Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1983, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1983, Qupperneq 5
DV. MTOVKUDAGUR 2. NOVEMBER1983. 5 Skíðaskálinn iHveradölum lætur sór ekki bregða þó fjórir aðilar bftist um hann niðri íReykjavík. DV-mynd: Eiríkur Jónsson. Fjórir vilja Skíðaskálann — óvíst hver hijeppir hnossið Svení r Hermannsson orkuráðherra: Mælti fyrir og gegnsama frumvarpinu „Þaö er ekkert skrítið aö ráöherra með þveröfuga stefnu viö sósialista mæli gegn frumvarpi þeirra, sér- staklega með tilliti til gerræðislegra vinnubragða þeirra á verölagningu orkusölu,” sagði Sverrir Hermanns- son orkuráðherra viö DV í fyrradag eftir aö hafa mælt fyrir frumvarpi til staöfestingar á bráöabirgöalögum frá 8. apríl sl. eins og honum ber skylda tU lögum samkvæmt og síðan lagt til að þaö yröi feUt. Það gerist ekki daglega aö mælt sé meö og á móti frumvarpi í sömu andrá. Sverrir Hermannsson sagði þaö ekki vera stefnu núverandi ríkis- stjómar aö hafa þann hátt á um ákvörðun orkuverðs sem í bráða- birgðalögunum segir, þ.e. orkufyrir- tæki verði að sækja um staðfestingu á orkuverði tU iðnaðarráöherra. „Þvi legg ég tU að frumvarpið verði feUt,” sagði Sverrir. „Núverandi rikisstjóm hefur þá stefnu að sveitarfélögin sjálf ráði verði á þjónustu sinni og á það ekki sist við um sölu á orku sem þau hafa velflest með höndum,” sagði Sverrir Hermannsson. ,,Á hitt ber aö lita aö ekkert svigrúm er tU hækkunar orku- verðs á þeim svæðum og í þeim greinum, þar sem það er nú hæst,” sagði ráðherra jafnframt og kvaðst sérstaklega eiga við raforkusölu tii húshitunar og orku nýjustu og dýrustu hitaveitna. Kvað hann brýna nauðsyn bera tU lækkunar þar sem þannig stæði á. Sagði orkuráðherra ennfremur að fast yrði knúið á um að skattar yrðu feUdir niður af orkusölu til húshitunar svo fljótt sem unnt reyndist. Kvaö hann fimmtung þjóðarinnar búa enn við óbærilegar aöstæður í þeim efnum þar sem húshitunarkostnaðurinn væri að sUga heimUin. H.Þ. Iþróttaráö Reykjavíkurborgar frest- aöi að taka ákvörðun um það á fundi sinum í fyrradag hverjum verði leigð- ur SkiðaskáUnn í Hveradölum og verða því þeir f jórir aðilar sem lýst hafa yfir áhuga sinum á skálanum aö bíða enn í tvær vikur eftir úrslitum. Hér er um að ræða Gerði Pálma- dóttur kaupkonu i Reykjavík, Karl Jóhansen sem rekur Veislumiðstöðina Lindargötu 12, feögana Oskar Sigurðs- son og Bjama Oskarsson og svo Magnús Jónasson sem rekiö hefur Skiðaskálann að undanfömu í umboði Reykjavíkurborgar. Eins og fyrr sagði mun íþróttaráö taka máUÖ fyrh- á ný efth- hálfan mánuð, mæla með einum af þessum f jórum og síöan senda málið til borgar- ráðs tU samþykktar. Að undanförnu hefur Skíðaskálmn í Hveradölum verið opinn daglega frá 9—18 og þar hefur verið hægt að fá keypt kaffi og meðlæti. EUinig hefur skálinn verið leigður út til veisluhalda. Samkvæmt heimUdum DV hyggja nokkrir hinna nýju umsækjenda á gagngerar breytingar á rekstri Skíða- skálans i Hveradölum en vUja fátt um þær segja fyrr en ákveöið hefur verið hverhljótihnossið. -EIR. Sýningar Kaupstefnunnar hafa jafnan verið fjöisóttar og nú hefur verið ákveðið að haida stóra heimilissýningu á hverju ári hóðan i fró. Kaupstefnan: Heimilissýning haldin ánega Kaupstefnan í Reykjavik hf. hefur í hyggju að halda framvegis stóra heimUissýningu árlega en fyrirtækið hefur staðið fyrir 11 stórum vöru- sýningum hér á landi frá því það var stofnað fyrU- um 30 árum. I frétt frá Kaupstefnunni kemur fram að fyrirtækið hefur verið frum- kvöðuU á ýmsum sviðum og bryddað upp á mörgu óvenjulegu i sambandi viö sýningarhald sitt. Þannig má rekja vmsældir stórra tískusýninga hér- lendis tU alþjóðlegu vörusýnUigar- rnnar sem haldrn var 1971 er fyrsta sýningin af slíkum toga var haldin í LaugardalshölUnni. Þá bendir fyrirtækið einnig á að það varð fyrst tU að endurvekja tívoUstarf- semi hér á landi árið 1980 eftir aldar- fjórðungs hlé. Næsta heimiUssýning „HeUniUð ’84” verður haldin í LaugardalshöU 24/8 — 9/9 1984. Undirbúningur er einnig haf- inn fyrir sýningar 1985 og 1986. -SþS. Geröu jólainnkaupin beint frá London V erslið hagkvæmt! rólegheitum heima getur þú valid jólagjafirnar úrnœr 1000Á blaðsíðna vörulista okkar. • Þar finnur þú allt sem hugurinn girnist og margt ú frúbœru , ^Kverði. > \ °9 þú fœrð vörurnar örugglega fyrirjól, því afgreiðslufrestur # pantana er aðeins ca 3 vikur. ^KHringdu og við sendum þér Grattan vörulistann samdœgurs ' r (kr. 120+ burðargjald). Pantanasímar: 36020 og 81347. Opið til kl. 10.00 ú kvöldin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.