Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1983, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1983, Side 3
DV. MÍÐVÍkÚDAGÚR2.’NÓVÉMBÉR 190. Flugmennimir í forsetaf lugi: Ekki hægt að manna þyriu Gæslunnar Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF- Rán, tók ekki þátt í leit aö skipverjun- um þremur af Haferninum sem leitaö Herþyrla með tank- vélleitaði allan daginn var á Breiðafirði í gær. Ástæðan er að tiltækir flugmenn Landhelgisgæslunn- ar þurftu að fljúga með forseta Islands og forseta Grænhöfðaeyja norður til Akureyrar í gærmorgun og komu ekki aftur fyrr en síðari hluta dags. Nú stendur svo á að fjórir flugmenn Landhelgisgæslunnar eru í þjálfun í Bandaríkjunum, þar af tveir af f jórum þyrluflugmönnum. Eini flugstjóri TF- Ránar sem staddur er hér á landi var flugmaður á Fokkervél Landhelgis- gæslunnar sem flaug með þjóðhöföingjana til Akureyrar. Hin þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-Gró, er óflughæf vegna skorts á varahlut- um. „Ég hélt nú að það væru til aðrar flugvélar sem nota hefði mátt til að flytja forsetana,” sagði einn starfs- manna Landhelgisgæslunnar sem lét í ljós undrun sína yfir þessu ráðslagi í samtali við DV í gær. OEF Landhe/gisgæs/uþyrlan TF-Rán er hún kom úr björgunarfíuginu A Breiðafírði i fyrrakvöld. DV-mynd S. Urval FYRIR UNGA ÁSKRIFTARSÍMINN ER OG ALDNA 27022 Þyrla frá bandaríska hemum hóf leit á Breiðafirði þegar um klukkan 8 í gærmorgun og var á flugi yfir leitar- svæðinu fram í myrkur. Með þyrlunni kom tankvél sem gerði henni kleift að vera á flugi allan daginn. Hannes Hafstein hjá Slysavama- félagi lslands sagöi að óskað hefði verið eftir aöstoð þyrlu Landhelgis- gæslunnar en þar sem hún haföi ekki verið til reiöu hafi bandaríski herinn verið beðinn aöstoðar. Gunnar Bergsteinsson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, sagði hins vegar í samtali við DV í gær að ekki hefði verið ástæða til að leita úr þyrlu. Aðeins hefði þurft að flytja leitarmenn út í Bjameyjar og hefði bandaríska þyrlan tekið það að sér þar sem Landhelgisgæslan hafði öðrum verkefnum að sinna. „Þetta mál var leyst án þess að við þyrftum að koma til og það var ekki óskað eftir frekari aðstoð okkar,” sagði Gunnar. ÓEF Það er víst ekkert meira einkennandi fyrlr Akureyri en kirkjan — nema ef vera skyldi KEA. Þessi mynd var tekin fyrsta vetrardag þegar veturlnn hafði heilsað norðanmönnum með hálf gerðri jólastemmningu. A laugardag ætlar DV að heilsa Akureyringum og öðrum landsmönnum með Akureyrarblaði. DV-mynd JBH. Akureyrarblað DV á laugardaginn Akureyrarblað DV kemur út á laugardag, 5. nóvember og er þetta í fjórða sinn sem slfkt blað kemur út. Sem fyrr er blaöiö fullt af efni sem tengist Akureyri en höfðar þó engu að síður til þeirra sem búa annars staðar á landinu. Meðal annars er baksviös- iýsing af frumsýningunni á My Fair Lady, viðtöl við Einar Krístjánsson frá Hermundarfelli og konu sem búið hefur í Færeyjum síðastliðin 5 ár. Farið er í heimsókn til 57 ára gamallar konu sem rekur eigið dekkjaverkstæöi. Enn má nefna manninn sem smiðar „Borgundarhólmsklukkur” og merki- legt kartöf lulistaverk. Akureyrarblaðið kemur í stað Helgarblaös II á laugardaginn. JBH/Akureyri Hljómtœkjasamstœður með öllu Z-15 system - kr. 26.435 stgr. Z-35 system - kr. 31.200 stgr. JAPIS hf. BRAUTARHOLTI 2 SÍMI 27133

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.