Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1983, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1983, Side 15
DV. MIÐVIKUD AGUR 2. NOVEMBER1983; 15 Menning Menning Menning Menning Maarten van der Valk trommar litnum á léreftið i gerningi Jóns. STRAUSS MyndUstarmennirnir við verk eftir Kristín Harðarson. Frá vinstri: ingótfur, Daði, Helgi, ívar, Árni, Kristínn, Eggert, Jón og Tumi, og allir með bjór. Fri gerningi Kristíns. ið og hvolfast yfir áhorfandann mjög kraftmikil. Kristinn Harðarson teflir saman stórum málverkum og litlum teikningum sem mynda áreitna heild. Hann teflir saman tvíræðni, pólitík og einfaldri abstraktsjón. Verk Daða Guðbjömssonar standa hins vegar sem sjálfstæðar einingar hvert i sinu lagi. Hann sýnir fígúratif málverk, teikningar og skritna, litla skúlptúra sem eru að hluta til „ready made”. Daði sameinar „nýja ítalska mál- verkið” og „þýska expressionismann” á mjög persónulegan hátt. Helgi Þor- gils Friðjónsson sýnir málverk, teikn- ingar, grafík og skúlptúra. Verk hans standa einnig sem sjálfstæðar eining- ar. Þau em stílhrein og mjög lyrisk, oft erótísk. Helgi er undir sterkum áhrif- um frá „nýja ítalska málverkinu” og oft lfkt við málarana Clemente og Chia. Tumi Magnússon sýnir málverk unnin á pappir og striga, einföld og einlæg verk sem eru kannski eitthvað það persónulegasta á sýningunni. Steingrímur Eyfjörð sýnir annars veg- »ar fjölda teikninga sem þekja einn vegginn i anddyri sýningarsalarins og hins vegar sjálfstæð málverk. Teikn- ingar hans em eins og skissubók þar sem hrúgað er saman hugmyndum og heimspekilegum vangaveltum. Verk hans em á mörkum þess að vera fígúratíf og abstrakt Eggert Pétursson Nafnlaust verk eftír Daða. 1 V É B i 1 ■■ h 'JHLi ifv\ f' IIB- rt 1 ||y / rs li\\ .< Fri opnun. er með viðkvæm, fínleg verk sem hann raðar saman á vegg og mynda eina heild. Ingófur öm Arnarson sýnir „installasjón”, mörg lítil verk unnin í mismunandi efni og mynda saman eina heild. Ivar Valgarðsson sýnir steinsteypta gólfskúiptúra sem með formi og áferð vísa til náttúrunnar. Fimm myndlistarmenn sýna video- verk. Þeir em: Asta Olafsdóttir með fjögur verk, Guðrún Hrönn með eitt verk. Þór Elís Pálsson með fjögur verk, Guðjón Ketilsson með eitt verk og Magnús Guðlaugsson með eitt verk. Mánudaginn 17. október flutti Kristinn Haröarson geming sem hann kallaði „Chanting fragments”. Þetta verk er sambland af ljóði, „installasjón" og eins konar dansi. Jón Sigurpálsson flutti performans sinn „Quadrant” sem er verk fyrir trommuleikara, fimm myndfleti og pallettu. I tengslum við þessa sýningu var opnuö sýning á bókverkum frá meistara Kjarval fram á okkar daga. Það er eíginlega ekki hægt að telja Kjarval bookartista því hann var ailtaf a* skrifa sögur en hann skrifar þær ekki beint sem rithöfundur heldur sem myndlistarmaður. A þessari sýningu em um tvö hundruð verk og er hún nokkuð tæmandi heimild um þaö sem gert hefur verið á þessu sviði. Auk bók- verka eru hljóðverk á kassettum á sýn- ingunni og í Stedli jk safninu voru sýnd- ar íslenskar kvikmyndir eftir mynd- listarmennina Rúrí, Daða Guðbjöms- son, Eggert Einarsson, Einar Guðmundsson og OXMA. Harry Ruhé, sem rekur Galerie ’A’, er með sýningu á bókverkum eftir hollenska myndlist- armenn í tengslum við sýninguna i Ný- listasafninu. Hugmyndin með þessum bókverkasýningum er að hafa sýning- amar svolítið liflegar, margs lags hluti ígangi. I tengslum við Fodorsafnið er gefið út mánaðarblað sem heitir Fodor og vegna sýninganna er blaðið að þessu sinni bæði á islensku og hollensku og er sameiginleg sýningarskrá fyrir sýn- ingarnar í Fodorsafninu og í Nýlista- safninu. Tijman segir: ,,Athyglisverður þáttur i íslensku myndlistarlifi í dag er bókagerð, þvi þótti mér upplagt, til þess að gefa hugmynd um það sem er að gerast í listalífinu í Reykjavík, að gefa út i tengslum við sýninguna kassa meö einni bók eftir hvern hinna niu listamanna sem sýna. Þetta em tuttugu og fjögurra síðna bækur og gefn- ar út í tvö hundmð og fimmtíu eintök- um og heitir verkið „Thick Air” (Þykktloft). Athyglisvert er að bera islensku sýninguna í Fodorsafninu saman við sýningar hollenskra listamanna í galleríum borgarinnar því þó svo að allir íslensku myndlistarmennimir, sem sýna að þessu sinni séu, eða hafi verið, í námi i Hoilandi virðast þeir síst af öllu vera undir hollenskum áhrifum heldur miklu fremur þýskum, itöiskum og svissneskum, en þó alltaf með sterkum sérislenskum einkenn- um.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.