Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1983, Page 8
8
DV. MíÖVöCtÍDAGUK l'NÖVEMBEH 1983.’
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Bandarískir innrásardátar og hermaður frá Barbados gæta kúbanskra fanga á einum íþróttavellinum í St. George.
Rauf diplómatísk
tengsl við Sovét
Milli 100 og 200 drepnir með Bishop forsætisráðherra 19. október
Fleiri
blökku-
menn
styðja
Mondale
en
Jackson
Því er haldið fram að séra Jesse
Jackson, sem hyggst gefa kost á sér til
forsetaframboðs fyrir demókrata, gæti
dregiö svo marga nýja kjósendur úr
hópi blökkufólks og spönskumælandi
að kjörboröinu að’vonlaust myndi fyrir
Reagan forseta að ná endurkjöri.
Lou Harris með Harris-skoðana-
kannanimar kom fram á blaðamanna-;
fundi með Jackson í New York í gær-.
kvöldi og sagði aö hlyti Jackson ekki
útnefningu demókrata eygði hann
enga möguleika á því aö demókratar
ynnu næstu forsetakosningar.
Harris sagöi um leið aö allt benti til
þess að Jackson ætti engan möguleika
á aö ná útnefningu og mundi lenda í
þriöja sæti í vali demókrata á forseta-
frambjóöanda. Sagði hann að fylgis-
kannanir meðal blökkufólks leiddu í
ljós að 43% styddu Walter Mondale og
28% Jackson.
Allt að 200 manns voru drepnir í
Rupert-virki í höfuðborg Grenada í
átökunum þegar Maurice Bishop for-
sætisráðherra var drepinn.
David Kilgour, þingmaöur frá
Kanada, sem verið hefur í upplýsinga-
öflun á Grenada, hélt þessu fram, af
f rásögnum s jónarvotta sem hann hitti í
St. George. Skýrði hann blaðamönnum
í Ottawa frá því, við heimkomuna í
gær, að konur og börn hefðu einnig
verið drepin 19. október.
Kvaö hann engan vita nákvæmlega
um fjölda þeirra sem létu lífið í skot-
hríðinni en af lýsingum sjónarvotta
hefðu þaö ekki verið færri en 100 og
gætu verið svo margir sem 200.
Hann sagði aö flestir Grenadamenn
sem hann hitti að máli heföu fagnaö
innrás Bandaríkjamanna.
Landstjórinn á Grenada, sir Paul
Scoon, sem innrásarliðið leysti úr
stofufangelsi og setti aftur tii
embættis, hefur rofið diplómatísk
tengsl við Sovétríkin og beðið sendi-
herra Kúbu að yfirgefa Grenada þar
sem atferli hans samræmdist ekki
störfum ambassadors.
Sir Paul sagði að skjöl sem fundist
hefðu sýndu að skotfærabirgðir heföu
verið fluttar í kúbanska sendiráðið
síöustu dagana áður en innrásin var
gerðáeyjuna.
Jamaíka, sem ásamt fimm öðrum
ríkjum í Karabíska hafinu sendi lið til
innrásarinnar, hefur vísað fjórum
sovéskum diplómötum úr landi og
einum kúbönskum blaöamanni.
Bandariskt herliö gekk i gær á land á
nærliggjandi eyju vegna fregna um að
kúbanskir hermenn væru þar stað-
settir. Engir Kúbumenn reyndust vera
þar en íbúar vísuðu á hergagnabirgðir
í vöruskemmu og fundust þar sovésk
vopn.
Forstjóri slysavarðstofunnar í St.
George segist hafa fengið 117 særða til
meðferðar (þar af 50 úr þjóðvarðliði
Grenada) síðan innrásin hófst. Eru
það fyrstu tölur um mannfall Grenada-
manna í innrásinni. Hann sagði að
daginn sem Bishop forsætisráðherra
var skotinn til bana heföi slysavarð-
stofan gert að sárum 97 manna sem
særst höföu í þeim átökum.
Nú er komiö á daginn að 16 hafi látið
h'fið í loftárás sem bitnaöi á geöspitala
í St. George en yfir sextíu er saknaö.
Margt úr síðartalda hópnum er talið
hafa forðað sér af staönum.
