Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1983, Page 35

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1983, Page 35
DV. MIÐVIKÚDAGUR 2. NÖVEMBER Í983.‘ ’ 35 Pjóðarbókhlöðubyggingin gnæfir þarna yfir gömlu skúrana vlð Melavöllinn en ekki er allt fengið með ytri glæsileík; gamli Melavöllurinn er þrátt fyrir óhrjáiegt útlit enn i fullu giidi, en bergmálið mun óma um innan tóma Þjóðarbókhlöðubygginguna um ókomin ár, efað líkum lætur. Fjárveiting til Þjóðarbókhlöðu skorin niður: Tilefni bygging- arinnar á tíu ára afmæli 1984 Samkvæmt frumvarpi til fjárlaga næsta árs verður fjárveiting til bygg- ingarsjóðs Þjóðarbókhlöðu einungis tvær milljónir króna, sem er 13 milljón krónumminnaenáfjárlögum þessa árs. Fyrir þessar tvær milljónir er fyrst og fremst áætlað að ljúka þeim verkefnum, sem staðið hafa yfir á þessu ári, en það er frágangur á húsinu utanverðu. Verði fjárveitingin ekki hærri mun húsið líklega verða fokhelt á næsta ári en síðan yrðu framkvæmdir innanhúss að biða þess að Alþingi léti fé af hendi rakna til byggingarinnar. Sögu Þjóðarbókhlöðunnar má rekja aftur til ársins 1967 er byggingarsjóður hennar var stofnaður. Arið 1970 ákváðu svo alþingismenn af mikilli rausn að Þjóðarbókhlaða skyldi byggð í tilefni 1100 ára afmælis Islands- byggðar 1974. Þjóðarbókhlöðunni var og er ætlað að hýsa tvö af stærstu rannsóknarbóka- söfnum landsins, Landsbókasafnið og Háskólabókasafnið. Að auki mun bygging Þjóðarbókhlöðunnar leysa húsnæðisvanda Þjóöskjalasafnsins i bili þar sem það fær til umráða allt Safnhúsið við Hverfisgötu, sem nú hýs- ir bæði Þjóðskjalasafnið og Lands- bókasafnið. Framkvæmdir við Þjóðarbókhlöð- una hófust svo í janúar 1978 og var hús- inu valin lóð rétt vestan við gamla Melavöllinn við Suðurgötu. Þessar byrjunarframkvæmdir stóðu yfir til ársloka 1978 en þá var gert hlé á þeim. Hafist var handa að nýju 1980 og hefur verið unnið að byggingunni óslitið síöan, en ef ekki fæst hærri f járveiting en gert er ráð fyrir á fjárlögum næsta árs, er fyrirsjáanlegt að framkvæmdir stöðvist. Samkvæmt upplýsingum Finnboga Guðmundssonar landsbókavarðar og formanns byggingarnefndar Þjóðar- bókhlööu, hefur alls verið veitt rúm 41 milljón króna til byggingarinnar frá upphafi. Séu þessar miUjónir reiknað- ar fram á gengi krónunnar í sumar verðaþærum90'. I áætlun, sem byggingarnefndin lét gera í vor, er gert ráð fyrir að til að ljúka byggingunni þurfi nú um 180 mUljónir króna. Þvi sé einungis búið að veita einn þriðja þess fjármagns, sem þarf tU að ljúka byggingunni og á næsta ári eru tiu ár síðan tUefnið tú byggingarinnar, 1100 ára búsetuaf- mæUö, var. Aætlunin miðaði ennf remur að því að byggingunni yrði lokið á næstu f jórum árum, en nú er nokkuö ljóst að af því getur ekki orðið. Við leituðum áUts forstööumanna þeirra þriggja safna, sem bygging Þjóöarbókhlöðunnar shertir, á fyrir- huguðum niðurskurði á f járveitingu tU byggingarinnar. SþS „Setjum traust okkará mennta- málaráð- herra” — segirFinnbogi Guðmundsson landsbóka- vörður „Við erum ekki ánægðir eins og að likum lætur,” segir Finnbogi Guömundsson, landsbókavöröur og formaöur byggingarnefndar Þjóöarbókhlööu, er hann er inntur álits á niöurskurði fjárveitinga tU framkvæmda við Þjóðarbókhlöðu, sem lagður er tU í f járlögum næsta árs. „Þaö er allt annað að hægja á framkvæmdum við bygginguna en að skera þær niður við trog eins og þama er lagt til. Við gerum okkur grein fyrir því að það væri eðlUegt að hægja á sér en við væntum þess auðvitað að framkvæmdir verði