Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1983, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1983, Page 6
DV. FIMMTUDAGUR 24. NOVEMBER1983. DELMA QUARTZ - ÚR FRAMTÍÐARINNAR. ÍÞRÓTTABÚÐIN Borgartúni 20, simi 20011 SKOKKARAR-SKOKKARAR LOKSINS eru hinir vinsælu\ jKKF ^ loftpúðaskór komnir aftur. Pantanir óskast sóttar sem fyrst. SENDUM í PÓSTKRÖFU LOSNIÐ m ÍSINGUNA hrimið. regn og óhreinindi af bfl- rúðum með RAIN-X. Úryggi í akstri. Fæst á öllum bensin- stöðvum. ] EN N E1 0 >N LEIÐANDI STAÐUR PlZZA HÚSIÐ ■sem allir þekkja -þústíQirbamtíinann. SKIPHOLTl 7 SIMAR 20' Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Vikuleg verðkönnun DV: MESTUR VERÐ- MUNUR Á BEIKONI Að venju fór okkar vikulega verð-, könnun fram sl. mánudag. Að þessu sinni leggjum við höfuðáhersluna á ávexti og grænmeti. Þaö er reyndar ákaflega erfitt að gera réttlátan verösamanburð á þessum vöruteg- undum. Það geta veriö mismunandi gæði á vörum sem eiga kannski bara það sameiginlegt að heita þaö sama. Rauð epli í einni verslun geta verið mjög frábrugðin rauöum eplum í annarri. Við heimsóttum 4 verslanir. Voru þaö 3 stórmarkaðir, reyndar mis- munandi stórir: Hagkaup, Mikli- garður og Vörumarkaðurinn á Sel- tjamamesi, og einnig Kommarkað- urinn sem er lítil verslun á Skóla- vörustígnum en hefur nokkuð mikið úrval af grænmeti og ávöxtum. Þessi verslun selur ekki kjötvörur. Stórmarkaðirnir Þaö hefur varla fariö fram hjá neinum hér í Reykjavík aö nýr stór- markaöur hefur bæst í hópinn. Það virðist sem allar leiðir hafi legið til Miklagarðs. Þegar okkur bar að garöi var mikill fjöldi fólks aö versla. Bilastæðin fyrir utan voru þéttskipuð bílum og langar biðraðir viö kassana töluðu sínu máli. Þaö var hins vegar afar rólegt í hinum stórmörkuðunum, Hagkaupi og Vörumarkaðinum. I smáversluninni Kornmarkaðinum var þó nokkuð mikið af fólki. I Vörumarkaðinum fengum við þær upplýsingar að þar hefði veriö fremur rólegt fyrir helgi en það væri að sjálfsögðu qkki óvænt þar sem flestar matvöruverslanir hefðu haft opið til kl. 1R á laugardag. Einnig er þetta slæmur tími fyrir krítarkortahafa að versla og svo var að sjálfsögðu opnaður nýr stórmark- aður. Egill Viggósson, innkaupastjóri í Miklagarði, sagöi að þar væri stöðugur straumur viðskiptavina. Þeir hefðu þurft aö senda þaö fólk, sem átti að fylla upp í hillurnar, á kassana. Það þyrfti því að vinna það verkíkvöldogínótt. Spurning sem brennur á vörum margra Með þessari verökönnun getum við ekki svarað þeirri spumingu sem viröist brenna á vörum margra borgarbúa þessa stundina: Hvar er ódýrast? Er ódýrara í Miklagaröi en í Hagkaupi? Eöa hvar er best að versla? Forvitni fólksins er mikil en gera má ráð fyrir að hún minnki þegar fram líða stundir. Spuming- unni um hvort einhver einn stór- markaður laði til sín alla viðskipta- vinina er erfitt aö svara núna. En það er ljóst að nýir straumar eru í þessum málum og verðum við að bíða um sinn og sjá hvað setur. Grænmetismarkaður Allar þessar verslanir hafa nokkuð gott úrval af grænmeti og ávöxtum. Stórmarkaðirnir hafa allir sérstök Hluti af hinum nýja grænmetismarkaði í Hagkaupi. Þar eru á boðstólum 40 grænmetistegundir og 26 ávaxtategundir. DV-mynd Bj.Bj. svæði sem ætluð eru fyrir þessar vörur. Hagkaup hefur nýveriö stækkað verslunina og komið fyrir eins konar grænmetistorgi. Sæmundur Gunnarsson, innkaupa- stjóri í Hagkaupi, sagði að þeir hefðu 40 grænmetistegundir og 26 ávaxta- tegundir á boðstólum. AUt væri á Hagkaupsveröi og reynt væri aö hafa verðið sem lægst. Grænmetistorg þessara þriggja stórmarkaöa eiga eitt sameiginlegt og það er sá háttur sem hafður er á við að vigta vörurnar. Viöskipta- vinunum gefst nú kostur á aö vigta sjálfir vörur sínar á mjög einfaldan hátt. Hugsanlegt er þó að þetta fyrirkomulag geti reynst einhverjum erfitt til að byrja með. En þetta venst eins og