Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1983, Side 6
6
DV. M&VÍK'ÚDÁGÚR 21 NCWEMBERím
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Gluggatjöldm
upplituðust
7439-6178 skrlfar:
I maí sL keypti ég mér efni í svoköll-
uöu bútasaumsteppi í versluninni
Virku viö Hverisgötu. Ég lauk viö gerö
teppisins í lok júní. Þar sem mér
fannst þetta koma mjög vel út —
keypti ég mér sama efni í falleg
gluggatjöld í samræmi viö aöaliitinn í
teppinu. Gluggatjöldunum kom ég upp
í júlí. I lok september tók ég eftir því aö
grunnliturinn var farínn úr glugga-
tjöldunum.
Fór ég því í verslunina til aö kvarta
þar sem ég hélt aö þetta væri einhver
galli í efninu sem þeim í versluninni
þætti aö minnsta kosti gott aö vita um.
En því fór fjarri því aö helst var að
heyra ó þeim að ég ætti að biðjast af-
sökunar á að vita ekki aö þessi náttúr-
legu fínu amerísku efni væru sérstak-
lega ætluö i bútasaum og ættu aldrei í
dagsbirtu, hvaö þá sól, að koma. Sam-
kvæmt því ber mér aö hafa myrkur í
svefnherberginu.
Nú langar mig aö spyrja: Ber ekki
versluninni að vara viöskiptavinina
við ef varan er ekki hæf til þeirra nota
sem þeir ætla aö nota hana í, en það tók
ég fram er ég keypti efnið í glugga-
tjöldin?
Getur verið aö öll efni í Virku með
mislitum grunni séu j afn-lítilfjörieg og
ímínuteppi?
Aö lokum. Ætli margir kaupmenn
taki á móti kvörtunum frá viöskipta-
vinum, sem búnir eru að versla og
vinna úr efni frá þeim fyrir fleiri
þúsund krónur, á sama hátt og þeir í
Virkugerðu?
Sem sagt, kella mín, þetta á að vera
svona. Ekki eitt orö um aö það sé óeðli-
legt eftir 3 mánuði að grunnliturinn
sem í upphafi var dökkrauöur sé nú
gulur, hvaö þá aö þaö sé eitthvað að til
að biðjast afsökunar á!
Svar:
Frá því áriö 1981 höfum við selt
bómullarefni frá mörgum þekktustu
fyrirtækjum Bandaríkjanna til notkun-
ar í bútasaum og fl. Það hefur færst í
vöxt aö fólk hefur keypt þessi efni,
aðallega í ljósum litum, til að nota í
gluggatjöld vegna þess hve hlýleg og
skemmtilega munstruð þau eru. Verö-
ið er einnig brot af því sem önnur efni
kosta sem seld eru sem gluggatjalda-
efni og sem oft eru misjöfn aö gæðum.
Meö því aö nota okkar bómullarefni í
ljósum litum, sem rykkt eru til
helminga þar sem munstrið snýr inn
hefur fólk fengið smekklega og ódýra
lausn.
Oft eru þessi efni notuð meö vattefn-
um meö sama munstri og þannig hægt
að fá skemmtilegan heildarsvip í
svefnherbergi eða eldhús þar sem vatt-
efnin eru gjarnan notuð í diskamottur,
hrærivélahlífar, grillhanska og fl.
Ekki ráðiagt umrætt
efni í gluggatjöld
Þaö vita allir aö efni eru misjafnlega
næm fyrir ljósi. Hrein bómullarefni
hafa verið notuð um langan aldur þrátt
fyrir aö þau séu viðkvæmari fyrir ljósi
en mörg gerviefni. Notkun bómullar-
efna hefur aukist síðari ár margra
hluta vegna. Það efni er hér um ræðir
er ekki meöal þeirra efna sem við höf-
um ráölagt f ólki að nota í gluggat jöld.
Vegna kvörtunarinnar vil ég taka
fram eftirfarandi: 1. Konan kaupir
efni í bútasaumsteppi enda ætlað til
þeirra nota. Ef það kemur í ljós að efn-
ið stenst ekki venjulega meöhöndlun
mun ekki standa á okkur aö kanna það
máltilhlítar.
