Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1983, Blaðsíða 14
DV. MIÐVIKUDAGUR 2. NOVEMBER1983«
Menning Menning Menning Menning
•— Br-kwffu»»r- »•«!*; S*f-fc*r/
pto»4tt »M. R*v*»*»*
toyfcjaylk.
Má/verk unnið á pappir, nafnlaust verk eftir Kristin.
ÍSLENSK UST
í AMSTERDAM
— sýning níu ungra íslenskra myndlistarmanna
í Fodorsaf ninu í Amsterdam
Þegar minnst er á Holland kemur
fyrst upp í hugann gullskipiö á Skeiöar-
ársandi, nýtapaður fótboltaleikur
Islendinga við Holiendinga, vindmyll-
ur, túlípanar og tréskór. Samskipti Is-
lendinga og Hollendinga eiga sér langa
sögu. Á skútuöldinni stunduðu
Hollendingar, ásamt fleiri þjóöum,
veiðar við Islandsstrendur. Undan-
fama áratugi hafa samskipti þjóðanna
einkum verið tengd garörækt, græn-
meti og blómlaukum. En við höfum
einnig haft vaxandi menningarsam-
skipti við Hollendinga síðastliðinn ára-
tug eða rúmlega þaö. Hollenskir lista-
menn hafa sýnt Islandi töluverðan
áhuga og lagt á sig ferðalag norður um
höf til þess að miðla okkur af list sinni.
Þónokkur hópur tónlistar- og myndlist-
arfólks hefur sótt framhaldsmenntun
til Hollands undanfarin 10—15 ár og í
framhaldi af því hafa íslenskir mynd-
listarmenn haldið sýningar víðsvegar
um Holland á síöustu árum.
Föstudaginn 14. október síðastliðinn
var opnuð iFodorsafninu í Amsterdam
sýning á verkum 9 ungra islenskra
myndlistarmanna og auk þess eru á
sýningunni videoverk eftir 5 aðra
myndlistarmenn. Þessi sýning er
skiptisýning Fodorsafnsins og Nýlista-
safnsins og rnarkar þessi sýning tíma-
mót í menningarsamskiptum þjóð-
anna. Þetta eru Amsterdamlistamenn
annars vegar og meðlimir Nýlista-
sa&isins hins vegar.
Nýlistasafniö var stofnað 1978 og
hefur staðið að mörgum áhugaverðum
sýningum á þeim stutta tima sem þaö
hefur verið starfrækt. Má þar nefna
hollensku sýninguna „Paper for
Space” og „Personal Worlds” og
Galerie de Appel í Amsterdam stóð að
sýningarviku i samvinnu við Nýlista-
safnið þar sem hollenskir listamenn
sýndu kvikmyndir, geminga og
„installasjónir” og Galerie ,A’ sýndi
verk íslenskra listamanna. Meðlimir
Nýlistasafnsins eru um 70 talsins, sem
er nokkuð þröngur hópur, og er safnið
rekiö aö mestu leyti á sjálfboöavinnu
meðlima. Það er mikiö átak aö halda
svona starfsemi gangandi, vinna full-
an vinnudag til framfærslu og starfa
auk þess sem virkur myndlistar-
maður. Nýlistasa&iið gegnir hlutverki
Nokkur af verkum Daða.
nútímalistasafn og er sú kvöð á
meðlimum safnsins að gefa til þes3 1
verk á ári og 2 verk við inngöngu í safn-
ið. Á þennan hátt eignast safniö sam-
tímaverk sem þaö gæti ekki eignast ef
þaö ætti aö kaupa verkin sjálft Þetta
þykir Hollendingum merkilegt þvi þeir
hafa sitt lifibrauö að nokkru leyti af
þvi að selja söfiium verk sin, en að öðru
leyti af listamannalaunum sem þeir
eru á jafnvel árum saman og þurfa
ekki að hafa áhyggjur af framfærslu
en geta unniö óskiptir aö listsköpun.
Aðstæður hollensku listamannanna
eru því gjörólíkar aðstæðum
Islendinganna.
