Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1983, Page 37
,a»8t HaaMavovf .s HUOAauaivaiM .va
DV. MIÐVKUDAGUR 2. NOVEMBER1983.
37
Guðjón Einarsson, skipstjóri á Skarfi, ræðir við fulltrúa Eimskips.
DV-mynd GVA.
Fundum menn-
ina strax
— segir Guðjón Einarsson, skipstjóri á Skarfi GK,
sem var meðal þeirra fyrstu á slysstað
„Við komum á slysstaðinn um það
bil þremur stundarf jórðungum eftir að
skipið sekkur,” segir Guðjón Einars-
son skipstjóri á Skarfi GK, en Skarfur
var með f yrstu bátum á sly sstaðinn.
Skarfur var ásamt fleiri bátum frá
Grindavík á leið til síldveiða fyrir
Austurlandi er neyðarkallið barst frá
Kampen.
„Astandið á slysstaðnum var hrika-
legt þegar við komum þangað, brak
um allan sjó og allt löðrandi í olíu. Við
fundum þó mennina strax, einir átta
héngu á einhvers konar gúmmídruslu
en hinir á öðru braki eða á sundi í sjón-
um. Það var afarerfitt að sjá nokkuð,
allt var kolsvart þarna og aðeins
höfuöin á mönnunum sjáanleg upp
úr,” segir Guöjón.
Mennirnir höföu verið í sjónum í allt
að klukkustund er fyrstu bátamir
komu að og mjög af þeim dregið og
nokkrir líkast til þegar látnir.
„Við náöum tveimur af þeim sem
héngu á gúmmídruslunni um horö til
okkar en Hópsnesið tók hina sex. Við
náöum síðan einum í viðbót, aftan við
bátinn, þar sem hann hékk á spýtu,”
segir Guöjón.
Hann telur að allir þrír hafi verið á
lífi er þeir náðust um borð en einn lést
skömmu síðar. Hinir tveir voru nokkuö
hressir þrátt fyrir allt.
Á meðan enn var talin von um að
þriðji skipverjinn væri á lífi voru
fengnir tveir sjúkraliðar frá annarri
varnarliðsþyrlunni, sem komið hafði á
staðinn, en því miður gátu þeir ekkert
að gert. Urðu þeir að koma með bátn-
um inn til Eyja því svo slæmt var
veörið aö ekki tókst að hifa þá upp i
þyrluna aftur.
„Þetta er afaróskemmtileg lífs-
reynsla að lenda i svona nokkru,”
segir Guðjón, en hann hefur ekki fyrr
lent í því að bjarga mönnum úr sjó. SþS
Skipskaðinn átti sár nokkurn aðdraganda og tókst nokkrum skipverjum að
bjargapersónulegum munum sinum fráborði. DV-myndir GVA
Hörður Sigurgestsson, forstjóri Eimskips:
Tryggingarmálin
okkur óviðkomandi
„A þessum árstíma er ekkert óeðli-
legt við þaö að skipum seinki á leiðinni
til landsins og rey ndar f réttum við ekk-
ert af vandræðum .JKampen” fyrr en
um sexleytið í gærkvöldi,” sagði
Hörður Sigurgestsson forstjóri Eim-
skips nú í morgun. Nokkurri furöu
hefur sætt að skipið skuli ekki hafa
beðið um aðstoð fyrr en allt var komið í
óefni, 15 gráða slagsíða mun hafa verið
á því á annan sólarhring og er likum að
því leitt að tryggingarmál komi þar
innímyndina.
„Leiguskip sem þessi eru aldrei í'
sambandi við okkur heldur við út-
geröarfyrirtæki sín erlendis, hvort
sem um er að ræða matarskort eða
aðra vöntun. 1 þessu tilviki er
„Kampen” í sambandi við útgerðar-
fyrirtæki sitt í Hamborg og fréttum við
ekki af vandræðum þess fyrr en kl. 6
þegar útgerðarfyrirtækið hefur sam-
band við okkur og spyr hvort ekki sé
allt í lagi. Þá komum við af fjöllum en
þar hefjast afskipti okkar fyrst.
Tryggingarmál öll vegna þessa
atburðar eru í höndum útgerðarinnar í
Hamborg og koma okkur því ekki við,”
sagði Hörður Sigurgestsson.
-EIR.
„Þetta var mikil Hfsreynsia," sögðu Sigurður Sævarsson, Ásgeir Runólfsson og Þorvaldur Þorvaldsson,
skipverjar á Skarfinum, um björgunaraðgerðirnar ígærkvöldi. D V-mynd GVA
„Búnir að vera tvo sólar-
hringa með hallandi skip”
— segja þrír skipver jar á Skarfinum,
sem kom fyrstur á vettvang
„Þeir voru búnir að vera tvo sólar-
hringa með hallandi skip. Það kom
sjór í lestamar eftir að tíu eða tólf
lúgurfóruaf stað.”
Þetta sögðu þeir Sigurður Sævars-
son, Ásgeir Runólfsson og Þorvaldur
Þorvaldsson, skipverjar á Skarfinum,
sem kom fyrstur skipa á vettvang í
gærkvöldi.
— Vitið þið af hverju þeir komust
ekki um borð í björgunarbátana?
„Lúgumar eyðilögðu bátana, þegar
þærfóruafstað.”
Þeir félagar sögðu, að þýsku skip-
brotsmennimir hefðu albr verið í
björgunarvestum og að þeir hefðu
hangiö nokkrir saman á spýtnabraki.
„Þetta var mikil lífsreynsla,” sögðu
Siguröur Sævarsson, Asgeir Runólfs-
son og Þorvaldur Þorvaldsson
skipver jar á Skarfinum.
-GB
Björgunarsveitarmenn ttytja lik skipstjóra Ms. Kampen iland úr Kópi frá Grindavik.
ALLAR AÐSTÆÐUR
MJÖG ERFIÐAR
— segir Jóhannes Jónsson, skipstjóri á Kópi GK,
en áhöfn hans náði síðasta skipverjanum
af Kampen úr sjónum
Báðir mennirnir sem við náðum upp
reyndust látnir, segir Jóhannes Jóns-
son, skipstjóri á Kópi GK.
„Við komum á slysstaðinn um
klukkan hálftíu en þá voru þegar
komnir nokkrir bátar á staðinn,” segir
Jóhannes Jónsson, skipstjóri á Kópi
GK, en Kópur var einn þeirra fimm
báta sem björguðu skipbrotsmönnum
af Kampen.
„Allar aðstæður voru mjög erfiðar
þarna, mikið brak á floti og olíubrák.
I Við náðum siðasta manninum en það
var upp úr klukkan ellefu og var það
lík skipstjóra Kampen,” segir
Jóhannes.
Hinn skipverjinn sem þeir á Kópi
náðu um borð reyndist einnig látinn.
Kópur var, eins og hinir bátamir
sem komu á slysstaðinn, á leið til síld-
veiða fyrir Austurlandi.
SþS