Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1983, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1983, Qupperneq 4
4 DV. FIMMTUDAGUR 24. NOVEMBER1983. NÝTT LÍF-MÁL í UPPSIGUNGU? — Time segir Frjálst framtakfara íkringum hæsta- réttar- dóminn Utgáfufyrirtækið Time Incor- porated, sem á vörumerkið „Life” skrásett hérlendis, vill ekki una því aö Frjálst framtak breyti nafni tísku- blaðs síns úr Líf yfir í Nýtt líf. Eins og DV hefur greint frá höfðaði Time mál á hendur FF fyrir notkun nafnsins Líf á tískuriti sínu. Hæstaréttardómur hér féll á þann veg aö FF væri óheimilt að nota nafniö Lif. Magnús Hreggviðsson, stjórnarfor- maöur FF sagðist mundu hlíta þessum dómi og breyta nafninu. Akvað hann að blaöið skyldi framvegis heita Nýtt lif. Time Incorporated álítur hins vegar aö með þessu sé hann að fara í kringum dóminn því að áfram noti hann Líf, en bæti aðeins lýsingarorðinu ,,nýtt” fyrir framan. Það er skoðun fyrirtækisins, að hafi notandi vöru- merkis verið dæmdur til að leggja það niöur, verði hann skv. þeim vöru- merkjalögum sem í gildi eru víöast í heiminum, aö taka upp eitthvert gjör- ólíktnafnístaðinn. Sigurgeir Sigurjónsson hrl., sem rak mál Timé Incorporated fyrir báðum réttum hér, sagöi í viötali viö DV að líkja mætti þessu viö að dagblaöaút- gefandi færi að kalla blað sitt Nýtt Morgunblað. Eða að gosdrykkjafram- leiöandi nefndi gosdrykk sinn Nýtt Coka-Cola án þess aö þeir teldu sig vera að líkja eftir nöfnunum: Morgun- blaðið og Coke. Sagði hann aö Time Inc. hefði sýnt mikinn samningsvilja í málinu. Frá því aö því var fyrst hreyft og þar til það var tekið til meðferðar í undirrétti hafi t.d. liöiö tvö ár án árangurs. Time Inc. hafi jafnframt boðið upp á þá málamiðlun að FF mætti nota nafnið: Tískublaöiö Líf, að því tilskyldu aö letrið væri jafn stórt í báðum orðum, en því hafi ekki veriö tekið og stendur því ekki lengur til boða. Sigurgeir hefur nú ritaö FF bréf þar sem sjónarmiö Time Inc. er útskýrt. Sagði hann að ef nafninu yröi ekki gjör- breytt, gæti komið til lögbanns á út- gáfu blaösins og nýrra málaferla. Ekki reiknaöi hann með aö jólablaðið yrði stöðvað þótt þaö héti Nýtt líf, enda heföi Time Inc. sýnt fulla sanngirni í málinu í heild, eins og fram kemur hér aöframan. -GS. Frá æfingu Leikf élags Rangæinga á Skjaldhömrum. Leikritið verður frumsýnt i Heflubioi á fostudag. DV-mynd Haildór Kristjánsson. Leikfélag Rangæinga: Skjaldhamrar á f jalirnar 1979, Litla Ljót 1980 og Getraunagróði 1982. Frá Halldóri Kristjánssyni, frétta- ritara DV á Skógum. Iæikfélag Rangæinga frumsýnir Skjaldhamra Jónasar Arnasonar í Hellubíói föstudaginn 25. nóvember í tilefni 60 ára afmælis höfundarins. Leikstjóri og annar aðalleikari Skjaldhamra er Arnór Egilsson héraðslæknir. I samtali við frétta- mann DV sagði hann, ið allir sem stæðu aö sýningunni væru algjörir áhugamenn, en þó staðráönir í að skapa heilsteypt leikhúsverk. Hann kvaö óþarft að fjölyrða um ágæti verka Jónasar, því vinsældir