Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1983, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1983, Síða 26
34 DV. FÖSTUDAGUR21.0KT0BER.1983. Andlát 1 Afmæli Ólafur Friðriksson, fyrrverandi skrif- stofustjóri, Ljósheimum 20, lést í gær- morgun, 20. október, 78 ára að aldri, eftir skamma legu. Banamein hans var heilablóöfall. Olafur var kunnur Reykvíkingur, fæddur 14. febrúar 1905. Á löngum starfsferli vann hann hjá Otvegsbankanum, Agli Vilhjálmssyni og hjá Rúgbrauðsgerðinni sem skrif- stofustjóri. Um tíma var hann forseti Skáksambands Islands og á yngri árum þekktur söngvari. Hafði hann fagra baritónrödd og var einsöngvari með Karlakórnum Fóstbræðrum, kom oft fram sem einsöngvari í útvarpi og á skemmtunum. Olafur var kvæntur Sigríði Símonardóttur og áttu þau þrjú böm, Margréti, Astu og Friðrik, stór- meistara. Eirikur Ásgeirsson lést 13. október sl. Hann var fæddur 1. júlí 1921 á Flateyri við önundarfjörð, sonur Asgeirs Guðnasonar og konu hans Jensínu . Hildar Eiríksdóttur. Eiríkur lauk prófi frá Verslunarskóla Islands 1942. Hann réðst i þjónustu Reykjavíkurborgar árið 1948 er hann gerðist skrifstofu- stjóri við embætti borgarlæknis en for- stjóri strætisvagna Reykjavíkur varð hann 1951 og hélt því starfi til dauða- dags. Hann kvæntist Katrínu Odds- dóttur en hún lést árið 1982. Þeim hjón- um varð fjögurra barna auðið. Utför Eiríks verður gerð frá Dómkirkjunni í dagkl. 13.30. Guðmundur Árnason læknir andaðist í Borgarspítalanum að kvöldi 19. októ- ber. Jón Ingibergsson, Brekkustíg 2 Njarðvík, lést þann 19. október. Jón örn Jónasson skipasmíðameistari, Sólheimum 10, andaðist 19. október. Gísli Ólafsson fv. aðalgjaldkeri, Miklu- braut 54, andaðist í Landakotsspítala að kvöldi 19. október. Araþór Árnason, Garði Mývatnssveit, til heimilis að Sogavegi 28, lést í St. Jósepsspítala, Hafnarfirði, miðviku- daginn 19. október. Þórlaug Bjaraadóttir verður jarðsung- in frá Eyrarbakkakirkju laugardag- inn 22. október kl. 14. Ferð verður frá Hlemmi kl. 12.30. Kristjana Sigþórsdóttir, Ennisbraut 33 Olafsvík, verður jarðsungin frá ölafsvíkurkirkju, laugardaginn 22. október, og hefst athöfnin kl. 14. Ferð verður frá Umferðarmiðstöðinni kl. 9 sama dag og til baka um kvöldið. Utför Valdimars Pálssonar hefur farið fram í kyrrþey að ósk hans. Árni Vilmundarson húsvörður verður jarösunginn frá Keflavíkurkirkju,. laugardaginn 22. október kl. 14. Garðar Ólafsson frá Stykkishólmi, til heimilis að Yrsufelli 7 Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju föstudaginn 21. október kl. 15. 70 ára afmæli á i dag, föstudaginn 21. október, Guðmundur Guðmundsson póstafgreiðslumaður, Tangagötu 8 Isa- firði. 80 ára veröur á morgun, laugaraag, Jóna Slgriður Pálsdóttir, fyrrum hús- freyja á Ibishóli í Skagafirði, Skóla- geröi 55 í Kópavogi. Hún ætlar aö taka' á móti gestum á heimili sínu á morgun, laugardag, eftir kl. 18. 