ekki stöðvaðar,” segir Finnbogi. Hann bendir á aö ekki sé ÖU nótt úti enn og mögulegt að breytingar verði á í meðförum þingsins. „Við setjum traust okkar á Ragnhildi menntamálaráðherra, að hún beiti sér fyrir því að fram- lagiö til byggingarinnar verði hækkað svo að unnt verði aö halda áfram,” segir Finnbogi. Er hann er spurður hvaða afleiðingar það hafi í för með sér nái tUlögur fjármálaráðherra um niðurskurð fram að ganga, segir Finnbogi að það muni skjóta því á enn lengri frest að rætist úr húsnæðismálum Landsbókasafns- ins og ekki einungis þess heldur einnig Háskólabókasafns og Þjóð- skjalasafns, en öll þessi söfn séu meö bækur og skjöl í geymslum víðs vegar um bæinn. „Það er fyrirsjáanlegt að engin fullkomin bót verður þarna á fyrr en bókhlöðusmiðinni lýkur,” segir Finnbogi Guðmundsson lands- bókavörður. sþS „Lít alvarlegum augum á þennan niðurskurð” segir Einar Sigurðsson, forstöðumaður Háskólabókasafns ,Jíg lít náttúrulega stóralvarlegum augum á þennan niðurskurð, þvi þama er um aö ræða stöðvun á byggingu hússins,” segir Einar Sigurðsson, for- stöðumaður Háskólabókasafns, er hann er spuröur álits á niöurskurði If járveitingar til byggingar Þjóðarbók- ihlöðu. Það kemur fram hjá Einari að húsnæðisvandræöi Háskólabókasafns- ins eru gífurieg. Safnið er með geymsl- ur á leigu á tveimur stöðum í bænum, lestrarhúsnæði á vegum Háskólans er á mllli sjö og átta hundruð sæti og þaö dreifist einnig um bæinn, i húsnæöi sem Háskólinn hefur keypt eða leigt. Nokkuð af því er að vísu í byggingum Háskólans við Suöurgötu en annað i bráöabirgðahúsnæði viðs vegar um bæinn. „Astandiö hér i safninu sjálfu i aöal- byggingu Háskólans er þannig aö sæti eru fyrir 12—15 manns, hitt er allt saman einhvers staðar annars staðar í tegnslum viö útibú safnsins eða bara i lesstofum þar sem engar bækur eru,” segirEinar. Við aðstæður sem þessar telur Einar að útilokað sé aö reka bókasafn. Hann nefnir aö nú sé mikiö talað um upp- lýsingabyltingu víös vegar i veröldinni en þaö sé ijóst að öflug upplýsinga- starfsemi verði ekki rekin til fram- búðar með þessari aðstöðu. Einnig sé talað um að tengja námið meira notkun námsgagna, ritanotkun, en ekki náist verulegur árangur i þá veru við þessar aðstæður. , JEf það verða til dæmis engar úr- bætur á húsnæðismálum safnsins í heilan áratug er vont að sjá hvernig menn fara að, ” segir Einar. SþS. „Safnahúsið dugir okkur ekki lengi” — segir Bjarni Vilhjálmsson þjóðskjalavörður „Eg harma þennan niöurskurö," skurðinn framaöganga muni þær þó segir Bjarni Vilhjálmsson þjóð- enntefjafyriraðrýmkiumsafoiö. skjalavöröur um áform um niður- „Eg vtt þó benda á það að þótt skurð fjárveitinga ttt Þjóöarbók- Þjóðskjalasafnið fái allt Safoahúsiö hlöðu sem fram koma í fjárlögum hér við Hverfisgötuna verður það næstaárs. aldrel endanleg lausn á húsnæðis- „Eg fullyrði ekkert um þörfina á málum safnsins, þaö eru svo óskap- þessum niðurskuröi en vona bara að lega miklar skjalabirgðir til i land- meira fé verði veitt næst, hvenær inu,” segir Bjami. sem það veröur, til að rakni nú eitt- Það er von hans að þegar Þjóðar- hvað úr þeim húsnæðisvandrteðum bókhlöðubyggingunni ljúki verði far- semsöfoinþrjúeruí,”segirBjami. ið að hugsa til nýrrar byggingar Hann segir að ástandið hjá fyrir Þjóðskjalasafnið. Þjóöskjalasafninu hafi verið erfitt „Það er framtíöarverkefoið,” árumsamanoggetívartorðiöverra segir BJami Vilhjálmsson þjóð- en þar er. Nái áætlanimar um niöur- skjalavöröur. SjjS.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.