Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1983, Qupperneq 16
16 '
Spurningin
Velur þú (slenskt?
Bergþóra Jónsdóttir húsmóðlr: Já,
þaö geri ég, ef þaö passar mér, til aö|
styrkja iðnaðinn.
Gnðmundur Bang, starfsmaöur Raf-i
magnsveltu Reykjavíknr: Cg geri þaöj
ef íslenska varan er jafngóð og ekkij
dýrari. 'r
Bryndís Helgadóttir húsmóðir: Cg
geri þaö til að styrk ja íslenskan iönaö.
Gg held líka að varan sé oft jafngóð.
Soffía Guðmundsdóttlr húsmóðir: Gg
geri þaö. Er ekki sjálfsagt að styrkja!
íslenskan iðnaö? Margar íslenskuj
vörurnar eru líka betri.
Bjarni Gunnarsson gæslumaður: Eg
vel jöfnum höndum íslenskar og er-j
lendar vörur. Islenskar vörur eru
margar hver jar ódýrari.
Tómas Slgnrðsson vinnuvéiastjóri: J&,{
ef þaö er þess viröi, sem ég held aö það
séahnennt. \
DV. MIÐVIKUDAGUR 2. NOVEMBER1983.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Stóttarfólagið treystí vörubílstjóranum akki tíl að vinna fyrir sitt aigið
sveitarfólag. Hvað getur hann gert?
HVAD ER STETTAR-
FÉLAGIÐ AÐ GERA
FYRIRMG?
5077—6204 skrifar:
Hvað er stéttarfélag þitt aö gera.
fyrir þig? væri eðlilegt að margur
spyröi sig í dag þegar verkalýðs-
foringjarnir ætla aö fórna hagsmunum
umbjóöenda sinna á altari pólitiskra
valdabaráttu.
Cg vildi fá svar við þessari
spumingu í vor en fékk ekki. Þannig
var málum háttaö að Vörubílastöðin
Þróttur, sem ég er félagsmaöur i, tók
aö sér aö skipta þeim akstri sem Kópa-
vogsbær þurfti að fá hjá stöðinni og
skyldu bílstjórar búsettir í Kópavogi
ganga fyrir. Þar var veriö aö koma í
framkvæmd rúmlega ársgamalli sam-
þykkt bæjarstjómar Kópavogs.
En hvemig varö svo framkvæmdin ?
Henni væri helst aö líkja viö myndina
þar sem dýrin tóku völdin því að nú var
samið viö Kópavogsbæ um aö tveir bíl-
stjórar skyldu hafa forgang í tveggja
mánaöa fastri vinnu. Haft var sem
átylla að einn verkstjóri taldi þá rata
svo vel. Á þessu fékkst engin leiö-'
rétting þó fast væri eftir leitað bæði viö
formann og framkvæmdastjóra
félagsins. Hvort þaö er vegna þess aö
bílstjórarnir tveir eru í stjórn og
trúnaöarráði félagsins skal ósagt látiö.
En spumingin er, hvað getur félags-
maöur í stéttarfélagi gert til aö rétta
hlut sinn þegar stjórn hans eigin félags'
gengur svo freklega á hlut hans aö hún
samþykkir aö hann sé ekki hæfur til aö
vinnafyrirsitt sveitarfélag?
Afgreiðslutími verslana:
Hvað um viðskiptavinina?
3184-4917 hringdi:
Þegar fjallaö er um afgreiöslutíma
verslana finnst mér lítiö koma fram að
neytendur komi þar viö sögu. Þaö
viröist ekki reiknaö meö viðskiptavin-
unum.
Mér finnst furöulegt að nýi borgar-
stjórnarmeirihlutinn skuli fylgja
reglugerð þar sem einstaklingar geta
ekki ráöiö vinnutíma sínum. Cg er ný-
komin erlendis frá þar sem laugardag-
ur er mesti verslunardagurinn.
Starfsfólk verslana kvartar undan
of löngum vinnutima en þaö hlýtur aö
vera hægt að koma viö vaktaskiptingu.
Þetta er mikiö spursmál fyrir konur
sem vinna úti því fyrir þær er þetta
eilíft spretthlaup. Einnig skapast
aukin hætta í umferðinni þegar allir
Qykkjast í verslanir eftir kL 16.
Þetta er stórt vandamál sem þarf aö
ráða bót á.
Aðgát skal
höfð í nær-
veru sálar
Hundavinur skrlfar:
Þetta ætlar að enda meö ósköpum,
málið með hundana. Þaö er ráöist á þá
sem minnst mega sin og geta ekki
svarað fyrir sig. Þeir hundaeigendur
sem hafa lent í vandræðum með hund-
ana sína geta sjálfum sér um kennt.
Það er þeirra verk að sjá um að hund-
amir hagi sér vel og séu ekki öðrum til
trafala. Of ef eitthvað fer miöur eru
allir hundaeigendur dæmdir og hund-
amir líka. Þetta finnst mér og sjálf-
sagt öörum mjög illa gert.