Innrásarhermaður leitar uppi leyniskyttu íhöfuðborg Grenada.
Kosið í S-Afríku
Kvikmynd skaðar
kosningahorfur
John Glenn
Stórfé heitiö
fyrirhorfinn
veðhlaupahest
250 þúsund sterlingspundum hef-
ur verið heitið hverjum þeim sem
visað geti til veðhlaupahestsins
Shergar, sem stolið var fyrir níu
mánuðum á lrlandi. Vopnaðir
menn rændu honum af
Ballymany-hrossabúi Aga Khans
vestur af Dublin í f ebrúar.
Eigendumir 34, sem á sínum,
tíma keyptu hestinn á 10 milljónir
steriingspunda og höföu hann til
undaneldis, hafa aukið við verð-
launaféð sem heitið er fyrir hest-
inn. Enskt kappreiðablað hafði
boðið 10 þúsund pund og írska
hrossaræktarsambandiö bauö 100
þúsund.
Hvítir kjósendur S.-Afriku ganga að
kjörborðinu í dag til að ákveða hvort
veita eigi fólki af öðrum litarhætti tak-
markaða hlutdeild i stjórn landsins.
Kosið er um hvort taka eigi upp nýja
stjómarskrá, sem veitir kynblend-
ingum og Indverjum einhverja hlut-
deild í landsstjórninni á meöan blökku-
fólk, sem er um 70% af íbúum S-Afríku,
verður útilokað þar frá.
A kjörskrá eru 2,7 milljónir (af 4,5
milljónum hvitra) og er búist við mik-
illi kjörsókn en talningu á aö ljúka
strax í nótt. (Ibúar S-Afríku eru taldir
um 28 milljónir.)
Umsjón:
Guðmundur
Pétursson
Samkvæmt stjómarskrárdrögunum,
sem Botha forsætisráöherra hefur lagt
fram, á að breyta þinginu, sem nú er
setið einvörðungu af hvítum mönnum.
A að setja upp þrjár þingdeildir. Eina
fyrir hvíta, eina fýrir Indverja og eina
fyrir fólk af blönduðum litarhætti. —
En hvítir mundu áfram hafa meiri-
hlutavald samkvæmt þessari stjómar-
skrá.
Deilt u
Breskur ráðherra hefur visað á bug
aðdróttunum um að hann hafi vísvit-
andi blekkt breska þingið þegar
áslralska blaðakóngnum Rupert Mur-
doch var leyft að kaupa TIMES-blaða-
útgáfuna.
Harold Evans, sem þá var ritstjóri
Sunday Times og síðar Times, heldur
Lou Harris, sem stendur fyrir
Harris-skoöanakönnunum í Banda-
ríkjunum, sagöi í gærkvöldi aö John
Glenn öldungadeildarþingmaöur
hefði skaöast af kvikmyndinni The
Right Stuff, sem byr jað var að sýna í
sumar. Myndin fjallar um feril
Glenns sem geimfara.
Nýjasta skoöanakönnun Harris
gefur til kynna að Walter Mondale,
n söluna á
því fram í nýútkominni bók að John
Biffen ráðherra hafi sagt ósatt til um
það aö Sunday Times var óarðbært
fyrirtæki árið 1981 þegar salan fór.
fram.
Biffen, sem er forseti neðri málstof-
unnar en var viðskiptaráöherra þegar
salan á Times fór fram, hafði — að
fyrrum varaforseti, hafi aukið for-
skot sitt á Glenn um 2% í kapphlaup-
inu um að hljóta útnefningu
demókrata til forsetaframboðs.
Fylgi Mondale er nú 43% en Glenns
23%.
Harris segir að kvikmyndin komi
fólki til að finnast að Glenn sé
nýhættur sem geimfari og gleymi því
að hann hafi veriö 8 ár á þingi.
Times
sögn Evans ritstjóra — undanskilið 4,6
milljón sterlingspunda tekjur af Sun-
day Times. Sagði Biffen í þinginu i
fyrradag aö Evans ræddi þarna um
tekjur af hjálpargreinum Times-fyrir-
tækisins sem vörðuðu dreifingu og
póstsetningu og þess háttar sem í bók-
haldi teldist ekki til blaðaútgáf u.