Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1983, Side 30
30
DV. MIÐVIKUDAGUR 2. NOVEMBER1983.
Nýjar bækur
Nýjar bækur
Nýjar bækur
Ein hinna fjölmörgu teikninga i bókirmi:
Bœndur i Borgarfiröi hálshöggva Gunnlaug
sýslumann Magnússon árið 1400.
íslenskir annálar
1400 til 1449
eftir Anders Hansen
Ný bók frá Bókaklúbbi
Arnar og örlygs:
íslenskir annálar 1400 til 1449 nefnist
nýútkomin bók sem Bókaklúbbur
Arnar og örlygs hefur gefiö út. Höf-
undur er Anders Hansen blaðamaöur
en auk ritaös máls eru í bókinni tals-
vert á annaö hundrað teikningar sem
Haukur Halldórsson myndlistarmaöur
hefur gert sérstaklega fyrir þetta
verk. Bókin er fyrsta bindi ritsafns,
sem spanna mun tímabilið frá 1400
fram til 1800 eöa lengur. Islenskir
annálar 1400 til 1449 er á þriöja hundr-
aö blaðsíöur aö stærö í stóru broti. Bók-
in veröur ekki til sölu á almennum
markaöi heldur eingöngu innan Bóka-
klúbbsins.
I kynningu útgefanda á hinni nýju
bók segir svo meöal annars:
„I ritsafninu „Islenskir annálar”
veröa atburöir Islandssögunnar raktir
liö fyrir liö frá ári til árs. I þessu fyrsta
bindi, sem nú kemur út, er tekið fyrir
tímabilið 1400 til 1449, sem tvímæla-
laust má telja eitt merkilegasta tíma-
bil Islandssögunnar, þótt 15. öldinni
hafi til þessa verið gerö tiltölulega lítil
skil. Á fyrri hluta 15. aldar gerðist þaö
til dæmis, aö Svartidauði gekk yfir
landiö, og lagði tugþúsundir lands-
Við elda
Indlands
Ferðasaga
Sigurðar A. Magnússonar
Hjá Máli og menningu er komin út í
2. útgáfu feröasaga Sigurðar A.
Magnússonar frá Indlandi: Viö elda
Indlands. Hún kom fyrst út áriö 1962 en
hefur lengi verið ófáanleg.
Sigurður A. Magnússon ferðaöist
áriö 1960 um rúmlega þriggja mánaöa
skeið um Indland og kynnti sér land og
þjóö, siöi, trúarbrögö, menningu og
daglegt líf. I bókinni bregður hann upp
persónulegum og ljóslifandi myndum
af því sem hann uppliföi og leitast viö
aö skilja og greina það sem mætti
honum í þessu fjarlæga og framandi
landi.
Margar myndir eru í þessari nýju út-
gáfu sem ekki voru í hinni fyrri, og aft-
ast er greinargott kort af Indlandi þar
sem helstu staöir og áfangar á ferö höf-
undar eru merktir inn.
Bókin er 295 bls. og unnin að öllu leyti
í Prentsmiðjunni Odda hf.
Andara Hansan
blaðamaður.
manna í gröfina. Á þessum tíma gerö-
ist þaö aö Englendingar hef ja siglingar
hingað til lands í stórum stíl, bæöi til
verslunar og fiskveiða. Margir fræöi-
menn hafa nefnt tímabilið „Ensku
öldina” af þessum sökum, og víst er aö
á þessum tíma voru áhrif Englendinga
hér síst minni en áhrif Dana og Norö-
manna. Fimmtánda öldin er einnig öld
margra glæstustu höföingja landsins,
svo sem Arna milda Olafssonar hirö-
stjóra og biskups í Skálholti, Bjöms
Jórsalafara og Lofts ríka Guttorms-
sonar á Mööruvöllum.
Á fyrri hluta 15. aldar gerðist þaö
einnig aö Islendingar fóru að Jóni
Gerrekssyni biskupi í Skálholti og
drekktu honum í Brúará. Á þessum
tíma gerist það aö Islendingar fara í
síðustu ferö til Grænlands, sem vitað
er um á miööldum, og er í bókinni
mikil og merk saga af þeirri ferð. Enn
má nefna að á þessum tíma gekk bólu-
sótt hér á iandi, og er talið aö átta
þúsund manns hafi látist af hennar
völdum. Margar kynjafrásagnir eru í
bókinni, þar sem landsmenn sáu sér-
kennileg teikn á lofti, sjóskrímsli rak á
land, menn voru taldir skilja hrafna-
mál, maöur lá úti sem dauöur væri í
þrjú ár, en reis síðan upp alheill, og svo
mætti áfram telja. I bókinni er gerð
grein fyrir helstu höfðingjum tímabils-
ins, sérstök ritgerö er um alla biskupa
á Hólum og í Skálholti, og sagt er frá
áhrifamestu ættum þessa tímabils, svo
aöeins sé rakið örlítið brot þess sem í
bókinni er aö finna.”