2. Aö auki kaupir hún dökkt efni í
gluggatjöld, gagnstætt því sem fólk
gerir oftast. Ef við heyrum að okkar
viöskiptavinir eru að leita eftir efni í
gluggatjöld bendum viö þeim á ljós
efni sem hafa gefist vel til slíkra nota. I
undantekningartilfellum hefur fólk
áhuga á öörum litum og segist þá
gjaman vilja skipta örar um glugga-
tjöld þar sem þessi efni kosti lítið.
3. Venjan er sú að láta réttuna snúa
inn og kemur þá birtan á bak glugga-
tjaldanna. I þessu tilfelli var það ekki
gert, heldur voru þær tvöfaldaðar og
dökki liturinn iátinn snúa út.
4. Venjan er einnig að rykkja glugga-
tjöldin um ca heiming, en það gerði
hún ekki á þeim hluta sem upplitaöist.
Vegna þessarar sérstöku glugga-
tjaldagerðar og framantalinna atriða
finnst okkur hún ekki geta skellt
skuldinni á okkur án þess að við fáum
tækifæri til að láta athuga efnið. I stað-
inn kaus hún að skrifa DV strax um
kvöldið.
Við höfum nú sent prufu til umsagn-
ar erlendis. Af þeim 700 bómullarefn-
um, sem við höfum, getur fundist
gallað efni, en fyrir því viljum við fá
vissu áður en við viðurkennum það.
Lýsing konunnar á vörum okkar er
hennar eigin hugarsmíð og ekki svara
verð.
Þess má aö lokum geta aö við höfum
haldið sýningu á yfir hundrað ára
gömlum óaðfinnanlegum bútasaums-
teppum úr efnum frá þessum sama
framleiðanda og í umræddu efni.
Vlrðingarfyilst,
Virka s/í
Helgl Þór Axelsson.
Mikið úrval af sojaafurðum er á merkaðnum an misjafnt er næringar-
gildi þeirra afurða.
í eldhúsinu
Jurta-
fæða
— þrírréttir
Það er staðreynd að fleiri og fleiri í
okkar þjóðfélagi hafa aðhyllst kenn-
ingar náttúrulækningamanna og kosið
að nærast eingöngu á grænmeti og
ávöxtum frekar en kjöti og fiski. Sumir
hafa tekið upp þann sið aö neyta
„náttúruafurða” einn dag í viku hverri
en leita i dýraríkið hina dagana.
Mikil umræða undanfarin ár um
ma ar.cCí fólkshefur leitt í ljós að hollt
og næringaríkt fæði skiptir miklu máli
um velh'öan og heilbrigði. Hæfileg
hreyfing og hollt fæði eru ofarlega á
blaði heilbrigðisyfirvalda viða um
heim sem stærstu þættir fyrir-
byggjandi aögeröa í heilbrigðismál-
um, þættir sem leggja beri mikla
áherslu á í náinni framtíö.
Hér á landi hefur vöruúrval í
„heilsubúöum” aukist jafnt og þétt,
sjálfsagt í hlutfallí við neytendur
jurtafæðu.
Við birtum í dag þrjár uppskriftir
fyrir þennan hóp neytenda og hina sem
hug hafa á að fóta sig á nýju sviöi í
eldhúsinu.
-ÞG
Sojahakk og spaghetti
2 bollar sojahakk bleytt út i vatni
1 pk. spaghetti (ca 227g)
lmatsk. smjör
1 matsk. matarolía
1 meðalstór laukur, saxaður
1/2 tesk. salt
1 pk.sveppasúpa
1. Spaghetti soðiö i saltvatni þar til
það verður mjúkt. Vatninu hellt af og
smjöriö sett út í spaghettíið.
2. Sveppasúpan löguð með helmingi
minna vatni en segir á pakkanum,
látin sjóða í nokkrar mínútur.
3. Laukurinn og sojahakkið er látið
malla smástund í ohunni, siðan er sait:
inu og sveppasúpunni, bætt út í þaö og
blandaðvelsaman.
4. Aö síðustu er spaghettíið látiö
saman við.
Með þessu er gott að bera fram hrátt
salat og þá er komin góð máltíð handa
sex manns.
Steik úr sojahakki
11/3 bolli sojahakk
11/3 bolli heltt vatn
1/2 bolli laukur, smátt skorhrn
1/2 bolli seileri, smátt skorlð
eða 1 tesk. selleríduft
3 matsk. matarolía
3egg
1/8 tesk. sage eða timian
1/2 bolli ostur (rifinn)
Leggið sojabaunir í bleyti i heitt vatn
i 15 minútur og síðan hakkaö. Látiö
lauk og selleri krauma í oliunni.
