Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1983, Blaðsíða 28
DV. FÖSTUDAGUR 21. OKTOBER 1983.
36
SKÍÐAFERÐIR
TIL AUSTURRÍKIS
Víkingaferðir skipuleggja 14 daga skíðaferðir á
glæsileg skíðasvæði í Zell am See og á hinn heims-
þekkta og tignarlega Kaprun-jökul. Ennfremur
verða farnar skíðaferðir frá Zell til Saalback og
Hinterglen, sem er aðeins í 12 km fjarlægð, en þar
eru um 70 skíðalyftur, enda eitt stærsta samfellda
skíðasvæði landsins. Á öllum þessum skíða-
svæðum eru frábærir skíðaskólar og brekkurnar
henta ekki síður byrjendum en keppnismönnum.
Þessir staðir bjóða upp á f jölbreytilegt skemmtana-
líf við allra hæfi, m.a. diskótek, næturklúbba og
„after skiing".
Hamingjusamir farþegar í fögru og heilnæmu um-
hverfi er takmark Víkingaferða. Verið ávallt vel-
komin með Víkingaferðum í skíðaparadísina í
austurrísku ölpunum.
Brottför frá íslandi 20. desem-
ber, 28. janúar og 11. febrúar.
Verð kr. 23.950,- miðað við gist-
ingu pr/mann í 2 manna her- \
bergi á hótelum, hálft fæði inni- r
falið.
Verð kr. 21.450,- miðað við gist-
ingu pr/mann í 2 manna her-
bergi á hóteli, morgunverður
innifalinn.
Frekari upplýsingar eru gefnar á
skrifstofu Víkingaferða í Kefla-
vík, sími 92-2900 og 42892, eftir
kl. 19.00 virka daga. Geymið
auglýsinguna.
Urval
Menning Menning Menning
Ekki er hvarvetna
svona Ijúft
„brahmsað" sem í
Breiðholtinu
Til aö minnast eitt hundrað og
fimmtugasta fæöingardags
Johannesar Brahms hélt Sigríður
Ella Magnúsdóttir Ijóöatónleika
ásamt Jónasi Ingimundarsyni í
Menningarmiðstööinni Gerðubergi.
Ekki hefur farið tiltakanlega mikið
fyrir Brahmsdýrkun á þessu ári í
músíkh'fi okkar, en nú er von til að
liðið ranki við sér og taki rösklega til
hendi þennan tæpa fjórðung, sem eft-
ir lifir ársins. Enginn íslenskur
tónlistarmaöur hefur að minnsta
kosti lagt i jafnviðamikla Brahms-
dagskrá í minningu meistarans og
Sigríður Ella, enda satt best að segja
ekki á hvers manns færi.
Að góðum og gömlum sið rakti Sig-
ríður Ella ljóðsöngvana eftir aldurs-
röð. Raunar er sama hvar er gripið
niður í Brahms. Handbragðið er
jafnan auðþekkt hvort sem það er
unghngurinn eða meistarinn á
sjötugsaldri sem tónsetur. Um flutn-
inginn þarf ekki að hafa mörg orð. —
Hann var frábær. Að vísu átti Jónas
það til á örfáum stööum í byrjun að
gæta ekki alveg nógu vel jafnvægis-
ins, en gegnumgangandi sungu þau í
fullkomnu samræmi. Samvinna
flytjenda, túlkun og síðast en ekki
síst hin stórkostlega meðferð text-
ans, gerði þessa tónleika ógleyman-
lega. Eg þekki forfalhnn Brahms-
dýrkanda sem notar það óþýðanlega
orðfæri „gebrahmst”, fafii honum
meðferð músíkanta á átrúnaðargoði
sínu vel. Eg leyfi mér að sletta þessu
ginnheilaga sérþýska sagnorði upp á
islensku og segi: Ekki er hvarvetna
svo ljúft „brahmsað” sem í Breið-
holtinu.
EM
Tónleikar f Monningarmiðstöðinni Gerðubergi Jónas Ingimundarson.
18. okt. Efnisskrá: Ljóðsöngvar eftir Johannes
Rytjendun Sigrfður Elia Magnúsdóttir og Brahms.
Sigríður EUa Magnúsdóttlr.
||HI||
GRENSÁSVIDEO
Grensásvegi 24, v/hliðina á Landsbankanum,
simi 86635 - 86635
Athugið
Við leigjum út VHS videotæki og VHS videospólur í miklu úrvali
Mjög gott úrval af barnaefni (nýtt efni vikulega)
Einnig V-2000 videospólur.
íslenskur texti.
Opið daglega kl. 12.00-23.30.
VERIÐ VELKOMIN
lllllll