Þaö væri óskandi aö þaö yrði tekið
jafnhart á öllum málum eins og þessu.
Til dæmis þeim sem teknir eru meö
fíkniefni í fórum sínum. Þeir eru settir
í gæsluvarðhald í stuttan tíma, síöan er
þeim sleppt. Og þeir halda uppteknum
hætti. Þaö er lika svipaö mál meö
þessa menn sem leita á böm. Ef þeir
nást eru þeir settir inn i nokkra daga.
Síöan mega þeir fara heim og þeir
halda líka uppteknum hætti. Af hverju
er þetta fólk ekki dæmt strax og látið
sæta sömu örlögum og hundaeigend-
ur? Þaö á að birta myndir af því í
blööunum.
Nei, það er ekki gert. Þaö liggur
greinilega meira á því aö losa Reykja-
vík viö alla hundana en að stöðva þetta
fólk, sem veldur miklu meiri skaöa en
nokkum tíma hundamir. Eg held að
hinir háu herrar ættu að taka sig til og
nota hæfileika sína á fleiri sviöum en
þessu.
Erlend verðbolga
tilsölu
Slgurður H. Ólafsson skrifar:
Er þaö réttlætanlegt aö íslenska
ríkiö taki tolla, vörugjald, pakka-
gjald, afgreiöslugjald og söluskatt
af óstjórn annarra þjóöa, en þar á ég
viö veröbólguna i þessum ríkj um?
Verðbólgu-óstjóm er ekki vara,
ekki heldur umbúðir, heldur mistök,
sem við veröum að greiða og sem
rikiö og aðrir seljendur selja síöan
almenningi meö verðbólguskatti þar
ofaná.
Hve margar milljónir fær ríkið í
sinn hlut af slikum mistakaskatti?
Og hve margar milljónir af þessum
aukaskatti fara í niðurgreiðslur og
alls konar veröbólguminnkandi (!)
greiöslur? Hvemig liti dæmiö út ef
innflutta varan væri 2/3 hlutar af
veröi reikningsins og 1/3 hluti verö-
bólguinnflutningur?
Að sjálfsögðu veröum við að
greiða erlendu veröbólguna en aö
taka tolla og önnur opinber gjöld og
álagningu af henni finnst mér frá-
leitt. Eg á svo sem von á þvi aö ein-
hverjir fari upp á háa C-ið því þessi
vitleysa (fyrirgefið, þvi það finnst
mér) skapar vinnu, sem kemur í staö
verðmætaskapandi vinnu, við aö
reikna út hvaö grelöa eigi, t.d. fyrir
hafnargjöld o.fL, o.fL Það er hreint
ekki svo litil vinna sem liggur í því að
útbúa, að loknum reikningi, auglýs-
ingar í Stjómartíðindum þar sem
þær taka upp rúmlega 60% lesefnis-
ins (1981).
Hvað ef næst verður hætt aöeltast
viö verðbólgukrónuna? Verður
kannski farið út í veröbólguvog,
veröbólgumetra, veröbólgulítra, eða
jafnvel veröbólgutímaeiningu
þannig aö kilóskalinn á voginni veröi
færður niður í 1/2 kíló og kallaður
nýkíló? Og á sama hátt verði farið
með lengdar- og mælieininguna? Já,
stórkostleg atvinnubótavinna.
En gaman væri að vera í sporum
stráksins, sem sagöi aö kóngur
„væri ekki í neinu”. En skolli væri
þaö leiðinlegt ef 25277 daga gamall
strákur væri svo fávís að sjá ekki aö
kóngurinn er í skrautklæöum meö
allar mögulegar orður á reigöu
brjósti.
Landsins
bestu pylsur
H.J. Akureyri skrifar:
Það er ekki oft sem fólk fær hól fyrir
vinnu sína en ef hlutimir em ekki nógu
vel gerðir, eða jafnvel misheppnaðir,
dynja skammimar yfir. Cg ætla ekki
aö skammast heldur senda mitt besta
hól fyrir mjög góöa þjónustu við
pylsuframreiðslu í Esso-nestinu við
Tryggvabraut. Að mínum dómi fást
þar landsins bestu pylsur og þar er
ekki sparaö neitt sem fylgir meö eins og
á sumum stööum þar sem maður þarf
aö leita aö lauknum meö stækkunar-
glerí og flísatöng.
Þegar ég hef veriö aö vinna hef ég
mjög oft skroppið í hádeginu í Esso-
nestið við Tryggvabraut til þess aö fá
mér pylsu og aö ég tali nú ekki um
ískalda Egils maltiö sem alltaf er eins
og tekið upp úr frystikistu. Gott og
svalandi og getur ekki veriö betra.
Eg skora á alla sem tök hafa á þvi
aö prófa þennan góöa hádegisverð sem
ég hef ekki ennþá fengið leiöa á, hef ág
þó boröaö hann meira og minna i eitt
ár. Eg vil hér meö þakka öllum sem
hlut eiga að máli fyrir mjög góöan há-
degisvcrö og vona að hann haldist
svona góður.