Allskonar
góðgæti
Útgefandi er Setberg
Ný matreiöslubók, Allskonar góö-
gæti, er komin út hjá bókaútgáfunni
Setbergi.
- Þetta er þriöja bókin sem sænski
matreiðslumeistarinn Agnete Lampe
og Guörún Hrönn Hilmarsdóttir
húsmæðrakennari sendáfrá sér. Hinar
tvær voru: Nú bökum viö og Áttu von á
gestum?
I þessari nýju bók er allskonar góö-
gæti: grísakótelettur með rjómavíns-
sósu, kjúklingapottur, fylltur fiskbúö-
ingur, veisluís frá Sikiley, smálúöuflök
meö krabbafyllingu, nautasteik með
smjörsteiktum kartöflum, steiktur lax
í hvítvínssósu, fín fiskisúpa, ekta
vínarsnitsel, paj meö skinku og blaö-
lauk, hamborgarhryggur í portvíns-
hlaupi, innbakaöur grafiax og margs-
konar annaö góögæti.
Mörg hundruð litmyndir sýna réttina
og handtökin viö gerö þeirra.
Heimur
framliðinna
43 ára miðilsþjónusta
Bjargar S. Ólafsdóttur
Arnesútgáfan hefur sent frá sér bók
um dulræna hæfileika Bjargar S.
Olafsdóttur og miöilsstarf í 43 ár. En
um hana hefur fátt eitt verið ritaö
áöur. Bókin er samin og skrásett af
Guömundi Kristinssyni og er hún í sjö
köflum.
I fýrsta kaflanum, sem ber heitiö
,,Sex landa sýn”, eru 20 frásagnir af
skyggni Bjargar og dulheym í
skemmtiferð meö dönsku ferðaskrif-
stofunni Tjæreborg um sex Evrópu-
löndsumarið 1976.
Þá er sagt frá uppvexti hennar á
Þingeyri við Dýrafjörð og miöilsþjálf-
un hennar hjá Guörúnu Guðmunds-
dóttur frá Berjanesi. Lýst er tilhögim
fundanna og gerð grein fyrir
stjómendum hennar aö handan og
sambandi hennar viö þá.
Þá er kafli, sem heitir ,,Sýnir viö
dánarbeö”. Þar eru sex frásagnir af
sýnum Bjargar og dulheym við dánar-
beö og brottför af þessum heimi.
Síöustu f jórir kaflamir em byggöir á
14 miðilsfundum, sem Björg hélt á Sel-
fossi sumariö 1980 og 1981. Þar koma
fram þrír þjóökunnir menn, löngu
látnir, ásamt aðalstjómanda hennar
og veita svör viö því hver örlög
mönnum eru búin við líkamsdauðann,
hvaö við taki og lýsa hinum nýju heim-
kynnum.
Bókin er 236 blaðsíður aö stærð og
var prentuð í Prentsmiöju Suðurlands
en káputeikningu gerði Gisli Sgurös-
son.
.SN0NINGURINN
Snúningurinn
Ijóðabók eftir Kristin
Sæmundsson
Ut er komin ljóöabók eftir Kristin
Sæmundsson, 17 ára Reykvíking, og
heitir bókin Snúningurinn. Er þaö
fyrsta bók höfundar sem gefur bókina
út sjálfur. Með þessari bók vill höf-
undur benda lesendum á þaö aö veru-
leikinn býöur upp á fleiri möguleika en
viðist í fyrstu.
I bókinni er Fimmfalt lík frá Medúsu
en aörar teikningar eru eftir Bessa
Jónsson. Bókin er 44 síður að stærð,
gefin út í 200 eintökum og kostar 200
krónur eintakiö. Bókina má kaupa í
bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar
og bókaverslun Máls og menningar, en
einnig selur höfundur sjálfur bókina.
Ljóð
fyrir lífi
Ljóö fyrir lífi heitir ljóöabók sem
ungt skáld, Berglind Gunnarsdóttir,
hefur nýgefiö út. Ljóöunum er kafla-
skipt: Skilnaöarljóö, Ur lögbók mann-
anna, Tilbrigði, Til hinna dánu og Eitt
þýtt ljóö. Ljóöabók Berglindar fæst í
bókabúöunum: Eymundsson, Máli og
menningu og Bóksölu stúdenta og
kostar 150 krónur. Áöur hafa birst ljóö
eftir Berglindi í tímaritum en þetta er
hennar fyrsta ljóðabók. Forsíðumynd-
in er eftir Megas. Letur f jölritaöi.
Gullkorn
Ut er komin bók er inniheldur 12 af
vinsælustu lögum Magnúsar Eiríks-
sonar í léttum útsetningum fyrir
hljómboröshljóöfæri ásamt gítar-
hljómum. Lögin eru: Draumaprinsinn,
Einbúinn, Einhvers staöar, einhvem-
tíma. . . Gamli, góöi vinur, Hvaö um
mig og þíg?, O, þú, Reyndu aftur,
Róninn, Sigling, Sölvi Helgason, Vals
númer 1 og Þorparinn. Þaö er útgáfu-
fyrirtækiö Isalög sf. er gef ur bókina út.