90 ára verðurá sunnudaginn kemur, 23. október, Guðmundina Sigurrós Sigurgeirsdóttir frá Hellissandi, nú vistmaður á Hrafnistu hér í Reykjavík. Á morgun, laugardag, ætlar hún aö taka á móti gestum í félagsheimilinu Drangey, Síðumúla 35, milli kl. 14—18. Nýlega voru gefin saman í hjónaband af sr. Olafi Skúlasyni í Bústaðakirkju Heiða KÞ. Bjarnadóttir og Helgi Magnússon. Heimili ungu hjónanna er að Austurbergi 8. (Ljósmyndastofa Kópavogs) í gærkvöldi í gærkvöldi HUÓÐ OG ÞAGNIR „Beint samband” þeirra Helga og Kóra við hlustendur heppnaðist bara vel og vonandi verður þar framhald á. Það var fullmikið stuð hinsvegar á Valgeiri Stuömanni i þætti hans um hljóð og þagnir. Það var ekki mikið stuö á dagskrá útvarps í gærkvöldi en stuðmaður- inn Valgeir Guðjónsson reyndi sitt til að hrista upp í fólki með nýstárlegri efnismeðhöndlun í þættinum Varadagskrárstjóri í eina klukku- stund. Ymis hljóð sem viö gjarnan leiöum hjá okkur í erli dagsins voru aöaluppistaöan í þætti Valgeirs. Vakti Valgeir athygli á þeirri stað- reynd að þagnir og tímamerki heföu alls náö ellefu klukkustundum af dagskrá útvarpsins á einu ári. Þaö er heill kapítuli útaf fyrir sig hvemig til tekst að láta dagskrá út- varps og sjónvarps passa í þau tíma- mörk sem henni eru skömmtuð og birtast okkur hlustendum í prentaðri dagskrá í fjölmiölum. Ekki tókst frekar en venjulega að láta þessa dagskrá ganga upp í gær- kvöldi. Það er kannski eng- inn skaði þótt tímalengd dag- skrárliða standist ekki alveg og spila þurfi svo sem eitt lag á milli liða, en er þó hvimleitt. Það gæti kannski orðið til þess aö bæta afleita stund- vísi Islendinga ef útvarpið gengi á undan með góðu fordæmi og héldi sig við áætlaöa tímalengd dagskrárliöa. Erlendar útvarpsstöðvar leggja mik- ið upp úr því að standast auglýsta dagskrártíma. Sé aftur vikið að þætti Valgeirs þá var hugmyndin sniðug en heldur gekk varadagskrárstjórinn langt þegar hann fór að lýsa hljóöum af- höggvinna líkamsparta. Beint samband við hlustendur er þorf starfsemi hjá stofnun eins og út- varpinu og í gærkvöld brydduöu þeir félagar Kári Jónasson og Helgi Pétursson upp á nýjung sem var samtvinnaður viðræðuþáttur með beinni útsendingu frá tveimur stöð- um á landinu. Fór þáttur þessi vel af stað og ef áframhald verður á þá á þetta þáttaform rétt á sér og hlust- endur taka meiri þátt í slíkri umræðu þegar þáttaformið slípast. Jóhannes Reykdal Siglingar Akraborgin siglir nú fjórar ferðir daglega á milli Akra- ness og Reykjavíkur en að auki er farin kvöldferð á sunnudögum. Skipið siglir: FráAk. FráRvik: KI. 08.30 Kl. 10.00 Kl. 1130 Kl. 13.00 Kl. 14.30 Kl. 16.00 Kl. 17.30 Kl. 19.00 Kvöldferðir á sunnudögum frá Ak. kl. 20.30 ogfráRvik kl. 22. Happdrætti Dregið hefur verið í happ- drætti ferðasjóðs Myndlista- og handíðaskóla íslands EftirtaUn númer hafa verið dregin: 2, 150, 175, 196 , 318, 334 , 572, 698 , 903, 926, 929, 930, 1057, 1213, 1266, 1276, 1456, 1457, 1564, 1604, 1612, 1649, 1814, 1822, 2179, 2206, 2538, 2782, 2900, 3056, 3095, 3129, 3431, 3501, 3887, 3888, 3928 , 3964 , 3998, 4042, 4098, 4183 , 4195 , 4196, 4237,4292,4417,4701,4878,4935,4948,4950. Hægt er að vitja vinninga í Myndlista- og handíðaskóla Islands, Skipholti 1, textíldeUd 4. hæð, á skólatíma. Ferðalög Útivistarferðir Helgin 21.-23. okt. Öbyggðaferð um vetumætur. Brottför föstud. kl. 20. Vetri heUsað í Veiði- vötnum. Gengið í Otilegumannahreysið við Tungnaá og víðar. Gist í húsi. Fararstjóri: Kristján M. Baldursson. Uppl. og farmiðar á skrifstofunni, Lækjarg. 6a, s. 14606. Tunglskinsganga. Fimmtud. 20. okt. kl. 20. Létt strandganga og fjörubál á Gjögrunum. Gangan hefst viö kapeUu heUagrar Barböru sem er vemdardýrlingur ferðamanna. Verð 120 kr. Sunnudagur 23. okt. Kl. 13vetriheUsað: Grlndaskörð-Draugahlíðar-Brennisteins- námuraar. Nýi Bláfjallavegurinn opnar þama nýja göngumöguleika. Nú geta alUr kynnst þessu eldbrunna svæði. Verð 250 kr. og frítt f. böm. Brottför frá bensinsölu BSl. Homstrandamyndakvöid. Fyrsta mynda- kvöld vetrarins verður fimmtud. 