aðrar nýjungar. Á öllum stöð- unum er afgreiðslufólk í næsta nágrenni sem getur veitt aðstoð ef þörf krefur. í Kornmarkaðinum er hins vegar vigtað upp á gamla mátann. Lægsta og hæsta verð Eins og viö bentum á hér að framan er nokkuð erfitt að gera raunhæfan verðsamanburð á þessum vörum. Með það í huga skulum við líta nánar á hæsta og lægsta verð. Munurinn á lægsta verði og því hæsta er í krónutölu 344,40 sem þýöir að samanlagt hæsta verð er 34,6 prósentum hærra en saman- lagt lægsta verö. Það er erfitt aö benda á að ein þessara verslana sé ódýrari en hinar. Við látum lesendur um aö rýna í töfluna og spá í það hvar sé hagstæðast aö gera innkaupin. Smjörvinn Smjörvinn er á dagskrá hjá okkur sem fyrr. Lægsta verðið er í Hagkaupi og það hæsta í Miklagaröi. En allir þrír stórmarkaðarnir eru með veröiö undir algengasta verðinu um þessar mundir og verðmunurinn er lítill. Egg og beikon Sama eggjaverð er í öllum versl- ununum sem er fremur óvenjulegt HÆSTA OG LÆGSTA VERÐ Hæsta Lægsta Mismunur. Smjörvi 61,75 58,55 3,20 Egg 89,00 89,00 0,00 Beikon 368,50 252,00 116,50 Kjúklingar 155,20 130,00 25,20 Epli.rauð 59,00 35,00 24,00 Epli, græn 50,00 36,00 14,00 Appelsínur 53,80 38,00 15,80 Mandarínur 86,00 44,80 41,20 Paprika, græn 139,30 81,70 57,60 Vínber, græn 80,20 68,50 11,70 Rófur 38,40 29,00 9,40 Laukur 28,90 23,10 5,80 Hvítkál 39,50 33,40 6,10 Gulrætur 89,60 75,70 13,90 Samtals 1339,15 994,75 344,40 Hagkaup Mikligarður Vörumarkaðurinn Kornmarkaðurinn Dagsetning 21.11. Skeifunni Sund Seltjarnarnesi Skólavöröustíg Smjörvi 58,55 61,75 59,00 Egg 89,00 89,00 89,00 Beíkon 252,00/368,00 294,80/368,50 282,00 Kjúklingar 130,00 142,35 155,20 Epli, rauð 48,50 37,50/53,00 35,00/59,00 49,00/52,50 Epli, græn 39,70 50,00 36,00 42,00 Appelsínur 42,80/49,80 42,10/53,80 47,60 38,00/52,90 Mandarínur 44,80 48,40 71,50 86,00 Paprika.græn 138,20 139,30 81,70 135,00 Vínber, græn 80,20 79,10 68,50 69,90 Rófur 38,40 29,50 29,00 38,00 Laukur 27,10 28,90 23,10 ekki til Hvítkál 36,90 39,50 33,40 36,00 Gulrætur 89,60 75,70 ekki til ekki til. miðað við fyrri verðkannanir okkar. Verð á beikoni er hins vegar ærið misjafnt. Munurinn á lægsta og hæsta verði er hvorki meira né minna en 116,50 kr. Odýrasta beikoniö er að fá í Hagkaupi á 252 kr. kílóiö og er það beikon sem verslunin pakkar sjálf í lofttæmdar umbúðir. Engin þessara verslana hafði beikon í lausasölu. Kjúk/ingar Kjúklingarnir eru ódýrastir í Hagkaupi og dýrastir í Vörumarkaö- inum. Mikligarður er svo mitt á milli með 142,35 kr. kílóið. Rauð og græn epli Odýrustu eplin voru reyndar í Kornmarkaöinum á 24 kr. Þau voru ekki vel útlítandi en sjálfsagt góð í bakstur eða niðursuðu. Vöru- markaðurinn er hins vegar bæði með lægsta og hæsta verð á rauðum vel útlítandi eplum. Þar voru ákaflega girnileg epli fráKanada á 59 kr. Verö á eplum, hvort sem þau eru græn eöa rauö, er nokkuð mismun- andi og oft um mismunandi tegundir að ræða. Appelsínur og mandarínur Það er sama að segja um þessar vörur og eplin. Veröiö er mismun- andi og tegundir margar. Korn- markaðurinn er með hæst verð á mandarínum en átti von á ódýrari mandarínum á næstunni. Paprika Við könnuðum verð á grænni papriku en yfirleitt virtist vera sama verð á paprikunni hvort heldur hún var græn eða rauð. Vörumarkað- urinn er meö langlægsta verðiö. Munurinn á lægsta og hæsta verði er 57,60 kr. Grænmeti Munurinn á verðinu á rófunum er tæplega 10 kr. á kíló. Einnig er nokkur verðmunur á gulrótunum en þær voru einungis fáanlegar í tveim- ur verslunum. Verð á lauk og hvít- káli er nokkuð jafnt en engin verslun hefur þó sama verð. Hvergi sama verðið nema á eggjum Eina verðið sem er það sama á öllum stöðunum er verð á eggjum. Annars er athyglisvert að engin þessara verslana er meö sama verð á sams konar eða álíka vörum. -A.P.H.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.