GULLKO
Í2 ofvlHtahMu fðgum
Magntisar Eiríkssvnar
i Itman úiiriningum
Undraheimur
Indíalanda
eftir Kjartan Ólafsson
Setberg hefur gefiö út nýja ferðabók
eftir Kjartan Olafsson hagfræöing.
Hún heitir Undraheimur Indíalanda —
ferðaþættir frá Indlandi Gandhis.
Kjartan er löngu kunnur sem þýöandi
og rithöfundur. Hann sneri til dæmis
hinni stórfenglegu sjálfsævisögu
Maxims Gorkis beint úr rússnesku á
íslensku og hann hefur meöal annars
ritað tvær feröasögur, Sól í fullu suðri
og Eldóradó, sem hlutu lof gagnrýn-
enda. Báöar bækurnar eru löngu
uppseldar.
Auk þess að vera hagfræðingur aö
mennt hefur Kjartan lagt stund á
helstu tungur heims og aörar fleiri svo
sem urdu í Pakistan og afríkaans í
Suður-Afríku. Kjartan hefur dvalist í
öllum álfum heims og telst aö öllum
líkindum víöförlastur Islendinga. Til
dæmis heimsótti hann öll lönd
Rómönsku Ameríku, yfir 20 að tölu,
þrátt fyrir byltingar í tveimur þeirra.
Þá mun Kjartan vera einn þeirra fáu
Islendinga er ferðast hafa um Síberíu.
I þessari nýju bók, Undraheimi
Indíalanda, segir Kjartan frá ferö
sinni um Indland, meðal annars
Kasmír. Ennfremur heimsækir hann
Amritsar, höfuöborg hinna herskáu
Sikha, lýsir gullnum hofum og heilög-
um musterum. Hann greinir frá hinu
einkennilega samfélagi Parsa í
Bombay. Kjartan lagði leiö sína á
helstu sögustaði búddisma. Hann fór
til Banares, hinnar helgu borgar
hindúa. Þar hitti hann Frakka er haföi
yfirgefið ættland og fjölskyldu og sest
þar að hjá heilagri konu, „Hinni
blessuðu móður”, knúinn slíkum ofur-
mætti sem stafar af persónu hennar.
Þá segir höfundur frá Kasmir og
langur kafli er um Gandhi, frelsishetju
Indverja.
Uppi í Himalayja dvaldist Kjartan
hjá Miru Behn, alúðarvinkonu
Gandhis, en hún er ein af helstu
persónum í hinni víöfrægu kvikmynd
Richards Attenboroughs um Mahatma
Gandhi.
Undraheimur Indialanda er 200
blaösíður í stóru broti en auk þess eru í
bókinni nærri 60 ljósmyndir.
Á vina f undi
eftir Guðmund Daníelsson
Komin er út bókin Á vina fundi eftir
Guömund Daníelsson og eru þetta
sautján samtöl viö fólk úr öllum lands-
hlutum, þótt flest sé af Suöurlandi.
Heiti kafla og frásegjenda: Björn
Guömundsson: Síöasti bóndi á
Rauðnefsstöðum. Vigdís Magnúsdótt-
ir: Eg hef lifaö 99 jólanætur. Gissur
Ævarr Jónsson: Austan viö mána og
sunnan við sól. Jón Þorkelsson
smiöur: Ur smádölum í smjördali. Jón
Vídalín, Sólveigarstööum: Utan af hafi
— undir gler. Jón Ingvarsson, Skipum:
Okkur skortir mest ættjarðarást. Rut í
Sólvangi: Kona frá Tíról. Séra Stefán
Lárusson í Odda: Krókótt leiö. Markús
Einarsson, forstjóri á Litla-Hrauni:
Meöal frjálsra manna og fanga.
Andrés Jónsson, bóndi og verka-
maöur: Sjá roöann í austri. Kristín
Jónsdóttir frá Gemlufalli: Kona aö
vestan. Haraldur Jónson í Miðey: Viö
vötnin ströng. Olafur Jónsson, Eystra-
Geldingaholti: Horft um öxl. Krist-
mann Guðmundsson skáld: Gaman að
heyra hvurnig fer. Björn Guðmunds-
son, Sleöbrjótsseli: Bóndi fyrir austan.
Anna Margrét og Friðrik Pétursson:
Þau létu gömlu nöfnin fyrir nýtt fóstur-
land. Jónas Magnússon verkstjóri og
bóndi í Stardal: Vertíö í Þorlákshöfn
1916.
Á vina fundi er 202 blaðsíður. Prent-
berg h.f. prentaði en útgefandi er Set-
berg.