Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1983, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1983, Blaðsíða 32
32 DV "MIÐVIKUDAGUR 2: NOVEMBER’1983:'1 Andlát Árni Jónasson húsasmíðameistari, Granaskjóli 40, lést í Borgarspítalan- um 30. október. Davíð Guðmundur Bjarnason fram- kvæmdastjóri, Einarsnesi 20 Reykjavík, lést að kvöldi sunnudagsins 30. októberíLandakotsspítala. Ingibjörg Daðadóttir, Vallargerði 30 Kópavogi, verður jarðsungin frá Foss- vogskirkju fimmtudaginn 3. nóvember kl. 10.30. Bálför Málfríðar Einarsdóttur, Rauöa- læk 14, verður gerð frá Dómkirkjunni föstudaginn 4. nóvember kl. 13.30. Sigþrúður Guðjónsdóttir Andreasen, Lyngbrekku 3 Kópavogi, sem andaðist 26. október sl. veröur jarðsungin frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 3. nóvember kl. 15.00. Benedikt Jóhannesson, Saurum, sem lést 25. október verður jarðsunginn föstudaginn 4. nóvember ki. 14.00.Athöfnin fer fram í Félagsheimil- inu Dalabúö. Jarösett verður í Hjarðarholtskirkjugarði. Ferð verður frá BSI kl. 8 sama dag. Leifur Grímsson, Áflheimum 13, fyrr- um bóndi að Galtarvík, verður jarösunginn frá Langhoitskirkju; fimmtudaginn 3. nóvember ki. 13.30. Þórarinn J. Björnsson, Hrafnistu Hafnarfirði, verður jarösunginn frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 3. nóvember kl. 13.30. Minningarathöfn um Albert Valgeirsson frá Bæ Arneshreppi fer fram í Háteigskirkju föstudaginn 4. nóvember kl. 10.30. Jarðsett verður frá Ámeskirkju iaugardaginn 5. nóvem- berkl. 14.00. Bjami Jónsson beykir, áður að Hátúni 3, lést að Hrafnistu 28. október. Hann var fæddur aö Selkoti í Þingvallasveit 12/101890. Fundir Kvenfélag Fríkirkjunnar í Reykjavík heldur fund að Hallveigarstöðum fimmtudag- inn 3. nóvember kl. 20.30. Basar félagsins verður laugardaginn 12. nóvember. Kvenfélag Hallgrímskirkju Fundur verður í safnaðarheimili kirkjunnar fimmtudaginn 3. nóvember kl. 20.30. Á dagskrá verður ferðasöguþáttur, litskyggnur og kaffi og að lokum vetrarhugvekja. Mætið vel og stundvíslega. Fræðslufundur Fyrsti fræðslufundur Fuglaverndarfélags Is- lands verður haldinn í Norræna húsinu fimmtudaginn 3. nóv. kl. 20.30. Jón Guðmundsson líffræðingur flytur erindi með litskyggnum sem hann nefnir: Æðarfugl, h'fshættir hans og nytjar. öllum heimill aögangur. Stjórnin Samtök gegn asma og ofnæmi Félagsfundur verður haldinn laugardaginn 5. nóvember að Norðurbrún 1 kl. 14.00. Gestir fundarins verða læknamir Davíð Gíslason og Vilhjálmur Rafnsson. Kaffiveitingar og félagsvist, fjölmennið og takið með ykkur gesti. Basarar Kvenfélag Kópavogs Félagskonur, tekið verður á móti basarmunum í félagsheimilinu föstudags- kvöldið 4. nóv. frá kl. 20—22, laugardaginn 5. nóv. kl. 14—17 og að Hamraborg I sunnudaginn 6. nóv. kl. 10—12. Basar, basar Basar til eflingar kirkjubyggingarsjóði Langholtskirkju verður haldinn laugardag- inn 5. nóvember kl. 14.00 í Safnaðarheimil- inu. tJrval handunninna jólagjafa, heima- bakaðar kökur og happdrætti. Móttaka á munum og kökum föstudaginn 4. nóv. kl. 14.00 til 22.00 og laugardaginn 5. nóv. kl. 10.00 til 12.00. Kvenfélag Langholtssóknar. Húsmæðrafólag Reykjavíkur heldur basar og flóamarkað