27. okt. í kjallara Sparisjóðs vélstjóra að Borgartúni 18 og hef st kl. 20.30. AlUr velkomnir. Sjáumst!. Otivist. Tilkynningar Spilakvöld Félag SnæfeUinga og Hnappdæla heldur spila- kvöld í Domus Mediea á laugardagskvöld kl. 20.30. Safnaðarfélag Áskirkju — prúttmarkaður Safnaðarfélag Askirkju verður með prútt- markað í kjaUara kirkjunnar við Vesturbrún laugardaginn 22. októbernk. kl. 13—18. Mikið úrval af fatnaði og ýmsu öðru. Orlofskonur úr Hafnarfirði og Kópavogi sem voru á Laugarvatni vikuna 27. júní til 3. júlí 1983. Myndakvöldið verður í félagsheimili Kópavogs föstudaginn 21. októ- berkl. 20.30. íþróttasamband íslands Fundur um ferðakostnað íþróttahrcyfingar- innar. Ferðakostnaður innaniands, vegna þátt- töku í landsmótum, hefur vaxið gífurlega á undanfömum árum. Vegna þessa em dæmi um að lið hafi orðið að hætta við þátttöku í sumum greinum. Þá er sýnilegt að samskipti við útlönd munu dragast veralega saman af sömu ástæðum. Vandamál þetta er íþróttafor- ystunni mikið áhyggjuefni. Framkvæmdastjórn ISI telur því nauðsyn- legt að boða til sérstaks umræðufundar þar sem vandamál þetta verður rætt. Fundurinn verður haldinn á Hótel Loftleiðum laugardag- inn 29. október 1983, kl. 14.00. Fyrirhuguð dagskrá er þannig: 1. Fundarsetning: Sveinn Björnsson, forseti ISl. 2. Samningar um ferðamál: Alfreð Þorsteins- son, ritari ISI. 3. Um ferðakostnað innanlands: a) Knútur Otterstedt, form. IBA, b) Pétur Sveinbjarnar- son.form. Vals. 4. Almenn umræða. 5. Fundarlok. Framkvæmdastjóm ISI vill hvetja alla sem mál þetta snertir að einhverju ráði til að mæta á fundinn svo að sjónarmið sem flestra komi fram. Stjómir héraðssambanda og iþróttabandalaga eru vinsamlega beðnar að kynna efni fundarins fyrir íþrótta- og ung- mennafélögum. Einnig era stjómir sérsam- banda beðnar að kynna málið. Gullbrúökaup eiga í dag, hjónin Jónína Davíðsdóttir og Guðni Bjarnason verk- stjóri, öldugötu 33 hér í Reykjavík. Jón L. í 5. sæti Ferðafélag íslands Dagsferðirsunnudaginn23. október: 1. KL. 10. Hengillinn — Hengladalir. Verð kr. 300. 2. KL. 13. Skarðsmýrarfjall — Hengladalir. Verðkr. 300. Brottför frá Umferðarmiðstöðinni, austan- megin. Farmiðar við bíl. Frítt fyrir böm í fyigd f ullorðinna. Ferðafólk athugið: Ferðafélagið notar sjálft sæluhúsið í Þórsmörk helgina 22.-23. °kt. Ferðafélag Islands. Jón L. Árnason gerði jafntefli við Júgóslavann Indic í síðustu umferðinni á alþjóðlega skákmótinu í Júgóslavíu og hafnaöi í 5.-6. sæti ásamt Velimirovic. Efstur varð Agzamov og Simic með 10,5 v., 3. Ivkov með 9,5 v., 4. Adorjan 9 v., 5.-6. Jón og Velimirovic eins og fyrr segir, 6. Ivanovic 7,5 v., 8. Rajkovic 7,0 v., 9,—10. Horvath, De- Firmian6,5 v. Jón var nokkuð mistækur á móti þessu, tapaöi fyrir næstneðsta manni mótsins og missti niður nokkrar yfir- burðarstöður. Hann tefldi hinsvegar af glæsileik gegn ýmsum af sterkustu andstæðingunum, gerisgraði til dæmis sjálfan Velimirovic og varð fyrir ofan marga vaiinkunna stórmeistara. Jón L. byrjar á öðru móti í Júgó- slavíu eftir viku og verða þar mættir til leiksins þeir Tukmakov, Jansa, Abramovich og fleiri afarmenni. -bh.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.