þeirra spegluðust í aösókn. Arnór taldi nauösyn aö fram kæmi hve mikið og óeigingjamt starf allt aöstoðarfólk heföi unniö til aö gera sýningu sem þessa mögulega. An þess yrði framkvæmdin ógjörleg. Amór Egilsson sagði einnig að ýmsir aörir sýndu leikfélaginu góðan hug, t.d. léti Rangárvallahreppur í té aðstööu til æfinga endurgjaldslaust. Sama sveitarfélag hefur og heitið fjárstuðningi. Forráðamenn Hvol- hrepps hafa líka lofað aöstoð. Skjaldhamrar eru fjórða stóra leikverk leikfélagsins frá stofnun þess árið 1978. Áður hefur félagið sýnt eftirtalin leikrit: Allir í verkfall Á vegum Leikfélags Rangæinga hafa einnig veriö haldin leiklistar- námskeið og fjölskylduskemmtanir, svo eitthvað sé nefnt. Önnur sýning á Skjaldhömrum veröur í Hellubíói laugardaginn 26. nóvember. Aðrir áætlaðir sýningar- staöir eru Gunnarshólmi, Njálsbúö, Félagsheimili V-Eyfellinga og Arnes. Núverandi stjórn Leikfélags Rang- æinga er skipuð þeim Ásgerði Ásgeirsdóttur, Jönu Guðmunds- dóttur og Árna Þorgeirssyni. -GB. Raunvextir almennt orðnir jákvæðir: Útsölulán til atvinnuveganna nær úr sögunni I þeim þrem vaxtalækkunum sem orðiö hafa síðustu vikumar hafa vextir á afuröalánum atvinnuveganna lækkað lang minnst. Nafnvextir þeirra eru nú aðeins 1% lægri en á víxillánum og hlaupareikningslánum eða 27% á móti '28%. Skuldabréfalán eru hins vegar dýrari eða með 33% vöxtum. Þetta er mikil breyting frá því sem var til skamms tíma, enda er lækkun ársávöxtunar afurðalánanna 7,5% á móti 15,2—16,8% af hinum lánunum. Afuröalánin eru því ekki lengur þau útsölulán sem var þegar verðbólgan var sem mest. Þá er einnig svo komið með því aö verðbólgan er nú komin niður í um 30% miðað við heilt ár, að raunvextir . tímabundinna spariinnlána og útlána eru jákvæðir og í „viðunandi samræmi við verðtryggð lán”, eins og segir í skýringumSeðlabankans. Þannig eru raunvextir af 12 mánaöa sparisjóðsinnlánum nú 3,5% en af bundnum 6 mánaða til 5 ára verö- tryggöum innlánum á bilinu 2—3%. Raunvextir af þriggja mánaöa óverð- tryggöum innlánum eru hins vegar 1,7%. Af hlaupareikningsútlánum eru þeir 3,3% og af víxilútlánum 2,5%. Hæstir eru þeir af skuldabréfalánum eða 4,4%. Jákvæðir raunvextir eru „sérstak- lega mikilvægur þáttur þeirrar al- mennu stefnu að ná efnahagslegu jafn- vægi og þá einkum aö draga úr hall- anum út á við”, segja Seölabanka- menn. Meö öðrum orðum er vonast til aö þessi staöa á lánamarkaönum liðki fyrir og hvetji til spamaöar og innlána í vaxandi mæli á ný, svo að unnt veröi að nota fremur innlent lánsfé en erlent til rekstrar atvinnuveganna og fjár- festingaralmennt. -HERB. I dag mælir Dagfari I dag mælir Dagfari I dag mælir Dagfari Fátt hefur vakið jafnmikla athygli og sú framtakssemi Alberts Guömundssonar að bjóða til útsölu á ríkisfyrirtækjum. í fyrri viku lét hann þau boð út ganga að hann hefði gcngiö frá frumvörpum um sölu á átján ríkisfyrirtækjum og lægju þau tilbúin í f jármálaráðuneytinu. Ríkis- fyrirtækjunum er samviskusamlega