Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1983, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1983, Page 11
11 DV. MIÐVKUDAGUR 2. NOVEMBER1983. íslenska glíman á undanhaldi: „Þessu þarf að breyta” Þjóöaríþrótt Islendinga, sjálf glím- an, er í miklum vanda stödd. Ef ekkert verður að gert bíða hennar sömu örlög og geirfuglsins forðum daga. „Islenska glíman er á miklu undan- haldi og ef ekki verður gert stórkost- legt átak endar það með því að hún deyr út,” sagði Sigtryggur Sigurðs- son, formaöur Glímusambands Is- lands, í viðtali við DV. Ástæðurnar fyrir slæmri stöðu glím- unnar sagði Sigtryggur vera margvís- legar, en kannski fyrst og fremst þær að hún væri hvergi kennd í skólum né annars staöar. „Gliman er flókln og það teknr langan tima að fá eitthvert gagn af henni,” segir Sigtryggur Sigurðsson, formaður Glímusambandsins, sem er uggandi vegna undanhalds þjóðar- iþróttarinnar fornu. DV-mynd Bj. Bj. — segir Sigtryggur Siguiðsson, formaður Glímusambandsins „Það er álit okkar að þessu þurfi að breyta og að þaö þurfi að ráða mann til að kenna glímu,” sagði Sigtryggur ennfremur. Hann sagði að mönnum litist illa á stöðuna, en skipuð hefði verið nefnd með fulltrúum ISI, Glimusambands- ins, UMFI og íþróttafulltrúa ríkisins. Nefnd þessi mun svo gera tillögur um leiðir til að auka veg og virðingu glimunnar. Sigtryggur kynntist glímunni fyrst árið 1959 í skóla Sigurðar Greips- sonar, sem var mikil vagga glím- unnar. En hvað er svona heillandi við þessa íþrótt? „Því er erfitt að svara,” sagði Sig- tryggur. „Þegar maður er inni í húsi sér maður ekki hvernig það lítur út aö utan. Glíman er flókin og það tekur langan tíma, 2—3 ár, að fá eitt- hvert gagn af henni.” Sigtryggur er málarameistari að atvinnu og segir hann að gliman og málningin fari vel saman. Aftur á móti er hann að mestu leyti hættur að stunda fangbrögðin. „Einhvern tíma verður maöur að hætta, en ég hef áhugann enn og kíki oft inn á æfingar. En ég æfi lítið sjálfur,” sagði Sigtryggur. Gliman er þó ekki eina íþróttin sem hann hefur lagt stund á. Eitt sinn stundaöi hann lyftingar og átti Islandsmet í þeirri grein. „En þaö fer lítið fyrir þeim afrek- um í dag,” sagði Sigtryggur. Ekki má gleyma briddsinu, en þar varð hann Islandsmeistari áriö 1975. Sama ár var hann líka glimukóngur og lyftingameistari. — Er ekki undarlegt að sjá bridds með hinum tveim íþróttagreinunum? „Það er allt annar handleggur, en þaö fer mjög vel saman,” sagði Sig- tryggur Sigurðsson, formaður Glímu- sambands Islands. gb. SMA K inr» er 27022 OPID TIL KL. 10 í KVÖLD HRINGDU NÚNA! Aiiar gerðir og stærðir af bíium tiisýnis og söiu á staðnum, greiðsiukjör við a/lra bæfi, maibikuð bílastæði, 800 fm innisalur. Opið /augardaga 10—6, sími81588. Fimm toppsölumenn með óþrjótandi þoiinmæði. Við erum í Ármúia 7 Reykjavík. AMC EAGLE 4x4 ÁRG. 1981. SUBARU 4x4 ÁRG. 1982. VOLVO 244 GL ÁRG. 1979. TRANS AM. ÁRG. 1981. £r bíllinn þinn á réttu markaðsverði? Guðfinnur með ráðgjafarþjónustu um verð á notuðum bíium. HONDA ACCORD ÁRG. 1982. Vers/ið þar sem úrvaiið er mest og aðstaðan best. Bíiinn að morgni, seldur að kveldi. TOYOTA JEPPI ARG. 1981. BENZ 280 SE ÁRG. 1976. BMW 518 ÁRG. 1981. r ■*» BENZ 280 E ÁRG. 1980.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.