milljón. „Það
er eðlilegt að menn rugli saman
Sumarhusin Ö/fusborgir.
greiðslum þessa árs og siðasta árs
þar sem aðalfundur hefur ekki verið
haldinn,” sagði Halldór.
„Það er einhver maökur í
mysunni þarna. Þetta er ekki vel
rekið og ekki ailt á hreinu,” sagði
Aöalheiður Bjarnfreðsdóttir.
Annar verkalýðsleiðtogi sagðist
undrast þessar dýru framkvæmdir á
þeim tíma þegar að verkafólki væri
þrengt. „Eg er ekki aö mæla
bílakaupum Steingríms bót, en
verkalýðshreyfingin verður að fara
vel með það fé sem henni er trúað
fýrir. Það er lágmark að félögunum
sé gerð grein fyrir í hvað þaö fer. Svo
hef ur ekki verið i þessu tilviki. ”
-óm.
Hvað gera stjórarnir hjá
Pósti og síma í útlöndum?
Uanlandsferðir yfirmanna Pósts og
síma em komnar í fréttirnar. Eftir að
DV skýrði frá því í gær að niu „stjór-
ar” væm erlendis um þessar mundir
hefur sú spurning vaknaö: Hvað eru
þeir að gera í þágu stofnunarinnar ?
Svarið fékkst frá
samgönguráðuneytinu. Póstur og sími
þarf nefnilega að gera ráðuneyti sínu
grein fyrir tilgangi ferðar áður en
heimild er veitt.
Jón Skúlason situr árlegan fund
norrænna póst- og símamálastjóra í
Stokkhólmi. Hann heldur síðan til
Genf ar i Sviss á alþjóðasýningu.
Gústav Arnar er í Brasiliu á al-
þjóölegum fundi jarðstöðvaeigenda
beggja vegna Atlantshafs. Þar er rætt
um rekstur gervitungla og jarðstöðva
næsta ár.
I London eru fjórir menn á árlegum
fundi hjá bandarísku strandgæslunni
vegna Loran C-staðsetningarkerfisins.
Þeir em Haraldur Sigurðsson yfir-
verkfræðingur, Kristján Helgason um-
dæmisstjóri, Bjami Magnússon
stöðvarstjóri og Bjargmundur Ingólfs-
son, stöðvarstjóri á Gufuskálum.
Bók um hann
„Ella minn”
á leiðinni
Bókaútgáfan Vaka mun gefa út
fyrir jólin bók sem eflaust á eftir að
vekja mikla athygli. Heiti bókarinnar
er Elli og er hún byggð á samtölum
þeirra Eddu Björgvinsdóttur og Helgu
Thorberg úr útvarpsþættinum „Atali”
sem notiö hefur mikilla vinsælda. -klp-
Gengisfelling er
gamalt, ónýtt ráð
— segir Sverrir Hermannsson
„Það verður ekki brugöið á það
gamal ónýta ráð að leysa vanda
sjávarútvegsins með gengisfellingu,”
sagði Sverrir Hermannsson iðnaðar-
ráðherra á fundi í Þorlákshöfn á
miövikudagskvöld.
Sverrir sagði að til annarra ráða
yrði að grípa til að leysa þann vanda
sem skuldasöfnun útgerðarinnar væri.
Hann sagðist ekki vilja taka fyrir það
að óaröbær útgerð yrði látin hætta.
„Það er okkar skoðun að ekki sé hægt
að láta alla skrölta í þessum at-
vinnuvegi. Það eru margir sem
ekkert hafa þangaö að gera og eiga að
Kostnaöur vegna þessarar ferðar fæst
endurgreiddur hjá bandarísku strand-
gæslunni.
Haraldur Sigurðsson heldur siðan til
Genfar á alþjóðasýninguna sem Jón
Skúlason fer einnig á. A sömu sýningu
fer Olafur Tómasson yfirverk-
fræðingur.
Þess má geta að forseti Islands
hefur samþykkt að taka sæti í heiðurs-
nefnd sýningarinnar.
I Stokkhólmi er Jón Kr. Valdimars-
son að ræða við fulltrúa fyrirtækisins,
L.M. Ericson um digital-simakerfi.
I Árósum er Hilmar Ragnarsson
verkfræðingur á fundi í norrænni
vinnunefnd um símamál. Hann fer
síðan til Stokkhólms til að ræöa við
L.M. Ericson um digital-kerfið eins og
Jón Kr.
I Kaupmannahöfn er Gunnar Valdi-
marsson á árlegum fundi yfirmanna
póstgíróstöðva á Norðurlöndum.
-KMU.
Sá þjófinn
komaút
aftur
Innbrot var framið á gullsmíða-
verkstæði við Laugaveg í Reykja-
vík í fyrrinótt. Var brotin rúða á
verkstæðinu og farið þar inn og
ruplaöogrótað.
Sjónarvottur var aö því þegar
þjófurinn kom út af verkstæðinu
aftur. Gat hann gefiö góða lýsingu
af honum og er hans nú leitað um
allt.
-klp-
fá að fara á hausinn,” sagði iðnaðar-
ráðherra. -ÓEF.
Var með ólöglega
klæuningu
Varðskipsmenn fóru um borð í tog-
bátinn Sóley SH 150 þar sem báturinn
var á veiðum á Breiðafirði í fyrradag.
Voru veiðarfæri bátsins skoðuð og kom
þá í ljós að þau voru með ólöglega
klæðningu. Var báturinn sendur til
hafnar og er nú verið að rannsaka
málið nánar á Grundarfirði. -klp-
NOTAÐI
■BÍLAR
VOLVO 245 GL '82,
ekinn 26.000, sjálfsk. Verð
460.000.
VOLVO 244 TURBO '82,
ekinn 28.000, beinsk. Verð
520.000.
VOLVO 244 DL '82,
ekinn 14.000, beinsk. Verð
385.000.
VOLVO 244 GL '82,
ekinn 31.000, sjálfsk. Verð
410.000.
VOLVO 244 GL '82,
ekinn 25.000, beinsk. Verð
400.000.
VOLVO 244 DL '81,
ekinn 32.000, beinsk. Verð
340.000.
VOLVO 245 GL '80,
ekinn 72.000, sjálfsk. Verð
340.000.
VOLVO 244 GL '79,
ekinn 100.000, sjálfsk. Verð
250.000.
OPIÐ Á LAUGARDÖGUM
FRÁ KL. 13-17.
VOtyOSAUJRINN
Suðurlandsbraut 16 • Simi 35200