að Hallveigar- stöðum sunnudaginn 6. nóvember kl. 14.00. Félagskonur og aðrir vinir sem ætla að gefa muni á basarinn eru beðnir að hafa samband við Rögnu, sími 81759, Steinunni, sími 84280 og Sigríði.sími 23630. Kvenfélagið Hringurinn Basarmunir, sem verða á væntanlegum basar kvenfélagsins, verða hafðir til sýnLs nú um þessa helgi í verslunarglugga Gráfelds á horni Bankastrætis og Þingholtsstrætis. Basarínn verður síðan haldinn þann 5. nóvem- ber nk. kl. 14.00 í Vörðuskóla við Barónsstíg. Verkakvennafélagið Framsókn heldur sinn árlega basar laugardaginn 19. nóvember kl. 14 að Hallveigarstöðum. Tekið á móti munum á skrifstofu félagsins að Hverfis- götu8—10. Basamefndin. Átthagasamtök Héraðsmanna verða með basar í Blómavali laugardaginn 5. nóvember. Velunnarar eru beðnir að koma með kökur og muni eftir ki. 9 i Blómaval. Húsmæðrafélag Reykjavíkur heldur basar og flóamarkað að Hallveigar- stöðum sunnudaginn 13. nóvember kl. 14. Félagskonur og aðrir vinir sem ætla að gefa muni á basarinn eru beðnir að hafa samband við Rögnu í síma 81759, Ste biunni, síma 84280 ogSigríði , síma 23630. Tónleikar Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar íslands Næstu tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Islands sem eru hinir þriðju á þessu starfsári verða í Háskólabíói á morgun, fimmtudag, og hefjast eins og vant er kl. 20.30. Efnisskrá tónleik- anna verður sem hér segir: J.Ch. Bach: Sinfónía í D-dúr A. Vivaldi: Fagottkonsert Atli Heimir Sveinsson: Fagottkonsert (frumfl. á Islandi) M. Ravel: Rapsodie Espangnole Stjómandi á þessum tónleikum er aðal- stjómandi hljómsveitarinnar, Jean-Pierre Jacquillat. Hann hefur verið aðalstjómandi hljómsveitarinnar sl. 3 ár og er óþarfi að kynna hann nánar íslenskum tónleikagestum. Einleikari kvöldsins, Per Hannisdal, er ungur norskur listamaður, fæddur í Björgvin 1958. Hann nam fagottleik í Osló hjá Amulf Brache og Torleiv Nedberg og síðan í Genf hjá Roger Birnstingl. Síðan 1978 hefur hann verið fyrsti fagottleikari í Fílharmoníuhljóm- sveitinni í Osló. Hann hefur komið fram sem einleikari með fremstu hljómsveitum í Noregi og Danmörku og einnig tekið mikinn þátt í flutningi kammertónlistar. Þegar „Trobar clus” fagottkonsert Atla Heimis Sveinssonar, var frumfluttur í Osló í fyrra fór Per Hannisdal með einleikshlutverkið og þótti skila þvi vandasama viðfangsefni með mikl- um glæsibrag. Islenska hljómsveitin Stjórn Islensku hljómsveitarinnar hefur ákveðið að hefja vetrarstarfið, þótt enn sé ekki ljóst hvort hljómsveitin hlýtur þann stuðning sem þarf. Er þetta gert í trausti á velvilja ríkisvaldsins enda hafa öll viðbrögð og undirtektir tónlistarunnenda veriö á þann veg að ástæða er að halda starfinu áfram. Enn er unnt að fá áskrift að tónleikum vetrarins og á það skal sérstaklega bent að engir miðar verða seldir í lausasölu. Þá er áskrifendum bent á, að sækja áskriftar- skírteini á skrifstofu hljómsveitarinnar að Fríkirkjuvegi 11. Fyrstu tónleikar vetrarins verða fimmtudaginn 10. nóvember í Neskirkju kl. 20.30. Hallgrímskirkja Áður auglýstur tónlistarflutningur við nátt- söng kl. 22 í kvöld (miðvikudag) fellur niður vegna veikinda. Náttsöngur verður þó sungin aðvenju. íþróttir Unglingamót Ægis Unglingamót Ægis verður haldið í Sundhöll Reykjavíkur 6. nóv. 1983. 