Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1983, Page 18
18
DV. MIÐVIKUDAGUR 2. NOVEMBER1983.
UMBOÐSMANN
VANTAR I NESKAUPSTAÐ
Upplýsingar hjá umboðsmanni DV í Nes-
kaupstað, Halldóru Ásmundsdóttur,
Hrafnsmýri 4, sími 97-7266 og afgreiðslu
DV, sími 27022.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta verður haldið á jörðinnl Fífustöðum í Ketildala-
hreppi, V-Barðastrandarsýslu ásamt öllum mannvirkjum eftlr kröfu
Landsbanka íslands og innheimtu rikissjóðs þriðjudaginn 8. nóvember
1983 kl. 15.00 á eigninni sjálfri.
Sýslumaðurinn í Barðastrandarsýslu.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta verður haldlð á B-V Sölva Bjarnarsyni BA 65 eftir
kröfu Fiskveiðasjóðs tslands mánudaginn 7. nóvember 1983 kl. 18.00 á
skrifstofu embættisins Aðalstræti 92 á Patreksfirði.
Sýslumaðurinn i Barðarstrandarsýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 54., 59. og 62. tölublaði Lögbirtingablaðs 1983 verður
haldið á M-B Sigurði Gunnlaugssyni KE-202, tal. eign Gunnbjörns
Ólafssonar eftir kröfu Fiskveiðasjóðs íslands mánudaginn 7.
nóvember 1983 kl. 17 á skrifstofu embættisins Aðalstræti 92 á Patreks-
firði.
Sýslumaðurinn i Barðastrandarsýslu.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á B-tröð 3, hesthúsi, við Víðidal, þingl. eign Ólafs
Magnússonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavik á
eigninni sjálfri föstudag 4. nóvember 1983 kl. 11.15.
Borgari ógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og siðasta á D-tröð 4, hesthúsi við Viðidal, þingl. eign Einars A.
Péturssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eign-
inni sjálfri föstudag 4. nóvember 1983 kl. 11.30.
Borgariógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 48., 53. og 56. tbl. Lögbirtingablaðs 1983 á hluta i Skip-
holti 19, þingi. eign Einars Eirikssonar o.fl., fer fram eftir kröfu
Guðjóns Á. Jónssonar hdl. á eigninni sjálfri föstudag 4. nóvember 1983
kl. 13.30.
Borgariógetaembættið í Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annað og siðasta á hluta í Hraunbæ 126, þingl. eign Egils Þ. Einars-
sonar, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbankans á eigninni sjálfri
föstudag 4. nóvember 1983 kl. 10.30.
Borgariógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu skiptaréttar Reykjavíkur o.fl. fer fram opinbert uppboð í
uppboðssal tollstjórans í Reykjavík við Tryggvagötu (hafnarmegin)
laugardaginn 5. nóvember 1983 og hefst það kl. 13.30.
Selt verður mikið magn af allskonar verslunarvörum úr þrotabúi
Vöruhússins Magasín sf., svo og innanhússkailkerfi, þjófavamarkerfi,
hljómflutningstæki, ýmis skrifstof uáhöld o.fl. Þá verða seld ca 700 stk.
hljómpiötur, islenskar og eriendar, ca 500 stk. plaköt, magnari og
plötuspilari, ailt úr þrotabúi hljómpiötuverslunar. Ennfremur ýmsir
húsmunir og margt fleira.
Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki
uppboðshaldara eða gjaldkera.
Greiðsla við hamarshögg.
Uppboðshaldarinn í Reykjavik.
Menning Menning Menning
Tónlist
Eyjólfur Melsted
Janos Starker.
Stórmeistari
cellósins
Tónlistarfólagið f Reykjavtk. Tónleikar Janos
Starker cellóleikara f Austurbœjarbfói 29.
október.
Efnisskrá: Johann Sebastian Bach: Svfta f d-
moli nr. 2, BWV 1008; Gaspar Cassado:
Einleikssvfta; Zoltán Kodaly: Sónata fyrir
einloikscelló.