skipt milli ráðuneyta og getur nú hvaða ráðherra sem er labbað sig upp í Arnarhvol og orðið sér úti um frumvarp aigjörlega að kostnaðar- iausu fyrir sig og sína. Kennir þar ýmissa grasa, allt frá tilraunastöðvum í landbúnaði til Um- ferðarmiðstöðvarinnar í Rcykjavík sem slegið verður á þriðja höggi hverjum þeim sem telur það ómaksins vert að gera tilboð. Svo undarlega bregður við að greiðvikni Alberts hefur verið illa tekið og fáiega af starfsbræðrum hans í ríkisstjórn. Þeir bregðast hvumpnir við og þykjast geta samið sin eigin frumvörp sjálfir. Þetta eru óþarfa mannalæti og vanþakklát viðbrögð. Albert er kaupsýslumaður af guðs náö og hefur komist í álnir einmitt fyrir þá sök að kunna að á- vaxta sitt pund. Hann kann bæði að Landsbókasafnið og Þjóðarbók- hlöðuna og semja útboðsgögn fyrir grunnskólana. Þjóðleikhúsið og spítalarnir hljóta að vera álitleg söluvara, eftir að læknar sjá sér hag í aö reka spítala á eigin spýtur. Og hvaö um Há- skólann, Rafmagnsvcitur ríkisins og Póstog síma? AUt má þetta selja á cinu bretti, enda nægir kaupendur ef miðað er við námsmannafjöidann í Há- skólanum, sjúklingaskarann á Land- spítaianum og kjaftaganginn í simanum. í raun og veru kemur vel til greina að selja ráðuneytin sjálf, enda hvað eigum við að gera með landbúnaðar- ráðuneyti og menntamálaráðuncyti þegar landbúnaður og menntun seljast hæstbjóðanda meðal þeirra sem búskap og bóklestur stunda? Verra er með alþingi. Þar eru sextíu þingmcnn á launaskrá og þótt þeir séu að nafninu til á vegum þjóðarinnar þá verður að efast um að til séu kaupendur sem geta haft arð af pródúktinu þaðan. Og þó, Albert er kaupsýsiumaður af guös náð. Hann er til alls líklegur. Dagfari. Útsala hjá Albert kaupa og selja og sú þjónusta við frumvarpsgerð sem boðin er fram af hans hálfu er í anda þeirrar kaupsýslu sem gerir rikissjóð ríkan, cins og Albert sjálfan, þegar upp er staðið. Hér hcfur fjármálaráðherra sömuleiðis opnaö leiö til almenns sparnaðar í mannahaldi í öðrum ráðuneytum því hvers vegna i ósköpunum ættu einstakir ráðherrar að halda uppi dýru starfsliði til frum- varpssmíðar þegar þjónustan fæst ókeypis í f jármálaráðuncytinu? Frumkvæði Albert Guðmundsson- ar hefur þannig margar hliðar og allar góðar og skynsamlegar. Sá fyrirsláttur er hafður uppi að ekki fáist kaupendur. Þetta er mikill misskilningur eins og nú skal rakið: Útsýn og Urval geta keypt Fcrða- skrifstofu rikisins, Eimskip og Haf- skip kaupa skipaútgerðina, heild- salar kaupa Grænmetisverslunina og Örn og Örlygur fcsta kaup á söludeild Námsgagna- stofnunarinnar. Umferðarmiöstöðin fer til Ulfars Jaeobsen og Áburðar- verksmiðjan til Stéttarsambands bænda. Svona mætti áfram telja. Ferðalangar gera tilboð í Fríhöfnina og sjúklingar í Lyf javerslunina. Það vantar aðeins að Albert bjóði Áfengisverslunina til sölu. Þar verða nógir um boðið. í næsta áfanga þarf Albert síðan að bjóða almenningi að kaupa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.