1. grein 200 m skriðsund stúlkna. 2. gr. 100 m flugsund pilta. 3. gr. 100 m bringusund telpna. 4. gr. 100 m bringusund drengja. 5. gr. 50mskriðsundsveina. 6. gr. 50mskriðsundmeyja. 7 . 200 m bringusund stúlkna. 8. lOOmskriðsundpilta. 9. 100 m baksund telpna. 10. gr4X5mfjórsundpilta. 11. gr. 4x50 m fjórsund stúlkna. Þátttökutilkynningar berist föstudaginn 4. nóvember til Kristins Kolbeinssonar, Grana- skjóli 1, sími 10963 eða Gunnars Guðmunds- sonar, Lindarbraut 5, sími 18134. Þátttöku- gjald verður kr. 30 á grein og kr. 60 fyrir boðsund. Mótið hefst kl. 15.00 sunnudaginn 6. nóvember og upphitun hefst kl. 14.00. Dómaranámskeið f körfu Dómaranámskeið í körfuknattleik verða haldin í Reykjavík og Keflavik sem hér segir: I Keflavík laugardaginn 5. og sunnudag- inn 6. nóvember nk. I Reykjavík sunnudaginn 6. og mánu- daginn 7. nóvember nk. Þátttökutilkynningar þurfa aö hafa borist skrifstofu KKl í síðasta lagi fimmtudaginn 3. nóvember nk. Þátttökugjald er kr. 200,- fyrir manninn. Skrifstofan er opin sem hér segir: Mánudaga kl. 15—18, Þriðjudaga kl. 10—12, miðvikudaga kl. 10—12, fimmtudaga kl. 15— 18, föstudaga kl. 10—12. Firmakeppni KKÍ Þátttökutilkynningar í firmakeppni KKl, þurfa að hafa borist skrifstofu KKI eigi síðar en 1. desember nk. Þátttökutilkynning er ekki tekin til greina nema henni fylgi þátttokugjald kr. 1300,-. Ferðalög Útivistarferðir Helgarferö 4.—6. nóv. Snæfellsnes. Brottför föstud. kl. 20. Á slóðum Bárðar Snæfellsáss (haustblót). Gamlar þjóð- leiðir. Búðarklettur, Einarslón, völundarhús- ið o.m.fl. skemmtilegt. Kjötsúpuveisla og kvöldvaka. Gist í félagsheimilinu Lýsuhóli (heitur pottur og sundlaug). Árleg ferð sem enginn ætti að missa af. Bókanir á skrifst. Lækjarg. 6a s. 14606. Sunnudagur 6. nóv. kl. 13., Hellisheiðl-Draugatjörn. Gengið með vörðum um gömlu þjóðleiðina að Hellukofanum og Draugatjörn. Ferð fyrir alla. Reykjafells- ganga ef vill. Verð. 250 kr., frítt f. börn m. full- orðnum. Brottför frá bensínsölu BSI. Uppl i síma (símsvari) 14606. Sjáumst. Otivist. Spilakvöld Óháði söfnuðurinn Félagsvist í Kirkjubæ nk. fimmtudagskvöld kl. 20.30, góð verðlaun — kaffiveitingar. Takið með ykkur gesti. Kvenfélagið. Happdrætti Happdrætti Félags einstæðra foreldra Dregið hefur verið í happdrætti Félags einstæðra foreldra, og hlutu eftirtalin númer vinning: 2829, 4248, 2622, 60, 3842, 3112, 4287, 4398, 4078, 3598, 924, 4190, 1245, 2802, 929, 1940, 1872, 3538,1567,1204. Siglingar Akraborgin siglir nú fjórar ferðir daglega á milli Akra- ness og Reykjavíkur en að auki er farin kvöldferðásunnudögum. Skipiðsiglir: FráAk. FráRvík: Kl. 08.30 Kl. 10.00 Kl. 11.30 Kl. 13.00 Kl. 14.30 Kl. 16.00 Kl. 17.30 Kl. 19.00 Kvöldferðir á sunnudögum frá Ak. kl. 20.30 ogfráRvík kl. 22. Tilkynningar Tapað Jakki tapaðist i HoUywood. Sá sem fékk afhentan grænan mittisleður- jakka, mjög auðþekktan) í HoUywood laugardaginn 29.10. vinsamlegast skUi honum aftur á Hrísateig 29, sími 35994 eða í Holly- wood. HÚS&HÍBÝU Víða komið við í nýjasta tbl. H&H Það kennir margra grasa i