Fáir cellóleikarar munu meir
umtalaöir en Janos Starker. Kemur
það ekki sist til af því aö hann hefur
verið iðinn við að leika inn á hljóm-
plötur, svo að hann er að segja má
gamall og vel þekktur gestur inni á
hverju músíkheimili. Og það verður
ekki af þvi skafið, aö frábærar eru
plötur hans jafnan.
Á námsárum minum átti ég þess
eitt sinn kost að hlýða á leik þessa
stórmeistara cellósins og verð að
segja eins og er, að þá varð ég fyrir
vonbrigðum, því maðurinn sem lék
svo stórkostlega á hljómplötum var
ekki hinn sami á hljómleikum. Þetta
atvik kenndi mér hversu hættulegt
það er aö einblína á listamenn, ekki
sist þá frægustu og bestu, eins og þeir
koma fyrir á hljómplötunni. Full-
yrða má að hinir slyngu perfektion-
istar i stöðum útgáfustjóra hjá plötu-
fyrirtækjunum hafi unnið lifandi list-
flutningi mikiö ógagn. A plötunni er
mannlegi þátturinn nærri útilokaður
þar eð mistök eru einfaldlega klippt
út og stubbi með fullkomnum leik
skeytt inn í staðinn. Auk þess má
vera að manni hafi ekki alltaf þótt
mikiö til stórkallanna koma þegar
það var sjálfsagður hlutur að geta
valið á milli stómafna kvöld eftir
kvöld.
En hvemig lék svo Starker, stór-
meistari cellósins, í Austurbæjar-
bíói? — Jú, eins og sönnum stór-
meistara sæmir. Bach þótti mér
hann aö vísu leika heldur þurrlega og
man ekki til að hafa heyrt cellista
fyrr sem brúkaöi dempara megnið af
Annarri svítunnL En hver hefur shm
hátt á. Einleikssvíta Gaspars Cassa-
dos naut sín aftur á móti einkar vel í
leik Starkers. Jafnköldum spilara og
honum henta einmitt slik stykki, sem
svíta hins kastilíska cellista og tón-,
skálds. Stykki sem manni finnst
fremur skoriö út í alabastur en ritað
á nótnapappir. Og að lokum einleiks-
sónata Kodálys, líkt og klæðskera-
saumuð handa manni eins og
Starker. Verk þar sem krafist er
hinnar öguðu tæknilegu fullkomn-
unar, en þar sem músíkalskur
unaður flýtur samt ofan á hinu tækni-
lega kraðaki. Enda skilaði Janos
Starker þvi til áheyrenda eins og
honum einum er lagið. Ekki þarf að
heyra nema einn tón frá þessum sér-
stæða stórmeistara cellósins til að
kenna hver þar er á ferð.
-EM.
FYLGT EFTIR
Tónlaikar Nýju strengjasvoitarinnar I Bústaða-
kirkju 30. október.
Konsertmeistari: Michael Shelton.
Einleikari: Laufey Sigurðardóttir.
Efnisskrá: Joseph Haydn: Sinfónfur nr. 1 í D-
dúr og nr. 51 í B-dúr; Pietro Nardini: Fiðiukon-
sert í e-moll; Carl Philipp Emanuel Bach:
Sinfónía fyrir strengi nr. 3 í C-dúr.