Biandiö öllu vel saman og látið i vel
smurt, eldfast mót. Bakið i 60 minútur
við 200°C.
Sveppa „Stroganoff"
2matsk. smjörliki
1/2 kg nýir sveppir, sneiddlr
1 meðalstór laukur, fint saxaður
l/2tesk. salt
1/8 tesk. paprikuduft
2 bollar snöggsoðið sojahakk (dökkt)
1 bolli sýrður rjómi
1 tesk. þurr steinselja eða saxaður
graslaukur
Hitið sveppi og lauk i smjörlikL
Blandið salti, paprikudufti og soja-
hakki út i. Siðan sýrða rjómanum
smám saman út í (má ekki sjóöa).
Hellið í smurt, lokað mót, stráið stein-
selju yfir og bakiö i 20 minútur við
200°C. Borið fram með soðnum hris-
grjónum.
Samkvæmt reglugerð um heilbrigðismál er bannað að selja kartöfíur i
lausu.
KARTÚFUiR
í mm
UMBÚÐIR
Það hefur stundum verið haft orð á selja kartöflur í lausu sæju neytendur
því að kartöflur í neytendaumbúðum
frá Grænmetisversluninni séu seldar í
of stórum skömmtum. Eins og flestum
er kunnugt um er einungis hægt aö fá
kartöflur keyptar í 2 1/2 kg og 5 kg
pakkningum. I ákveðnum tilfeilum eru
þetta of stórir skammtar fyrir neyt-
endur, sérstaklega þá neytendur sem
hafa lltið heimilishald, t.d. einstak-
linga og eldra fólk. Einnig á gamalt
fólk fulit í fangi með aö bera svo þung-
ar byrðar.
Kartöflur í lausu
HJá Grænmetisversluninni fengum
viö þær upplýsingar að það heföi oft
komið til tals að pakka kartöflum í
minni umbúðir. Það væri mjög
kostnaðarsamt þvi að til þess þyrfti
nýjapökkunarvéL
En hvers vegna ekki aö selja kartöfl-
ur í lausu? Með því gætu neytendur
sjálfir ráðiö því magni er þeir þyrftu á
aö halda. Því er aö svara aö sam-
kvæmt reglugerð heilbrigðisyfirvalda
er bannað að selja þær i lausu. Talið er
aö það geti valdið óþrifnaði. Sérstak-
lega þegar kartöflunar væru innan um
önnur matvæli. Oddur Rúnar Hjartar-
son, framkvæmdastjóri Heilbrigðis-
eftirlitsins í Reykjavík, sagðist vera
því mótfallinn að kartöflur yrðu seldar
í lausu. Hann sagði aö mikið moldar-
ryk kæmi af kartöflum og stafaöi öðr-
um matvælum hætta af því. Með þvi að
reyndar vel þá vÖru sem þeir væru að
kaupa. Þá hiiö á málinu væri hægt að
leysa með þvi að selja kartöflunar í
gegnsæjum umbúðum.
Yrðu ódýrari
Þó svo aö bannað sé að selja kartöfl-
ur hérlendis í lausu tiðkast þaö víða er-
lendis. Reynt er að hafa kartöflurnar
ekki nærri viðkvæmum matvörum eins
og t.d. kjötvörum. Þessu er yfirleitt
hægt að koma við vegna þess hve mat-
vöruverslanir eru stórar. 1 þessum
verslunum eriendis er að sjálfsögöu
hægt að velja á milli þess að kaupa
kartöflur í pokum eöa í lausu. En
kartöflur í lausu eru einnig mun ódýr-
ari en þær sem seldar eru í fyrirfram
innpökkuðum umbúöum.
Hagur neytenda
Okkur hér á neytendasíðunni langar
að varpa fram þeirri hugmynd hvort
þetta væri ekki hægt hérlendis og
slakað yrði á þeim kröfum sem heil-
brigðisyfirvöld gera. Hægt væri aö
leyfa lausasölu þar sem taliö væri að
viðkvæmum vörum stafaði ekki nein
hætta af kartöflunum.
Þetta myndi auövelda þeim er hafa
lítið heimilishald, auðveida burð
gamla fólksins, neytendur sæju hvað
þeir væru að kaupa og hugsanlega
yrðu kartöflumar ódýrari.
-APH