nóvemberhefti tímaritsins Hús og híbýli. I blaðinu eru mynd- skreyttar greinar um eldhússinnréttingar, garðstofur, hemabarinn, rósarækt, sænsk húsgögn, athygUsverð íbúðahverfi utan Parísar, gullfiskarækt, megrunarkúra, matreiðslubækur, kaup á notuðum hlutum, „virka afþreyingu fyrir konur á Viktoríu- tímanum”, handklæða- og þurrkofna, fjör- kipp í íslenskum smáiðnaði, auk þess sem í blaðinu er svo ein af hinum rómuðu uppskríft- um H&H að peysum. Þá má loks geta viðtals við stúlku, sem hefur verið við nám í arki- tektúr undanfarin sex ár. Eins og fyrr segir er blaðið rikulega skreytt litmyndum að vanda. Er þetta næstsíðasta tölublað ársins. Jóla- blaðið kemur út 1. desember. Ályktun um niðurfellingu sundfríðinda Nemendaráð Tækniskóla Islands mótmælir harðlega niðurfellingu sundfríðinda náms- fólks, sérstaklega þar sem íþróttaaðstaða fyrir nemendur í skólanum er engin. Telur ráðið þetta forkastanleg vinnubrögö þar sem ekki er um verulega fjárhæð að ræða af hálfu rikisins, en getur komið illa við heilsu og pyngju nemenda. Ályktun um lánamál námsmanna Nemendaráð Tækniskóla Islands fordæmir harðlega þann seinagang sem oröið hefur á úthlutun námslána á þessu hausti. Það eru forkastanleg vinnubrögð að um- sækjendum skuli ekki vera svarað, hvort þeir fái lán eður ei. Þetta hefur skapað óvissu og óöryggi á fjölda heimila, auk þess sem nemendur skólans hafa þurft að gera sér fjöl- margar ferðir á skrifstofu lánasjóðsins vegna þessa. Ennfremur teljum við það fáránlegt að frumgreinadeild skólans skuli ekki metin sem samfellt 2ja ára nám. Það þýðir að menn þurfa að taka víxillán þrjú ár í röð, þ.e. fyrst í undirbúningsdeild, síðan í raungreinadeild og loks á fyrsta ári í sérgreinadeildum. Við bendum á að hægast væri að eftir að menn væru einu sinni komnir inn í kerfi sjóðs- ins fengju þeir skuldabréf eftir fyrsta ár þar sem um samfellt nám er að ræða. Við kerfjumst þess að gerðar verði úrbætur í þessum málum svo að fjarvistir nemenda fari ekki úr hófi fram vegna baráttu við kerfið. bc m -GAMLA8 8/KKllR QG NVJA8 — HVEí?FI5GOTU 52 - REVKJAVÍK-SÍMl 29720 ÍSLAND Fágætar bækur f bóksöluskrá Bókavörðunnar Okkur er ánægja að senda yður til fróðleiks og kynningar bóksöluskrá Bókavörðunnar nr. 24/1983. Bókvarðan er verslun í Reykjavík með gamlar og nýlegar bækur. Skráin skiptist að þessu sinni eftir efnum í: Þjóðsögur og þjóðlegur fróðleikur, héraða- saga og ættfræði, íslensk og norræn fræði, tímarit og ritsöfn, saga lands og heims, ljóð kvæði, skáldsögur og smásögur, landlýsingar af norðurslóð, trúmál og prédikanasöfn, náttúrufræði, auk viðbætis og blöndu nýkom- inna rita. I þessari skrá er óvenjulega mikið af fágætum merkum bókum, sem sjaldan eru á markaði. Má þar t.d. nefna Alþýðubókina eft- ir Halldór Laxness, 2. útgáfu, Reykjavik 1947, en útgáfa þessi var einungis prentuð í 15 ein- tökum og eru nöfn viðtakenda skráð á eintökin. Einnig: Saga Reykjavíkur 1—2 bindi eftir Klemens landritara Jónsson, Arbækur Reykjavíkur eftir dr. Jón Helgason biskup, Kvæðabók Jóhanns Jónssonar skálds, hin f ágætu smákver eftir Jón Thoroddsen yngra: Flugur og María Magdalena. Einnig öll skák- tímarit sem prentuð hafa verið á