Fyrir réttum tveimur mánuðum
lék Nýja strengjasveitin sína fjrstu
tónleika á starfsárinu, stútfyllt af
músíkölsku vítamíni sem Maestro
Vlach hafði gefið henni. Sú upp-
sveifia sem þessi skemmtilega, iitla
hljómsveit var þá í varir enn. Hún
lék þá, undir stjóm Vlachs, eins og
eitt samstætt hljóðfæri. Það gerði
hún líka nú leidd hðeins af konsert-
meistara sinum, rétt eins og góðri
strengjasveit sæmir. Aðall þessarar
hljómsveitar er nú, sem áður, hvað
hún spilar vel. Um stil og túlkun má
svo hins vegar þrátta. Þannig fannst
mér hún fara fullgeyst í Fyrstu
Haydn. En leikurinn var frískur —
virkilega brilliant. Og endalaust má
velta fyrir sér hvort leyfa beri við
Haydnflutning að viðhafa bogatækni
sem ekki var til þegar gamli maður-
inn var að skálda sína sinfóni. En lát-
um það liggja milli hluta. Hverjum
og einum leyfist að hafa sína skoðun
á þvi hvernig leika eigi og sé vel
spilað skiptir skilningurinn ekki allt-
af höfuðmáli.
Sérstæður stfll
Laufey spilaöi Nardini konsertinn
af nærfærni og afar látlaust. Þannig
nýtur hann sín afar vel. I leik Lauf-
eyjar er að finna blíöan söng, sem
Tónlist
EyjólfurMelsted
fáum músíköntum er gefinn. Tón-
myndun hennar er mjög persónuleg
og sérstök (sumir myndu segja ekki
kórrétt) og hún hefur einhvern sér-
stæðasta stíl ungra fiölara hérlendis
í dag. Það hefur tekið hana tima aö
finna sig í stil sinum og i fyrsta sinn
heyrði ég Laufeyju spila eins og hún
væri fullkomlega sátt við sinn eigin leik.
„Horn concertante"
Strengjasinfónía Caris Philipps
leið átakaiaust í gegn, hugljúft verk
sem endar — ja, það er svona rétt
eins og botninn detti úr henni. En
lokaverkið, Sinfónía nr. 51 eftir Papa
Haydn, var rúsínan í pylsuendanum.
Og þar fengu gestaspilaramir, blás-
ararnir, vissulega að hafa fýrir
hlutunum. Hom „concertante” er
síður en svo nýtt fyrirbrigöi hjá
Haydn í þessari sinfóniu. Hann var
áður, bæði í sinfóníum númeruðum
22 og 31, búinn að rita mikla homa-
bálka. En hér notar hann hornið frá
toppi til táar, ef svo má að orði kom-
ast, því tónsviö homsins er notað frá
hinum hæstu tónum ofan í pedaltóna.
Og til hornleikaranna em ekki
gerðar neinar smáræðis kröfur.
Hinir frábæru homleikarar, Joseph
(.Suonabene”), Ognibene og Hean
Hamilton, gerðu hinum erfiðu hlut-
verkum hin bestu skil. En í rauninni
skám þau sig alis ekki úr þótt þau
lékju svo vei, því það gerðu allir
hinir h'ka. Nýja strengjasveitin hefur
vissulega fylgt eftir þeim góða
árangri sem hún var búin að ná með
fyrstu tónleikum haustsins fyrir
tveimur mánuöum.
-EM.
KÆRU BJARNFRÍÐAR HAFNAÐ
á miðstjórnarfundi ASÍ
Kæra Bjarnfríðar Leósdóttur, vegna
kosningar í sambandsstjóm Verka-
mannasambands Islands, var tekin
fyrir á fundi miðstjómar Alþýðu-
sambands Islands á fimmtudag.
Samkvæmt heimildum DV var kær-
unni hafnað.
Þetta mál kom sem kunnugt er upp á
þingi VMSI sem haldiö var í Vest-
mannaeyjum nýverið. Þegar kosning
til sambandsstjómar og talning at-
kvæða hafði farið fram kom i ljós að
nokkur atkvæði voru eftir ótalin.
Bjarnfríður, sem féll út úr stjórninni í
kosningunni, taldi hana ólögmæta og
kærði til miðstjórnar ASI.
Kæran var, sem áður sagði, tekin
fyrir á fimmtudag. Var það niðurstaða
miðstjórnar að hún staðfesti það álit
lögfræðings ASI að úrslit síöari
kosninganna væru endanleg úrsht. Var
kæm Bjarnfríðar þar með hafnað.
-JSS