,Smoking friends", mátverk i pappir, eftir Heiga.
„Er þetta ekki ansi fin sýning hjá okkur." Á gólfi skúlptúr eftir ívar,
stóra flykkið á veggnum er eftir Áma.
Fodorsafnið í Amsterdam stendur
viö eitt af hrífandi síkjum gamla
borgarhlutans. Þaö var upphaflega
byggt sem vöruhús á 17. öld og í lok 19.
aldar var þaö endurbyggt sem safn.
Upp úr 1960 var starfsemi safnsins
færö í núverandi horf og safninu ætlað
aö sýna og safna verkum samtima-
listamanna frá Amsterdam og er safii-
iö borgarlistasafn ásamt Stedelijk
safninu og rekið af Amsterdamborg.
Núverandi forstöðumaður safnsins,
Tijmen van Grotheest, kom í gegn
breytingu á þessu fyrirkomulagi fyrir
tveim árum. Hann fékk samþykkt svo-
tallað exchange program einu sinni á
iri. Það er sýning með erlendum lista-
nönnum í skiptum fyrir sýningu
Vmsterdamlistamanna erlendis.
Undantekning frá þessari reglu í
j i’odor var sýningin Súm 4. sem Galleri
>úm stóð að í Fodorsafninu árið 1971.
>að þótti því viðeigandi að Islendingar
rði fyrstir til að sýna í þessu Exchange
rógrammi.
Forstööumaöur Fodorsafnsins hafði
: amvinnu við fulltrúa Nýlistasafns-
ms, myndlistarmennina Sigurð Guð-
mundsson og Magnús Pálsson um val
þátttakenda á þessar sýningar.
Snemmaí vor kom svo Tijman van
Grootheest til Islands og valdi lista-
menn úr hópi 40 meðlima Nýlistasafiis-
ins sem sent höfðu inn yfirlit af verk-
um sínum. Til að byrja með valdi
hann 15 manns sem hann heimsótti svo
á vinnustofur til þess að ákveða endan-
lega hvaða 9 yrðu fyrir valinu.
Tijmann segir: „Reykjavík er lítið
samfélag þar sem rflcjandi er sterk
hefð, einangrunin leiðir af sér nauðsyn á,
ferðalögum og íslenskir myndlistar-
menn sækja mikiö úr landi til skemmri
dvaiar. Otkoman hjá þeim verður svo
létt og skemmtileg blanda áhrifa víðs
vegar að og sterkra séríslenskra ein-
kenna. Islendingar eru miklir
húmoristar og þeirra listsköpun oftast
mun léttari en gerist annars staðar í
Evrópu.”
Magnús Pálsson og Sigurður
Guðmundsson sáu um að velja
hollensku listamennina á sýninguna á
Islandi. Skilyrði fyrir vali var aö hafa
Texti og myndir:
Sigrún Harðardóttir
sýnt í Fodorsafninu og einnig lögðu
þeir nokkra áherslu á aö sýna
skúlptúrista. Hollendingarnir lögðu
áherslu á aö sýna sitt frambærilegasta
fólk og Islendingamir lfka, og hafa
tveir af hollensku listamönnunum sýnt
fyrir hönd Hollands á alþjóðlegum sýn-
ingum, Réne Daniels í Kassel 1982 og
Marlene Dumas á Amsterdam-
Berlín sýningunni 1983. Fjórir af
Islendingunum hafa sýnt fyrir Islands
hönd á Parísar Bienalnum sem er al-
þjóðleg sýning haldin annað hvert ár.
Það eru Ami Ingólfsson og Helgi Þor-
gfls Friðjónsson áriö 1980 og Kristinn
Harðarson og Steingrímur Eyfjörð
árið 1982. Islendingamir sem sýna að
þessu sinni fyrir hönd Nýlistasafnsins
eru þeir Ami Ingólfsson, sem sýnir
konstrúktif málverk unnin á sam-
limdan umbúðapappír. Þessir stóm
fletir vinna saman sem hefld ásamt því
rými sem þeir eru hengdir upp í, þykk
og rifin í köntum þrýstast þau út í rým-