Islandi. Tímaritið Skák frá upphafi, Islenskt skák- blaö, Skákritið, Skákblaðiö og fleiri. Fágæt- asta bók í skránni eru tvímælalaust bók dr. Konrads Maurers: Islandische Volkssagen der Gegenwart, en bók þessi var gefin út f Leipzig i Þýskalandi árið 1860, tveim árum fyrir hið mikla þjóðsagnasafn Jóns Arnason- ar. Maurer var velgjörðarmaður og leiðbeín- andi Jóns Arnasonar við söfnun þjóösagna. auk þess að vera virtur visindamaður i réttarsögu og lögvísi. Ekki er vitað til að bók þessi hafi verið seld hérlendis síðustu 30 árin, nema einu sinni. Bóksöluskrá þessa geta allir dreifbýlisbúar fengið senda ókeypis, en Stór- Reykjavíkurbúar fá hana afhenta í verslun Bókvörðunnar að Hverfisgötu 52. Frá Reykvíkingafélaginu Gerist félagar fyrir aðalfundinn 7. nóvember. Upplýsingar í símum 12371 og 18822. Opið hús hjá Geðhjálp Geðhjálp. Félagsmiðstöð Geðhjálpar, Báru-. götu 11 Rvík. Opið hús laugardaga og sunnudaga kl. 14—18. Þetta „opna hús” er ekki einskorðað við félagsmenn Geðhjálpar heldur og aðra er sinna vilja málefnum félagsins. Simi 25990. Átthagafólag Slóttuhrepps Kvennanefndin heldur árlegan haustfagnað laugardaginn 5. nóvember kl. 8.30 að Brautarholti 6 (efstu hæð) . Hljómsveitin Kjamar leikur fyrir dansi. Brauð er innifalið í miðaverðinu sem er kr. 300.00 á mann. Mætum og skemmtum okkur vel. Sími AA-samtakanna Eigir þú við áfengisvandamál að stríða þá er sími samtakanna 16373 milli kl. 17 og 20 dag- lega. Herrakvöld Valsmanna Herrakvöld Vals, hið fyrsta sinnar tegundar, verður haldið föstudaginn 4. nóvember nk. í Félagsheimili tannlækna, Síðumúla 35. Miðaverð er kr. 350 og er veislumatur innifalinn. Skemmtiatriði eru öll innanfélags og munu allir helstu skemmtikraftar koma fram. Einnig verður málverkauppboð. Upplýsingar og miðapantanir eru hjá Lárusi Loftssyni, s. 71359/86880, og Halldóri Einarssyni s. 31515/18355. Fótaaðgerð á vegum kvenfélags HaUgrimsklrkju fyrir aldraöa er alla þriðjudaga kL 13—16 í félags- heimili kirkjunnar. Tímapantanir eru í sím- um 39965 Dómhildur og 10745 á þriðjudögum kl. 13-16. 60 ára afmæli í dag.,2. nóvember, Njáll Símonarson framkvæmdastjóri Feröaskrifstofu Ulfars Jacobsen, Bólstaöarhlíö 68 hér í Rvík. Hann og kona hans, Svava Vilbergsdóttir, eru erlendis um þessar mundir. Heimilisfang hans ytra er: Hotel Simonis, Markt Platz 4 D-5401, Kobem — Godedorf, W-Germany. 85 ára afmæli á í dag, 2. nóvember, frú Haildóra Jóhannesdóttir frá Mosfelii í Mosfellssveit. Hún er nú vistmaöur á vistheimilinu Hlaöhömrum 2 þar í sveit. Eiginmaður hennar var Kristinn bóndi Guömundsson á Mosfelli. Halldóra verður aö heiman í dag. 90 ára afmæli á i dag, miðvikudaginn 2. nóvember, Ólöf Fertramsdóttir frá Nesi í Grunnavík, nú Stigahlíð 97 Reykjavík. Síldveiði í Fáskrúðsfirði I nótt fengu nokkrir bátar síld í Fáskrúðsfirði. I dag landar Guðmund- ur Kristinn 150 tonnum sem hann fékk í Fáskrúösfirði og Ljósfari RE landar 25 til 30 tonnum. Síldarsöltun hjá Pólar- síid er oröin rúmlega 7 þúsund tunnur. 1 dag landar einnig Jón Finnsson 30 til 40 tonnum hjá Sólborgu hf. Þar er búiö aö salta í um 400 tunnur. Æglr/Fáskrúðsfirði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.